Alþýðublaðið - 22.09.1949, Qupperneq 7
Fimmtudagur 22. sept. 1949
ALbYÐUBLAÐIfí
7
Krónan
'Framhald af 1. síðu.
fram úr efnahagsvandræðum
þeirra. Utan Bretlands geta
menn líka rætt málið frá báð-
um hliðum. Eru t. d. í Banda-
ríkjunum háværar raddir, sem
fordæma þessa ráðstöfun vegna
þess, að það gerir brezkar vör-
ur auðseljanlegri á amerískum
markaði og torveldar um leið
útflutning amerískra vara, sem
liækka í verði. En í Bandaríkj-
unum eru einnig þau sjónarmið
áberandi, að gengislækkun
pundsins hafi verið óumflýjan
leg nauðsyn, ef koma eigi á
gjaldeyrisjafnvægi milli sterl-
ingspundasvæðisins og dollara-
svæðisins. Sé gengislækkunin
þannig einn liður í baráttu
Breta að því takmarki, sem
brezka stjórnin hefur sett sér
að ná, árið 1952, er Marshall-
hjálpinni lýkur.
KRÓNAN VARÐ AÐ FYLGJA
En þótt inenn kunni að vera
ósammála um ákvörðun brezku
stjórnarinnar um gengislækk-
un
getur varla ríkt neinn skoð
anamunur um, að íslenzka
krónan varð að fylgja
sterlingspundinu, úr því að
gengi þess liafði verið fellt.
ísland hefur tiltölulega
meiri viðskipti við Bretland en
flest, eða jafnvel öll, önnur
lönfl. Árið sem leið keyptu Bret
ar um helming af útflutnings-
verðmæti okkar og auk þess
var mikið af útflutningnum til
meginlandslanda greitt í pund-
um. Af heildarútflutningnum
1948 var 80—90% til Bretlands
og landa, sem hafa fellt gjald-
eyri sinn gagnvart dollar í
sama hlutfalli og átt hefur sér
stað um pundið. Getur af þess-
um ástæðum ekki orðið um
annað að ræða en að íslenzka
krónan fylgdi pundinu, þ. e. a.
s. að pundagenginu verði hald-
ið óbreyttu, en krónan gagn-
vart dollar lækki um 30%.
Væri gengi krónunnar
gagnvart doliar haldið ó-
breyttu, mundi það sam-
SK1PAUTG6RÐ
RIKISINS
M.s. „Esja"
austur um land til Siglufjarð-
ar hinn 27. þ. m. Tekið á móti
flutningi til Fáskrúðsfjarðar,
Reyðarfjarðar, Eskifjarðar,
Norðfjarðar, Seyðisfjarðar,
Bakkafjarðar, Þórshafnar,
Raufar, Kópaskers og Húsavík
ur á morgun og árdegis á laug-
ardag. Pantaðir farseðlar ósk-
ast sóttir árdegis á laugardag.
Starfstúlka
óskast í Eilliheimili Iíafn-
arfjarðar 1. október. Upp-
.lýsingar hjá forstöðukon-
unni sími 9281.
stundis leiða til 30% verð-
lækkunar í ísl. krónum á
langmestum hluta útfjutn-
ingsins.
Ef einhver væri, sem í al-
vöru vildi halda því fram^ að
ríkisstjórnin hefði getað
tekið einhverja aðra afstöðu
til þessarar gengisbreyting-
ar en hún gerði, ætti sá
hinn sami að svara þeirri
spurningu, livort hann tglji,
að íslenzka þjóðin hafi efni
á því að selja t. d. frýstan
fisk til útflutnings fyrir
lægra verð heldur en sjó-
mennirnir og útgerðarmenn-
irnir þurfa að fá fyrir sam-
svarandi magn af fiski úr sjó.
Freðfiskverðið til Bretlands
er nú kr. 2.40 á kg. fob, en
myndi, ef gengi ísleiizku
krónunnar gagnvart dpllar
hefði verið haldið óbreyttu,
Iækka niður í kr. 1.67, en
hráefnið í kíló af freðfiski
kostar hins vegar kr. 1.76.
Svipað má segja um togara-
fiskinn og raunar allar okk-
ar útflutningsvörur.. Afleið-
ingin af óbreyttu doilara-
gengi myndi því hafa orðið
stöðvun útflutningsfram-
leiðslunnar, atvinnulcysi og
glundroði í efnaliagsmálum
landsins.
ÁHRIF DOLLARAHÆKK-
UNARINNAR
Að svo komnu verður ekki
spáð rneð neinni vissu hvaða á-
hrif þessi gengisbrevting heíur
á afkomu landsins. Þar sem hér
er aðeins um gengislækliun
gagnvart dollar að ræða er
eðlilegt að áhrif hennar tak-
markist fyrst og fremst við inn
flutning frá Ameríku og út-
flutning okkar þangað. Af
neyzluvörum eru nú aðeins
keyptar frá Bandaríkjunum
hveiti, hrísgrjón og baunir, og
hækka þær eðlilega nokkuð í
verði. Talsverðar birgðir eru
til af hveiti í landinu, sem auð
vitað er búið að greiða, og hafa
verið gerðar ráðstafanir til að
þær dreifist sem jafnast. Siðan
um mitt ár 1948 hefur hveiti
lækkað talsvert í verði og verð
ur því verðhækkunin nú ekki
eins tilfinnanleg' og ella. Síð-
ustu mánuði hefur verð á
smjörlíki verið lækkað um kr.
l. 45 hvert kíló, vegna hag-
kvæmra innkaupa á smjörlíkis-
olíum frá Bandaríkjunum.; Má
nú búast við, að verð á srpjör-
iíki hækki aftur, er hráéfnið
hækkar í ísl. krónum. Megnið
af neyzluvörunum er hins veg-
ar flutt inn frá Evrópuríkjum,
svo sem rúgmjöl, haframjöl,
vefnaðarvörur, skófatnaðúr o.
m. fl., og má búast við að verð-
lag þeirra verði óbreytt. 'i
Annar innflutningur frá
Bandaríkjunum er aðalega vara
hlutir í bifreiðar og vélaiy land
búnaðarvélar, dráttarvélar,
pappír til fiskumbúða, srnurn-
ingsolía, fóðurbætir, járn og
stál. Margar þessar vörur eru
,ekki fáanlegar frá öðrum við-
skiptalöndum okkar, en um þær
vörur, sem framleiddar eru
líka í Evrópi^, mun það gilda,
að verðlag þeirra þrátt fyrir
gengislækkunina mun mega
teljast öllu hagkvæmara frá
Ameríku. En þar eð munur á
verðlagi Ameríku og Evrópu
hefur nú stórum minnkað og í
sumum tilfellum alveg horfið
er miklu auðveldara fyrir inn-
ílutningsyfirvöldin að beina
innflutningnum sem allra mest
til Evrópu, eins og gert hefur
verið undanfarin ár.
Gengisbreyting gagnvart
dollar mun tvímælalaust greiöa
fyrir útflutningi íslenzkra af-
urða til Bandaríkjanna. Sala á
freðfiski verður væntanlega
mun hagstæðari en verið hefur
og standa einnig vonir til að
selja megi nokkuð magn af
þorskalýsi til Bandaríkjanna,
en það sem af er þessu ári
hefur þessi þorskalýsismarkað-
ur okkar verið mjög lélegur.
Þá opnast nú nýir möguleikar
fyrir sölu á fisk- og sildar-
mjöli og kanske öðrum afurð-
um, og er nauðsynlegt að ís-
ienzkir útflytjendur noti þá til
fulls.
Þegar fram líða stundir,
munu áhrif gengisbreyting-
arinnar ’ væntanlega koma
fram í auknum útflutningi
til Ameríku og rninni inn-
flutningi þaðan og skapa
þannig meira jafnvægi í við
skiptum milli landanna.
TVENNT ÓLÍKT.
Þegar rætt hefur verið
liér á landi að undanförnu
um gengislækkun, hefur á-
valt verið við það átt, að
lækka íslenzka krónuna ein-
liliða gagnvart öllum öðrum
útlendum gjaldeyri. Er aug-
ljós sá mismunur, sem er á
þeirri gengisbreytingu og
þessari, sem nú hefur átt
sér stað.
Nú breytist gengi íslenzkrar
krónu ekkert gagnvart öllum
okkar aðalviðskiptalöndum
heldur aðeins gagnvart Banda-
ríkjunum og þeim örfáu lönd-
um, sem þeim fylgja, en við
þessi lönd hefur ísland nú lítil
viðskipti tiltölulega.
Áhrif þessarar gengisbreyt-
ingar annars vegar á verð-
lag innfluttra vara og af-
komu almennings og hins
vegar á verðlag útfluttra
vara og afkomu atvinnuveg
anna, eru því hverfandi lít-
il samanborið við einhliða
lækkun íslenzkrar krónu
gagnvart öllum erlendum
gjaldeyri.
Vandamál sjávarútvegsins i
sambandi við viðskipti við
sterlinglöndin eru því jafn ó-'
leyst eftir sem áður. Hins veg
ar er þess að vænta að stöðv-
un og þar af leiðandi atvinnu-
leysi hafi verið afstýrt með j
bessari ráðstöfun, án þess að
lífskjör almennings hafi verið
skert svo nokkru nemi.
Framvegis
verður smurstöð okkar við Sætún 4, opin frá kl. 8 árd.
til 12 síðd. — Á laugardögum frá kl. 8 til 4 e. h.
Olíuhreinsunarstöðin h.f.
Sími 6227.
Þeir, sem hafa haft geymsluhólf á leigu síðastliðið ár,
eru vinsamlegast beðnir að endurnýja, eða segja upp
hólfaleigunni fyrir 25. septemher n.k. Þeir núverandi
leigendur, sem ekki láta til sín heyra fyrir tilsettan
tíma, skoðast sem leigjendur áfram og verða þá að greiða
fyrir hólfin, hvort sem þau verða notuð eða ekki.
Sökum þess hve hólfleigan hefur aukist, höfum við nú
séð okkur færst að lækka leiguna verulega frá að und-
anförnu.
Virðingarfyllst
Matvælaqeymslan h.f.
Sími 7415.
Gengislækkun
sterlingspunds
(Frh. af 5. síðu.)
hækka gengi dollarsins vegna
þess, að Bretar hafa hæklcað
gengi hans lijá sér. Það, sem
gerzt liefur, er, að Bretar hafa
lækkað gengi gjaldeyris síns
gagnvart dollar, þ. e. hækkað
verð dollars hjá sér. Afleiðing
þess er sú, að við verðum líka
að hækka dollarinn hjá okk-
ur, þ. e. lækka krónuna gagn-
vart dollar, ef við viljum halda 1
genginu á sterlingspundi ó- 1
hreyttu. Eina ráðið til bess að
komast hiá bví að hækka doll-
arinn væri að lækka sterlings-
nundið, en öllum á að geta
komið saman um, að það komi
ekki til greina, þar eð það
mundi stöðva útflutningsfram-
ieiðsluna og valda atvinnu-
ieysi.
Hækkun dollarsins og sú'
verðhækkun, sem af henni'
kann að leiða, er okkur því
algjörlega ósjálfráð. Hún er
jafnóviðráðanleg og það, ef
verðlag hefði skyndilega
hækkað samsvarandi í Banda-
ríkjunum. Vörur frá Banda-
ríkjunum munu hækka í verði.
En útflutningur til Bandaríkj-
anna mun vafalaust aukast
eitthvað, svo að dollaratekj-
urnar munu aukast. Ef þær
aukast svo mikið, að hægt
vcrður að kaupa ýmsar vörur,
r.em undanfarið hafa verið
Eíeyptar frá ,,clearing“ lönduni
við mjög háu verði, frá Banda-
ríkjunum í staðinn, er engan
veginn víst, að nokkur verð-
hækkun liljótist hér innan
lands af þessari hækkun doll-
arsins, og mun reynslan skera
úr því.
Undanfarið hefur verið rætt
allmikið um gengislækkun
krónunnar í blöðum og manna
á milli. Það, sem þá hefur ver-
ið átt við. er auðvitað almenn
gengislækkun krónunnar. þ. e.
hækkun á öllum erlendum
gjaldeyri, og þá fy,rst og fremst
pundi, sem er aðalviðskipta-
gjaldeyrir þjóðarinnar. Það,
sem hér hefur gerzt nú, er
auðvitað ekki slík gengislækk-
un, svo sem ljóst má verða af
því, sem sagt hefur verið að
framan. Gengi sterlingspunds,
aðalviðskiptagjaldeyris þjóð-
arinnar, er óbreytt. Það, sem
hér hefur verið gert, hefur ver-
ið gert vegna breytinga, sem
orðið hafa annars staðar,-og ís-
lendingar hafa ekki getað haft
nein áhrif á.
ÍÞRÓTTABÆKUR ÍSÍ. Að-
alútsala á þeim er nú í Bóka-
verzlun ísafoldar, Rvk. En eins
og áður geta Sambandsfélög
ÍSÍ sent pantanir sínar í skrif-
stofu ÍSÍ, Amtmannsstíg 1,
Reykjavík.