Alþýðublaðið - 22.05.1948, Síða 3
Laugardagur 22. maí 1948.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
, 3
LAUGARDAGURINN 22.
maí. Skerpla byrjar. Þann dag
1133 dó Sæmundur fróði í
Odda; sama daga árið 1833
fæddist íónskáldið Wagner, en
rithofundurinn A. Conan Doyle
árið 1859. Úr Alþýðublaöinu
þennan dag fyrir 15 árum:
„Nokkrir menn úr Reykjavík,
sem þar eru vanir að vera á
„hreyfingu“ og búnir að fá
meiri eða minni æfingu í að
vera „endurreistir“, eru nú að
ferðast um Norðurland til að
reyna að endurreisá þá, er þar
hafa fallið í of mikla „hreyf-
ingu“ eða þá gengið svo langt,
að þeir hafa orðið hreyfingar-
lausir, sem sums staðar er kal'-
að að „deyja“.
Sólaruprás var kl. 3.52, sólar-
lag verður kl. 22.59. Árdegishá-
flæður er kl. 5.50, síðdegishá-
flæður er kl. 18.08. Lágfjara er
um það bil 6 stundum og 12
mínútum eftir háflæði. Hádegi
í Reykjavík er kl. 13.24.
Næturlælcnir: í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvarzla: Reykjavíkur
Apótek, sími 1760.
Næturakstur: Bifreiðast.öðin
Hreyfill, sími 6633.
Söfn og sýningar
Listsýning ,,Höstudstillingen“
í Listamannaskálanum. Opin kl.
10—22.
Málverkasýning Eggerts Guð-
mundssonar í Hátíni 11. Opin
frá kl. 13—22.
Flugferðir
Póst- og farþegaflug milli Is-
lands og annarra landa sam-
kvæmt áætlunum:
AOA: í Keflavík (kl. 23—24)
frá Stokkhólmi og Kaup-
mannahöfn til Gander og
New York.
Sfcipafréttir
Laxfoss fer frá Reykjavík kl.
13.30, frá Borgarnesi kl. 18, frá
Akranesi kl. 20.
Brúarfoss er í Leith. Fjall-
foss er í Reykjavík, fer 25.5.
vestur og norður. Goðafoss er
í > Kaupmannahöfn, fer þaðan
24.—25. maí til Göteborg. Lag
arfoss fór fram hjá Færeyjum
í gærmorgun, 20.5. á leið frá
Leith til Reykjavíkur. Reykja
foss kom til Antwerpen í morg
un 21.5. frá Leith'. Selfdss fór
frá ísafirði í morgun til
Hvammstanga. Tröllafoss fór
frá Reykjavík 16.5. til New
York. Horsa er á Akranesi.
Lyngaa fór frá Siglufirði 19.5.
til Hamborg.
Foldin fór frá Hull í gær-
kvöldi til Reykjavíkur. Vatna-
jökull er í Reykjavík. Linge-
stroom er í Álaborg. Marleen er
í Reykjavík. Reykjanes er í
Englandi.
Frú Roosevelt kom nýlega í
heimsókn til Englands. Var hún
þá gestur konungshjónanna að
Vindsorhöll. Þessi mynd var
tekin þar og er frúin á mynd-
inni miðri.
Blöð og tímarit
Stígandi, 4. hefti 5. árg. hef-
ur borizt blaðinu. Efni þess er
meðal annars: Heljarslóð, kvæði
eftir Þráin, Um daginn og veg-
inn, eftir Jónas Pétursson, Lestr
arfélag Grýtubakkahrepps eftir
Árnór Sigurjónsson, Frændi
gamli, kvæði eftir Guðmund
Böðvarsson, Búðarþjónninn,
kvæði eftir Heiðrek Guðmunds-
son, Brugðið sér til Bretlands,
eftir Sigurð L. Pálsson, Eftir
orðanna hljóðan, eftir Bjartmar
Guðmundsson, Jökuldalsgöngur
1938 eftir Baldur Jónsson, Síð-
asti mannskaði við Böggvis-
staðasand eftir Valdimar V.
Snævarr o. m. fl.
Skemmtanir
K VIKMYNDIR:
Gamla Bíó: „Oft kemur skin
eftir kúr“. Robert Walker, Van
Heflin, Lucille Bremer. Sýnd
kl. 9. „Prinsesson og sjóræning-
inn“. Bob Hope. Sýnd kl. 3, 5
og 7.
Nýja Bíó: „Horfnar stundir".
Phyllis Calvert, Robert Hutton.
Ella Raines. Sýnd kl. 9. „Grímu
klædda hetjan“. Gino Gervi,
Luisa Ferida. Sýnd kl. 3, 5 og 7.'
Hjónaefni
Á hvítasunnudag opinberuðu
trúlofun sína frk. Lára Póls-
dóttir frá Svínafelli, Öræfum,
og Einar Guðmundsson skrif-
stofumaður, Reykjavík.
Síðastliðinn laugardag opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú
Ragnhildur Rafnsdóttir frá
Gröf, Suður-Múlasýslu, og
Ragnar Jónsson frá Seyðisfirði.
Austurbæjarbíó: „í fjötrum".
Ingrid Bergman, Gregory Peck.
Sýnd kl. 6 og 9. „Pokadýrið”.
Sýnd kl. 3.
Tjarnarbíó: ,,Bræðurnir.“
Patricia Roc, Will Fyffe, Max-
well Reed. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
„1001 nótt.“ Sýnd M. 3.
Tripoli-Bíó: „Framliðinn leit
ar líkama". James Mason, Mar-
garet Lockwood, Barbara Mull-
en, Dennis Price. Sýnd kl. 9.
,,Næturritstjóri“. William Garg
an, Jenis Carter. Sýnd kl. 5 og 7
Bæjarbíó, Hafnarfirðj: „Örlög
ráða“. Viveca Lindfors, Stig
Járrel, Anders Henrikson, Olof
Widgren, Hasse Ekman. Sýnd
kl. 9. „Heldri maður einn dag?“
sýnd kl. 7.
Hafnarfjarðarbíó: „Fjöreggið
mitt“. Claudette Colbert, Fred
MacMurreý. Sýnd kl. 7 og 9.
SKEMMTIST AÐIR:
Tivoli: Opið frá kl. 14—23,30.
HLJOMLIST:
Hljómleikar nemenda Tón-
listarskólans, í Tripolíbíó kl. 3
síðd.
SAMKOMUHUSIN:
Breiðfirðingabúð: Stúdenta-
ráð Hóskólans, dansleikur
kl. 8.30 síðd.
Hótel Bosg: Klassísk hljóm-
list frá kl. 8,30—11.30 síðd.
Ingólfscafé: Gömlu dansarnir
kl. 9 síðd.
G.T.-húsið: Gömlu dansarnir
kl. 9 síðd.
Iðnó: Almennings dansleikur
,kl. 9 síðd.
Mjólkurstöðin: Dansleikur,
Glímufélagið Ármann kl. 9.
Tjarnareafé: Samsæti fyrir
norsku leikarana kl. 5.30 síðd.
Þórscafé: Gömlu dansarnif
kl. 9 síðd.
Útvarpið
20.30 Ávarp frá Mæðrastyrks-
nefnd (frú Auður Auð-
uns).
21.00 Lúðrasveit Vestmannaeyja
leikur (Oddgeir Krist-
-jánsson stjórnar).
21.15 Upplestur: Sigurjón Jóns
son rithöfundur les úr
bók sinni „Sögur og æv-
intýri“.
21.35 Tónleikar: „Espana“ eftir
Chabrier (plötur).
21.45 Upplestur: Kvæði eftir
Kolbein Högnason (Böðv
ar Jónsson les).
22.05 Danslög (plötur).
KROSSGÁTA NR. 31.
Lárétt skýring: 1. Jurt, 7.
greinar, 8. grund, 10. tónn, 11.
tónverk, 12. blótstaður, 13. ó-
samstæðir, 14. krota, 15.
skemmd, 16. þunnur steinn.
Lóðrétt, skýring: 2. Sköp, 3.
farva, 4. tveir eins, 5. vefjur, .6,
styður, 9. rekkjuvoð, 10. svif,
12. sleipur, 14. þrældómur, 15. ’
frumefni.
Reykvikingar! Munið mæðra
daginn á sunnudaginn kemur.
Mæður, leyfið börnum ykkar að
selja merki mæðradagsins þann
dag.
Lausn á nr. 30.
Lárétt, háðning: 1. Ýskrar, 7.
kær, 8. KRON, 10. B N, 11. jór,
12. fag, 13. ós, 14. örðu, 15. ála,
16. Pálmi.
Lóðrétt, ráðning: 2. Skor, 3.
kæn, 4. R R, 5. rangur, 6. skjól, i
9. rós, 10. bað, 12. Fram, 14. öll,
115. Á Á.
Messur
Dómkirkjan: Messað á morg-
un kl. 11 f. h. (mæðradagurinn)
séra Jón Auðuns.
Fríkirkjan: Messað á morgun
kl. 2 e. h. Síra Árni Sigurðsson
Hallgrímssókn: Messað á
morgun í Austurbæjarskólan-
um kl. 2 e. h. Séra Sigurjón
Árnason..
Nessókn: Messað á morgun í
Kapellu Háskólans kl. 2 síðd
Séra Jón Thorarensen.
Fríkirkjan í Hafnarfirði:
Messað á morgim .kl. 2 e, h
Séra Kristinn Stefánsson.
Aðventkirkjan: Fyrirlestur á.
sunnudag kl. 5 síðd.
verður selt á morgún, sunnudag, á gotuna
bæjarins og í Þingholtsstræti 18, Miðbæj-’
ar- og Austurbæjarbarnaskólanum og 1
Elliheimilinu.
og ungimgar
eru beðin að hjálpa til og mæta á þessum
stöðum klukkan 10. — Góð sölulaun.
Nefndin.
Söngur Guðmundu Elíasdóttur.
GUÐMUNDA ELÍASDÓTT
IR sópránsöngkona hélt söng
skemmtun í Gamla Bíó s. 1.
miðvikudagskvöld. Söngskrá
in var fjölbreytt, og voru
meðal viðfangsefnanna fjög-
ur erlend sönglög og fimm
íslenzk og auk þess ariur eft-
ir Hándel, Mozart og Verdi.
Af íslenzku lögunum hafa
tvö sialdan eða ekki heyrzt
á hljómleikum hér áður,
„Lullu, lullu bía“-eftir Karí
O. Runólfsson, lítið lag en
blæþýtt og nokkuð sérkenhi
legt, og „Nú jandar nætur-
blær“ eftir Pál Kr. Pálsson.
Lag Páls er taTsvert viða-
mikið og allsterkt í bygg-
ingu, en hinn þráláti skrefa
gangur laglínunnar gerir,
hana óþarflega eintrjánings-
lega og dregur úr heiidará-
hrifum lagsins. Má þó telja
víst, að fleiri góðra laiga sé
að vænta þaðan sem þetta
kom.
Þorvaldur Steingrímsson
lék með á fiðlu í nokkrum
lögum af hæversku og smekk
vísi. Undirleik á píanó ann-
aðist Anna Pjeturss, og virt-
ust henni vera nokkuð mis-
lagðar hendur að þessu sinni.
Líklegt er, að taugaóstyrk
ha'fi verið um að kenna, en
hjá því fór ekki, að sá óstyrk
ur gripi um sig og hefði sín
áhrif á söngkonuna og jafn-
vel áheyrendur. Gætti þessa
ekki sízt í Mozart-aríunum
síðast á söngskrármi, sem
annars virtust láta söngkon-;
unni sérlega vel.
Guðmunda sýndi góðan
skilning á viðfangsefnum
sínum. Röddin er mikil, all-
vel skóluð og blærík og fög-
ur á bezta sviði, en nokkuð
ójöfn á efstu tónunum, og er
þess að vænta að það lagist
með aukinni þjálfun, enda
er söngkonan nú á förum ut-
an til framhaldsnáms í Dán-
mörku.
Aðsókn að hljómleikunum
var allgóð eftir ástæðurn, en
hefði átt að vera meíri. Víð-
tökur áheyrenda voru rnjög
góðar.
J. Þ,
hætta af skolpl.
BÆJARSTJÓRNIN ræddi
á fundi sínum í gær hinn,
fyrirhugaða sjóbaðstað fyrir
almenning í Fossvogi og úti-
vistarsvæði á Öskjuhlið, en
borgarlæknir hefur samið
ýtarlega greinargerð uim
þessi efni.
Við þessar umræður benti
Jón Axel Pétursson á nauð-
syn þess, að skolp yroi ekki
látið renna út í Fossvog með
tilliti til sjóbaðstaðarins,
heldur yrði því veitt yfir í
Elliðaáryog og til þess kom-
ið upp sérstakri dælu í í'oss-
vogi. En eins og kunnugt er,
hefur mikil byggð risið upp
þar syðra, og fer hún æ vax-
andi. Hlýtur sjóbaðstaðnum
að stafa mikil hætta af skoip-
veitunni, ef ekki er horf ið að
ráðstöfun þeirri, sem Jón
Axel benti á eða annarrj hlið
stæðri.
Brúðkaup
Á hvítasunnudag voru gefin
saman j hjónaband af síra Leó
Júlíussyni í Borgarnesi Ingi-
björg Eiðsdóttir og Guðmundur
Ingimundarson bakari, Borgar-
nesi.
I
Nemendur vitji einkunnabóka og próf-
skírteina mánudaginn 24. maí, þannig:
1. bekkur kl. 10 árd.
2. bekkur kl. 2 síðd.
3. bekkur M. 5 síðd.
Hver bekkur mæti þar, sem hann var ;i
prófi.
Ingimar Jónsson.
w~