Alþýðublaðið - 01.10.1947, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 01.10.1947, Blaðsíða 4
4 AU*Ý®liBLAÐBÐ Miðvikudagur 1. ökt. 1947 Skömmtunin er skollin á. — Kaffi og bensín knapnt- — Raddir fólksins í gær. — Hlustað í Góðtemplarahúsinu. — Nauðsyn brýtur lög. — Þegnskapur állra í baráttunni gegn aðsteðjandi erfiðleikum. ‘ ÞÁ ER SKÖMMTUNIN Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Stefáa Pjetursson. Fréttastjóri: Reneðikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Riitstjórnarsimar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. ASsetur: AlþýSuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h.f. Nauðsynleg réðslöf- un, en nægir ekki. VIÐSKIPTANEFNDIN. hef- ur nú ákveðið skömmtun á ýmsum vörutegundum, og gengur hún í gildi frá og með þessum mánaðamótum. Hefur verið gerð ýtarleg igrein fyrir skömmtuninni, og má segja. að hún sé á flestum sviðum rífleg, nema hvað tekur til klæða, vefn- aðarvöru og skófatnaðar. Hitt er annað mál, að eins og högum ökkar hefur verið háttað að undanförnu, munu ýmsir kunna því illa að geta ekki veitt sér allt það, sefh efni þeirra leyfa og hugur þeirra girnist. En vissulega væri slíkum mönnum hollt að hugsa til annarra þjóða, sem eiga við mun meiri erfið leika að stríða en við og verða að færa margvíslegar fórnir. Við höfum ekki af hungri að segja, og það er engin ástæða til þess að æítla, að erfiðleikarnir, sem að steðja, verði okkur um megn, ef við lifum ekki um efni fram og sameinumst um lausn vandamálanna. Skömmtunin er skiljanleg afleiðing þess, að gjaldeyris- tekjur okkar eru nú til þurrð ar gengnar. Innflutninginn verður að takmarka, og það verður ekki hjá því'komizt, að þjóðin gæti hófs, meðan verið er að leysa vandann, sem nú hefur að höndum borið. En eigi að síður fer því fjarri að við -Islendingar höfum ástæðu til að örvænta. Saman borið við aðrar þjóðir er hagur okkar góður, þótt við verðum um stundarsakir að una skömmtun á ýmsum vörutegundum og temja okk- ur sparnað. Við höfufn eign- azt ný og fullkomín atvinnu- itæki, fiskimiðin umhverfis landið eru hin auðugustu í heimi og þjóðin sækir lífs- baráttuna af kappi. Allt þetta gefur fyrirheit um, að ís- lendingar geti vænzt farsæll- ar framtíðar, þrátt fyrir erf- iðleikana, sem að steðja í bih. En skömmtunin,, sem nú hefur verið ákveðin, er ekki nema einn þátturinn í því, sem gera þarf til þess að leysa vandann. Á gjaldeyris- skortinum verður ekki sigr- azt með sparnaði einum. Til þess þarf að auka útflutn- inginn; og það verður ekki gert nema með því. að lækka hinn háa framleiðslukostnað, svo að við getum selt afurðir okkar erlendis. Höfuðvið- fangsefni íslendinga í dag er því lækkun framleiðslu- kostnaðarins, — niðurfærsla dýrtíðárinnar. Takist að leysa það viðfangsefni og gera okkur samkeppnisfæra SKOLLIN Á, allsherjarskömmt un svo að segja, og hefst hún í dag. Þessi skömmtun hefði átt að vera komin á fyrir nokkrum árum, við hefðum átt að hafa stranga skömmtun meðan við vorum á toppnum, höfðúm nóg af öllu. En það voru fleiri en valdhafarnir, sem sást yfir þetta, okkur hinum líka, svo að það situr illa á okkur að vera að skammast út af því. Hins vegar er ef til vill ekki of seint að grípa til strangra aðgerða, en strangar eru þær og bærilegar, af því að þær eru nauðsyn, en ekki af öðru. ÞESS VEGNA er það rétt, sem skömmtunarsíjórinn sagði í erindi sínu í útvarpinu í gær, að nauðsynlegt er að góð sam- vinna sé ríkjandi og þegnskap- ur milli kaupenda, seljenda og yfirvalda. Skömmtun eins og sú, sem við höfum nú orðið að grípa til, er umfangsmikil, aliíaf flókin og einnig erfið. Slíkt skipulag er erfitt að búa til án langrar reynslu. Það má því gera ráð fyrir því, að gallar muni koma í Ijós á fyrirkomu- laginu, þegar farið verður að starfrækja skömmtunina. En úr þeim verður að sjálfsögðu reynt að baeta. EKKI TEL ÉG að skömmtun- in sé ströng, nema ef vera skyldi á kaffi og bensíni til bif- reiðaaksturs. Hygg ég að þó að sérstaklega gamalt fólk sé ákaf lega óánægt með hinn knappa kaffiskammt, þá muni óánægj- an verða enn meiri með hinn sáralitla bensínskammt, því að svo má segja að menn geti ekki hreyft bifreiðir sínar, nema rétt við og við. Fólk vill kannske segja að ekkert geri til, þó að bifreiðaakstur sé minnkaður, og það er alveg hárrétt, en það verður líka að gæta að því, að það er óralangt frá því, að allar einkabifreiðar séu notaðar til ó- nauðsynlegs aksturs. EN UM ÞETTA verður að segja: „Nauðsyn brýtur lög.“ Það þýðir ekki annað en. að sníða sér stakk eftir vexti. Það við aðrax þjóðir, er afkoma okkar tryggð. ❖ Öllum ábyrgum aðilum hlýtur að vera ljóst. að ekki verður haldið áfram á þeirri braut, sem við erurp staddir á í dag. Það væri sama og að stefna beint út í ófæruna. Við verðum að gera okkur grein fyrir viðhorfunum eins og þau raunverulega eru og leggjast á eitt um úrbæt- ur. Þær ráðstafanir munu ó- hjákvæmilega kosta ein- hverjar fórnir, en þær eru eigi að síður nauðsynlegar. Þjóðin mun vissulega gera kostar marga tugi milljóna króna í erlendum gjaldeyri að halda þeim bifreiðum gangandi, sem nú þegar eru' í landinu, og enn fer þeim fjölgandi eftir tveggja ára gömlum innflutn- ings- og gjaldeyrisleyfum. Þó að ég og þú höfum kannske ráð á því að aka í bifreiðum eins og okkur langar®til, þá hefur gjaldeyrisfátæk þjóð alls ekki ráð á því að leyfa sér það. Og það eitt gildir í þessu efni og hreint ekkert annað. ÉG FÓR NOKKUÐ VÍÐA um bæinn í gær og talaði við marga. Allir telja skömmtun- ina nauðsynlega, og allir tala um það, að hún hefði átt að vera komin fyrir langalöngu. Ég sótti líka skömmtunarmið- ana mína, og þá var þröng í Góðtemplarahúsinu. — Dálítið kunnur kommúnisti kom þar og hreytti út úr sér um leið og hann tók við sínum seðlum: „Jæja, sjáum til, þarna þykisf ríkisstjórnin hafa nóg af papp- ír.“ Hann glotti hreykinn upp á fólk er hann lauk ræðunni. Menn þögðu, litu við honum með fyrirlitningu og þá hvarf glottið. Hánn fann að'liann átti ’ekki hljómgrunn. ÞAÐ ER ALVEG ÁREIÐAN- LEGT, hvaða skoðun sem menn kunna annars að hafa á stjórn- málum, að skömmtun og skyldu sparnaður er lífsnauðsyn fyrir þjóðina. Það eitt er staðreynd nú, og annáð skiptir ekki máli. Það er ekki aðeins lífsnauðsyn fyrir einhvern fámennan hóp, m neldur og fyrir mig og þig og heimili okkar allra. Þess vegna ríður á því að við sýnum öll þegnskap, en ekki skrælingja- brag krafsara, sem sá illindum og rógi meðal þjóðar í hættu, sem allt á undir því að hún geti staðið sameinuð og heil í bar- áttunni við erfiðleikana. RÍ KIS STJÓRNIN getur ör- ugg haldið áfram að gera á- kveðnar ráðstafanir til varnar í vandræðunum. Hún hlýtur fyr- ir það fylgi þjóðarinnar. Eins ber henni að stefna örugglega sér ljósar þær staðreyndir, sem fyrir eru, og telja sér skylt að kappkosta að leysa vandann. En hún mun að sjálfsögðu krefjast þess. að þær byrðar, sem óhjákvæmi- legar eru, verði lagðar á í hl’utfalli við burðarþol þegn- anna. Annað^væri ranglæti, sem ekki yrði þolað. En sann- gjörnum og nauðsynlegum ráðstöfunum til -lausnar á vandamálum okkar í dag, mun þjóðin áreiðanlega una. Með þeim er hún að leggja grundvöll að farsælli þróun á sviði atvinnulífsins og fjár- hagsmálanna í framtíðinni. (Frh. á 8. síðu.) Auglýsing Nr. 7,1947 frá skömmfunarsljéra. f Samkvæm heimild í 3. gr. reglugerðar frá 23. september 1947 um sölu og afnendingu benzíns og takmörkun á akstri bifreiða hefur viðskipta- néfnd ákveðið eftirfarandi: Á tímabilinu frá 1 október til 31. desember 1947 skal 'mánaðar-benzínskammtur bifreiða vera sem hér segir í þeim flokkum er að neðan greinir: A 1 Strætisvagnar 1800 lítrar. A 2 Aðrar sérleyfisbifreiðar svo og mjólk- urflutningabifreiðar 900 lítrar. A 3 Leigubifreiðar til mannflutninga 5-7 manna 400 Iítrar. A 4 Einkabifreiðar 5-7 manna 60 lítrar. A 5 Einkabifreiðar 2—4 manna 45 lítrar. A 6 Bifhjól 15 lítrar. B 1 Vörubifreiðar yfir 5 tonna 600 Mtrar- B 2 Vörubifreiðar 4—5 tonna 500 Mtrar. B 3 Vöruibifreiðar 3—4 tonna 400 lítrar. B 4 Vörubifreiðar 2—3 tonna 350 Mtrar. B 5 Vörubifreiðar 1—2 tonna 200 Mtrar. B 6 Vörubifreiðar Vz—I tonn 100 lítrar. B 7 Vörubifreiðar (sendiferðabifreiðar) minni en xk tonn 45 Mtra. * Úthluta skal til bifreiðanna, sem taldar eru í A flokki, benzínskammti fyrir þrjá mánuði í einu, •þ. e- til 31. des, 1947, en til bifreiðanna, sem tald- ar eru í B flokki (vörubifreiðanna) til aðeins eins mánaðar í einu. Reykjavíkj 30. september 1947. Skömmfunarsfjórinn. vantar okkur nú þegar- GEYSIR H.F. Faíadeildin. óskast til innheimstustarfa. Upplýsingar í.afgreiðslu Alþýðublaðsins. Sími 4900. Alþýðublaðið . V’.7 . . • " ■ , j. • I • ;

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.