Alþýðublaðið - 04.03.1949, Page 3
Föstudagur 4. marz 1949.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
í DAG er föstudagurinn 4.
marz. Sigurður Breiðfiörð skáld
fæddist bennan dag árið 1798.
.— í Alþýðublaðinu fyrir 19 ár-
um er sagt frá gífurlegum vatna
vöxtum í Árnessýslu og víðar á
Iandinu: „Sauðirnir í Útverlcum.
Þeir voru reknir, eftir að byrj-
aði að flæða á laugardags-
kvöldið, á stað, sem talið var að
þeir væru óhultir á, því að þar
hefur aldrei komið flóð áður,
það vita menn, en það fór nú
á annan veg og drukknuðu 34
þeirra. . . Alls voru sauðirnir
45, en forustusauðurinn, Mör-
hotni. bjargaði sér og tíu sauð-
um, með því að leggja til sunds
með þá og synda að hól, er upp
úr stóð um 100 faðma frá.
Seinna bjargaði hann sér og
þeim með því að synda að
Vörðufelli.“
Sólarupprás var kl. 7,2S. Sól-
arlag verður kl. 17,54. Árdegis-
háflæður er kl. 7.50. Síðdegis-
háflæður er kl. 20,07. Sól er í
hádegisstað x Reykjavík kl.
12,40.
Næturvarzla: Reykjavíkur-
apótek, sírni 1760.
• Næturakstur; Bifreiðastöð
Reykjavíkur, símf 1720.
Veðrið í gær
Klukkan 14 í gær var suðvest
an gola eða kaldi um allt land,
yíðast úrkomulaust og 4—7
stiga hiti. í Reykjavík var 4
stiga hiti.
Flygferðir
LOFTLEIÐIR: Geysir var vænt
anlegur frá New York árla
í morgun.
AOA: í Keflavxk kl. 6—7 í
morgun frá New York, Bost-
on og Gander til Oslóar,
Stokkhólnfs og Helsingfors.
AOA: í Keflavík kl. 22—23
annað kvöld frá Helsingfors,
Stokkhólmi og Kaupmanna-
höfn, til New.York og' Gander.
Skipafréttir
Laxfoss fer frá Reykjavík kl.
7,30, frá Borgarnesi kl. 18, frá
Akranesi kl. 20.
Esja er í Reykjavík. Hekla'
var í Álaborg í gær. Herðubreið
er í Reykjavík og fer héðan
yæntanlega aniiað kvöld austur
um land til Akureyrar. Skjald-
breið fer frá Reykjavík í kvöld
til Húnafla. og Skagafjaroar
ög Éyjafjarðarhafna. Súðin er í
Neagel. Þyrill er væntanlega í
Southshields. Hennóður var
væntanlegur til Reykjavíkur í
gærkvöldi.
Foldin er í Reykjavík. Linge
sroom er í Reykjavík. Reykja
nes er í Tranani.
Brúarfoss er í Reykjavík.
Dettifoss er í Grimsby. Fjall-
foss er væntanlegur til Reykja
víkur í dag. Goðafoss fór frá
Reykjavík kl. 8 í gærkvöldi til
Vestfjarða. Lagarfoss fór frá
Leith til Gautaborgar og Kaup
mannahafnar 2. þ. m. Reykja
foss er í Reykjavík. Selfoss fór
frá Antwerpen 28. þ. m. til
Kaupmannahafnar. Tröllafoss
fór frá Halifax 2. þ. m. til New
" York, Va.tnajökull fór frá Vest
mannaeyjum 28. f. m. til Ham
borgar. Katla fór frá New York
2. þ. m. til Reykjavíkui’. ITorsa
er í Reykjavík.
Söfn og sýningar
Málverkasýning Iíjarvals í
Listamannaskálanum. Opin kl.
11—23.
Skopmyndasýning Freyju.
götu 42: Opin kl. 14—22.
Skemmtanir
KVIKMYNDAHÚS:
Gamla Bíó (sími 1475): —
„Rakarinn frá Sevilla“ (ítölsk).
Ferruccio Tagliavini, Tito
Gobbi, Italo Tajo, Nelly Corradi
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Nýja Bíó (sími 1544): —
,,Látum droítinn dæma“ (ame.
rísk). Gene Tierney, Cornel
Wild, Jeanne Crain. Sýnd kl.
9. ,Frelsissöngur Sigaunanna“.
Sýnd kl. 5 og 7.
Austurbæjarbíó (sími 1384):
„Topper á ferðalagi“ (amerísk).
Roland Young. Constance Ben-
nett, Billie Burke. Sýnd kl. 9.
,,Ofvitinn“ (sænsk). Sýnd kl. 5
og 7.
Tjarnarbíó (sími 6485): —
„Tígulgosinn“ (ensk). Anthony
Humle, Joy Shelton. Sýnd kl.
5, 7 og 9.
Tripolibíó (sími 1182): —
„Boston Blackie kemst í hann
krappan" (amerísk). Chester
Morris, Lynn Merrick, Richard
Lane. Sýnd kl. 5 7 og 9.
Hafnarbíó (sími 6444): —
„Ástalíf" (frönsk). Constant
Rérny, Pierre Larquey, Alice
Tissot. Sýnd kl. 9. „Mr. Main
frá Hollywood“. Sýnd kl. 5.
Bæjarbíó, Hafnarfirði (sími
9184): Leikfélag Hafnarfjarð-
ar sýnir ,,Gasljós“ í kvöld kl.
8,30.
Hafnarfjarðarbíó (sími 9249):
„Tónaregn" (amerísk). Alice
Faye, Carmen Miranda, Phil
Bakker. Sýnd kl. 7 og 9.
LEIKHÚS:
Gasljós verður sýnt í kvölcl
í Bæjarbíói í Hafnarfirði kl. 8V2.
Leikfélag Hafnarfjarðar. .
Mírandólína, menntaskóla.
leikurinn, verður sýndur í dag
kl. 8 síðdegis í Iðnó.
SAMKOMUHÚS:
Breiðfirðingabúð: Árshátíð
húsgagnabólstrara kl. 6 síðd.
Hótcl Borg: Klássísk tónlist
verður leikin frá kl. 9—11,30
. Ing'ólfscafé: Hljómsveit húss-
ins leikur frá kl. 9 síðd.
Mjólkurstöðin: Dansleikur kl.
9 síðd.
Röðull: Grímudansleikur Far-
fugla kl. 8,30 síðd.
Sjálfstæðishúsið: Afmælishá-
tíð Verkstjrafélags íslands kl. 6
síðd.
Tjarnarcafé: Skemmtifundur
Kvæðamannaflagsins kl. 8 síðd.
Otvarpið
20.30 Forspjall um næstu út-
varpssögu: „Undan
krossinum“ eftir Einar
Benediktsson (dr. Stein-
grímur J. Þorsteinsson).
21.00 Strokkvarttinn „Fjark.
inn“: Þriðji og fjórði
kafli úr kvartett op. 18
nr. 6 eftir Betthoven..
21.15 Frá útlöndum (Jón
Magnússon fréttastjóri).
21.30 íslenzk tónlist: Sönglög
eftir • Þórarin Jónsson
(plötur).
21.45 Erindi: Baráttan við
krabbamein (Alfreð
Gíslason læknir).
22.15 Útvarp frá Hótel Borg:
Hljómsveit Carls Billich
leikur létt lög.
Úr öllum áttum
Ungbarnaverncl Líknar,
Templarasundi 3, verður fram
vegis opin þriðjudaga og föstu
daga kl. 3,15 til 4 síðd.
Hallgrímskirkja: Kvöldbænir
með passíusálmum kl. 8.
Börn, sem eiga eftir að gera
skil vegna sölu merkja fyrir
Rauða krossinn, eru beðin að
gera það sem fyrst.
C^><>C<><><><><><><><><>C<><><><X><><><><><><><><><><><><><>v>O<><><><><>0<><3><><><><><>í>
INNILEGUSTU ÞAKKIR
íæri ég öllum þeim, er sýndu mér vinarhug á 75 ára
afmæli mínu.
Anna Sigríður Aclólfsdóttir.
Laufásvegi 59.
!><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><>0'<><><><><^
Hér með iilkynnist
nð ég fiefi selt ASLAUGU JONSDOTTUR og
ALDÍSI EYJÓLFSDÓTTUR, hárgreiðslustofu mína,
Austui'stræti 20, hér í bæ og er rekstur hennar og
skuldbindingar mér óviðkomandi írá deginum í
dag- að telja.
Reykjavíky 3. marz 1949.
Bergljót Sigurðard.
Samkvæmt ofansögðu
höfum við undii’ritaðar keypt hárgreiðslustofu
BERGLJÓTAR SIGURÐARDÓTTUR, Austur-
stræti 20, hér í bæ, og rekum hana frá deginum í
dag að telja á okkar ábyi'gð.
Reykjavík, 3. marz 1949.
Aldís Eyjólfsdóttir.
Áslaug Jónsdóttir.
í sýningarsal Ásmundar Sveinssonar,
Freyjugötu 41.
Þrír listamenn.sýna 175 myndir.
Sýn'ngargestir geta fengið teiknaða mynd af
sér milli klukkan 2—5 og kliikkan 8—10.
QPIÐ DAGLEGA FRÁ KL. 2—10.
Álþýðubíaðið
vantar unglinga til blaðburðar í þessi
hverfi:
Melana
Bræðraborgarstíg
Seltjarnarnes
Alþýðublaðið
Kommúnistar vilja ekkerf eiga und-
ir stjórnum verkalýðsfélaganna
——..........— ■»------
Felldu í fulltrúaráðinu, að bera brott-
vikningu Þorsteins Péturssonar undir
úrskurð þeirra.
EFTIR TVEGGJA MÁNAÐA
VANGAVELTUR áræddi stjórn
Fulltrúaráðs verkalýðsfélag-
anna í Reykjavík loks að boða
til fundar í fulltrúaráðinu, s. 1.
miðvilcudag til að ræða um hina
tilefnislausu brottvikningu Þor
steins Péturssonar. Manndóm.
ur formannsins, Eggerts Þor-
bjai-narsonar, var þó ekki meiri
en það, að hann ætlaði að hespa
þetta mál af án umræðna, en
fulltrúar ýmsra þeirra félagá,
sem staðið hafa að rekstri skrif
stofu fulltrúaráðsins undanfarin
ár, kröfðust skýringa af stjórn
fulltrúaráðsins.
Formaðurinn svaraði aðeins
með dylgjum um starf Þor
steins og færðist hins vegar al
gerlega undan því að tilgreina
nokkrar ástæður fyrir uppsögn
inni. Ber hins vegar ekki á móíi
því að Þorsteinn hefði unnið vel
fyrir félögin, en fyrir fulltrúa-
ráðið sem slíkt hefði hann ekki
unnið þau störf, sem ætlast
hefði verið til-af honum.
Þegar Eggert var spurður að
því hvers vegna skipt hefði ver
ið um lása á skrifstofunni á
sömu stundu og uppsögnin yar
afhent, og forustumönnum félag
anna, sem afnot höfðu af skrif
stofunni þar með verið gert ó-
kleyft að komast þar inn, bá
svaraði Eggert því til ,,að með
tilliti til þekkingar okkar á þess
um sérstaka manni, var skipt
um lása á skrifstofunni“. Svo
algjört var rökþrot fulltrúaráðs
stjórnarinnar í þessu hneykslis
máli, að svör hennar voru ekki
annað en ógeðslegar dylgjur um
starf Þorsteins Péturssonar.
Þetta leyfðu þeir Eggsrt og
Snorri Jónsson sér, þrátt fyrir
það að fulltrúar þeirra félaga,
er mest afnot hafa haft af skrif
stofunni, lýstu því hver a£ öðr
um, að Þ. P. hefði leyst störf
sín fyrir félögin vel og sam_
vizkusamlega af hendi.
Að lokum rann aðstandend.
um stjórnax’innar svo til rifja
hin lítilmannalega framkomá
Eggerts og Snorra, að Einar
Ögmundsson gat ekki orða
bundist og skýrði frá hinni raun
vSrulegu ástæðu fyrir uppsögn
inni, ,,þ. e. að Þ. P. hefði á sxn,
um tíma ekki verið sporlatur
við að útmá áhrif Alþýðuflokks'
ins í verkalýðshreyfingunni“.
Gleggra gat svarið ekki vei’ið.
Þorsteini Péturssyni var ætlað
að taka laun hjá verklýðsfélög-
unum til þess að skipuleg'gjá
hveí’skonar klíkustarfsemi inn-
an þeirra, fyrir kommúnista; en
þegar framkvæmdastjóra
Kommúnistaflokksins varð það
ljóst, að Þorsteinn taldi að starf
sitt ætti að miðást við það að að
stoða verklýðsfélögin í starfi
þeirra, án tillits til stjórnmála.
skoðana, var nærvera hans á
skrifstofu fullti’úaráðsins ekki
þoluð lengur.
Á fundinum kom fram tíl-
laga um að leggja mál þetta
undir úrskurð stjórna verklýðs
félaganna í fulltrúaráðinu. For
'maður fulltrúaráðsins var sýni
lega ekki hrifin af svo lýðræð
isleg'ri afgreiðslu málsins, og
kom með frávísunartillögu, sem
sannþykkt var í krafti flokks
agans. — Er það að vísu skilj
anlegt að Snorri Jónsson, Einar
Ögmundsson og aðrir fyrrvei’r
andi forustumenn verkalýðsfé.
laganna, vilji ekki eiga úrslit
mála undir stjórnum verklýðs-
félaganna.