Alþýðublaðið - 06.01.1950, Blaðsíða 5
Föstudag'ur 6. janúar 1950.
ALt>ÝÐUBLAÐ!Ð
r
Hið nýja glæsilega hús Gagnfræðaskóla Austurbæjar við Barónsstíg.
FYRIR kl. 3 á morgnana
streymir ungviði bæjarins í
skólana. Fimir fætur tifa í
krapi og hálku. Allir að flýta
sér, ailir með andlegt veganesti
í tösku á baki sér eða hlið.
Fjölmennust er skólafylking
sú, sem stefnir að Barónsstíg,
því þar standa tveir hinir
stærstu skólar bæjarins, Aust-
urbæjarbarnaskóli og Gagn-
fræðaskóli Austurbæjar. Deila
má um, hvort heppilegt sé að
tveir svo stórir skólar fyrir
íngimar Jónsson
skólastjóri.
börn og unglinga séu i -svo þéttu
nábýli. En allir eru sammála
um, að þriðja skólanum, sem
verið er að reisa þarna líka,
Iðnskólanum, sé algerlega of-
aukið á þessum stað.
Gagnfræðaskóli Austurbæj-
ar er ein veglegasta skólabygg-
ing landsins, nýtízk og hag-
kvæm. Aðeins nokkrir nýir
skólar af sömu gerð eru til á
Norðurlöidum.
Á neðstu hæð byggingarinn-
ar er rúmgott anddyri með
tveimur stórum fatageymslum
og inn af þeim eru mjög full-
komin snyrtiherbergi. Úr and-
dyri liggur gangur í aðal leik-
fimisal skóians, sem er gríðar-
stór, og fylgja honum böð og
2 stór búningsherbergi fyrir
stúlkur og pilta. Annar leik-
fimisalur með búningsherbergj-
um og böðum liggur í sérálmu
vestast í byggingunni og er
ekki innangengt í hann. Enn
fremur er á þessari neðstu hæð
stór og góð smíðastofa og íbúð
húsvarðar, miðstöð og fleira.
Úr anddyrinu er gengið upp
breiðar tröppur og þá komið í
mjög stóran sal, sem nær upp
gegnum tvær hæðir og er með
g-lerþaki. Þessi glæsilegi salur
er samkomusalur skólans og
jafnframt skólagangur, því úr
honum niðri er gengið í allar
kennslustofur á þeirri hæð, 7
talsins, auk kennarastofu og
skrifstofu skólastjóra, Ingimars
Jónssonar, hins kunna skóla-
manns.
Úr salnum liggja breiðar
tröppur upp á efstu hæð húss-
ins. Inn í kennslustofur á þeirri
hæð er gengið af breiðum svöl-
um, sem liggja meðfram salar-
veggjunum á þrjá vegu. Á þess-
ari hæð eru 9 kennslustofur.
Allar kennslustofur ‘skólans
eru bjartar og rúmgóðar, lýstar
fluorscent ljósum.
Tíðindamaður kvennasíðu
Alþýðublaðsins kom í skólann
í fyrstu kennslustund einn
morgun og hitt að máli
yfirkennarann, Sveinbjöin Sig-
urjónsson, magister. Hann var
þá á daglegri eftirlitsferð um
skólastofurnar til þess að fá
yfirlit 5'fir fjarvistir nemenda.
Síðan hringir hann heim á4
heimilin til að grennslast- eftir
hvað fjarvistum valdi þann og
þann daginn.
SKÓLASÓKN NEMENDA
„Hvernig er skólasókn nem-
enda?“ spyr tíðindamaðurinn.
„Heilsufar nemenda hefur
verið tiltölulega gott í vetur,
þótt í svona stórum hópi — en
í skólanum eru um 720 nem-
endur, ■— séu oftast einhverjir
nemendur Iasnir.“
„Mæta nemendur stundvís-
lega á morgnana?"
„Langflestir; þó eru ævinlega
nokkrir, sem erfitt er að venja
af þeim Ijóta sið að koma einni
til þrem mínútum of seint. Þá
or alltaf nokkur hópur, sern
„sefur yfir sig“, eins og það er
kallað. En reynt er hér á
morgnana að hafa samband við
alla þá, sem vantar.“
SAMVINNA HEIMILA
OG SKÓLA
„Hvernig bregðast heimilin
við slíkum eftirgrennslunum?“
„Yfirleitt vel, því flestum
foreldrum er annt um að börn
þeirra sæld skólann sem bezt.
En það kemur fyrir í stöku
húsi, að svo fast er
morgnana, milli kl. 8
fólk verður naumast vakið.
En auðvitað er það eitt aðal-
atriði í sambandi við skólavist
^ unglinga, að gott samband og
gagnkvæmt traust sé milli
-skóla og heimila.“
„Hve lengi er kennt hér á
degi hverjum?“
„Tvísett er í skólann. Fjörir
aldursflokkar stunda hér nám.
Skiptíst hver aldursflokkur í
margar bekkjadeildir. Alls eru
deildirnar 23. Tveir eldri ald-
ursflokkarnir eru í skólanum á
morgnana frá kl. 8—1,30 e. h.,
en yngri nemendurnir eru síð-
degis, frá kl. 1,30 til 7.“
MATARTÍMI NEMENDA
I ÉÉminwMffiiiigtií
„Hvernig er háttað matmáls-
tímum nemenda?“
| „Eftir þrjár fyrstu kennslu-
stundir dagsins er tuttugu mín-
| útna hlé, og borða þá nemend-
ur nesti sitt, sem undantekn-
i ingarlítið er smurt brauð og ný-
mjólk. I þessu hléi borða nem-
| Framhald á 7. síðu.
KVENFÉLAG ALÞÝÐU-
FLOKKSINS í Reykjavík hef-,
ur mikið rætt þörfina á því, að I
hér á landi verði gerðar skjm-
samlegar ráðstafanir til þess að
iétta einu hinu stærsta erfiðis-
verki — stórþvottunum — af
húsmæðrunum. I
Félagið hefur barizt ósleiti-
iega fyrir innflutningi á heim-
ilisþvottavélum, en það er ljóst
að innflutningi þeirra verður 1
ekki komið í það horf í náinni
framtíð, að allar húsmæður geti
eignazt þær. Jafnvel þótt al-
mennari kaupgeta væri í land-
inu en er, þá er gjaldeyrismál-
um okkar þannig háttað, að
svo stór innflutningur á einka
þvottatækjum kemur ekki til
;nála. |
Leiðin til þess að allur al-
menningur geti búið við viðun-
andi skilyrði í þessum heimil-
isstörfum, er að koma sem víð-
ast upp í byggða- og bæjar-
hverfum almennings "þvotta-
húsum með sjálfvirkum og
afkastamiklum vélum. Þvotta-
hús þessi mega ekki vera rek-
in af einstaklingum í gróða-
skyni heldur á samvinnugrund-
velli líkt og þegar um neyt-
endafélög er að ræða. Þó slík
starfrækzla á þvottahúsum sé
óþekkt hér á landi, höfum við
góða aðstöðu að því leyti, að
við getum stuðzt við rejmslu
og þekkingu nágranna þjóð-
anna á þessu sviði.
Á síðasta áratug hefur al-
mennings þvottahúsum, rekn-
um á samvinnugrundvelli,
fjölgað mikið í Svíþjóð og
Danmörku. Einnig ryður þessi
starfsemi sér óðum rúm síðustu
árin í Noregi. í þessum þvotta-
húsum er stundum haft það
fyrirkomulag, að konur komi
með þvott sinn og hafi sjálfar
hönd í bagga með, að þvo hann
og ganga frá honum. í sam-
bandi við slík þvottahús er
gjarnan höfð sérstök barna-
gæzla, þar sem konur geta
komið af sér litlum börnum og
verið óhræddar um þau, meðan
þær vinna að þvottinum. En
talið er, ap hægt sé að Ijúka af
meðal heimilisþvotti á 3—5
klukkustundum, þvo . hann og
þurrka. Svo er einnig sá háttur
^hafður á, að húsmæðurnar
þvottinn fullunnan af starfs-
fólki þvottahúsanna.
I Danmörku. þar sem gjftnr
konur vinna mjög almennt ut-
an heimílis, virðist meir -og
meir horfið að þvi ráði. Al-
menningsþvottahúsin eru að
stækka. Gert er ráð fyrir þar,
að þróunin verði sú í framtíð-
:nni, a* ein 30 þvottahús þurfi
fyrir a.*c landið.
Hér í Re\'kjavík er svo dýrt
að senda þvott í þvottahús, nð
fæst 'héimi-H rísa undir þeirn
kostnaði. Fþóldi húsmæðra hér
hefur miög Iéleg skiíyrði lil
bvotta, og þvottavélar hafa að-
oins bezt stæðu heimilin. Því
er meira en tímabært að ha:.tta
að ræða þörfina á almennings
bvottahúsum hér í bæ, heldur
rnúa sér beint til verks á því
: viði
:Gangur málsins hefur ve: ið
sá. t. d. í Svíþjóð. er átt heiur
að koma upp almennings þvotta
húsum af minni gerðinrii, að
100—150 fjölskyldur í býggða-
nða bæjarhverfi hafa slegið sér
raman um fyrirtækið og re'kið
það :sem félagseign á samvinnu
grundvelli. Eðlilegt er að vi'ð-
komandi bæjarfélög greiði íyr-
ir slíku fyrirtæki í byrjun. En
reynslan hefur hvarvetna verið
sú, að almennings þvottahúsin
hafa borið sig'vel fjárhagslega.
Hversu tílvalið væri ekki íyr
ir hin ýmsu bæjarhverfi, hér í
Reykjavík, að mynda samtök
sín á milli í þessu nauðsynja-
máli og fá til að byrja með
upplýsingar og yfirlit yfir
starfrækslu slíkra þvottahúsa,
þar sem þessi stai'fsemi er rek-
in á góðum fjárhagslegum
grundvelli til hagsbóta fyrir al-
mennirig og yfirleitt svo ve'i á
veg komin, að hún þykir þjóð-
arnauðsyn. Soffía Ingvarsd.
Spila- og
öld í
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLÖG-
IN" í Etafnarfirði halda spiia- og
skemmtikvöld í Alþýðuhúsinu
við Strandgötu laugardaginn 7.
janúar.
Ræðu flytur Benedikt Grön-
dal blaðamaður. Á eftir verða
fá gömlu dansarnir til kll 2 e. m.
1. í móttökuherbergi aðgreinist tauið. 2. Það er vegið og þvottuxinn hefst. 3. Nokkrar
spjarir þarf að handþvo á brettum. 4. Mjög óhreinan fatnað verður að leggja í bleyti. 5,
Ker fyrir sápulútinn. 6. í þvottavélum er fatnaðurinn þveginn og skolaður. 7. Miðflóttaafls-
’vindan 'þeytir vatninu úr jauinu. 8. Fatnaður, sem eigi skal rúlla eða strjúka, þurrkast í
vindskáp. 9. Línstrokuborð. 10. Tauið aðgreinist og er búið undir rúllun. 11. Hitarúllan er
hituð með gufu en knúin með rafmagni. 12. Fatnaðurinn er brotinn saman. 13. Afgreiðsla á
hreina tauinu. — Þannig er gangur starfsins, eins og honum verður hagkvæmast fyrir komið.
Að sjálfsögðu er hægt að hafa hann óbreyttan, þótt húsið hafi aðra lögun en teikningin sýnir.
Gangur sta rfseminnar: