Alþýðublaðið - 02.06.1949, Page 4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Fimmtudaginn 2. júní 1949.
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Fvitstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emiiía Möller.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan hX
Árangur skðmmt-
unarinnar.
FREGNIN um afnám
skömmtunar á kaffi, brauði og
kornvöru vakti í gær almenna
ánægju. Einkum var fólki af-
nám kaffiskömmtunarinnar
fagnaðarefni. Það var aðeins
eina hjáróma rödd að heyra í
sambandi við þessa stjórnar-
ráðstöfun. Það var rödd
stjórnarandstöðunnar. Þjóð-
viljinn var í vondu skapi og
var með skæting. Sagði hann
að afnám skömmtunarinnar á
þessum vörum stafaði á engan
hátt af bættum fjárhag ríkis-
ins; hann væri raunverulega
verri, en þegar skömmtunin
var upp tekin.
*
Menn skilja vonzku Þjóð-
viljans. En situr það ekki sízt
á honum að tala um erfiðan
fjárhag ríkisins? Þegar kom-
múnistar stukku úr stjórn fýr-
ir rúmum tveimur árum,
skildu þeir eftir þurrausinn
gjaldeyrissjóð þjóðarinnar og
157 milljón króna halla á við-
skiptunum við útlönd 1946,
síðara árið, sem þeir voru í
stjórn. Það var einmitt þessi
viðskilnaður, sem knúði nú-
verandi ríkisstjórn til þess að
taka upp skömmtun á mörg-
um vörutegundum, þar á með-
al þeim, sem frjáls sala var
aftur leyfð á í gær.
Það þurfti að sigrast á hin-
um gífurlega halla á viðskipt-
unum við útlönd; og það þurfti
jafnframt að tryggja aukinn
innflutning á nýsköpunarvör-
um til þess að atvinna héldist
fyrir alla. Eftir að gjaldeyris-
innstæður þjóðarinnar erlend-
is voru til þurrðar gengnar,
varð þetta ekki gert nema með
því, að draga verulega úr
neyzluvöruinnflutningi og þá
varð skömmtun óhjákvæmi-
leg, ef hver og einn átti að
fá sinn skerf.
<5
Vitaskuld varð betta ekki
gert án þess, að menn fyndu
til þess; og var þó aldrei
nándar nærri eins knappt
skammtað hér og í nágranna-
löndum okkar bæði á ófriðar-
árunum og eftir stríðið. En
takmörkun neyzluvöruinn-
flutningsins og skömmtunin
hefur engu að síður nú þegar
borið stórkostlegan árangur.
Jöfnuður náðist aftur á við-
skiptunum við útlönd 1948, á
öðru ári núverandi stjórnar,
enda þótt innflutningur á ný-
sköpunarvörum héldi stöðugt
áfram, og haldi enn áfram, af
fullum krafti.
*
Þessi árangur sýnir það, að
þjóðin hefur ekki tekið á sig
óþægindi minkaðs neyzlu-
vöruinnflutnings og skömmt-
unar til einskis undanfarin tvö
ár. Tilgangi hvors tveggja hef-
ur verið náð. Og nú kemur
árangurinn einnig í Ijós í því,
að hægt er að auka neyzlu-
vöruinnflutninginn á ný og af-
nema skömmtun á sumum
„Guð minn góður, hvað þetta eru góðar fréttir!“
— Afnám skömmtunar. — Fyrst og fremst léttir
á heimilisstörfum. — Áfram á sömu braut.
„GUÐ minn góður, hvað
þetta eru góðar fréttir,“ sagði
kona við mig í gær. Hún
hringdi til mín eftir að hafa Ies-
ið í Alþýðublaðinu að afnumin
væri skömmtun á kaffi, brauði
og kornvöru. Hún var glöð og
ánægð. Hún var það ekki vegna
þess, að hún hefði fengið of lít-
ið í sinn hlut af brauði og korn-
vöru — og hún komst nokkurn
veginn af með kaffiskammtinn,
þó að það reyndist stundum erf-
itt, en hún var fyrst og fremst
ánægð vegna þess að nú var
verið að létta af skömmtuninni.
SANNLEIKURINN ER SÁ,
að skömmtunin hefur farið í
taugarnar á fólki og valdið því
margs konar erfiðleikum. Það
er mikið aukastarf fyrir hús-
móður að halda reiður á öllum
þessum miðum og reitum og
eins og ég hef áður sagt, hefur
þetta verið eins og heilt skrif-
stofustarf og í raun og veru
hefur húsmóðirin orðið að
ganga í skóla til þess að geta
fylgzt með öllum þessum ó-
sköpum.
ÞAÐ ERU GÓÐ TÍÐINDI, að
afnumin skuli hafa verið
skömmtunin á þesum vörum —
og nú er að reyna að halda á-
fram á sömu braut, en það er
komið undir þegnskap alls al-
mennings, hvort það verður
hægt. Ég er alveg sannfærður
um að engin aukning verður á
neyzlu kornvöru í landinu og
að enginn reynir að hamstra
þá vöru. Hittgetur verið að ein-
hver aukning verði á neyzlu
kaffis, en það hygg ég, að ekki
muni miklu í gjaldeyriseyðslu
þjóðarinnar.
GLEÐI FÓLKS hefði orðið
enn meiri í gærmorgun hefði
um leið verið tilkynnt, að syk-
urskömmtun væri afnumin, en
þar er við rammari reip að
draga, en hins vegar nauðsyn-
legt að afnema skömmtun á
þeirri vörutegund eins fljótt og
mögulegt er, ekki sízt til þess
að geta gefið heimilunum kost
á að baka sjálf til þarfa sinna.
Það heíur verið dýrt spaug að
þurfa í hvert sinn sem gestur
hefur komið að fara í bakaríið
og kaupa kökur. Vonandi tekst
innan skamms að afnema syk-
ur skömmtunina.
NÚ ER MIKLU MINNA um
fé hjá fólki en áður var. Það er
ekki vegna þess að atvinnuleysi
sé tilfinnanlegt, þó að til dæmis
vörubifreiðastjórar lepji dauð-
ann úr krákuskel og hafi lengi
gert undanfarið, en hinn mikli
vörubifreiðafjöldi er leifar frá
stríðsárunum og fyrirbrigði,
sem engum er til hágsbóta,
heldur öllum til kvalræðis.
ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ, að
fólk hefur minna fé handa á
; milli er sú, fyrst og fremst, að
eftirvinna og næturvinna er að
mestu horfin og svo þekkist það
ekki lengur að um yfirboð í
vinnukraft sé að ræða. Hvort
tveggja þetta var ekki eðlilegt
— og því ekki um að sakast þó
að hvort tveggja hverfi, ef
mönnum er gert kleift að lifa á
því dagkaupi, sem þeir fá.
AF ÞESSUM SÖKUM er
ekki eins mikil hætta á því og
áður var að einstakir menn
hamstri og þess vegna verður
að vænta þess að aflétt verði
skömmtun á öðrum nauðsynja-
vörum eins fljótt og auðið er.
Fyrir liggja yfirlýsingar um
það, að á þessu ári verði til
dæmis flutt inn miklu meira af
vefnaðarvöru en áður var —
og ef það tekst, má vænta þess
að afnumin verði skömmtun á
vefnaðarvörum. Það yrði mikill
léttir fyrir heimilin — og sál-
fræðilegur sigur á ófremdará-
standi.
LÆKKUN SÚ, sem auglýst
hefur verið á tilbúnum fötum,
bæði fyrir karmenn og konur,
hefur vakið mikla athygli og á-
nægju. Nú er að sýna að fólk
geti fengið þessar vörur — og
það er viðfangsefni innflutn-
ings- og gjaldeyrisyfirvaldanna.
— Ég þori ekki að minnast á
skófatnað — fyrst um sinn.
Hannes á horninu.
Vetrarvertíðin í
Einkaskeyti til Alþbl.
frá STYKKISHÓEMI
í VETUR voru gerðir út
héðan 6 bátar á línu, þar af
einn frá Flatey (Sigurfari).
M.s. Ágúst Þórarinsson var
gerður út á veiðar með botn
vörpu; afli hjá honum var lít-
ill; keypti því fisk hér til við-
bótar og sigldi með hann til
Bretlands. Róðrartíminn var
frá byrjun febrúar til 11. maí.
Tíðarfar var mjög vont og fáa
daga gott sjóveður að sögn
sjómanna, en sjór sóttur af
miklu kappi.
Aflahæsti báturinn á vertfð-
inni var Sigurfari BA. 315;
fékk hann 432 smál. í 64 róðr-
um. Meðalafli á bát var 38414
smál., óslægt.
þeim vörutegundum, sem
skammtaðar voru.
Eins og viðskiptamálaráð-
herrann hefur skýrt frá, hef-
ur undanfarið verið hægt að
auka innflutning á kaffi og
kornvöru svo, að töluverðar
birgðir hafa safnazt fyrir í
landinu, og er það þess vegna,
að nú hefur þótt unnt að af-
nema skömmtun á þessum
vörutegundum. Það hefur
einnig verið boðað, að rýmk-
að verði svo um innflutning
á þeim vörum, sem áfram
verða skammtaðar, svo sem
vefnaðarvöru og skófatnaði,
að tryggt verði að minnsta
kosti, að ávallt verði hægt að
fá þær vörur keyptar gegn
þeim skömmtunarseðlum, sem
út eru gefnir.
Allt er þetta því á réttri
leið. Og það er engin furða
þótt blað kommúnista sé úr-
illt.
Jóns Baldvinsonar íorseta
fást á eftirtöldum stöðum:
Skrifstofu Alþýðuflokksins.
Skrifstofu Sjómannafélags
Reykjavíkur. Skrrfstofu V.
K.F. Framsókn. Alþýðu-
orauðgerðinni Laugav. 61.
í Verzlun Valdimars Long,
Hafnarf. og hjá Sveinbimi
Oddssyni, Akranesi.
a a | Herbergi B B B Buxur . j
a a n í óskast til leigu helzt í ■ ■ • miðbænum. Tilboð sénd- a B B B B Vimiubuxur ; nýkomnar. :
; ist blaðinu fyrir laugar- a a B B B B B Þórsbúð, j
a jj dagskvöld, merkt: 200.00. a a a B B B B B Þórsgötu 14. ■
a j Úra-vlðgerðir. B B B jl sfokkrar I
j Fljót og góð afgreiðsla. B : Guðl. Gíslason, B B B B B B B B röskar í
• ■ Laugavegi 63. ■ Sími 81218. Sími 81218. a a a a B B a B ■ r stulkur | skast strax. Upplýsing-:
a B I s B tr hjá forstöðukonunni. ;
: Henrik Sv. Bjömsson j hdl. Málflutningsskrifstofa. jAusturstr. 14. Sími 81530. a a a B B a B a B B B B B B B B B B Þvottamiðstöðin ■ Borgartúni 3. « sími 7260. :
a a 1 Athugið B B B il B B Bföndunarkranar j
• Myndir og málverk eru « kærkomin vinargjöf og ■ varanleg heimilisprýði. : Hjá okkur er úrvalið j mest. Daglega eitthvað j nýtt. j RAMMAGERÐIN, : Hafnarstræti 17. a a a B B B B B a B B B B B B B B B B B B B B B B B B B ■ 1 í eldhús-borð og á vegg. ■ Handlaugakranar. Botnvetlar : í baðker og handlaugar : i^éla- og raftækjaverzlunin ‘
a • a a j Eldhúsbuff B B B II B Fryggvag. 23. Sími 81279.
B a B B
: tii jl Kaupum tuskur
B B : söiu B a B L B B Alþýðuprenl-
■ • B a : Þórsgötu 14. a a a B B B B B B B B B B B B B smiðjan h.i.
B a Iþórarinn jónsson a a ; löggiltur skjalþýðandi | ■ í ensku. B B B B B jl B B B Kaupum tuskur
a i; Sími: 81655. . Kirkjuhvoli. 1 B B B B B B B B a B Baldursgötu 30.
B a \\ KöSd borð og B B j a 'dinningarspjöld
i heifur veizlumafur a B a j ^ ; sendur út um allan bæ. B a H : H B ■ B B B B Jamaspítalasjóðs Hringsins eru afgreidd x Verzl. Augustu Svendsen. Aðalstræti 12 og í Bókabúð Austurbæjar.
\ SÍLD & FISKUR. u ' H B B B B
SiMsrt hrau$
og snifiur.
Til í búðinni allan daginn.
Komið og veljið eða símið.
\
SÍLD & FISKUR.