Alþýðublaðið - 09.06.1949, Blaðsíða 4
ALÞYÐUBLÁÐIÐ
Fimmtudagur 9. júní 1949
Útgcfandi: Alþýðuflokkurinn,
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Fmilía Möller.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan h-f.
Mannalæli Tímans
TÍMINN hefur að undan
förnu fjölyrt um stjórnarsam-
starfið mjög með tilliti til þess,
að ekki er nema tæpt ár til
næstu kosninga, og aldrei er
að vita, nema til kosninga
komi fyrr en kjörtímabili lýk
ur. Þeir, sem fylgzt hafa með
ferli Tímans og Framsóknar-
flokksins, taka þessi skrif ekki
alvarlega, þetta er hið sama og
menn hafa áður átt að venjast
úr þessari átt. Framsóknar-
flokkurinn er jafn gírugur til
stjórnarsamvinnu, þegar til
hennar er efnt, en stöðuglyndi
hans fer löngum út um þúfur,
þegar kosningaóttinn kemur
til sögunnar. Tíminn hefur upp
á síðkastið reynt að beina
spjótalögum sínum nokkuð
að Alþýðuflokknum, og hefur
þeim skrifum að mestu verið
látið ósvarað. Kemur það til af
því, að Alþýðuflokkurinn lítur
enn á Framsóknarflokkinn
sem samstarfsflokk, en Tíminn
getur gengið að því vísu, að
Alþýðuflokkurinn mun gera
upp ágreiningsmálin, þegar
stund þeirra reikningsskila er
komin.
Nú síðast hefur Tíminn
reiðzt því, að Alþýðublaðið
skuli hafa skýrt frá þeirri
staðreynd, að Alþýðuflokkur-
inn hafi forðað gengislækkun
með þátttöku sinni í núverandi
ríkisstjórn og telur þetta ekki
rétt. En sem betur fer sannar
greinarhöfundur Tímans, að
þessi ummæli Alþýðublaðsins
hafa við full rök að styðjast.
Hann segir, að það sé vafalaust
rétt, að Sjálfstæðisflokkurinn
vilji gengislækkun og um af-
stöðu Framsóknarflokksins sé
það að segja, að hann telji
nauðsynlegt, að annað hvort
verði farin niðurfærsluleiðin
eða gengislækkunarleiðin. Tím
inn játar þar með, að gengis-
lækkunarhugmyndin eigi fvlgi
að fagna í báðum borgara-
flokkunum. Það eitt skortir
því á frásögn blaðsins, að þar
sé viðurkennt, hverjum ber að
þakka, að gengislækkunin er
ekki á komin.
*
En svo heldur Tíminn áfram
og gefur í skyn, að Framsókn-
arflokkurinn hugsi sér ekki að
framkvæma gengislækkun í
samvinnu við Sjálfstæðisflokk-
inn og muni ekki leggja í slíkt
nema eftir mati stéttasamtak-
anna og vilji að jafnframt
verði J;erðar ýtrustu ráðstafan-
ir til að lækka d.ýrtíðina með
bættri verzlun og lækkuðum
húsnæðiskostnaði.
Svo mörg eru þau orð, en
-nú vill svo til, að verk Fram-
sóknarflokksins tala í þessu
sambandi. Hann hefur sem sé
gert sér það að góðu að hafa
samvinnu við Sjálfstæðisflokk-
inn um gengislækkun, og ein-
hvern veginn atvikaðist það
einnig svo, að Hermann
gleymdi að bíða eftir mati
stéttasamtakanna, þegar hann
Aílt vaknar með vori og sumri. — Gróður jarðar
og mennirnir með. — Skáld skrifar mér um dal-
inn sinn og huldumeyna.
ÞAÐ ER SAGT, að allt vakni
með vori og sumri, ekki að-
eins gróður jarðar lieldur og
við mennirnir með — og víst
er um það, að „stemningarnar“
grípa okkur mennina og eru
þrungnastar lífsnautn með
þækkandi sól og vaxandi
varma. Þetta datt mér í hug
núna einn daginn þegar ég fékk
cftirfarandi bréf frá einum af
rithöfundum þjóðarinnar, sem
heima á í svcit. Hann segir
meðal annars í bréfi sínu.
„ÉG, RITHÖFUNDURINN,
á ekki sjö daga sæla, ef sólskin
bregst. Maímorguninn rennur
upp hægur og hljóður. Niðurinn
í læknum er eins og haustgrát-
ur, enda sumarið enn ekki kom-
ið. Veturinn lafir í loftinu og
hangir á klettasnösum fjalla-
hlíðanna. Af og til detta snjóél
úr skýjunum, eins og til að
minna mig á, að fara ekki í
sumarfötin. Sólskinshatturinn
megi sofa niðri í kistu! Samt set
ég upp hattinn og labba svo út,
til að leita að sólskinsbletti.
NEI, EKKI ER UM auðugan
garð að gresja. Kambfells-
hnjúkurinn rís geislaljómalaus
upp í hrímgrátt himinskýja-
djúpið, og Hellugnúpsáin sindr-
ar hvergi um hylji og strauma.
Ég geng upp á hæðina ofan við
bæinn. Og renni augum yfir
sveitina mína. Sumarskrúðið
hennar yndislega, er enn ekki
tilbúið. Én hvert sem ég mundi
líta, veit ég enga aðra sveit, er
eins vel geðjast tilfinningum
mínum.
HVAR SKYLDI VÖL A
unaðslegri ómum vors og sum-
ars? Hvar ætli að heyrist fegri
vatnaniður, en í mínum bæjar-
læk og Hellugnúpsánni? Hvar
skyldu anga meir og brosa fög-
ur blóm, en undirgróðurinn í
víðikjarrinu neðan við túnið
mitt? Og hvar bersst að eyrum vildar ykkar?‘
hærri fuglakliðir en skógar-
þrastanna þar? Það veit ég
ekki.
OG í þessari sveit má finna
margan blómlegan birkilund,
því að hún er mesti skógardalur
landsins. Um brekkur grænar
streyma lækir tærir, er sól á
morgni sumarsins skín yfir
grund og á grösum blika dropar
silfurskærir. Ég óska þess af al-
hug að upp sú renni tíð, að óð-
um fjölgi grænum ræktarblett-
um kringum litlu og lágreistu
bændabýlin í dalnum mínum,
en skógar klæði hverja einustu
fjallahlíð, og holt og móar verði
að nýbýlatúnasléttum.
EN TIL ÞESS ÞARF félags-
andi að aukast í hverjum bæ,
svo að eining hér og friður jafn-
an ríki. Orð og gjörðir fólksins
verða að bera fagran blæ, en
burtu allur kali og sundrung að
víkja. Þá munu fyrir samstilt-
um, starfandi höndum hin
mögru mýrasund þorna og rækt
ast, og mosinn hverfa, sem er
grár af elli. En hver óræktuð
grund bætast við töluvellina.
Þá mun hér verða val fleiri
gæða, en allt sem þrengir hagi
fólksins, eyðast. Og framtíðin
blessa frjálsa, glaða þjóð í
gamla dalnum.
HELLUGN ÚPURINN ER
HÖLL álfameyjar, sem heitir
Hulda. Ég þarf ekki að ganga
nema hérna upp á hálsinn, stað-
næmast í einu fjalldraparjóðr-
inu og blása í ýlustrá. Þá kem-
ur hún til fundar við mig. Og
og hennar. Og svo dönsum við
saman í beitilyngs-ásnum, þang
að til sumarið kemur. Dönsum
Hnjúkaþengill, eru dulnefnin
okkar. Megum við vænta vel
beitti sér fyrir gerðardóminum
sællar minningar. Og þegar
mat stéttasamtakanna lá fyrir,
var öðru nær en Framsóknar-
flokkurinn kysi að fara eftir
því. Hann reyndist þvert á
móti sporléttur taglhnýtingur
íhaldsins í það sinn eins og oft
endranær fyrr og síðar, þegar
verkalýðssamtökin hefðu
þarfnazt fulltingis hans í verki.
Það er þess vegna með öllu til-
gangslaust fyrir flokk með
slíka fortíð að reyna að láta
blítt að verkalýðsamtökunum
í orði. Þau þekkja Framsókn-
arflokkinn.
Það er heldur ekki til neins
fyrir Tímann að fjölyrða um
iáhugá Framsóknarflokksins á
lækkun húsnæðiskostnaðarins.
Einnig í því máli hafa verkin
talað. Framsóknarflokkurinn
hefur í verki sýnt áhuga sinn
á lækkun húsnæðiskostnaðar-
ins með því að þrýsta sér sem
fastast upp að lakari hluta
Sjálfstæðisflokksins og krefj-
ast afnáms húsaleigulaganna.
Er þess skemmst að minnast,
að Hermann Jónasson og Páll
Zóphóníasson hafa gengið feti
lengra í árásum á þessa mikils-
verðu löggjöf en Gísli Jónsson,
sem þó er einn dyggasti þjónn
húseigendavaldsins á alþingi.
Alþýðuflokkurinn hefur
reynt að beita sér fyrir bætt-
um verzlunarháttum á alþingi.
Tillögur hans í því efni hafa
ekki náð fram að ganga. Er
svo undarlega vill til, að Fram-
sóknarflokkurinn átti ekki
hvað minnstan þátt í því, að
frumvarp Ernils Jónssonar náði
ekki fram að ganga á síðasta
þingi. Áhuginn fyrir fcættum
verzlunarháttum reyndist sem
sé ekki meiri en þetta, þegar
á reyndi.
Þannig er allt á sömu bók-
ina lært hjá Tímanum, þegar
hann reynir að gera hríð að
Alþýðuflokknum. Þessi atriði,
sem gerð hafa verið lauslega
að umræðuefni að gefnu til-
efni, nægja fullkomlega — þó
að ekki sé minnt á hækkun
landbúnaðarafurðanna síðast
liðið haust — til að sýna al-
þýðu landsins fram á óheilindi
Framsóknarflokksins. Því fer
sem sé fjarri, að allt það hafi
verið til tínt, sem hægt væri
og raunar ástæða til. En Tím-
inn getur gengið að því vísu,
að það verður gert.
■ e | Herbergi c 'iBuxyr
■ s i Rólegur eldri maður ósk- ■ : Viniiubuxur B
■ i ar eftir herbergi til leigu, ■ B : nýkomnar.
B ! sem næst miðbænum. — B B
■ j Tilboð merkt: ,,Rólegur“ 1 Þórsbúð, B
■ sendist blaðinu fyrir 25. : Þ- m. ■ ■ Þórsgötu 14. B B
B B ■ Hreinsun B B
E
■ ■ ■
! Dívan ■ ■ ■ j og vaxbónun B
■ ■ ■ Dívan til söllu. Upplýs- B B ibíla B B
a B : ingar á Laugavegi 58 B B B B B \H.F. RÆSIR B B
; milli kl. 1—2 í dag. B B m B B B B B : AthiinlS
B B | Auglýsið í B B B ; AÍIlliyEU B : Myndir og málverk eru : kærkomin vinargjöf og : varanleg heimilisprýði.
i Alþýðublaðimi! a B B B : Hjá okkur er úrvalið : mest. Daglega eitthvað : nýtt. B : RiMivrar.TíRniivr
B B iÚra-viðgerðir. B ; Hafnarstræti 17.
B B B
• Henrik Sv. Björnsson
■ Fljót og góð afgreiðsla. a B B j hdl. * Málflutningsskrifstofa. ■ Austurstr. 31 Símd 81530. B B B
» Guðl. Gíslason, B
: Laugavegi 63. B B
: Sími 81218. Sími 81218. B B B B B B iKaupum luslur B
j B 1 B ! 1 ÞÓRARINN JÓNSSON i: B 1 Alþýðuprenl-
|: löggiltur skjalþýðandi B B B
! ■ í ensku. i smiðjau W. B B B
• Sími: 81655. . Kirkjuhvoli. B
B j KöEd borð og B B B B B B iKaupum tusfcur B
B B j heifur veiziumafur B B B B B B B B : Baldursgötu 30. B B B
> sendur út um allan bæ. B
a B B ■ SÍLD & FISKUR. j Minningarspjöld B
: ftarnnepífalasinðs Hrini»siní
: eru afgreidd í
; __ : Verzl. Augustu Svendsen.
ÍMinningarspjöld B B B B ; Aðalstræti 12 og í * Bókabúð Ausíurbæjar. B B B
' í Jons Baldvinsonar forseta B B
B ■ fást á eftirtöldum stöðum: j Smyn brauö
;; Bkrifstofu Alþýðuflokksins.
!» : Skrifstofu Sjómannafélags : Reykj avíkur. Skrifstofu V. J K.F. Framsókn. Alþýðu- a ; brauðgerðinni Laugav. 61. j m sniffur. B
B B
j Til í búðinni allan daginn.
• í Verzlim Valdimars Long, j Komið og veljið eða símið.
: Hafnarf. og hjá Sveinbirni B B j Oddssyni, Akranesi. : SÍLD & FISKUR. B B B B B