Alþýðublaðið - 09.07.1948, Page 4
4 <>
FöstttdaguiSim 9. í j#f ÍL948.
Útgefandl: Alþýðuílokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Beneðikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýð^prentsmiðjan huf.
EF BANDARÍKI NORÐ-
UR-AMERÍKU hefðu setið
hjá í annarri heimstyrjöld.
inni, hefði Hitler mjög senni-
lega unnið hana. Og að
minnsta gosti er óhætt að
fullyrða, að Hitler hefði
aldrei verið sigraður án í-
hlutunar þeirra og þess þunga
lóðs, sem þau lögðu í vogar-
skál styrja'ldarinnar.
Það var ekki einasta, að
Bandaríkin sendu milljóna-
her til Evrópu til þess að
skakka leikinn og bjarga
frelsi og lýðræði hins gamla
heims, sem ógnað var af
nazismanum; þau sendu
jafnframt hinum aðþrengdu
þjóðum, fyrst og fremst Bret-
um og Rússum, vopn og vistir
£yrir tugþúsrtndir miRjóna
dollara, samkvæmt hinum
svokölluðu láns- og leigulög-
um, til þess að styrkia þær í
hinni sameiginlegu baráttu
*
Eftir stríðið var Evrópa í
rústum. Og það, sem máske
var enn verra: Þá kom í Ijós,
að þrátt fyrir hinn sameigin-
lega málstað í styrjöldinni,
í vörninni og síðar í sókninni
gegn þýzka nazismanum,
varð engu samkomulagi náð
með Vesturveldunum, Banda
ríkjunum og Bretlandi, ann
ars vegar og Rússlandi hins
vegar um viðreisn álfunnar.
Þá komu Bandaríkin fram
með hugmyndina um Mars'
halláætlunina, — viðreisn
Vestur-Evrópu með fjárhags-
legri aðstoð þeirra. Það má
segja, að það sé aðeins rök-
rétt áframhald á láns- og
Ieiguhjálp Bandaríkjanna á
ófriðarárunum. Upphaflega
var og Marshallhjálpin boðin
allri Evropu; en Rússland
sagði nei og bannaði grann-
ríkjum sínum að þiggja hana
eða taka nokkurn þátt í sam-
eiginlegu átaki Évrópu til
viðreisnar. Það hafði fúslega
þegið og meira að segja frek-
lega gengið eftir láns- og
leiguhjálp Bandaríkjanna á
ófriðarárunum; en nú var
Hitler sigraður fyrir hið
mikla átak Bandaríkjanna, en
einnig með frækilegri vörn
og sókn Rússlands sjálfs; og
nú hélt það, að tími komm-
únismans væri kominn í Ev-
rópu,.ef nógu lengi tækist að
ala á eymd og öngþveiti eftir
styrjöldina; og í augum þess
urðu Bandaríkin, sem björg-
uðu því frá hruni á ófriðarár-
unum, að hötuðum þröskuldi,
sem væri í vegi fyrir alger-
um yfirráðum Rússlands í
Evrópu.
*
Menn reyni nú að setja sig
í spor Bandaríkjamanna í
Hryssingur og ruddi. — Eíur hver eftir öðrum.
— Ferðaiagið til útlanda. — Miidll áhugi. —
Umhverfi Mjólkurstöðvarinnar. — Nýir gras-
blettir við Hringbraut.
Veona sumarlev fa
Sveinn I verður verkstæði okkar Iokað frá 17. júlí til 2. ágúst að báðum dögimi meðtöldum. ígifsson h.í.
MAÐUR GAT allt af búisí við
hraglanda þegar við undirrituð
um samningínn, sem kendur er
við Marshall, hinn ameríska, en
þó mun bölvaður ruddinn í blaði
kommúnisía næstum því koma
mönnum á óvart. Það er svo að
sjá að þeir hafi umsnúist, enda
verður maður næstum því skít
ugur á höndunum við að lesa
blað þeirra, þó getur maður
brosað við og við. í gær hirtir
blaðið fregn frá Stokkhólmi og
segir þar frá ummælum „Þjóð-
viljans“ þar í horg. Á morgun
kemur svo tilvitnun í önnur
kommúnisíablöð í Evrópu. Ekk
ert er líklegra en að ummæli
„Þjóðviljans" um sama mál séu
birt í þessum sömn blöðum þessa
dagana. Þetta getur maður kall
að alþjóðlega samvinnu.
„FERÐALANGUR" skrifar
mér á þessa leið. „Mér þótti
vænt um pistilinn þinn þar sem
sú stingur upp á því, að við efn
um til hópferðar næsta sumar
til annara landa og frumkvæði
bréfritara þíns er líka lofsam
legt. En skýzt þó skýr sé. Loch
Lomond er vatn en ekki fjörð-
ur — og Loch Long er ekki til
svo ég viti. Annað er það einnig
sem ég vil ræða við þig. Mér
finnst að ekki nái nokkurri átt
að farið sé að efna til farar til
Noregs eða Danmerkur. Við eig
um að fara til Ítalíu eða Suður-
Frakklands. Sú för yrði sízt
dýrari en för til Norðurland-
anna.“
„EN ÞETTA ER allt hægt að
áthuga þegar fram líða stundir.
Ég treysti þér og öðrum góðum
mönnum til að rannsaka mögu-
leikana fyrir því að efnt verði
til svona farar næsta vor eða
sumar. Ekki er ráð nema í tíma
sé tekið og tel ég bezt að nú þeg
ar verði snúið sér að því að fá
þetta fram. Viltu nú ekki hafa
forustuna fyrir þessu, að
minnsta kosti að hrinda þessu af
stað? Ef þú vilt ekki vera með
í framkvæmdinni sjálfri geturðu
dregið þig í hlé. Annars er vit-
anlega bezt að Ferðaskrifstofan
taki málið að sér. Ég er farinn
að bers traust til þeirrar stofn-
unar“.
ÞETTA SEGÍR FEF ÐALANG
UR — og ég veií að hann er víð
förlari en flestir aðrir. Fleiri
en hann hafa skrifað mér og
hingt til mín út af þessu máli
og er auðfundið að mikill á-
hugi en á því. Menn geta að
sjáifsögðu deilt um hvert skuli
fara, en það verður ákveðið af
fáum og síðan tilkynnt um þátt
tökuna. Það er ekki líklegt að
mikið yrði úr förinni ef allir
ættu áð ráða hvert farið yrði.
En fyrst er nú að athuga allar
aðstæður, reyna fyrir sér um
skip og annan kost til svo mik
illar ferðar. Loch Lomond er
vatn, en ekki fjörður. — Og það
er ekkert verra fyrir það. Loch
Long, ekki til! Hver sagði að
það þyrfti endilega að vera til?
ÉG SÉ að Mjólkursamsalan
er að prýða kringum Mjólkur-
stöðina. Svæðið að veginum hef
ur verið lagt þökum og lítur nú
öðru vísi út en áður meðan þar
var svartur moldarbyngur. Nú
er hlýrra og myndarlegra kring
um þetta merka hús, sem á nú
orðið álíka sögu og þjóðleikhús-
ið, en svo virðist sem upp sé
að koma keppni um það hvort
taki fyrr til starfa.
ÞÁ ER NÚ VERIÐ að þekja
grasbletti við Hringbraut í Aust
urbænum. Vonandi fer ekki fyr
ir þeim eins og hinum fyrri gras
blettum þarna. Að minnsta kosti
mun það ekki ganga hljóðlaust
að þeir verði gerðir að bílstæð-
um.
Hannes á horninu.
eifiii viiai anreytta a-
lagningu en verja tekjuaukanum tl! tog-
arakaupa og annnarra framkvæmda
NIÐURJÖFNUNARNEFND, bæjarráð og bæjarsíjórn
samþykkja að lækka álagningu útsvara um 10—65% hlutfalls-
lega frá því sem var s.I. ár. Framtöl og eignakönnun sýndu
stórhækkaðar tekjur og eignir fólks, og fór álagning útsvar-
anna við fyrstu yfirferð langt fram úr áætlun. Alþýðuflokkur-
inn Iagði til að fengið yrði leyfi félagsmálaráðxmeytisins til að
hækka fjárhagsáætlun bæjarins um þessa upphæð, en. hinir
flokkarnir í niðurjöfnunarnefnd, hæjarráði og bæjarstjórn
felldu það. Vildi flokkurinn að þær tekjur, sem þannig fengj-
ust, yrðu notaðar til togarakaupa og annarra arðhædra fram-
kvæmda.
Gisfihús opnað að Búðum
NÆSTU ÐAGA verður
cpnað gistihús að Búðum á
Snæfeiisnesi og verður það
rekið á vegum Félags Snæfell
inga og Hnappdæla. Forstöðu
kona gistihússins er Kristín
Jóhannsdóttir.
Gistihúsið mun taka á
móti fólki til sumardvalar
og er félögum í Snæfellinga-
félaginu bent á, að þeir geta
tryggt sér þar gistingu í sum
arleyfum sínum , ef þeir panta
sem fyrst herbergi hjá for-
stöðukonunni.
Álagningu aukaútsvara í
Akureyarbæ er nýlokið.
Jafna skyldi niður röskum
fimm milljónum króna. Nið-
urjöfnunarnefnd notaði sama
skattstiga og sl'. ár. Einnig
fyrir rekstursútsvör. Þegar
lokið var fyrstu yfirferð kom
í Ijós að nefndin hafði nær
hálfa millján króna fram yf-
ir það, sem fjárhagsáætlun
bæjarins ákvað að jafna
iskyldi niður. Fulltrúi Alþýðu
flokksins bar þá fram eftir-
faran.di tillögu í nefndinni,
eftir að hafa ráðfært sig við
fulltrúa flokksins í bæjar-
stjórn og fleiri áhrifamenn
innan flokksins:
,-Þar sem í ljós hefur
komið við álagningu út-
svaranna nú — sem fram
kvæmd hefur verið eftir
isömu reglum og síðasta
ár — að upphæð sú, sem
/dt hefur komjið', er all
miklu hærri én fjárhags-
áætlun bæjarins fyrir
þetta ár gerir ráð fyrir,
og í öðru lagi auki hag
þeirra efnalega og tekju
lega, samþykkir nefndin
að leggja til við bæjar-
stjórn, að ekki sé af þess
iari upphæð slegið og bær
inn sæki þegar um leyfi
i’ffálagsmálaráð uneýtisins
til að hækka fjárhagsá* *
ætlunina um þá upphæð,
sem hér um ræðir og
verði fé því, sem fæst á
þennan hátt, varið til tog
arakaupa og annara arð-
berandji framkvæma í
bænum, sem stefna að
aukinni atvinnu og bæt-
andi hag bæjarhúa“.
Þegar á fund iniðurjöfnun-
arnefndar kom. en það var
sá fundur er ganga átti frá
bókun og undirrita útsvars-
skrána, lenti allt í þjaski og
jafnvel persónulegum skömm
um. Felldu fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins, Framsóknar
og kommúniista tillöguna í
einum kór. Þá bar fulltrúi A1
þýðuflokksins fram tillögu
um að frestað yrði að undir-
rita skrána og gerðabókina
þangað til bæjarstjórn hefði
fjallað um málið, en því yrði
skotið til hennar þegar í stað.
Þessa tillögu felldu fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins og Fram
isóknar en fulltrúi kommún-
ista greiddi henni atkvæði.
Eftir þessa meðferð í niður-
jöfnunarniefnd, tóku bæjar-
fulltrúar Alþfl. málið upp í
bæjarstjórn og kröfðust auka
jFrh. á 7. siðu.)
sambandi við þessar deilur.
Þeir áttu engan þátt í þeim
viðburðum, sem leiddu til
annarrar heimsstyrjaldarinn-
ar, frekar en í þeim, sem
leiddu til hinnar fyrstu; en
þeir vita, að þeir hafa í báð-
um þessum styrjöldum ráðið
úrslitum, — komið ‘lýðræðis-
þjóðunum í Evirópu til hjálp-
ar, hernaðarlega og fjárhags-
lega, til þess að hindra ofur-
vald og kúgun eins ríkis í Ev-
rópu.
Bandaríkin hafa ekki gert
þetta af neinum mannkær-
leika, sem þeim sé eiginlegur
umfram önnur ríki. Þau
hafa gert sér það ljóst, að al-
ger sigur eins herveldis í Ev-
rópu myndi fyrr eða síðar
ógna öryggi hins nýja heims.
En Bandaríkin langar eðli-
lega ekkert til þess, að senda
unga syni sína á blóðvöll í
Evrópu í þriðja sinn. Þess
vegna gera þau nú með Mars-
hallaðstoðinni — áframhaldi
láns- og leigulaganna á ófrið-
arárunum — ýtrustu tilraun
til þess að reisa Eytrópu úr
rústum eftir ófriðinn. Þau
gera sér Ijóst, að það var
ekki nóg að sigra Hitler, að
það væri ekki nóig að vinna
stríðið; það yrði líka að vinna
friðinn.
Það stríð er nú að byrja
með Marshalláætluninni; og
svo merkilegt, sem það er, —
það stríð verður að heyja við
Rússland og agenta þess og
aðdáendur úti um allan heim.
Fyrir nokkrum árum tign-
uðu þeir að vísu Bandaríkin
fyrir láns- og leiguhjáip
þeirra við Rússland; en nú
eiga Bandaríkin að vera í-
mynd alls hins illa í veröld-
innd af því. að þau vilja isjá
árangur af stríði sínu gegn
nazismanum og tryggja frið
í Evrópu.
Andstæðingar Marshall-
áætlunarinnar, en það eru
fyrst og fremst kommúnistar
og aðrir agentar Rússlands,
segja: Bandaríkin hafa boðið
j Marshallaðstoðina aðeins
vegna þess, að þau þurfa
nýja markaði í Evrópu til að
bjarga sjálfum isér. frá fjár-
hagskreppu. Um þetta skal
ekkért sagt; það má vera, en
mun ávalít verða ósennilegt.
En jafnvel þótt satt væri:
Hver ætlar sér þá dul, að
heimta, að Bandaríkin ein
fórni sér fyrir allan heiminn
og geri ekki einu sinni kröfu
til þess, að siá sjálfum sér
farborða um leið?
*
í stuttu máli: Marshall-
áætlunin er beint áframhald
á láns- og leigulögum Banda
ríkjanna á ófriðarárunum.
Láns- og leigulögin voru til
þess að vinna stríðið fyrir
vestrænt frelsi og lýðræði;
Marshallaðstoðini er til þess
að vinna friðinn fyrir sömu
hugsjónir. . /