Alþýðublaðið - 09.06.1949, Qupperneq 6
s
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Fimmíudagur 9. júní 1949
Leifur
Leirs:
OPUS NR. 281.
Kalt er í sveitum
kólga á fjallatindi
kveinka sér fölleit
strá í norðanvindi
kalt er í húsum
hjúalaust og dapurt
horngrýtis fjári
• er sumarfrostið napurt
kalt er í bóli
konulausum mönnum
koddinn í hnyklum
sængin öll í hrönnum
velkomin Esja
austan yfir sæínn
með yl og vor
og þýzka kvinnu í bæínn.
Vo'ðvan
Ó. Sigurs:
ÍÞRÓTTAÞÁTTUR.
Húrra íslendingar!
Mikið horngrýti tókum við
þá laglega á síðasta leiknum.
Þessa ensku atvinnusparkara
sko--------bravó, bravó! Þaö
er eins og ég hef alltaf sagt,
þetta er sennilega eitthvert
Iangsterkasta liðið, sem Bretar
eiga, og án efa það langsterk-
asta sparklið, sem hingað hefur
komið. En við vorum betri.
Margfalt betri. Við eiginlega
lékum okkur að þeim. Við not-
uðum nefnilega á þá sama klof-
bragðið og þeir hafa glltaf
notað, og ekki aðéins skellt
beztu knattspyrnuflokkum um
víða veröld á, heldur og heilum
heimsveldum. Já, muna má!
Nefnilega sko að tapa fyrst og
spara kraftinn og vinna síðast,
þegar andstaeðingurinn er búinn
að tapa. En við snerum á þá,
ha . . . var það ekki! Unnum
ekki fyrstu tvo leikina og, það
sem meira var, vio stilltum
okkur um að vinna fyrri hálf-
íeikin, en það var nú pressa,
maður! En í seinni hálfleiknum,
sko, þá tókum við þá. Nei,
brezka klofbragðið dugar ekki
á okkur hérna, enda þótt þeir
eigi kannske eftir að leggja
Rússann á því. Hins vegar er
Ijóst að Bretinn skítliggur á ís-
Ienzku klofbragði, ef það er tek
ið allra síðast í glímunni, og ég
tala nú ekki um, ef því er snúið
snöggt upp í innanfótar hæl-
krók á lofti. Það eiít er víst, að
þeim þýðir ekki að senda hing-
að knattspyrnulið oftar í þeirri
von að vinna.
Og nú koma Hollendingarnir
bráðum. Ég skal segja ykkur
eitt, — við knúsmölum þá, ef
við verðum í standi. Ef ég
mætti ráða, þá værum við bara
ekkert að týna upp þessi smá-
þjóðaknattspyrnufélög. Þau
geta ekki neitt. Nú eigum við,
sko, að fara í Rússann. Víking-
ur fer í Bandaríkin og það verð
ur nóg fyrir þau. Nei, nú eigum
við, sko, að taka rússneska
dynamóinn og knúsmala hann,
eins og Bretann. Það gæti
hreínt og beint haft hernaðar-
lega þýðingu! Að slá öllum stór-
veldunum við á einu sumri
meina ég. Húrra, húrra!
Lífi íslenzkt þjóðerni, —
hæfilega blandað — um allar
aldir. Bravó!
Mið íþróttakveðjum
Vöðvan Ó. Sigurz,
SKIPAUTGCRÐ
RIKISINS
rfEsja"
austur um land tii Siglufjarð-
ar hinn 15. þ. m. — Tekið á
móti flutrúngi til Fáskrúðs-
fjarðar, Reyðarfjaroar, Eski-
fjarðar, Norðfjarðar, Seyðis-
fjarðar, Þórshafnar, Raufar-
hafnar, Kópaskers, Húsavíkur,
Akureyrar og Siglufjarðar ár-
degis á laugardag og á mánu-
dag. — Pantaðír farseðlar ósk-
ast sóttir á þriðjudaginn.
Vicki Baum
HÖFUÐLAUS ENGILL
if
n
Þeir, sem pantað hafa far með
ekipinu frá Reykjavík til Glas-
gow 17. júni n.-k., eru beðnir
að innleysa farseðlana laugar-
daginn 11. júní árdegís. Þetta
tiær einnig til þeirra, sem
pantað hafa hjá Ferðaskrif-
stofu ríkisins. — Nauðsynlegt
er, að farþegar leggi fram
vegabréf sín.
blóði þeirra. Undir hinum fínu
bogahvelfingum engdust menn
sundur og saman og seldu upp
eftir óttann, og úti í horni sat
ein af elahússtúlkunum og hélt
um hálsinn á einum hermann-
anna og strauk vanga sínum
við andlit hans, handlegg hans
og tætta ermi, og þegar hann
ýtti henni ruddalega upp að
veggnum, sneri ég mér undan
til að verða ekki áhorfandi að
því að þau fullnægðu hinu æð-
isgengna hungri hins bölvaða
holds.
Ungi Riano fór með liðs-
menn sína upp á efri hæðina.
Þeir báru kvikasilfursflöskurn-
ar, sem voru fullar af púðri,
þessa kynlegu uppfinningu
hans, sem bjarga átti Grana-
ditas. Felipe gekk fram hjá
mér án þess að sjá mig. Hann
var þá enn á lífi. Ég gekk aftur
til særðu mannanna minna og
gerði það, sern ég gat fyrir þá,
en það var vissulega mjög lítið.
Um allan skálann kvað við af
kliðnum, sem Licenciado gerði
og menn hans, og í öllum há-
vaðanum gaf einn af hinum
Bærðu upp öndina í kyrrþey og
virtist vera feginn. Og ég sjálf
var orðin samgróin þessu ein-
kennilega æðruleysi orustunn-
ar, þegar dauðinn er orðinn svo
tíður, að hann er hættur að
hafa nokkra þýðíngu og lífið
missir allt gildi.
Nú hófst tímabil algerrar
ringulreiðar, þegar allt virtist
ske undir eins, í æði, eins og
draumar óðs manns hljóta að
vera. Uppreisnarmennirnir
beindu nú öllu afli sínu að
hliðinu, að þessari sterklegu,
þungu, naglreknu og óviðráð-
anlegu hurð. Ofan af efri hæð-
Lnni byrjaði Riano og menn
hans að láta handsprengjunum
rigna ofan á árásarmennina.
Brothljóð og sprenging, ó-
mennsk hreeðsluöskur, drífa af
járnabrotum, sem skall á
veggnum. Og saman við kæf-
andi þefinn af púðrinu bland-
aðist lyktin af brenndu hári og
holdi. Uppreisnarmennirnir
hörfuðu óttaslegnir frá dyrun-
um, og andartak ríkti dauða-
þögn. Kynlega, líkt og það
kæmi frá annaxri stjörnu, þar
cem lífið gengi sinn vanagang,
hljómaði það, þegar klukkurn-
ar í Belén slógu fjögur, og þá
hafði þessi óendanlega orusta
byrjað fyrir aðeins tveim
Wd)
stundum. Faðir Septiéu var að
muldra latnesku bænirnar úr
bænasöngbók sinni yfir einum
af—særðu piltunum. Annar
kallaði hástöfum grátandi á
Æurelíu: ,,Aurelía, ég vil ekki
deyja! Ó, allir heilagir, látið
mig ekki deyja, Aurelía!“ Og
þá byrjaði atlagan að hurðinni
áf nýjum ofsa, og handsprengj-
újnum rigndi niður, sumar
sjprungu og sumar felldu og
drápu mennina þarna niðri að-
sjns af því hve járnflöskurnar
i|pru, þungar.
" Meðan Riano og -Bersóbal
majór héldu áfram að berjast
ág drepa, var Licenciado Val-
dez í sama mund að binda
hvítan vasaklút við sverðið sitt
og veifaði því út um glugganh
sem merki um uppgjöf. Upp-
reisnarmennirnir, sem stóðu
niðri mitt í blóðugum bardag-
anum og sprengjuregninu,
tóku móti þessu augljósa
bragði af höndum Spánverja
með æðisgengnu öskri, og
nýrri, enn óðari tilraun til að
brjóta upp þessa rammgeru
hurð. Andreas Ruiz dró stóran
og þungan leðurpoka inn í
skálann. Þetta var þá það, sem
þeir hugðu vera allra meiha
bót: silfur. Þeir byrjuðu að
kasta peningum út til upp-
reisnarmannahna, eins og þeir
höfðu ávallt fleygt peningum
til að þóknast skrílnum. En
þeir, sem voru að hamast á
hurðum Granaditas, girntust
ekki peninga. Þeir vildu ekki
láta fleygja í sig ölmusu.
‘ Bak við þessar öflugu dyr
vissu þeir að hin gífurlegu auð-
æfi borgarinnar voru geymd
og þeir ætluðu sér að ná þeirn.
Það brakaði og marraði í hurð-
inni, en hún hélt ennþá, og
sprengjurnar féllu enn og
dauðir uppreisnarmenn hrúg-
uðust upp við hliðið. Blóðið
( streymdi yfir Plazoleta og
undir brattan Mendizobal stig-
inn, eins og vatnið hefði
streym tþar niður í rigningu.
Og upp þessar rauðlituðu
götur komu nú skrítnar skepn-
ur skríðandi eins og risastórar
skjaldbökur. Litlu mennirnir,
sem höfðu borið steinhellur
allt sitt líf úr grjótnámunum
og höfðu nú hlaðið stórura
steinum á bakið á sér sem vörn
gegn handsprengjum Rianos.
Þeim tókst að komast ósærðum
að hliðinu með þessa steina á
bakinu og einn þeirra kvikti á
kyndli og stakk honum undir
hurðina. Það fór að rjúka úr
sprungnum borðunum, og þau
urðu svört. Hér og þar kvikn-
aði lítill logi, og ekki fyrr en
hurðin var alelda skreið sein-
skjaldbakan burt, ómeidd. La-
bor de sangre. Blóðþrælkun.
,,Það er ódýrara en múldýr,“
hafði Felipe einu sinni sagt.
Nei, það er ekki ódýrara, hugs-
aði ég. Ekki þegar til leiksloka
kemur. Reykurinn steig upp,
svartur og ramur og logarnir
teygðu sig upp hurðina, bláir,
gulir og rauðir, þar til þeir
höfðu náð flagginu yfir brenn-
andi dyrunum og hitann og
kæfandi reykinn lagði inn í
skálann.
Licenciado Valdez kraup úti
í horni og grét með höfuðið í
kjöltu svartklædds prests. Her-
lúður var ákaft þeyttur úti í
húsagarði þar sem Berzóbal
var að safna saman mönnum
sínum til síðustu vonlausu út-
rásarinnar. Andreas Ruiz kall-
aði, að hann ætlaði ekki að láta
svæla sig út eins og gamla
rottu, óg þaut út til að hlýða
.kalli herlúðursins.
Augu mín voru fljótandi af
reykjarsvælunni. Ég gat ekki
séð mikið, en ég heyrði mjúlc-
an skell þegar síðustu brenn-
andi bitarnir í hurðinni féllu
niður. Faðir Septien hafði los-
að lítinn krans ofan af veggn-
um yfir stóra borðinu þar sem
skjölin og kortin voru farin að
skrælna og skrjáfa i hitanum.
Hann kyssti krossinn og faðm-
aði hann og fór svo út í bar-
dagann.
FERÐAFELAG TEMPLARA
efnir til skemmtiferðar
sunnudaginn 12. júni n.k.
um Krýsuvík, Selvog að
Strandakirkju um Þorláks-
höfn, Ölfusið að Selfossi,
Ljósafossi um Þingvöll. —
Staðið við á þessum stöðum
eftir því sem tími vinnst til.
Farið verður frá G.T.-hús-
inu kl. 8.30 árdegis. Farmið-
ar í Bókabúð Æskunnar,
sími 4235.
Ferðafélag Templara.
ÖRN: Réði mig------------Já, sá réði öngvit. Ég heimta að þið lendið á
mig eða hitt þó heldur! Laumað- flugvellinum þegar í stað!
ist aftan að mér og barði mig í
GRÁSKEGGUR: Ég er nú ekki
meiri flugmaður en það, að mér
tókst með naumindum
upp.-------
ná henni
MYNDASAGA ALÞÝÐUBLAÐSINSs