Alþýðublaðið - 22.05.1949, Síða 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Sunnudagur 22. raaí 1949
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Ritstjóri: Stefán, Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt (Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Saemundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur; Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan b.f.
Enn ný dæmi um
ráðamennsku Áka
ÁKI JAKOBSSON er hinn
mikli ógæfumaður sérhverra
útvarpsumræðna frá alþingi. í
hvert skipti að heita má eru
þjóðinni við það tækifæri
veittar upplýsingar um ó-
stjórn og bruðl þessa manns,
meðan hann illu heilli var at-
vinnumálaráðherra. Ávirðing-
ar Brynjólfs Bjarnasonar sem
menntamálaráðherra þóttu
hvorki fáar né smáar, en þær
hafa að miklu leyti gleymzt
saman borið við afbrot Áka,
sem sífellt eru rifjuð upp með
stuttu millibili.
Við útvarpsumræðurnar á
dögnunum gerði Stefán Jóh.
Stefánsson forsætisráðherra
ráðsmennsku Áka Jakobssonar
enn einu sinni að umræðuefni
og nefndi nokkur táknræn
dæmi um meðferð hans á fjár-
munum þjóðarinnar. Eftir
þetta mun flestum finnast, að
á öllu sé von, þegar rótað er í
þeim plöggum, sem eru og
verða heimildir um óstjórn Áka
Jakobssonar, því að auðvitað
fer því fjarri, að enn séu öll
kurl komin til grafar.
❖
Fyrra dæmið um ráðsmensku
Áka, sem forsætisráðherra
minntist á, var sagan af því,
þegar bygginganefnd síldar-
verksmiðjanna frægu ætlaði
að fara að spara. Þá tók hún á
leigu skipið „Hrímfaxa“ til að
flytja sement frá Bretlandi.
Nam kostnaðurinn við sements
flutninga þessa slíkum upp-
hæðum, að verð hvers sements-
tonns fór upp í 403 krónur, en
á sama tíma kostaði sement
keypt upp úr smáskipum 250
krónur tonnið eða var með
öðrum orðum rösklega 15,0
krónum ódýrara!
Síðara dæmið var um bíla-
kaupin í sambandi við bygg-
ingu síldarverksmiðjanna.
Voru keyptir samtals 9 notaðir
bílar, og reyndist kaupverð
þeirra 290 572 krónur. Af þe§s-
um bifreiðum var einn jeppi.
Hann kostaði í innkaupi 11 560
krónur, en rekstrarkostnaður
hans varð 29 432,90 krónur,
svo að kaupverð og rekstrar-
kostnaður nam samtals því
sem næst 41 000 krónum.
Tekjur af jeppanum finnast
auðvitað engar bókfærðar. Þá
var og keypt sjö manna fólks-
flutningabifreið fyrir 16 000
krónur. Rekstrarkostnaður
hennar varð 45 915,95 krónur,
en tekjurnar námu 150 krón-
um! Kaupverð og reksturs-
kostnaður nam þannig 61 800
krónum, þegar tekjurnar höfðu
verið dregnar frá!
Þessi dæmi sýna - mætavel,
hver var ráðsmennska Áka
Jakobssonar, meðan hann hafði
eitthvað með fjármuni þjóðar-
innar að gera, og jafnframt eru
þau talandi tákn um þann arf,
sem Áki og Brynjólfur létu
eftir sig, þegar þeir hrökkluð-
■ Reynt að svíkia nndan skatti. — Enn um kýrnar
á Korpúifsstöðum og hæfileika þeirra.
SIGGI ÞORKELS úr Vestur- bergjunum, þvo körlunum og
bænum skrifar: „Mig Iangar til
þess að segja smásögu af tii-
raun minni til þess að svíkja
eða stela undan skatti, eins og
kallað er. Oft hef ég lagt hlust-
ir við samtali mér eldri rnanna,
er þeir sátu með pípur sínar og
réðu ráðum sínum um happa-
sælustu aðferðirnar við að snúa j
á skattstjórann okkar.
AF ÖLLU ÞESSU TALI
sýktist ég af skattsvikabakter-
íunni, en áður en ég léti hana
hertaka mig ákvað ég upp á
eigin spýtur að leggja smá-
prófstein á vinnuaðferðir skatt-
stjóraliðsins. Pabbi hjálpaði
mér að venju að telja fram á
skýrsluna mína, en að þessu
sinni dró ég 170 kr. frá þeirri
upphæð, er ég lét gamla mann-
inn setja á skýrsluna. Skýrslan
var send. Og svo leið og beið, ég
þóttist sloppinn.
ER ÉG KOM úr vinnunni í
kvöld, varð mér litið út um
gluggann. Pósturinn var þarna
á ferð, það undraði svo sem
engan. En í þetta sinn átti hann
erindi við mig. Það var mjög
svo sakleysislegt umslagið,
sem hann fékk mér, en ég
þurfti að kvitta fyrir það.
Á VINSTRA HORNI blaðs
þess, er í umslaginu var, var
stimpill skattstofunnar, svo
komu nokkrar vélritaðar línur,
er enduðu á orðunum „skýring-
ar óskast“. Eitt var þó til að róa
mig, umslagið var nr. 309. 309
borgarar höfðu elt ólar við
skattstjórann. Ef til vill voru
þeir allir að „prufukeyra“ eins
og ég. Guð hjálpi skattstjóran-
um að ári!“
MÖNNÚM VIRÐIST þykja
gaman að hugmyndinni um
stjórnvizku kúnna á Korpúlfs-
stöðum. „Fjósakarl“ skrifar
eftirfarandi bréf um þetta: „Ég
er alveg viss um, að það er rétt
hjá hr. Útsvarsgreiðanda, að
kúnum á Korpúlfsstöðum þætti
sér heldur en ekki minnkun
ger, ef þeim væru sendir allir
helztu ráðamenn bæjarfélags-
ins. Ég hef nefnilsga stundum
verið viðstaddur, þegar þeir
háu herrar komu í heimsókn í
fjósið ,þar efra, og þóttist þá sjá
glögg merki þess, að þær fer-
fættu frúr mundu þykjast geta
kennt herrunum og þjónað,
fremur en þeir þeim.
HAFIÐ ÞIÐ ATHUGAÐ,
hvort ekki væri reynandi að
senda Korpúlfsstaðakýrnar nið-
ur á bæjarstjórnarskrifstofurn-
ar í staðinn fyrir að senda
mennina upp eftir, ■—- og láta
þær hirða bæjarstjórnina og
verkfræðingana, laga til í her-
greiða, standa þeim fyrir beina
með aukakaffi og rétta þeim
Alþýðublaðið, þagar það kemur
á morgnana? Já, hafið þið at-
hugað þetta?
ÉG HUGSA að þetta tæki sig
mun betur út en ef karlarnir
væru sendir upp eftir til að
hirða kýrnar, enda tók Útsvars-
greiðandi það fram, að betur
mundu þeir fallnir til dundurs.
En það segi ég óþarfa, að spilla
sandinum og Hamrahlíðinni,
svo að ég vil um það atriði gera
þá breytingartillögu, að verk-
fræðingarnir verði t. d. látnir
stjana undir kusur, meðan þær
gerðu skipulagsuppdrættina,
eftir að hafa aflokið morgun-
hirðingunni. Síðan gengju þeir
og bæjarstjórnin öll út með
kúnum og héldu uppi kyrtil-
slóðunum, meðan þær háttvirtu
frúr spásséruðu í eftirlitsferð
um bæinn og gaumgæfðu þær
framkvæmdir bæjarfélagsins,
sem á döfinni væru.“
Aðalfundur Kvenfél-
lags Alþýðuflokks-
ins á ísafirði
AÐALFUNDUR Kvenfélags
Alþýðuflokksins á ísafirði var
haldinn föstudaginn 6. maí s.
1. Hafði ekki verið hægt að
halda hann fyrr, vegna sam-
komubanns.
Úr stjórninni fór, vegna
brottflutnings úr bænum, frú
Svanfríður Albertsdóttir.
Stjórnina skipa nú: Kristín
Kristjánsdóttir, formaður, frú
Sigríður Hjartar, varaformað-
ur, frk. Anna Helgadóttir, rit-
ari, frú Hólmfríður Magnús-
dóttir, gjaldkeri og Unnur Guð-
mundsdóttir, meðstjórnandi.
Umsóknarfresiur um
lisfamannasfyrki
UMSÓKNARFRESTUR um
listamannastyrki er til 7. júní.
Koma þeir yfirleitt einir til
greina við úthlutunina, sem
um styrk sækja.
Formaður nefndar þeirrar,
sem alþingi kaus nýlega til
þess að úthluta styrkjum til
listamanna, hefur verið kjör-
inn Þorsteinn Þorsteinsson al-
þingismaður, en ritari Þorkell
Jóhannesson.
ust úr fyrrverandi ríkisstjórn.
Fljótt á litið virðist þetta vera
aukaatriði, og alþjóð eru löngu
kunn aðalatriðin í óstjórn og
fjársukki kommúnista. En eigi
að síður er mikils um vert, að
einmitt þessi atriði séu gerð
þjóðinni kunnug, því að ella
vantaði sérkennandi drætti í
heildarmynd sukks og sóunar
Áka Jakobssonar.
Það er sannarlega í meira '
lagi furðulegt, að kommúnistar
skuli hætta sér út í þann háska
að minnast á fyrrverandi rík-
isstjórn og ræða gáleysislega
um fjármálastjórn núverandi
valdhafa vitandi það, hvað Áki
og Brynjólfur létu eftir sig.
Fátt sýnir betur, hversu blygð-
unarlausir íslenzkir kommún-
istar eru og hversu takmarka-
laust þeir trúa á vald lyginnar
og blekkinganna.
heldor, Ottó Stöferau frá Hamborg
í Austurbæjar'bíó miðviíkud. 25. þ. m. k'l. 7. e. h,
Efnisskrá:
Ein bunter Straus's klleiner Stucke
aus allen Herrn Lándern.
(Mislit keðja af lögum frá ýmsum
löndum).
Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar, Ritfangaverzl'. ísafdldar, Banka-
stræti, VerzŒ. Drangey, Laugaveg 58, hjá Sigríði
Helgadóttur, í Hlljóðíærahúsinu, og við inngang-
inn.
Sýning
frfslunda-
málara,
Laugaveg 166
opin í dag frá kl. 10 f. h. til kl. 10 síðdegis.
Málverkasýning
ÖRLYGS SIGURÐSSONAR
opin daglega klukkan 11 f. h. til 23 síðd.
S.G.T. Gömlu dansarnir
að Röðli í kvöld kl. 9. Aðgöngumiðasala frá
kl. 8. — Sími 5327. — Öll neyzla og með-
ferð áfengis stranglega bönnuð.
Útvega
Harðvið
frá Hallandi gegn nauðsynlegum léyfum, svo sem
ESk
Brenng
Hlyn
Ask
Teak (Bangkok) o. fl.
Ragnar H. B. Kristinsson,
Frakkastíg 12, sími 1943.
Auglýsið f Albvðublaðinn