Alþýðublaðið - 04.03.1949, Page 4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Fösfudagur 4. inarz 1949,
Ctgefanðl: AlþýSuflckkorJnsu
Ritstjórl: Stefán Fjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal,
Þingfréttir: Helgi Sæmunðsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Anglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasími: 4906.
AfgreiSslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Óskadraumur aff-
urhaldsins
BJÖRN OLAFSSON hefur
ekki verið atkvæðamikill á
alþingi það sem af er þing-
mennsku 'hans. Hefur jafnvel
verið á orði haft, að þeir að-
ilar, sem mest lögðu á sig við
að koma Birni á þing, væru
ekki meira en svo ánægðir
með frammistöðu hans. En nú
hefur Björn Olafsson reynt að
reka af sér slyðruorðið og
vinna traust samherja sinna á
ný með því að flytja á alþingi
hreinræktuðustu íhaildsræðu,
sem þar hefur heyrzt árum
saman.
Með ræðu þessari fylgdi
Bjöm Ólafsson úr hlaði þings
ályktunartillögu sinni um að
dregið sé úr íhlutun ríkisins í
atvinnurekstri landsmanna og
að afnumin séu höft, skömmt-
un og nefndavald. En það, sem
fyrst og fremst vakir fyrir
þingmanninum, ier í stuttu
máli að ríkissjóður sé sviptur
tekjum af fyrirtækjum þeim,
sem hann rekur, en erfiðleik-
ar efnahagsmálanna séu leyst-
ir með því að lækka gengi ís-
lenzku krónunnar um allt að
25 % eða skerða launakjör al-
mennings um 33% frá því,
sem þau eru nú.
*
Það fer að sjálfsögðu ekki
hjá því, að alþýðustéttir og
launafólk landsins .veiti þess-
um boSskap Björns Ólafssonar
nokkra athygli. Raunar hefur
þingmaðurinn við þetta tæki-
færi aðeins reifað persónuleg-
ar skoðanir sínar, en vitað er,
að innan beggja borgaraflokk-
anna er áhugi fyrir gengis-
‘lækkun eða verulegri launa-
skerðingu. Sennilega myndi
önnur hvor þessi ráðstöfun
ieða báðar þegar hafa komizt
til framkvæmda, ef Alþýðu-
flokkurinn hefði ekki hindrað
slíkt með þátttöku sinni í nú-
verandi ríkisstjórn. En nú
krefst Bjöm Ólafsson þess á
alþingi, að ilátið sé til skarar
skríða í þessu efni, hvort sem
sú krafa hans fær þær undir-
tektir, sem hann ætlast til, eða
ekki.
Afleiðingar slíkra ráðstaf-
ana og þeirra, sem Björn Ól-
afsson heimtar, eru svo aug-
Ijósar, að þær þurfa ekki
skýringa við. Gengislækkun
eða stórfelild kaupskerðing
væri bein árás á vinnandi fólk
til sjávar og sveita og myndi
hafa það í för með sér, að þær
hagsbætur, sem launamenn
hafa hlotið á styrjaldarárun-
um og eftir stríðið, væru að
ilitlu eða engu gerðar. Erfið-
leika . • efnahagsmálanna á
samkvæmt boðskap Björns Ó1 í
Borgargötur og fjallvegir. — Prentari skrifar um
fegurðarsamkeppni og Fjallkonur. — Þvætting-
urinn um húsnæði starfsmanna Keflavíkurflug-
vallarins.
ÉG HELP að ráðlegast sé fyr-
ir bæjarverkfræðing- að hafa öll
tæki reiðubúinn og verkamenn
sína til taks, þegar veður leyfa
að hafizt sé handa um viffgerðir
á götunum í borginni. Það hefði
verið ósanngjarnt að hamast á
honum og heimta viðgerðir und.
anfarna tvo mánuði, því vinna
í götum hefur ekki verið fram,
kvæmanleg, nema snjómokstur-
inn, og þó hefur hann oft verið
hálfgerð Kleppsvinna. Nú koir.a
göturnar undan snjónum eins og
verstu fjallvegir. Margar þeirra
eru í raun og veru ófærar, og
þó held ég næstum þvi, að eng-
in sé eins siæm og Lækjargatan,
nema ef vera skyldi Suðurlands
brautin nálægt Tungu.
PRESTARI SKRIFAR mér á
þessa leið. „Oft lesum við um
það í blöðunum, að efnt er t.il
fegurðarsamkeppni kvenna í
ýmsum löndum. Flestir munum
við álíta þetta helberan hé_
gómaskap, og í raun og veru
ekki samboðið kvenþjóðinni.
Ekki er allt fengið með fegurð
holdsins og getur vel verið, að
fegurðinni fylgi tómt höfuð, svo
að drottningin sé í raun og veru
ekkert annað en snoppan. Við
höfum heldur ekki stofnað til
slíkra fyrirtækja sér á landi og
harma ég það ekki.
EN f SAMANDI VIÐ þessa
fegurðarsamkeppni datt mér
í hug, að við. ættum að velja á
hverju ári tígulega konu, sem
sópar að og er skörungur í fram
komu og máli, til að koma fram
sem Fjallkonan á íslendingadag-
inn. Hér á landi hefur þessi sið
ur ekki fest rætur, en þó hefur
hann stundum verið tekinn upp
á einstaka stað — og undanfar.
ið hefur leikkona verið válxn
til að flytja ávarp Fjallkonunn-
ar á þjóðhátíðardaginn hér í
Reykjavík.
NÚ VIL ÉG leggja til, að
efnt verði til samkeppni meðal
kvenna um þetta. Vil ég að aug
lýst verði eftir konum til að
konía fram 17. júní og flytja
ávarp Fjallkonunnar, og skal
við valið taka tillit til tígulegr-
ar framkomu, skörungsskapar
og hæfileika til framsagnar.
Mætti vel myndast um þessa
athöfn meiri eftirvænting en
enn er fyrir hendi og enn frem
ur, að þessu embætti fylgdi
meiri Ijómi en okkur hefur tek
izt að skapa um það hingað til.
Vona ég nú, að þeir, sém eiga
að standa fyrir hátíðahöldum
okkar í sumar, athugi þetta“.
GOTT DÆMI um þann skefja
lausa áróður, sem haldið er uppi
í innanlandspólitískum tilgangi
út af flugvellinum í . Keflavík
er niðurstaðan af þeim rann.
sóknum sem félagsmálaráðu-
neytið lét gera af tilefni grein-
ar í Tímanum, þar sem því var
haldið fram, að fjöldi amerískra
starfsmanna á flugvellinum
byggju í húsum hér í bænum
meðan landsfólkið sjálft stæði
á götunni eða yrði að hýrast í
óhæfu húsnæði.
VIÐ RANNSÓKNINA kom í
ljós að þetta var tilhæfulaus
þvættingur. Jafnvel eitt af þeim
húsum, sem greinarhöfundurinn
bsnti á þegar hann var kallað_
ur til yfirheyrslu, var ekki til.
Þessi niðurstaða varpar ljósi yf
ir allan þennan ógeðslega áróð
ur og ætti að vera nokkur
lexía fyrir þá sem stundum jafn
vel í góðri trú taka mark á
honum.
afssonar að leysa á þann hátt
að leggja á allan almenning
byrðar, sem bann fengi að
sjálfsögðu ekki undir risið.
En efnastéttirnar eiga ekki.að
láta neitt af mörkum tiil að
bæta úr ófremdarástandi, sem
þær bera þó áþyrgð á öllum
öðrum aðilum þjóðfélagsins
fremur. Þvert á móti á 'að
bæta aðstöðu þeirra til for-
réttinda og auðsöfnunar að
miklum mun frá því, sem nú
er. Opinberan rekstur á að
leggja niður og fá ríkisfyrir-
tækin leinkaframtakinu í
hendur. Jafnframt á að leggja
niður höft og skömmtun, svo
að einkaframtakið geti séð
óskadraum sinn rætast og
haft óbundnar hendur um
viðskipti og verzlunargróða!
*
Þessar ráðstafanir yrðu að
sjálfsögðu framkvæmdar af
annarri rikistjórn en þeirri,
sem nú situr. Þingsályktunar-
tillaga Björns Ólafssonar brýt
ur svo gersamlega í bága við
málefnasamning núverandi
stjórnarflokka, að hún er í
raun og veru ekki annað en
vantraust á ríkisstjórnina.
Einnig það er óskadraumur
afturhaldssamasta hiluta
beggja borgaraflokanna. En
Birnj Ólafssyni og samherjum
hans, ef einhverjir kunna að
vera á alþingi, er óhætt að
gera sér það fyrirfram ljóst,
að gengislækkun eða stórfelld
launaskerðmg verður ekki
framkvæmd nema í miskunn-
arlausri baráttu við verka-
lýðshreyfinguna og Alþýðu-
flokkinn. Alþýðuflokkurinn
hefur litið á það sem skyldu
sína að hindra slíkar ráðstaf-
anir og notað til þess aðstöðu
sína í núverandi ríkisstjórn,
og svo mun hann gera áfrkm.
En það er ekki nema ;gott,
að afturhaldið komi til dyr-
anna eins og það er klætt.
Boðskapur Björns Ólafssonar
mun vekja mikla athygli, því
að hann er sönnun þess, hvað
fyrir sumum íhaldsöflum borg
araflokkanna vakir, og sýnir
^jafnframt,. hvei’ju Alþýðu-
l flokkurinn hefur, meðal
margs annars, bægt frá dyr-
um launastéttanna og alls al-
mennings í landinu.
Hiúkrunarvörur
Útvegum leyfishöfum beint frá firmanu
CENTROTEX LTD., PRAG,
áður Rico N.P.
Sjúkrabómuli í pk.
Sárabindi
Heftiplástur
Idealbindi
Teygjusokka
Dömubindi og fl.
Sýnishorn á staðnum.
Eggerl Krlstjánsson & (o. h.f.
SKEMMTANIR DAGSINS
Hvað getum við gert í kvöld? Eigum við
að fara á dansleik eða í kvikmy-ndahús,
eða í leik-
sérstakt sé
ætli eitthvað
um að vera
í skemmtana-
lífinu? Eða
eigum við að-
eins að sitja
heima — og
húsið? Eða
hlusta á út-
varpið? Flett-
ið þá upp í
Skemmtunum
dagsins á 3.
síðu, þegnr þið veltið þessu fyrir ykkur.
— Aðeins í Alþýðublaðinu -
Gerizt áskrifendur. Símar 4900 & 4996.
E.s. Reykjafoss
fer héðan mánudaginn 7. marz
til Vestur- og NorðurJands.
Viðkomustaðir:
Isafjörður,
Siglufjörður,
Akureyri,
Húsavík.
H.f. Eimsbipafélag
íslands.
H.s. Hugrún
hleður til Súgandafjarðar,
Bolungarvíkur og ísafjarð-
ar. Vörumóttaka á mánu-
dag við skipshlið. — Sími
5220.
Sigfus Guðfinnsson.
Smurf brauS
Til í búðinni alílan daginn.
Komið og veljið eða simiS.
SÍLD & FISKUR
Kaupum luskur
Baldursgötu 30.
FARFUGLAR. Grímudans-
leikurinn að Röðli föstudag-
inn 4. marz hefst kl. 8V2 e.
m. Gríman fellur kl. 11. Að-
göngumiðar í Helgafelli,
Laugavegi 100, og Verð-
anda. Mætum öll og' mæt-
um stundvíslega.
Skemmtinefndin.