Alþýðublaðið - 24.03.1949, Síða 3
Fimmtudag'inn 24. marz 1949.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
irrii
I
BW«w«vrt;íinfrijf■'■ »■ ■
Frá morgni lil kvð
í . DAG er fimmtudagurinn
24. marz. Þennan dag lézt Al-
bert Thorvaldsen árið 1844 og
Elísabet Englandsdrottning
1603. — Úr Alþýðublaðinu fyr-
ir 21 ári: Harold Hinkler, ástr-
alskur flugmaour, flaug í síð-
astliðunm mánuði frá Croydon
í Englandi til Port Darwin í
Ástralíu og var hálfan sextánda
clag á leiðinni. Er það met, því
að enginn flugmaður hefur áð-
ur .flogið slíka vegalengcl á
jafnskömmum tíma einn síns
liðs. — Loftskipið Los An-
geles flaug frá Lakehurst í
ríkinu New Jersey í Bandaríkj-
unum til Panama, en flugleið
skipsins .var 2265 mílur. Er
þetta Iengsta flug skipsins síðan
það flaug frá Þýzkalandi til
Ameríku.
Sólarupprás var kl. 6.16. Sól-
arlag 'verður kl. 18.54. Árdegis-
háflæður er kl. 2;.05. Síðdegis-
háflæður er kl. 14.33. Sól er í
hádegsstað í Reykjavík kl.
12.34.
Næturvarzla: Laugavegs apó-
tek, sími 1618.
Næturakstur: Bifreiðastöðin
Hreyfill, sími 6633.
Flugferðir
LOFTLEIÐIR: Geysir kom um
sexleytið í gær frá Prestvík
og Kaupmannahöfn.
AOA: í Keflavík kl. 20—21 í
kvöld frá Helsingfors, Stokk-
hólmi og Osló til Gander,
Boston og New York.
AOA: í Keflavík kl. 6—7 í
fyrramálið frá New York,
Boston og Gander til Oslóar,
Stokkhólms og . Helsingfors.
Skipafréttir
I^xfoss fer frá Reykjavík kl.
11, frá Borgarnesi kl. 16, frá
Akranesi kl. 18.
Esja er á Austfjörðum á suð-
urleið. Hekla er á Austfjörðum
á norðurleið. Flerðubreið er á
Vestfjörðum. Skjaldbreið fer
frá Reykjavík í kvöld til
Húnaflóa-, Skagafjarðar- og
Eyjafjarðarhafna. Þyrill er í
olíuílutningum í Faxaflóa. Súð-1
in var í Port Talbot í gær á leið
til fslands. Hermóður er í
Reykjavík.
Brúarfoss fer væntanlega frá
Hamburg 24/3 til Hull og
Reykjavíkur. Dettifoss er í
Reykjavík. Fjallfoss er í Gauta
bcprg, fer þaðan til Frederiks-
havn óg tekur vörur úr Lagar-
fossi til Reykjavíkur. Goðá-
foss kom til New York 17/3 frá
Reykjavík. Lagarfoss er í Fre-
derikshavn. Reykjafoss hefur
væntanlega far.ið frá Leith 22/
S til Antwerpen og Rotterdam.
Selfoss kom til Reykjavíkur 23/
3 frá Frederikshavn. Tröllafoss
fór fram hjá Cape Race 19/3 á
[ieið frá New York tií Reykja-
víkur. Vatnajökull er á leið til
ísafjarðar, lestar frosinn fisk.
Katla fór frá Reykjavík 18/3
til Halifax. Horsa fór frá Ham-
Iborg 22/3 til Rotterdam. Anne
Louise tekur vörur úrLagarfossi
í Frederikshavn í þessari viku
|til Reykjavíkur. Hertha lestar
óburð í Menstad um 28/3.
Linda Dan lestar í Gautaborg
og Kaupmannahöfn 30/3—5/4.
Blöð og tsmarit
] Heimilisritið, marzheftið, hef-
Otvarpið
20.20 Útvarpshljómsveitin
(Þórarinn Guðmundsson
stjórnar): a) Lagafiokk-
ur úr óperettunni „Fagra
veröld“ eftir Lehár. b)
Vöggulag eftir Bernhard
Svensson.
20.45 Lestur fornrita: Úr
Fornaldársögum Norður-
landa (Andrés Björnss.).
21.10 Tónleikar (plötur).
21.15 Dagskrá Kvenfélagasam-
bands íslands. — Erindi:
Háttvísi (Flelga Sigurð-
ardóttir skólastjóri).
21.40 Tónleikar (plötur).
21.45 Spurningar og svör um
íslenzkt mál (Bjarni Vil-
hjálmsson).
22.05 Passíusáimar.
22.15 Debussy-tónleikar (plöt-
ur): a) Strengjakvartett
í g-moll op. 10. b) „Haf-
ið“, hljómsveitarverk.
ur -borizt blaðinu. Efni: Seinn
að hugsa, smásaga eftir Böðvar
Guðlaugsson; Konurnar í Suður
Ameríku, þýtt greinarkorn;
Leyndarmál hjartans; Síma-
slcráin'; Einmana á brúðkaups-
daginn; Tvö ástarbréf og Hvers
virði er þetta allt án þín?; þýdd-
ar smásögur. Enn fremur eru
tvö ljóð eftir Kjartan J. Gísla-
son frá Mosfelli; 3. greinin
Hvernig ég lít á vináttuna eftir
G. Patterson, framhaldssaga,
greinaflokkur, skrítlur, getraun
ir, krossgáta, spurningar og
svör o. fl.
Fundir
Aðalfundur Iðnaðarmannafé-
lagsins í Reykjavík verður kl.
8V2 í kvöld í Baðstofunni.
Alþýðuflokksféiögin í Hafn-
arfirði halda spilakvöld 25. þ.
m. í Alþýðuhúsinu. Félagsvist.
Guðm. Hagalín les upp. Dansað
til kl. 1.
Söfn og sýningar
Þjóðminjasafnið: Opið kl. 13
—15.
Náttúrugripasafnið: Opið kl.
13,30—15.
Lárétt, skýring: 1 Óhultur, 5
fantur, 8 peningana, 12 bók-
stafur, 13 heildsali, 14 ham-
fletta, 16 dansi.
Lóðrétt, skýring: 2 Fiskur, 3
g'elta, þt. 4 hestsnafn, 6 þrá, 7
kvistur, 9 fangamark, 10 tón-
tegund, 11 tala, 14 tónn, 15
efstu.r
LAUSN á nr. 214.
Lárétt* ráðning: 1 Æðaregg,
5 Róm, 8 mjallar, 12 má,, 13 K
K, 14 pól, 16 fósar.
Lóðrétt, ráðning: 2 Arfa, 3
ró, 4, Emil, 6 amma, 7 arka, 9
já, 10 ljós, 11 ak, 14 Pó, 15 La.
Skemmtanir
K VIKMYND AHÚS:
Gamla Bíó (sími 1475): —
„Beztu ár ævinnar.“ Frederic
March, Myrna Loy, Dana And-
rews, Teresa Wright, Virginia
Mayo. Sýnd kl. 5 og 9.
Nýja Bíó (sími 1544): —
„Leyndardómur skíðaskálans“.
Dennis Price, Mila Parely, Ro-
bert Newton. Sýnd kl. 9. „Lífs
hamingja í veði“ (amerísk).
Austurbæjarbíó (sími 1384):
„Unga ekkjan“ (amerísk). Jane
Russell, Louis Hayward. Sýnd
kl. 7 og 9. , Lögregluforinginn
Roy Rogers. Sýnd kl. 5.
Tjarnarbíó (sími 6485): —
„Vinginía City (amerísk). Errol
Flynn, Miriam Hopkins, Rand-
olph Scott. Sýnd kl. 5 og 9.
Tripolibíó (sími 1182): —
„Milli tveggja elda“ (amerísk).
Robert Stanton, Osa Massen,
Hillary Brooks. Sýnd kl. 5, 7
og 9.
Hafnarbíó (sími 6444): —
„Fallin fyrirmynd“ (ensk). Ste-
phen Murrey, Sally Gray. Derek
Farr, Nigel Patrich o. fl. Sýnd
kl. 5 og 9.
Bæjarbíó, Hafnarfirði (sími
9184). „Topper á ferðalagi“.
Roland Young, Constance Ben-
rett. Sýnd kl. 9. , Barátta land-
nemanna" (amerísk). Sýnd kl.
7.
Hafnarfjarðarbíó (sími 9249):'
„Freisting“ (amerísk). Merle
Oberon, George Brent, Faul
Lukas. Sýnd kl. 7 og 9.
S AMKOMUHÚS:
Brpiðfirðingabúð: Skemmti-
fundur Breiðfirðingafélagsins
kl. 8.30 síðd.
Hótel Borg: Danshljómsveit
leikur frá kl. 9—11.30 síðd.
Ingólfscafé: Hljómsveit húss-
ins leikur frá kl. 9 síðd.
Sjálfstæðishúsið: Almennings
dansleikur kl. 9 síðd.
Tjarnarcafé: Skemmtifundur
Suðurnesjafélagsins kl. 8.30
síðd.
Úr ölíurrt áttom
Bazar Guðspekifélagsins
verður haldinn 7. apríl næst-
komandi. Félagar og aðrir vel-
unnarar eru vinsamlega beðnir
að koma munum sinum á fram-
færi eigi síðar en 4. apríl í
Guðspekifélagshúsið, Ingólfs-
stræti 22, eða í Hannyrðaverzl-
un Þuríðar Sigurjónsdóttur,
Bankastræti 6.
Bandaríkin hafa en|
ar hersfdðvar í Iran,
segir Ácheson
BANDARÍKIN hafa engar
herstöðvar í Iran og ætla ekki
að koma upp neinum slíkum
herstöðvum, sagði Acheson ut-
anríkismálaráðherra í Washing-
ton í gær. Hann kvað rússneska
ágengni í Iran fara vaxandi, en
benti á það til svars við þeirri
ásökun Rússa, að Bandaríkja-
menn hefðu þar herstöðvar, að
nú væru aðeins um 60 Ameríku-
menn í landinu.
Breiðfirðingaheimil.ð h.f.
félagsins vsrður haldinn í Breiðfirðingabúð miðviku-
daginn 27. april M. 8,30 s. d.
Fundarefni:
Venjulag aðaífundarstörf.
Hluthafar, sem enn hafa ekki fengið hlutabréf sin
afhent, eru vinsamlega beðnir um að snúa sér til Mál-
flutningsskri'fstofu Kristjáns Guðiaugssonar og Jóns
Sigurðssonar, Jiæstaréttarlögmanna, Austurstræti 1, en
þar verða bréfin afhent daglega kl. 5—6 s. d. fram til 1.
apríl. n.ik.
Stjórn'n.
Seytján lög slaðfest
af ríkisráði
Norskir kommúnistar segjast ætla
sér að feta í fótspor lékka
—------------------■■■ ----~
Alþýðan óttast rússnesku agentana
í Norður-Noregí.
--------*--------
GOTFRED HÖLVOLD beitir íeiðtogi kommúnista í
Finnmörk í Noregi. Hann á litlu kjörfylgi að fagna, hefur átta
menn af 28 í bæjarstjórninni í Kirkenes, en samit má heita,
að hann fari sínu fram í héraðinu, enda er aliur ahnenning-
ur hræddur við hann og það vald, sem hann hiefur á bak við
sig — hermátt Sovétríkjanna.
* „Fjandinn hirði kommún-
ista,“ segja menn í Hljóði í
Kirkenes, að því er New York
Times segir frá. ,,En Rússar
geta komizt hingað á fimmtán
mínútum. Við viljum engin.
vandræði.“
Hölvold fékk þjálfun sína í
Moskvu á árunum 1928—31, og
hann var þar aftur á stríðsárun-
um. Stjórnaði hann þá útvarpi
frá Moskvu á norsku. Nú telur
norski herinn hann hættuleg-
asta agent Rússa í Norður-
Noregi, en verður þó að nota
hann sem lúlk, þó sjaldan yíir-
völdin fá að tala við rússnesku
landamæraverðina.
Vegna þessarar aðstöðu sinn-
ar í Kirkenes er Hölvold opin-
ckárri í tali en margir aðrir
kommúnistar. Þegar hann er
spurður um frelsi Noregs, segir
hann kæruleysislega: Rússnesk-
ir verkamenn eru frjálsari en
Norðmenn! Hann segir hiklaust,
að norskir kommúnistar ætli að
feta í fótspor Tékka. Þegar
hann er spúrður, hvort Rússar
hafi augastað á Norður-Noregi,
hikar hann, en segir: „Ef til vill.
Ég veit það elíki. Ef Rússúm
verður ógnað eins og Finnar
ógnuðu þeim, er þeir byggðu
Mannerheim línuna.“
A RIKISRAÐSFUNDI höldn-
um í fyrradag, 22. marz, stað-
festi forseti íslands eftirfarandi
lög:
Lög um bæjarstjórn í Kefla-
vík.
Lög um kyrrsetningu og lög-
bann.
Lög um heimild fyrir ríkis-
stjórnina til að selja landræmu
úr Öskjuholtslandi í Landssveit.
Lög um sölu á steinolíu, hrá-
olíu, benzíni og smurningsolíu.
Lög um breyting á lögum nr.
112/1941, um lax- og silungs-
veiði.
Lög um viðauka við lög nr.
128/1947, um dýrtíðarráðstaf-
anir.
Þá voru staðfest í - ríkisráði
lög, sem staðfest höfðu verið
áður utan' ríkisráðs:
Lög um breyting á lögúm nr.
64/1932, urn kirkjugarða.
Lög um afhending skyldu-
eintaka til bókasafna.
Lög um heimild fyrir ríkis-
stjórnina til að selja f. h. ríkis-
sjóðs lóð á horni Þverholts og
Stakkholts í lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur.
Lög um kjötmat.
Lög um afnám laga nr. 54/
1927 um breytingu á lögum nr.
30/1913 um umboð þjóðjarða.
Lög um breytingu á lögum
nr. 42/1948, um útflutning og
innflutning á íslenzkum og er-
lendum gjaldeyri.
Lög um framlengingu á gildi
laga nr. 33/1928, um skatt-
greiðslu h.f. Eimskipafélags ís-
lands.
Lög um breyting' á lögum nr.
6/1935, um tekjuskatt og eigna-
skatt.
Lög um vöruhappdrætti sam-
bands íslenzkra berklasjúklinga.
Lög um breyting á lögum nr.
59/1946, um sérstakar fyrning-
arafskriftir.
Lög um breyting á lögum frá
29. des. 1948, um heimild fyrir
ríkisstjórnina til að innheimta
ýmis gjöld 1949 með viðauka.
Eru þá stáðfest öll lög, sem
alþingi hefur samþ. til þessa.
Á sama fundi var Kristján
Steingrímsson, sýslumaður í
Snæfellsness- og Hnappadals-
sýslu, fluttur úr því embætti í
bæjarfógetaembættið í Neskaup
sað, og 'Henrik Jónsson, bæjar-
fógeti í Neskaupstað. fluttur úr
því embætti í sýslumannsemb-
ættið í Snæfellsness- og Hnappa
dalssýslu, frá 1. maí n. k. að
telja.
(Frá ríkisráðsritara.)
•;1
Ufbreiðfð
Alþýðublaðlð!