Alþýðublaðið - 02.06.1949, Page 1
Veðurhorfurs
Norðaustan gola eða
kaldi; úrkomulaust
og víða léttskýjað.
*
* «
XXX. árgangur.
Fimmtudaginn 2. júní 1949.
121. tbl.
Forustugreiní
Árangur
skömmtunarinnar.
*
*
Eftir orrustuna um Shanghai
Særðir hermenn úr liði Kantonstjórnarinnar, sem varði Shanghai.
ÖLL RITSTJORN „Ný
Dag“, aðalblaðs sænskra
kommúnista, hefur verið
i So ‘umjito;s b.ij uirjoi
henni sagt upp af einvalda
flokksins, Frithjof Lager.
Uppsögnin var miðuð við
1. júní, en nokkrir af blaða-
mönnunum höfðu orðið
fyrri til að yfirgefa hið
sökkvandi skip. Lager sat
fyrir skönnnu ráðstefnu
Kominforms, alþjóðasam-
bands kommúnista, en hún
var lialdin í Beriín. Segir
sænska blaðið „Aftontidn-
ingen“, að enginn vafi leiki
á því, að brottrekstur rit-
stjórnar aðalblaðs sænska
kommúnistaflokksins sé
ráðstöfun gerð í samráði
við Kominform.
Vesturveldin töldu þýðingarlaust að ræða
sameiningu Þýzkalands lengur
utanríkismálaráð-
í gær byrjaði með
I
um Reykjavíkiir
í symar
SKÓLAGARÐAR REYKJA-
VÍKUR byrja í dag. Níutíu
börn starfa í þeim í sumar, en
í fyrra voru þau sjötíu.
Börnunum er kennt að rækta
kartöflur og ýmislegt græn-
meti, en auk þess er fyrirhug-
að, að þau læri í sumar að
gróðursetja trjáplöntur.
UTANRÍKISMÁILARÁÐHEERAR RJÓRVELD-
ANNA 'hófu umræður um Berlínarmá'lin í 'gær eftir
að augljóst var orð'ið, að einákis sambomu'I'ags var
lengur að vænta af umræðunum um sameigin'lega
stjórn fyrir allt Þýzka'Iand. Enstrax o'g BerMnarmálin
höfðu verið tekin fyrir, hófst deila um það mi'Mi utan-
ríkhmálaráðherranna, hvokt ráðs'tafanir yfirstjórnar
fjórv'eldanna þar ættu framvegis að geta strandað á
n'eitunarvaldi 'eins þeirra eða ekki.
Fundur
herránna
því, að Vishinski hélt áfram að
ræða Þýzkalandsmálin í heild,
en þau eru fyrsta dagskrármál
ráðstefnunnar. Svaraði hann
fyrirspurn Bevins um, hvort
rússneska stjórnin væri skil-
yrðislaust andvíg sameinlegri
stjórn fyrir allt Þýzkaland og
kvað svo ekki vera, en sagði,
að Rússar hugsuðu sér hið fyr-
irhugaða stjórnarráð í Berlín
undir yfirstjórn fjórveldanna
spor í þessa átt en gætu ekki
fallizt ... á sameiningu Þýzka-
lands á grundvelli Bonnstjórn-
arskrárinnar.
Þegar hér var komið sagði
Schuman, er var í foi'sæti, að
hann teldi tilgangslaust að
ræða Þýzkalandsmálin í heild
fx'ekar á þessu stigi og tók fyr-
ir Beríínarmálin, sem er ann-
að dagskái’mál ráðstefnunnar.
Acheson tók fyrstur til
máls um Berlínarmálin og
sagði, að setulið fjórveidanna í
Berlín væri þar í samræmi við
gert samkomulag og að svo
myndi verða áfram, en nauð-
syn bæri til þess, að þau gætu
komizt að samkomulagi um
stjórn borgarinnar, svo og
gjaldeyrismál hennar. Að lok-
inni ræðu Achesons hófst síð-
an karp utanríkismálaráðherr-
anna um, hvort neitunarvald
eins af fjórveldunum ætti fram
vegis að geta hindrað nauðsyn-
legar ráðstafanir í sambandi
við stjórn borgarinnar eða
ekki, og var umræðunum frest-
að þangað til í dag.
Stjórnmálamenn í París láta
í ijós vaxandi svartsýni á ráð-
stefnu utanríkismálaráðherr-
anna. Þykir ósennilegt, að telj-
andi samkomulags sé að
vænta um Berlínai’málin eftir
að umræðurnar um Þýzka-
landsmálin í heild hafa farið
úr um þúfur. Er á það bent,
að Rússar muni reyna að róa
að því öllum árum, að Vestur-
Frb. a 8. siðu.
Sett af Torfa, Finnbirni, Hafdísi Ragn-
arsdóttur og kvennasveit
greinina „Verobólgan,
verkalýðssamtökin og rík-
isvaldið“ á 5. síðu blaðsins
í dag.
MJÖG GGÐUR ÁRANGUR náðist á síðari hluta KR-
mótsins í VEBrkvöldi, og voru sett fjögur ný Islandsmet. Torfi
Brvngeirsson setti met í stangarstökki, stökk 4,05 metra;
Finnbjörn Þorvaidsson í 60 metra hiaupi, hljóp á 6,8 sek.;
Haftlís Ragnarsdóttir í 60 metra lilaupi kvenna, hijóp á 8,3
sek., 02 sveit KR í 4x100 metra boðhlaupi kvenna, hljóp á
57.2 sek. Olav Höyiand sigraðr Gskar Jónsson í 1500 metra
hiaupi og Stefán Gunnarsson vann 3000 metra hiaupið og
h'auí Krisíjánsbikarixm öðru sirini.
Mesta athygli vakti hið a-
gæta afrek Torfa Bryngeirs-
sonar í stangarstökkinu. Hann
bætti fyrra íslandsmet sitt um
10 senímetra, stökk 3,98 metra
í fyrsta stökki og 4,05 einnig í
fyrsta stökki. Síðan reyndi
hann tvisvar sinnum við 4,10,
en felldi í bæði skiptin og
hætti við svo búið. Hið nýja
Islandsmet Torfa í stangar-
stökkinu gefur 942 stig sam-
kvæmt finnsku stigatöflunni.
Keppinautur Torfa í stangar-
stökkinu, Bjarni Linnet, felldi
byrjunarhæðina, 3,30 metra.
Önnur helztu úrslit á síðari
hluta KR-mótsins í gærkvöldi
voru sem hér segir:
60 metra hlaup: 1. Finnbjörn
Þorvaldsson, ÍR, 6,8 sek. 2.
Þorbjörn Pétursson, Á, 7,2 sek.
3. Ásmundur Bjarnason, KR,
7.2 sek.
Afrek Finnbjarnar er nýtt
íslandsmet. Fyrra metið, sem
hann átti sjálfur, var 6,9 sek.
Kringhikast: 1. Bjarne Möl-
ster, Noregi, 40,71 m. 2. Gunn-
ar Sigurðsson, KR, 39,40 m. 3,
Friðrik Guðmundsson, Á, 39,21
metra.
3000 metra lilaup: 1. Stefán
Gunnarsson, Á, 9:32,0 mín. 2.
Njáll Þóroddsson, Á, 9:44,8
mín. 3. Guðmundur Bjarnason,
ÍR, 9:57,8 mín.
1500 metra hlaup: 1. Olav
Höyland, Noregi, 4:04,6 mín.
2. Óskar Jónsson, ÍR, 4:05,2
mín. 3. Pétur Einarsson, ÍR,
4:17,2 mín.
200 métra hlaup: 1, Hörður
Haraldsson, Á, 23,1 sek. 2.
Magnús Ingólfsson, Á, 23,5
sek. 3. Sveinn Björnsson, KR,
23,7 sek.
4x400 metra boðhiaup: 1. A-
sveit KR, 3:33,2 mín. 2. B-
sveit KR, 3:47,6 mín.
Sleggjukast: 1. Vilhjálmur
Guðmundsson, KR, 42,30 m.
2. Þórður B. Sigurðsson, KR,
41,48 m. 3. Pétur Kristbergs-
son, FH, 36,20 m.
60 metra hlaup kvenna: 1.
Hafdís Ragnarsdóttir, KR, 8,3
sek. 2. Sesselja Þoi’steinsdótt-
ir, KR, 8,7 sek. 3. Fríða Þórð-
ai’dóttir, UMFR, 9,2 sek.
Afrek Hafdísar er nýtt ís-
landsmet. Fyrra staðfesta met-
ið í þessari íþróttagrein var 8,8
sek.
Langstökk kvenna: 1. Hafdís
Framhald á 8. síðu.
Hagslæður verzl-
unarjöfnuður í apríl
ÚTFLUTTAR VÖRUR í
apríl námu samkvæmt skýrsl-
um liagstofunnar 38 046 800
krónum að verðniæti, en inn-
fluttar vörur sama mánuð
25 327 750 krónum, og var því
verzlunarjöfnuður hagstæður
um nærfellt 13 milljónir
króna.
Fjóra fyrstu mánuði ársins
nam verðmæti útfluttra vara
108 286 400 krónum, en inn-
fluttra 108 710 450 krónum, og
hefur því fullur jöfnuður náðst
á utanríkisviðskiptunum þenn-
an fyrsta þriðjung ársins.
Churchill kveðst
vongóður um frið
WINSTON CHURCHILL
flutti ræðu í London í gær og
kvaðst nú vera miklum mun
vonbetri en áður um að friður
haldist og unnt reynist að
forða mannkyninu frá þriðju
heimsstyrjöldinni og öllum
þeim ægilegu afleiðingum, er
henni hljóti að fylgja.
Sagði Churchill, að sam-
vinna Vesturveldanna hefði
þegar haft mikla og heillavæn-
iega þýðingu og benti á nauð-
syn þess, að henni yrði haldið
áfrarn og hún aukin eins og
kostur væi’i á. Lagði hann á-
herzlu á, að efnahagssam-
vinna Evrópuþjóðanna hefði
bjai’gað þeim frá hruni og
hörmungum og Atlantshafs-
bandalagið tryggði þeim
frelsi og frið.
(Frh. á 3. síðu.^