Alþýðublaðið - 15.05.1948, Qupperneq 12
öerist áskrifendur
pS A!f>ýðubia5inu.
Alþýðublaöið lnn íi hvert
heuniii. HnngiÖ í síma
4900 eð« 4906.
Laugardagur 15. maí 1948.
Börn og ungiingarj
Komið og seljið
ALÞÝÐUBLAÐIÐ.
Allir vilja kaupa
ALÞÝÐUBLAÐIÐ.
Tala á fundi F.U.J, á Sauðárkróki í hv'óld
Ágúst H.
Pétursson
Bergmundur
Guðlaugsson
Jón
Hjálmarsson
Þórarinn
Fjelasted
í kvöld klukkan 3 efnir Samband ungra jáfnað a'rmanna og Félag ungra jafnaSarmanna I Reykja
vík til opinbers stjórnmálafundar að Sauðárkróki, og verða rœðum&nn ijonr irá ii&ykjavik og
munu þeir flytja framsögursaður á fundinum, en að framsöguræðunum 'iuknum verua írjálsar
umræður. Þessir menn tala á fundinum: Ágúst H. Pétursson bakari, Bergmundur Guðlaugsson
verkamaður, Jón Hjálrnarsson búfræðingur og Þórarinn Fjeldsted biikksiniður. — Er þetta
fimmti útbreiðslufundur Félags ungra jafnaðar manna, en næstu fu.ndir eru ákveðnir í Kefla-
vík, Hafnarfirði og Vestmannaeyjum í lok þessa mánaðar.
son, aipingismaouur, segir
iáfsasf
unni i
Tveir Islendingar sálu ráðslefnuna um
bandaríki hinna frjálsu Evrópuríkja í Haag
ÞAÐ ER SJÁLFSAGT fyrir okkur íslendinga að fylgj-
ast af mikilli athygli með hreyfingunni fyrir bandalagi
Evrópuríkjanna, af því að hér er um að ræða samtök
þeirra þjóða, sem eru okkur skyldastar menningarlega, og
við höfum um langt skeið hafi mest saman við að sælda
um öll viðskipti, sagði Finnur Jónsson alþingismaður við
blaðð í gær, en hann sat ráðstefnuna í Haag, sém fjallaði
um bandalag Evrópu.
'
5
.
v v ]a
Finnur skýrði frá því, að
félög, sem starfa að samein-
:ingu álfunnar, og þingmanna
samband Evrópu hefðu boð-
að til fundarins í Haag, og
íhefðu um 800 fulltrúar sótt
hann. Islandi var boðið að
senda fimm fulltrúa, en að-
eins tveir fóru, Finnur og
Ólafur Thors. Fundinn sóttu
ýmsir áhrifamestu stjórn-
málamenn álfunnar frá lönd-
um vestan járntjaldsins og
r.okkrir leiðtogar frelsishreyf
inganna fyrir austan járn-
tjaldið. Hins vegar verður
ekki sagt, að nein ríkisstjórn
hafi sent fulltrúa á fundinn.
Fundurinn skipti sér í
þrjár aðalnefndir og voru
íundir að heita má dag og
nótt, og voru gerðar víðtæk
ar samþykktir, sem nefnd-
irnar undirbjuggu, en voru
•síðan ræddar og samþykktar
á sameiginlegum fundi. Mik
'ill einhugur ríkti um það á
fundinum, að stofnað yrði
bandalag hinnar frjálsu Ev-
rópu til þess að tryggja fjár
hagslegt og menningarlegt
frelsi Evrópulandanr..a.
Nokkur skoðanamunur
kom þó fram, enda voru
þarna menn frá ólíkum lönd
um og með líkar lífsskoðan-
ir. En ágreiningurinn var um
aðferðir, en ekki markmið,
til dæmis er Paul Reynaud,
fyrrverandi forsætisráðherra
Frakka, barðist fyrir því, að
næsti fundur yrði haldinn
innan sex mánaða og skyldi
hver þjóð þá kjósa fulltrúa
á fundinn, einn fyrir hverja
milljón íbúa. Sú skoðun varð
þ>ó ofan á, að þjóðþing hinna
ýmsu landa skyldu kjósa full
trúana.
Finnur Jónsson sagði enn
fremur, að framgangur þessa
máls mundi vera mikið und
ir því kominn, hver afstaða
ensku verkamannastjórnar-
innar verður. Stjórnin hefur
ekki litið hreyfingu Churc-
hills fyrir þessu máli hýru
auga, en gekkst þó sjálf fyr-
ir þandalagi við Frakkland
og Beneluxlöndin, sem er
raunverulega vísir að banda
lagi Evrópu. Þannig fara
þessir tveir aðilar hvor sína
braut. en í rauninni er tak-
markið hið sama.
Finnur minrj-;st á það, að
að þarna hefðu verið fulltrú
ar frá löndunum austan
Finnur Jónsson
járntjaldsins, en sumir þeirra
börðust gegn nazistum,
voru dauðadæmdir og hund-
eltir af þeim, en gerðu sér
vonir um frið í heimalöndum
sínum eftir styrjöldina. Nú
hafa þeir neyðzt til að taka
upp baráttuna á ný. Þá var
allmikið af Þjóðverjum á ráð
stefnunni, og var þeim sér-
staklega vel tekið. Var þess
getið í einni samþykktinni,
að endurreisn Þýzkalands
verði að vera í föstu sam-
bandi við bandaríki Evrópu.
Þessi ályktun var samþykkt
með fögnuði allr.a fundar-
manna.
Finnur Jónsson lét mjög
vel af stuttri dvöl í Haag,
hinni hollenzku höfuðborg.
Fundurinn fór fram í gam-
alli og athyglisverðri bygg-
ingu, og. var allt hið hátíð-
legasta. Til dæmis er þegar
(til fáni fyrir bandaríki Ev-
rópu, en hann er hvítur
með istórum, rauðum stafn-
um E.
J i
iizi'l I Siálfstæöishsjsánu 18. þ. m.
„BLANDAÐIR ÁVEXTIR“ verða á boðstólum fyrir
almenn ng nsactkoinandi þriðjudagskvöld, en svo _• nefnist
kvöláshemmtun, sem skemmtifélagið Blaa stjarnan efnir
11 í Sjspí'.fscð shúsinu. Iíversu mikið ávaxtabragð verður
af þessari blöndu er ekki vttað, en nýnæmi verður hún
rjáiíssgt í hessu ávaxtalausa landi.
Skemxntiíéiagið Bláa stjarn j
an hyggst i framííðinni að |
halda uppj stíkum kvöid-
skemmtunum eða kafcarett, |
o.g vérða jafnan ný og ný at-
riðt félld inn í, þannig að
hin:r „blönduðu ávexitir"
verði alltaf nýi'r og ferskir.
Eins og áður se^ir verður
frumsýningin í Sjálfstæðis-
húsinu þriðjudagskvöldið
eftir hvítssunnu, en síðan er
ráðgert að skemmtunin verði
endurtekin tvisvar í viku eitt
hvað fram eftir vorinu; það
er á miðvikudögum og sunnu
dögum.
Skemmtunin á þriðju-
dagskvöldið verður í 12 at-
riðum cg fjölmargir leikarar
og aðr'r listamenn koma
þarna fram. Meðal annars
verða á dagskrá þrír gaman-
þætifir. gamanvísur , eítir-
hermur og söngvar. Verður
barna um að ræða samfellda
dagskrá, sem stendur allt frá
kl. 8,30 fram undir kl. 11,
en eftir hað verður stiginn
dans til kl. 1 eftir miðnætti.
Meðal beirra, sem koma
fram á skemmtuninni má
nefna: Emelíu Jónasdóttur,
Áróru Halldórsdóttur, Ernu
Si'gurleifsdóttur, Guðmundu
Fredriksen, .,Ránardætur“,
Alfred Andrésson, Robert
Arnfinnsson, Harald Adolfs-
son, Baldur Guðmundsson,
Karl Guðmundsson og Har-
ald Á. Sigurðsson.
Þeir sem að skemmtifélag
inu Bláa stjarnan standa eru
Indriði Waage. Tómas Guð-
mundsson, Alfreð Andrés-
son og Haraldur Á. Sögurðs-
son, og má því segja að Bláa
stjarnan sé í ætt við Fjala-
köttinn, en samt sem áður er
það honum óviðkomandi og
starfar sjálfstætt fyrir utan
hann, enda þótt „Kötturinn
þræti ekki fyrir afkvæmi
sift, enda verður Bláa stjarn
an væntanlega enginn ætt-
leri.
Það, sem vakir meðal ann
fyrir félagsskapnum, er að
gefa ungu listafólk: tækifæri
til að koma fram, og í því
sámbandfi verð'.jr sk.emmti-1
skráin jafnan endurnýjuð
þannig að eitt og eitt atriði
verðuj fellt niður, en nýtt
tekið í þess stað.
ÞAÐ ER í DAG klukkan 2
e. h., sem myndlistarsýning
hinna tólf nútímamálara er
opnuð í Li.stamannaskálan-
um.
Eins og áður segir verður
sýning.'n cpin til 1. júrí næst
komandi frá kl. 10—10 dag-
lega.
I
r /'Of' a
DRÆTTI í happdræfti
fullírúaráðs Alþýðuflokks
ins hefur verið frestað vim
einn mánuð, eða til 15.
júní næstkomandi.
í ryskingum.
ÞANN 12. b, m. lézt hér i
bænum Viktor Aðalsteinn
Sigurbjörnsson að Grínis
stöðum. Grímsstaðaholti, af
vöidum áverka, er haim
hlaut í ryskingum að I,auf
skálacafé við Geitháls þann
7. h. m.
Að vekingastað þessum
mun oft vera allóróasamt, og
kvöld þatta kom þar tií
nokkurra ryskinga. Hlaut þá
Viktor heitinn spark í kvið
inn og nárann, og lézt hann í
sjúkrahúsi vegna þeirra á
verka. Hann var 27 ára að
aldri og ákvæntur.
Mál þetta er í rannsókn.
Norsku leikararnir
lesa upp úr norskum
skáldverkum í Iðnó
á mánudaginn,
NORSKU LEIKARARNIR
frá þjóðlsikhúsiru í Osló
hafa upplestur ■ úr verkum
Henriks Wergeland, Henriks
Ibsen . Björnstjerne Björnson,
Nils Colletvugt, Nordahl
Grisg o. fl. norskra skálda
mánudaginn 17. maí kl. 1,39
í Iðnó. Aðgöngumiðasala í
dag kl. 3—6.
Hljómsveiit undir stjóm
Þórarins Guðmundssonar að-
stoðar.
Þráðja sýr.lng norska leik
ííokksins á Rosmersholm verð
ur 17. maí kl. 5,30. Fjórða
sýning þriðjudag 18. maí kl.
8 síðd. Uppselt er á báðar
sýningarnar.
Síðustu tvær sýningarnar
verða 20. og 21. maí.
Aðgöngumiðaisala .fer íram
miðvikudag og fimmtudag.