Alþýðublaðið - 24.03.1949, Side 8
Gerizt áskrifemluí
að AlþýðublaSinu.
Alþýðublaðið irm á hvert
heimili. Hringið í síma
4900 eða 4906.
Fimmtudaginn 24. marz 1949.
Bombufréff Þjóðviljans
gær borin fil baka
i,I höfuðatriðum röng og mjög vill-
andi,“ segir ríkisstjórnin.
-----------------«----------
ÞJOÐVILJINN birti í igær -eina af hinum alkunnu
bombufregnum sínum. Þóttist bann geta sagt þar frá '
spurningum, sem ísLenzka ráðherranefndin hefði átt að
leggja fyrir •utanríkismálaráðunieytið í Washington, og
Svörmn, sem hún hefði fengið við þeim. Var þetta birt
undir fimm dálka fyrirsögn og ægilegum formáia, sem
ekki mun s-att orð finnaniegt í. *
Ut af þessari bombufrétt Þjóðvíljans birti ríkis-
stjórnin í gær svchijóðandi yfirlýsingu:
„Vegna frásagnar Þjóðviljans í dag um
skýrslugjöf ráðherraiiKa til síjórnarílokkanna. um
Atlantshafssáttmálann vill ríkisstjórnin taka fram,
að frásögnin er í höfuðatrlðum röng og gefur mjög
villandi mynd af því, sem fram fór“.
Þetta er annars gott dæmi um ba'ráttuað'ferðir ís-
lenzkra kommúnista þessa dagana. Málflutningur
þeirra -er annað hvort* vísvitandi lygar eða stórkostleg-
ar falsianir. Og svo langt ganiga þeir í þlefckingum sínum
að hálda því fram, að upplogn-ar sögur sjálfra þeirra hafi
komið fram á lokuðum þingmannafundum andstöðiu-
flofcka þeirra.
Slífcur málflutningur dæmir þetur en nokkuð ann-
að málstaðinn, sem hann á að þjóna.
Sarakomulag náðist með verkakon
ura og atvinnurekendur í gær
.............+—-----
Verkakonur fengu nokkra kauphækkun.
VERKAKVENNAFÉLAGIÐ FRAMSÓKN og Vinnu-
veitendafé'lag íslands gerðu i gærkvöldi nýja kaup og fcjara-
Samnánga, og fá verkafconur í Reykjavík með þeim nofckra
kauphækikun. Hafði félaig þeirr^ lýst yfir verkíalli frá mið-
pætti í nótt, ef samningar hefðu lekki tefcizt, en til þess fcem-
nr nú iað sjálfsögðu efcki.
' * Hinir nýju samningar voru
gerðir til eins órs. Hækkar
kaup kvenna, sem • starfa í
frystih'úsum, slá'turhúsum og
annari slíkri vinnti úr. 1,85 á
tfimann í fcr. 2.00- iKaup í
saltfiskvinnu' hækkar úr 1,90
í 2,05 kr., kaup við ræstingu
og þvotta hækkar úr kr. 2,00
í 2,20 og lok'S var kaup við
uppskipun á fiski ákVeðið kr.
2,20. Viðræður höfðu staðið
yfir undanfarna daga með að
st^ð sáttasemjara.
Frjálsir Rússar
skipuleggja hreyf-
ingu sína
FRJALSIR RUSSAR í Banda
ríkjunum haía nú gert 'tilraun
til að sameina öll samtök sín í
eina allsherjarhreyfingu og
nefnist hún „Samband til frelsis
rússnesku þjóðarinnar“. Munu
slík samtök innan skamms gerð
I París og í Vestur-Þýzkalandi.
Meðal þeirra flóttamanna, er
standa fremst í hreyfingu þess-
ari, er Alexander Kerensky,
sem var síðasti forsætisráðherra
Rússlands, áður en byltinga-
stjórn kommúnista tók við
yöldum.
ÖRYGGISRÁÐIÐ 'samþykkti
í gærkvöldi kanadiska tillögu
um lausn á deilunni í Indónesíu.
Krísuvíkurleiðin mikið slitin vegna
mikillar og sföðugrar umferða
Dráttarvélarsleði notaður til mjólkur-
flutninsra ur Lau^ardalnum.
----------------«--------
KRÝSUVÍKURLEIÐIN er mi mjög farin að spillast, að
því er blaSið hefur frétt frá Selfossi, og æskja þeir bílstjórar,
sem mest fara um jeiðina, þess eindregið, að ihenni verði hald-
ið við eins og aðalvegum á sumrum. Er þeit'ta slit að vonum,
þar sem vegurinn -er nýr og varla fullgerður, len hefur nú bor-
ið svo að segja aila umferð milli Reykjavíkur og austursýsl-
anna þriggja í vetur.
—----------------------♦ Það mun vera óhætt að full
yrða að Reykjavík hefði enga
mjólk fengið dögum saman, ef
ekki hefði verið þessi nýi veg
ur. Heiðarnar opnuðust r.okkra
daga nýlega, en lokuðust brátt
aftur, Oig segja kunnugir, að
þýðingarlaust hefði verið að
reyna að halda þeim opnum.
Undanfarin ár hefur Kaup
félag Árnesinga notað dráttar
vélasléða, sem beltisdráttarvél
ar hafa dregið yfir heiðina með
bílfarm af mjólk. Þrátt fyrir
stöðuga ótíð í vetur hefur ekki
þurft á sleðanum að halda
vegna Krísuvíkurleiðarinnar og
hefur hann verið sendur upp í
Laugardal til að flytja mjólk
ina þaðan. Undanfarið hafa ver
ið alger vegbönn þar í dalnum
og í ofanverðum Biskupstung-
um. Á láglendi eru vegir þó
aftur færir alls staðar að heita
má.
Frá fréttaritara Alþbl.
AKUREYRI
/
HAFIN er útgáfa á ritsafni
um Eyjafjörð. Fyrsta bindi rit-
safnsins er skráð af steindóri
Steindórssyni, menntaskóla-
kennara. og kemur það út á
næstunni.
—Hafr,—
Fegruiarféiag sfofn-
að á Akureyri
Frá fréttaritara Alþbl.
AKUREYRI
FEGRUNARFÉLAG AKUR-
EYRAR var stofnað formlega
síðast liðinn sunnudag. Tilgang-
ur félagsins er að vekja áhuga
almennings fyrir utliti, skipu-
lagi og hollustuháttum bæjar-
ins og fleira.
Stjórn félagsins skipa: Finn-
ur Arnarson, garðyrkjuráðu-
naustur, formaður, Jóhann
Kroeyer, deildarstjóri, Jóhann
Þonkelsson, héraðslæknir, Eyj-
ólfur Árnason, fullsmiður, Krist
inn Jónsson, heilbrigðisfulltrúi,
og frúrnar Dagmar Sigurðar-
dóttir og Málfríður •• Friðriks-
dóttir.
—Hafr,—
SJÖ ÞÚSUND menn úr ame-
ríska flughernum eru nú x Bret-
landi, ,
FjárSiagsáæilun
Vðstmannaeyja
afgreidd
Á SÍÐASTA bæjarstjórnar-
fundi í Yestmannaeyjum var
fjárhagsáætlun bæjarins sam-
þykkt. Niðurstöðutölur áætlu'n-
arinnar eru 2 849 500 krónur.
Áætluð útsvör eru 2,5 milljónir
króna.
Bandaríkin ætla að
hafa 40 000 fiugvélar
FULLTRÚADEILD ameríska
þingsins samþykkti í gær frum-
yai-pið um 70. flugsveitir, og fer
28. héraðsþing Ung-
mannasambands
yfirðfnga
Frá fréttaritara Alþýðublaðsiris.
DALYÍK-
HÉRAÐSÞING Ungmenna-
sambands Eyjafjarðar, það 28.
í röðinni, var haldið í Árskógi
um síðustu helgi. í sambandinu
eru 13 félög með samtals um
550 meðlimi.
Ýmis mál varðandi starfsemi
ungmennafélaganna voru rædd
á þinginu og samþykktar álykt
anir, meðal annars um íþrótta
mál., útgáfu Sldnfaxa og fram
tíðarstarfsemi sambandsins.
Ákveðið var að verja íil
íþróttastarfsemi á árinu 10 þús
und krónum, svo og að sam-
bandið gangist fyrir Kéraðsmóti
í íþróttum í júní næst komandi.
Stjórn sambandsins skipa:
Hjalti Haraldsson, Erlingur
Davíðsson frá UMF Ársól og
Guðmundur Benediktsson frá
UMF Æskan.
það nú til öldungadeildarinnar
til frekari afgreiðslu. Sam-
kvæmt þessu frumvarpi mun
Bandaríkjaher hafa reiðubúnar
um 7000 flugvélar, en tvisvar
sinnum fleiri til vara. Ef flug-
vélar flotans eru taldar með,
munu Bandaríkin hafa um 40
þúsund flugvélar, tvo þriðju
þeirra í varaliði. Mest áherzla
verður lögð á stórar sprengju-
flug.vélar og þrýstilofts orrustu-
flugvélar.
Börn ög unglinga£<
Kconið og seljið
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Allir viija lcaupa |
ALtvÝÐUBLAÐIÐ I
Hekla á að iara 8 feri
SKIPAÚTGERÐ RÍKISINS
hefur ákveðið að taka upp ferð*
ir til Skotlands á sumri komJ
andaúog verða ferðirnar með
svipuðu sniði og ferðir þær, sem
Esja og Hekla ' fóru á síðast
liðnu sumri. í sumar mun það
þó eifiungis verða Hekla, sem
verður í þessum ferðum, og eru
átta ferðir ráðgerðar.
Fyrsta ferðin verður farin 3.
júní og 10. júní verður farið
aftur heimleiðis frá Glasgow.
Til ferða þessara er fyrst og
fremst efnt með það fyrir aug-
um að flytja hingað exlenda
ferðamenn, en jafnframt mun
þó skipið flytja vörur eftir at-
vikum.
Hafnarfjarðarbáiar
roira a
VELBATAR frá Hafnarfirði
hafa nú farið allt upp í 35 og'
40 róðra á vetrarvertíðinni. Unv
miðjan þennan rnánuð var vél-
báturinn Hafbjörg aflahæstuxl
með rúmlega 303 smálestir í 35
róðrum. Næstur var Vörður;
með 274 smálestir í 31 róori, þá
ísleifur með 208 smálestir í 36
róðrum, Guðbjörg með 263 smá
lestir í 31 róðri, Von irieð 233
smálestir í 30 róðrum, Jún
Magnússon með 232 smálestir í
28 róðrum og Draupnir með
221 smálest í 25 róðrum.
FRÁ ÞORLÁKSHÖFN erul
nú gerðir út fjórir eða fimin vél
bátar, og hefur þar verið mok-
afli að undanförnu.
Veggféðrarar skora
AÐALFUNDUR Félags vegg"1
fóðrara í Reykjavík, haldinn 6.
marz 1949, skorar á alþingi það,
sem nú situr, að samþykkja
frumvarp til laga um iðn-
fræðslu, er iðnaðarmálaráðherra
hefur nú lagt fyrir alþingi.
Aðalfundur félagsins var
haldinn sunnudaginn 6. marz
s. 1. í stjórn félagsins voru end-
urkjörnir þessir menn: Ólafur,
Guðmundsson formaður, Sæ-
mundur Kr. Jónsson ritari, Frið
rik Sigurðsson gjaldkeri, og
Guðmundur Björnsson með-
stjórnandi. Úr stjórninni geklc
varaformaðurinn, Þorbergur
Guðlaugsson, en í stað hans var
kjörinn Guðmundur Kristjáns-
son. i
ÍSRAELSRÍKI og Lebanon
hafa undirritað vopnahléssamn-
inga, og var það gert á landa-
mærum ríkjanna.