Alþýðublaðið - 03.06.1948, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 03.06.1948, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 3. júní 1948. ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 Brunabotafélag íslands vátryggir allt lausafé (nema verzlunarbirgðir). Upplýsingar í aðalskrif- stofu, Alþýðuhúsi (sími 4915) og !hjá umboðs- mönnum, sem eru í hverjum kaupstað. Gólfteppa- hreinsunin, Bíó Camp, Skúlagötu. Húsmæður þær, sem hugsa sér að láta hreinsa gólfteppi sín og húsgögn fyrir sumarið, ættu að hringja sem fyrst í síma 7360. Köld borð og heíiur veiilumaiur sendur út um allan bæ. SÍLD & FISKUB Barnaspítalasjóðs Hringsins eru afgreidd í Verzl. Augustu Svendsen, Aðalstræti 12, og í Bókabúð Austurbæjar, Laugavegi 34. Minningarspjöld Kvenfélágs Néskirkju fást i eftirtöldum stöðum: Verzl. Asgeirs Gunn- laugssonar, Austurstræti. Verzl. Halldórs Eyþórsson- ar, Víðimel. Pöntunarfé- laginu, Fálikagötu, Reyni- völlum í Skerjafirði og Mýrahhúsaskóla. Pésningasandur Fínn og 'grófur skelja- sandur. — Möl. Guðmundur Magnússon. Kirkjuvegi 16, Hafnarfirði. — Sími 9199. Kaupum tuskur Baldurgötu 30. Sextugor I dag: Jens Kristjánsson fisksali SEXTUGUR er í dag Jens Kristjánsson fisksali í Hafn- aríirði. Allir Hafnfirðingar þekkja Jens, því hér í bæn- um hefur hánn dvalið síðast liðin 23 ár. Flutti'st hann hingað frá Breiðafirði, en þar hafði hann stundað sjó- mennsku óg búskap um mörg ár. Var hann jafnan á skipum með aflasælum skip- stjórum, énda mjög eftirsótt- ur í skipsrúm vegna sérstaks dugnaðar og góðrár viðkynn- ingar. Meðan Jens stundaði handfæraveiðar á vestfirzku skútunum var hann alla jaina fiskinn og var óftast með þeirn aflahæstu á þeim skipum. Þegar suður kom, stur>,daði Jens sjómennsku á togurum og fyllti vel sitt sáeti þar, éins og á gömlu skútunum. Þegar Jens hætti sjómennsku, stundaði hann daglaunavinnu um nokkurra ára bil, en nú í nokkur ár hef- ur hann stundað fisksölu hér í bæ. Þeir, sem til Jens koma, mæta ekki neinum kulda eða óþýðu viðmóti; hann afgreið- ir viðskiptamenn sína bros- andi Qg með hlýlegu viðmóti, og lýsir það nokkuð hvern mann Jens hefur að geyma. Jens er kvóngaður Þor- gerði Guðmundsdóttur, hinná ágætustu konu. Hafa þau ver ið samhent í búskapnum og þótt oft hafi naumt verið um efnin, þá hefur hún haft lag á að láta lítið duga vel. Þau hafa eignast sex mann vænleg börn, en eitt þeirra dó ungt. Fyrir nokkrum á’r- um urðu þau fyri.r þeirri þungu sorg að missa upp- kominrj son, Braga að nafni, drúkknaði af togara. Var það mesfi efnispiltur sem þau hjón tengdu miklar vonir við. En Ægir spyr ekki um slíkt, þegar hann krefur um mannfórnir. Jens hefur alla tíð fyigt með lífi og sál hinni íslenzku alþýðuhreyfingu. Hefir verið góður félagi jafnan í V.M.F Hlíf og hefur skipað sér und- :.r merki Alþýðuflokksins og ann honum óg hans umbóta- málefnurn, sem unnin eru óg éihis hínum, sem óunnin eru. Á þessum tímamótum sendi ég bæði, fýrir niína hönd og annara velunnara Jens í þessum bæ — því þeir eru margir, honum og Þor- gerði honu hans beztu árn- aðaróskir. Við þokkum hon- um fyrir öll liðnu árin og vonum að hamingja rhégi gista hús þeirra hjóna á ó- komnum árum. Viniu*. (Frh. af 1. síðu.) don hermir, þegið boð eins af flokksmönnum sínum um þingsæti fyrir Pretoríu til þess að hann getd verið á- fram formaður flokks síns, samenaða flokksir.s, á þingi Suður-Afríku; en Smuts féll sem kunnugt er í kjördæmi sínu við kosningarnar í vik- unni, sem leið. Dr. Malan, formaður þjóð ernisflokksins. sem sigraði í kosnihgunum, er nú að mynda nýja stjórn. Bréf sjómannafélags sijornarinnar Framhald af 3. síðu. störfum í landi, sem þá buðust í ríkara mæli. í stríðslokin munu hafa verið skráðir í landinu um 29 togarar. Af þeim er.u þeg ar seldir úr landi 13, sam- tals 4083 rúmlesti-r. Eftir eru væntanlega óseldir 16 togarar, samtals um 5569 rúmlestir. Til landsins hafa verið keyptir 25 nýir togarar, sam tals 16511 bl. óg 3 nú 12 ára gömul skip samtals 1860 rl., eða samtals 18371 rúml. Sé rúmlestatala hinna 16 gömlu tcgara tekin með, verður heildarrúmlestatala 44 tog- ara 23940. Ger.t er ráð fyrir að tVeir nýir togarar bætist flotanum á þessú sumri, ann ar til Reykjavíkur og hinn til Hafnarfjarðar; verður •tala togaranna þá 46, samtals 25250 rúmlestir, eða 8 fleiri en þeir voru 1931. Rúmlesta talan er að vísu allt að helm- ingi hærri nú en þá. Hvernig dreifast svo þessi skip? Reykjavík: 12 ný, éitt 12 ára og 7 görmi.1, samtals 20; Hafnarfjörður: 5 ný, 6 gömul, samtals 11; Keflavík: 1 nýtt; Vestmannaeyjar: 2 ný, 1 gamalt, samtals 3; : Nesbaupstaður: 2 ný; Seyðisfjörður: 1 nýtt; Akureyri: 1 nýtt; Siglufjörður: 1 nýtt; ísafjörður: 1 nýtt; Patreksfjörður: 2 12 ára; Stykkishólmur: 1 gamalt; Akranes: 1 nýtt og 1 gam- alt, samtals 2. Samtals 27 ný, 3 12 ára, 16 gömul, samtals 46. Á nýju og stærri togurun- um þremur, eru að meðal- tali 30 manna áhöfn og á gömlu fogurunum má reikna með meðaltölunni 27. Flot- inn eins og hann er nú, að viðbættum áðurgreindum tveimúr skipum, veitir þá 1332 mönnum atvinnu. Hvernig verður svo hlutur Reykjavíkur og Hafnarfjarð ar, ef gömlu togararnir verða seldir úr landi? Á sjö gömlu togurúhúih í Reykjavík geta haft skipsrúm 189 ménn og í Hafnarfriði 162 menn á 6 skipum. Nýju tógararnir taka á móti í Reykjavík 390 og Hafnarfirði 150 mönnum. Reykjavík t'élur nu 54 þús. íb'úa, ög þótt 20 togarar væru gerðir út héðan, er tala sjómanna ékki hærri — 579 á móti 625 1931. Hér er því um mikla aftur för fyrir Reykiavík að ræða og bví hreinasta glaþræði að fækka togurunum, frá því, sem nú er. Togurunum þarf að fjölga, ef Reykjavík á að halda hlut sínurh 1 samæmi við aðra bæi á landinu, sem reka togaraútgerð. Fyrir hvert skip, sem héðan er selt, hvort heldur er ,til útlanda eða innanlands, verður að koma tögari í staðinn. Sjómenn líta fneð miklum ugg á framtíðaratvinnu sína, ef skipunum fækkar. Nú er svo komið, að margir þeirra, sem um skeið hafa unnið við ýmsar framkvæmdir í landi, leita á togara, og atvinnu- leysis þegar örðið vart meðal togarasjómanna og mun auk ast, ef skipunum fækkar. Við viljum að síðustu Jarðarför móður minnar, Gu^bjargar Guðanundsdéttur, fer fram frá Frá Fríkirkjunni föstudaginn 4. þ. m. og hefst þar klukkan 2 síðdegis. Jón Ásbjörnsson. benda á, að mestur hluti hinna gömlu togara hafa fenigið flokkunaraðgerðir (klössun) á árunum 1946 og ’47 og þurfa því ekki næstu tvö árin slíkra aðgerða við. Þá eru mörg þeirra af viðun andi stærð, um og yfir 400 rúmlestir. Við höfum hér að framan fært rök að því, frá atvinnu- legu sjónarmiði, inn á hve hála braut er farið, ef togara sölur eru ekki stöðvaðar úr landinu. Þá hlið málsins er snýr að gjaldeyrisöflun fyrir þjóðina höfum við ékki rætt. En hún ér augljós hverjum manni, sem fylgi'st með afla brögðum tógaranna og sölu á erlendúih mörkuðum. Ef talið er hagkvæmt af einhverjum ástæðum að selja úr landi einhvern hinna elztu og lökustu togara, þá teljum við rétt og skylt, að sú kvöð fylgi, að andvirðinu sé varið í annan togara, enda sé unnið markvisst að því að sú endurnýjun verði svo fljótt framkvæmd sem frék-' ast má. Að öðru leyti bein- um vér beim tilmælum til hæstvirtrar ríkisstjórnar. að hún stöðvi sem frekast ’ má fleiri togarasölur úr landinu en orðið er þar til öll þau skip eru komin til landsins, sem þegar hefur verið samið um smíði á“. ttffl Árna Mafhiesen SKÖMMU EFTIR fráfall hins mæta og góðia drengs Árna verzlunarstjóra Mathie s-ens, eem öllum var harm- dauði, er til hans þekbtu. af- hentu nokkrir vinir hans ekju hans, frú Svövu Mathie- sen, dálítihn sjóð til minnin g ar tml hann og var hénni fal- ið að ráðstafa honum. Síðast liðið sumar afhenti frúin barnastúkunni ,,Kærleiks- bandið nr. 66“ sjóð þennan. Hefur nú verið samin skipu- lagsskrá fyrir minndngarsjóð inn og var hún staðfest af for seta íslands 17. febr. síðastl. í skipulagsskrá þessari seg ir svo m- a.: „Sjóðurinn tek- ur við gjöfum, áheitum og minningargjöfum um. látna menn og konur frá öllum þeim, sem efla vilja vöxt hans og styðja tilgang hans. . . . Tilgangur sjóðsins er iað efla starfsemi barnastúkunnj ar Kærlei ksbandið nr. 66 í Hafnarfirði, og ræður fram- kvaemdanefnd stúkunnar hvemig það er bezt gert.“ Eins og öllum er kunnugt, sem þektu Árna heitinn, var bindindisstarfsemin eitt af aðal áhugamálum hans. Frá barnsaldri tók hann virkan þátt í henni og var þar ekki eftirbátur föður sí,ns eða ann arra frænda. Þessi ákvörðun frúarinnar, að afhenda sjóð- inn barnastúkunni, er í alla staði hin heppilegasta og í fyllsta samræmi við skoðan- ir Árna heitins á þessum mál um, því honum var fyllilega Ijóst. að í bessum efnum á bezt við sígilda spakmælið, ,,hvað ungur nemur, gamall sér temur“. Ég er þess fullviss, að þeir eru líka fjölmargir, sem hafa þessa sömu skoðun. Þess vegna vildi ég með þessum orðum mínum vekja athygli þeirra á þessum minningar- sjóði, :sém vonandi verður éinn liðurinn. og ekki sá ó- merkilegasti, til aukinnar bíhdindiisstarfsemi, sem öllum hugsandi mönnum er ljóst að verður að efla til blessunar landi og þjóð. fíjarni Snæbjörnsson. Neituðu að iesta Hafnarverkamenn í i\ew ioik neituðu íyrir nokkru að lesta rússneska skipið „Rossija“, sem lá þar við hafnargarð> Skipið er í baksýn á myndinni.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.