Alþýðublaðið - 13.03.1949, Qupperneq 8
íjerizt áskrifentlur,
að Aiþýðubiaðinu.
Alþýðublaðið inn á hvert
heimili. Hringið í síma
4900 eða 4906.
L Fór 375 knú í loft upp
Þetía er eldftaugin, sem fór 375 km. í loft upp við tilraun, sem
■gerð var á vegum Bandaríkjahersins á dögunum, og náði þar
ihelmingi meiri hæð en nokkur eidflaug áður. Eidflaugin vóg
15 smálestir, en iiraðd hennar var svo mikill að unmið befði
7000 km. á kiukkustund. Myndin var tekin af eldflauginni í
lofti, rétt eítir að henni hafði verið skotið af stað.
Stjórnmálafundurinn á Sel-
foni hefs! kf. 2 í dag
......4»;-----
Ræðumenn ongra jafiifíðarmanna verða
Heigl Sæmundsson og Jón P. Emils.
---.—— ------—
STJÓENMÁLAFUNDUEINN, sem ungir jafnaðarmenn
hoðuðu til á Selfossi í dag, og buðu ungum Framsóknarmönn
um til, hefsí kiukkan 2 eftir hádegi í Selfossbíó.
LAXVEIÐIKVIKMYND
Síangaveiðifélags Reykj avíkur,
,,Við sfraumana“, verður sýnd í
dag kl. 3 eftir hádegi veg'na
tfjölmar.gra áskorana. Verður
þetta í allra síðasta sinn, sem
myndin verður sýnd hér að
þessu sinni.
Háilóiahflémieik-
ar í kvöld kl. 830
ÞEIR Árni Kristjánsson píanó
leikari og Björn Ólafsson fiðlu-
leikari héldu háskólatónleika
í hátíðasal Háskólans í gærdag
klukkan 5,30 síðdegis, og í dag
verða tónleikarnir endurteknir
Idukkan 8,30 síðdegis.
Á efnisskránni eru meðal
ánnars tónverk eftir Schubart,
Mozart og Debussy.
* Umræðuefni fundarins eru
öryggismál Islands og Fram-
sóknarflokkurinn. Fundar-
■stjóri verður Vilbelm Ingi-
mrmdarson, forseti Sambands
ungra jafnaðarmamia, en ræðu
menn af hálfu ungra jafnaðar
manna eru þeir Helgi Sæm-
undsson, blaðamaður og Jón
P. Emils stud. jur.
Framsóknamenn munu
senda þrjá ræSumenn á fund
inn, að því er Tíminn skýrir
frá í gær, þá Skúla Benedikts
,son (?), Sefán Jónsson, frétta
mann og Steingrím Þórisson.
Ræðuumferðir verða fjórar,
30 mínútur, 20 mínútur, 15
mínútur og 10 mínútur. Ungir
Jafnaðarmenn munu hefja um
ræðurnar.
---------*--------
Skíðaferðir ferða-
skrlfsfofunnar í dag
FERÐASKRIFSTOFAN efnir
til tveggja skíðaferða í dag upp
í Skíðaskála. Verður lagt af
stað í fyrri ferðina kl. 10 fyrir
hádegþ kl. 1,30 í hina síðari.
21. árbók Ferðafélagsins komin úf
og fjallar um Vesfmannaeyjar
---------------- ■ ,
Félagið hyggst efna til 53 orlofs- og
skemintiferða á þessu árs.
ÁRBÓK Ferðafélags íslands fyrir árið 1948 er komin út
og fjaHar hún um Vestmannaeyjar, og er s:kráð af Jóhanni
Gunnari Ólafssyni, bæjarfógeti á ísafirði. Er þetta 21. árbók
ferðafélagsins, og eru þær flestar gersamlega uppseldar. Að-
eins sex síðustu árbækurnar eru enn þá fáanlegar.
Arbókinni um Vestmanna-
eyjar fylgir uppdráttur af eyj-
■unum. Bókin er rúmar 200
blaðsíður að stærþ og skiptist
í 10 aðalkafla auk formála og
eftirmála.
Aðalkafiarnir bera ‘þessi
nöfn: Vestmannaeyjar, Vest-
mannaeyjaför, Heimaey —
ibeimaiand, Fjallkóngur, Hell-
ar, Fornar menjar, Bergmynd
unarsaga Vestmannaeyja, eftir
dr. Trausta Einarsson, Fugla-
líf í Vestmannaeyjum eftir
Þorstein Einarsson, íþrótta-
fulltrúa, Gróðurríki Vest-
mannaeyja, eftjr Baldur John-
sen héraðslækni og Skordýr í
Vestmanmaeyjum, eftir Geir
Gígja.
Fjölda myndir prýða bók-
ina.
53 orlofs- og skemmtiferoir
á árinu.
í áætlun Ferðafélagsins fyr
ir 1949, eru ráðgerðar sam-
taíls 53 oidofs og 'skemmtiferð
ir á árinu, þar af 34 heilgar-
ferðir og 19 orlofs- og sumar
leyfisferðir.
Félagið á nú sjö sæluhús á
fjöllum uppi. í Hvítanesi, 28
legupláss og rúmstæði; í Kerl-
ingarfjöllum, 16 rúmstæði; á
Hveravöllum 32 rúmstæði; her
mannaskála í Brunnum við
Kaldadalsveg, 10 beddar; í
Þjófadölum, 8 rúmstæði; við
Hagavatn, 12 rúmstæði og í
jökulrönd Snæfellsnessjök-
uls, 20 rúmstæði og legu-
pláss. Alls eru því 126 rúm
stæði og legupláss í öllum
skálum félagsins.
-----—$>------
Fririli Ðanafeönung*
tir hyllfur af
þegnum sínum
VINSÆLDIR FRIÐRIKS
DANAKONUNGS komu glögg-
lega í ljós á fimmtugsafmæli
hans. Safnaðist mikill mann-
fjöldi saman fyrir utan Amalien
borg um kvöldið til að hylla
konung, þó að tilkynnt hefði
verið, að engin opinber hátíða-
höld færu fram í tilefni af af-
mælinu.
Munu það hafa verið nær 50
þúsund af þegnum Danakon-
ungs, sem hylltu hann þannig.
Bárust konungi gjafir og heilla-
óskir víðs vegar að, þar á meðal
dirá þjóðhöfðingjum í fjölmörg-
'Um löndum.
MENNTASKÓLINN í Reykja
vík gengst fyrir handknattleiks
móti í íþróttahúsinu við Háloga
land í kvöld kl. 8. Verður keppt
í öllum aldursflokkum karla og
í meistaraflakki kvenna. í
meis.taraflokki karla keppir
Menntaskólinn við Val, í 1.
flok'ki við Fram, í 2. flokki við
f.B.H. og í 3. flokki við Fram.
í meistaraflokki keppir Mennta
skólinn við Ármann.
Menntaskólinn hefur mjög
góðum handknattleiksmönnum
á að skipa, svo að keppni þessi
verður án efa mjög skemmtileg.
Ferðaskrifstofan mun sjá um
ferðir inn eftir frá kl. 7,30.
Sfefán Pjefursson
sfefnir Þjóð-
vlljanum
Fyrir ósvífnasta
róg, sem dæmi
eru til í íslenzkri
blaðamennsku.
STEFÁN PEJTURSSON
stefndi Þjóðviljanum í gær
fyrir ósvífnasta rógburð og
meiðyrði er dæmi munu vera
til í íslenzkri blaðamennsku.
Ummæli þessi voru í Þjóð-
viljanum á miðvikudagin'n í
nafnlausri rammagr.ein, sem
bersýnilega átti að vera
eins'konar svar við fyrirspurn
Alþýðublaðsins til Einars Ol-
geirssonar um það, hvað ís-
lenzkir kommúnistar ætluðu
að gera,^ef rauði berínn gerði
árás á Island. Kallaði Þjóð-
viljinn í þessari rammagrein
Stefán Pjetursson „margseld-
an iland:ráðam|ann“, „frægan
fyrir þjónustu sína við erlent
hervel'di“ og sagði að hann
hefði „framselt íslenzka menm
i erlend fangelsi"!
Að sjálfsögðlu færði Þjóð-
viljinn ekki fram eitt einasta
orð þessum einstæða rógburði
til stuðnings. En sem sagt: Nú
gefst ábyrgum ritstjóra hans
tækifæri til þess að sanna
hann fyrir dómstólunum.
Börn ög unglingar.
Koonið og seljið
ALÞÝÐUBLABIÐ
Allir viija kaupa
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
í KVÖLD klukkan 8,30
verður sýnd fræðslukvikmynd
um kjarnorkuna í baðstofu
iðnaðai’manna, og er myndin
sýnd á vegum Félags rafvirkja
nema í Reykjavík. Myndin er
í fimm köflum, og mun Þor-
björn Sigurgeirsson, eðlisfræð
ingur útskýra efni myndarinn
ar fyrir áhorfendum, en my.nd
in verður sýnd af Vig'go
Natanaelsyni.
Fyrsti hluti myndarinnar
fjallar um elztu hugmyndir
manna um kjarnorkuna, ann-
ar blutinn um geislavirkanir;
þriðji um þyggmgu atómsins,
og :koma þar við sögu rann-
sóknir Curie og Rutherfords.
Fjórði þáttur sýnir sprengingu
atómsins og uppgötgvun n-eu-
trónunnar, og fimmti og síð-
asti kaflinn um úranúum,
klofningu þess og atómorkuna.
Þetta ;er fyrsli liðurinn í
fræðslustarfs'emi Félags raf
virkjanema, en síðar verða
fluttir tveir fyrirlestrar á veg-
um félagsins, sá fyrri senni-
lega 27. þessa mánaðar. Verð
ur annar fyriidesturinn um
sögu raímagnstækmnnar á Is
landi, fluttur af Magnúsi Magn
ússyni, verkfræðingi, en' hinn
verður um rafoi'kumál á land-
inu, fluttur iaf Steingrími
Jónssyni rafmagnsstjóra.
Ófför Samísðls Egg-
erbseiar !@r fram
i
á Bnorgun
ÚTFÖR SAMÚELS EGGERTS
SONAR skrautritara fer fram
frá dómkirkjunni á morgun, en
hefst með bæn að elliheimilinu
kl. 1 síðdegis. Þessa merka
manns mun verða minnzt hér í
blaðinu á þriðjudaginn.
.. ..r,(
SjérnmálaskéHnn <
ST J ÓRNMÁL ASKÓLI Sam-
bands ungra jafnaðarmanna
fellur niður í dag. Verður næsti
tími á miðvikudagskvöld kl.
8,30 í baðstofu iðnaðarmanna.
v