Alþýðublaðið - 02.11.1947, Blaðsíða 7
Sunnudagur 2. nóv. 1947. ALbÝÐUBLAÐIIi 9
Innilegustu þakkir vottum við öllum þeim nær
og fjær, sem sýndu hluttekningu, samúð og marghátt-
aða vinsemd við andlát og jarðarför
Unu Vagnsdóttur.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Sigurleifur Vagnsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát
og jarðarför
Guðrúnar Brynjólfsdóttur.
Björn S. Jónsson.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Frá fyrsfu byrjun
höfum vér eingöngu notað sjálfvirkar
hreinsunarvélar af fullkomnustu gerð, sem
hreinsa, þurrka ög taka lykt úr 12 klæðum á
25 mínútum.
Aðeins fullkomnasta hreinsunarefni er
notað, sem hvorki breytir lit eða lagi fatnaðar-
ins.
Efnalaug Vesturbœjar h.f,
Vesturgötu 53. — Sími 3353.....
_____________•
Bœrinn í dag.
Helgidagslæknir er Friðrik
Einarsson, Efstasundi 55, sími
2565.
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs
apóteki, sími 1618.
Ljósatími ökutækja
er frá klukkan 16.50—7.30 að
morgni. — Enginn má stýra bif
reið nema hann hafi ökuskír-
teini, er heimili honum að stýra
bifreið. Meðan ekið er, má bif-
reiðarstjóri ekki sleppa hendi af
stýri bifreiðar sinnar, og varast
skal hann að tala við farþega.
Útvarpið á morgun, (mánudag):
18,30Íslenzkukennsla, 1. fl.
20.00 Fréttir. 20.30 Útvarps-
hljómsveitin: Frönsk alþýðu-
lög. 20.45 Um daginn og veg-
inn (Sig. Bjarnason alþm.). •—
21.05 Einsöngur (Gunnar Krist
insson): a) En Vise til Karen
b) Siste Reise, c) Erstarrung
d) Aría úr Tannhauser, e) Se-
renade úr Don Giovanni. 21,20
Erindi í Dómkirkjunni, „Hinn
vígði þáttur,“ kristnistarf í
skólum (Snorri Sigfússon náms-
stjóri). 21,50 Spurningar og
svör um náttúrufræði (Ást-
valdur Eydal). 22.00 Fréttir.
22.05 Búnaðarþættir: Fóðrun
kúnna' í vetur (Páll Zophónías-
son ráðunautur).
KLÆÐSKERADEILAN
Samninganefndir í klæð-
skeradeilunni undirrituðu í
gær samninga, sem í dag á að
leggja fyrir fundi í báðum fé-
lögunum, sem standa að deil-
unni. Ef fundirnir samþykkja
samningana, verður vinna
hafin á ný á mánudaginn.
Verkfallið hófst 15. okt.
Stúlka
óskast á heimili
ÁSGEIR5 G. STEFÁNS-
SONAR, HAFNARFIRÐI.
Upplýsin-gar í síma 9242.
Félagslíf
VALUR.
Old boys æfing annað kvöld
(mánudag) kl. 9,30 í Austur-
bæjarskóianum. 3. fl. æfing
annað kvöld kl:. 6,30 í húsi
I. B. R.
K.F.U.M. og K. Hafnarfirði.
Samkoma í k-völd kl. kl.
8,30. Síra Jóhan-n Hannes-
son talar. Allir v-elkomnir.
AÐVENTKIRKJAN.
Samkom-a í kvöld kl. 8,30.
Pastor J-óhann-es J-ensen
talar um „Djúp náðar Guðs
og kærleika.“ Allir vel-
komnir.
KRISTILEG SAMKOMA
á Bræðrabo-garstíg 34. — í
dag, sunnudag, kl. 5. Guð-
laugur , Si-gurðsson o. fl.
tala. Allir 'hjartanlega vel-
komnir.
Thomas Mann
(Frh. af 3. síðu.)
hefði neitað eindregið að verða
við þeirri áskorun þýzkra
skálda og rithöfunda, að koma
heim og setjast þar að. Hann
lýsti yfir, að hann liti þannig á,
að þýzka þjóðin væri samábyrg
nazistaleiðtogunum um þær
skelfingar, sem þeir hefðu leitt
yfir veröldina. Án svo að segja
einhuga fylgis hennar við hinn
nazistíska málstað, hefðu nazist
arnir ekki verið þess megnugir,
sem raun ber vitni. Hann vildi
ekki starfa að viðreisn Þýzka-
lands — eigandi það á hættu,
að þjóðin lenti út á sömu braut,
þegar ú-r rættist, eins og áður.
Svör Thomasar Mann vöktu
mikla gremju í hans garð í
Þýzkalandi, en brátt féllu þó
niður skrif og deilur um málið.
Nú hefur aftur hafizt orrahríð
út af Mann. Hann sótti í sumar
fund Pen-sambandsins, sem
haldinn var 1 Sviss, og vakti
koma hans þangað mikla at-
hygli.
Maður er nefndur Manfred
Hausmann. Hann er rithöfund-
ur, en þykir stæla Hamsun
svo mjög, að næst gangi eftir-
hermum. Þegar Thomas Mann
var í Sviss, mælti hann með
þessum Hausmann sem vérðug
um til að gerast þátttakandi í
væntanlegri Þýzkalandsdeild
þessa alþjóðlega félagsskapar
rithöfunda, sem fundinn hélt í
Sviss.
Nokkrum dögum eftir að
Mann hafði gefið Hausmann
þessum meðmælin, skrifað Haus
mann stórorðra grein, þar sem
hann réðist á Mann fyrir að
vilja ekki setjast að í Þýzka-
landi, og meðal annars sakaði
Hausmann hann um það, að
hafa árið 1934 skrifað nazista-
ráðherranum Frick bréf, sem
komið. hafði verið á framfæri á
laun. Hefði Mann þar verið að
leitast fyrir um, hvort hann
mundi geta fengið leyfi til að
flytja heim aftur. Thomas Mann
á ekki afrit af bréfinu, og þess
vegna gat hann ekki lagt fram
skjallegar sannanir fyrir því,
hvað hann hafði skrifað. En
seinna birti svo Neue Zeitung,
sem Bandaríkjamenn gefa út í
Múnchen, bréfið — og óstytt. —
Það er ekki stílað til Fricks ráð
herra, heldur til innanríkisráðu
neytisins, og þó að Mann sé þar
ekki orðið eins ljóst og honum
varð síðar, að hverju stefndi,
er síður en svo, að hann hylli
þar nazismann, og hann minn-
ist -ekki í bréfinu einu orði á
að flytja aftur til Þýzkalands.
Hann hyllir í þessu bréfi lýð-
ræði, frelsi og mannúð og tek-
ur skýrt fram, að hann sé mjög
andstæður nazismanum og frels
isskerðingum nazista. Hafa
vopnin snúizt í höndum Haus-
manns, því að spurt hefur ver-
ið, síðan bréfið var birt, hvaðan
Hausmann þessi hafi haft vit-
neskju sína um það, að Thomas
Mann hefði skrifað Frick ráð-
herra? Það er fullyrt, að Haus-
mann hafi hvorki haft hana frá
Bandaríkjamönnum né Thomasi
Mann sjálfum.
En enginn þarf . að bregða
Thomasi Mann um hræsni.
Hann hefur sjálfur viðurkennt,
að hann hafi verið á villigötum,
þá er hann frekar en hití eftir
styrjöldina 1918 ýtti undir í-
halds og jafnvel afturhaldssöm
öfl í Þýzkalandi, og honum er
sjálfum manna ljósast, að hann
þurfti tíma til að átta sig til
fulls á því, hve víðtækar og
hörmulegar afleiðingar fyrir
andlega þróun og menningu af-
neitun skoðanafrélsis og lýðræð
is ávallt hefur í för með sér.
Svo var um fleiri, sem hafa lát-
ið reynsluna kenna sér —
en margir hafa því miður ekk-
ert af henni lært.
Guðm. Gíslason Hagalín.
Ferming í Dómkirkj-
unni í dag.
Séra Bjarni Jónsson fermir.
Drengir:
Alvar Óskarsson, Berg. 36.
Björn T. Valgeirsson, Lauf. 67.
Bruno Hjaltested, Bergþ. 57.
Eggert Ó. Briem, Sóleyjarg 17.
Egill Á. Jaeobsen, Rán. 26.
Eiður A. Breiðfjörð, Lauf. 27.
Einar Þorláksson, Háv. 39.
Garðar Ág. Guðm. Barmahl. 7.
Guðjón Sigurbjörnsson, Skúl. 68
Guðm. Björnsson, Háv 42.
Guðm. Guðvarðsson, Miðstr. 5.
Gunnar R. Sveinsson. Bjarn. 7.
Hörður Adolphsson, Tún. 35.
Hörður Sveinsson, Barmahl. 19.
Jakob Guðvarðsson, Miðstr. 5.
Jóhannes Sigurðsson, Norð. 5.
Jón Bergþór Hafsteins, Mar. 6.
Olfert Jean Jensen, Hrefnug. 7.
Ólafur Fr. Bjarnason, Bald. 9.
Sigurður Pétursson, Framn. 25.
Símon Símonarson, Vest. 34.
Stefán Brynjólfsson, Mararg. 3.
Þorsteinn Ásgeirsson, Fjöln. 12.
Þorsteinn Jónsson, Barónsst. 65.
Örn E. Scheving, Holtsg. 31.
Stúlkur:
Anna Borg, Lauf. 5.
Anna Kjaran, Tjarn. 10 D.
Arndís Steingrímsd., Lauf. 73.
Ebba I. Egils, Holtsg. 25.
' Edda Gunnarsd., Laugav. 55.
Edda B. Jónasdóttir, Freyjug. 49
Edda Stefánsd., Hringbr. 212.
Elín G. Ólafsd., Ljósv. 8.
Emilía S. Emilsd., Ægisg. 26.
Flóra B. Aðalsteinsd., Alm.dal.
Guðlaug Á. Lúðvíksd., Bollag. 3
Guðrún Kr. Júlíusd., Fram. 29.
Gústa I. Sigurðard., Tjarn. 43.
Hanna S. Blöndal, Túng. 51.
Heba Jónsdóttir, Lauf. 9.
Heba Ólafsson, Bollag. 14.
Hervör Hólmjárn, Tún. 8.
Hulda Jónsá. Sólv. 43.
Jóhanna G. Rósinkranz, Ásv. 58.
Kristín Jónsd., Nýl. 4.
Kristín Sveinbjörnsd., Óð. 2.
Margrét Þ. Ámundad., Flók. 41.
Margr. S. Magnúsd., Aðalst. 16.
María Kjartansd., Háteigsv. 25.
Rannveig Magnúsd. Efstas. 7.
Sigríður E. Quðm. Bjarg. 9.
Sigríður Þ. Jönsdóttir, Háv. 13.
Sigríður Pétursdóttir, Öldug. 29.
Sigr. E. Tryggvad., Karfav. 60.
Svala Pétursd., Hverfisg. 50.
Svava Sigurjónsd. Hanson,
Hverfisg. 104 C.
Unnur Norðmann, Fjólug. 11.
HANNES Á HORNINU.
Frh. af 4. síðu-
EN SVONA eru vinnustöðv-
arnar. Það er eins og blóðið
hætti að streyma um þjóðfélags
líkamann. Vélsmiðjan vinnur
hliðstætt þeim atvinuvegi okk-
ar, sem allt veltur á. Hann á
nú að reyna að stöðva vegna
j deilunnar. Og þetta gerist á
sama tíma og þjóðin er komin
í úlfakreppu vegna gjaldeyris-
vandræða. Mótsetningarnar eru
margar ískyggilegar. Á sama
tíma eru háværar kröfur um
gjaldeyri til þessa og hins, það
er skammast út af skömmtun,
það er heimtað fé til margs kon
ar þarfa og óþarfa. Hvenær
verðum við nógu vitur til að
skapa okkur samvirkt þjóðfé-
lagsástand, án þess að þurfa að
skerða frelsi einstaklinga og
samtaka?
STRÁKAR ar teknir upp á
hættulegum og hvimleiðum
leik. Hann er nú eins og æði.
Þeir ganga með hvellhettur eða
eitthvað þvílíkt og sprengja í
skráargötum í húsum. Þetta
veldur fólki miklum óþægind-
um. Það er undarlegt, en svo
virðist, sem á hverju hausti
grípi stráka einhvers konar æði.
Nauðsynl-egt er að stöðva það
áður en það veldur meiri vand-
ræðum. Fólk á að reyna að hand
sama þessa óvita og afhenda þá
lögreglunni. Hræðslan ein mun
nægja.
Hannes á horninu.
Ein umsókn um þjóð-
minjavarðarstarfið.
KRISTJÁN ELDJÁRN
fornleifafræðingur er eini
umsækjiandinn urn þjóðmmja
varðarstarfið, en umsóknar-
frestur um það var útrunn-
inn 1. nóvember.
Staðan verður veitt frá 1.
desembex næst komandi.
Slarfslið skipaskoð-
unar ríkisins aukið.
UM NÆSTU ÁRAMÓT
stendur til að aukið verði
starfslið skipaskoðunar ríkis-
ins að miklum mun. og er
þetta gert í samræmi við hin
nýju lög um eftirlit með
skipum, sem samþykkt voru
á síðasta alþingi.
Samgöngumálaráðuneytið
hefur auglýst þessar stöður
til umsóknar, u-msóknarfrest-
ur er til 15. nóvember:
1 skipaverkfræðing eða
skipasmíðameistara.
4 skipaeftirlitsmienn, einn í
hverjum landsfjórðun-gi, með
aðsetur á þeim stað, er skipa-
iskoðunarstjóri ákveður.
Auk þessa hefur nú þegar
verið ráðinn aðstoðarmaður á
skrifstofuna. Allt er þetta
mikilsverð framför og til auk
ins eftirlits með öryggi sjó-
farenda, og óskar skipaskoð-
unin þess, að stjórnendur
skipanna hjálpi nú sjálfir til,
að eftirlitið nái að fullu til-
gangi sínum.
Lítið notaður amerískm*
barnavagn
til solu. — Upplýsingar
á mánudag kl. 4—6 á
Skólavörðu-stíg 26 A.
HAFNARFJÖRÐUR.