Alþýðublaðið - 24.01.1950, Page 4
4
ALÞVBURLAÐIÐ
ÞriSjudagur 24. janúar 1950.
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. ‘
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4091, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiffslusími: 4900.
Affsetur: Alþýffuhúsið.
Alþýffuprentsmiffjan h.f.
m
ÞEGAR verið var að ræða á
alþingi tillögur íhaldsstjórnar-
innar um „bráðabirgðalausn“
ó vandamálum bátaútvegsins,
vitnaði Ólafur Thors forsætis-
ráðherra hvað eftir annað í
aðrar tillögur, sem stjórn hans
ætlaði sér að gera.um „fram-
búðarlausn“ á þessum málum,
rétt eins og þær væru þegar
tilbúnar, en af einhverjum
dularfullum .ástæðum hins veg-
ar geymdar betri tíma. Hann
var af þessu tilefni spurður
þess, hvers vegna tillögurnar
um „frambúðarlausn“ mál-
anna væru ekki lagðar fyrir
alþingi, fyrst þær virtust vera
tilbúnar; en þá vafðist forsæt-
isráðherranum tunga um tönn.
Sannleikurinn er nefnilega sá,
að „frambúðarlausnin“ er með
þeim hætti, að íhaldsstjórnin
þorir ekki að láta hana koma
fyrir almenningssjónir fyrr en
eftir bæjarstjórnarkosningar!
:Js
Þetta er ósköp vel skiljan-
legt; því að jafnvel þótt íhalds
stjórnin fari með þessar fyrir-
ætlanir sínar eins og manns-
morð, þá er það engu að síður
opinbert leyndarmál, út á
hvað þær ganga. „Frambúðar-
lausnin" á að vera stórkost-
leg gengislækkun og sennilega
samfara lögbindingu alls kaup
gjalds í landinu um lengri eða
skemmri tíma!
Það er ósköp vel skiljanlegt,
að íhaldsstjórnin telji það ekki
sigurstranglegt fyrir íhalds-
meirihlutann í bæjarstjórn
Reykjavíkur, sem hún ber svo
mikið fyrir brjósti, að birta
slíkar fyrirætlanir sínar fyrir
kosningar; því að hætt er við,
að launastéttum og sparifjár-
eigendum höfuðstaðarins þætti
slík árás á lífskjör sín og spari-
té vera í litlu samræmi við
alla dýrðina, sem Morgunblað-
ið og frambjóðendurnir á
bæjarstjórnarlista íhaldsins
eru nú daglega látnir lofa
þeim, — ef þeir kjósi íhaldið
é sunnudaginn. Þess vegna er
„frambúðarlausninni“ haldið
leyndri fram yfir kosningar;
c*n þegar þeim er lokið, á árás-
in á alþýðu og sparifjáreigend-
ur höfuðstaðarins að hefjast!
Þannig er hernaðaráætlun í-
haldsins.
:S
Allt frá því fyrir alþingis-
kosningarnar í haust hefur í-
haldið verið að reyna að leyna'
þessum fyrirætlunum. Það þyk
ír, að vonum, ekki líklegt til
fylgisaukningar við kosning-
ar, að hafa þær á oddinum.
Fyrir alþingiskosningarnar
kom Framsóknarflokkurinn,
sem ekki taldi sig eiga neinu
fylgi fyrir að fara meðal
launastétta og sparifjáreig-
enda bæjanna, þó fram með þá
kröfu, að gengi krónunnar yrði
íækkað eða kaupgjaldið i land-
inu skorið niður. Alþýðuflokk-
urinn tók þá þegar í stað á-
kveðna afstöðu gegn slíkri árás
á lífskjör og lítil efni alþýð-
unnar; en það var ómögulegt,
að fá nein ákveðin svör frá
Sjálfstæðisflokknum um af-
stöðu hans til gengislækkunar-
kröfunnar. Forustumenn hans
pg frambjóðendur slógu úr og
í — sögðu að það gæti ekki
verið krafa neins flokks, að
iækka gengið; en það gæti hins
vegar orðið óhjákvæmilegt!
Með slíkum hálfyrðum synti
íhaldið í gegnum alþingiskosn
ingarnar í haust; og nú er ætl-
unin að fara eins að í bæjar-
Stjórnarkosningunum á sunnu-
daginn. Þangað til þeim er
tokið, á að lofa Reykvíkingum
gulli og grænum skógum, ef
þeir kjósi íhaldsmeirihluta í
bæjarstjórn; en eftir kjördag-
ínn getur árásin hafizt. Þá er
engar kosningar meira að ótt-
ast; og „frambúðarlausnin“ —
gengislækkunin á kostnað
iaunastéttanna og sparifjáreig-
endanna, getur loksins séð
dagsins ljós!
Reykvíkingar ættu að at-
iiuga vel sinn gang áður en
þeir gefa slíkum flokki at-
kvæði sitt á sunnudaginn. Þeir
hafa dýrmætt vopn í hendi
þann dag. Þeir geta notað það
til eftirminnilegra mótmæla
1 gegn hinni fyrirhuguðu árás á
' íífskjör þeirra og sparifé —
j gvö eftirminnilega, að íhaldið
! hugsi sig tvisvar um áður en
j það Ieggur til atlögu gegn al-
j þýðu höfuðstaðarins. En slík
; njótmæli væru það \dssulega,
ef íhaldið missti á sunnudag-
i inn meirihlutann í bæjar-
. stjórn, og Alþýðuflokkurinn,
sem einn allra flokka hefur
tekið ákveðna afstöðu gegn
gengislækkun, fengi þar odda-
aðstöðu.
Gtjórnarlista Alþýðuflokksins í
Keflavík.
Enn fremur eru þessar grein
ar í blaðinu. Helztu fram-
kvæmdir á kjörtímabilinu eftir
Ragnar Guðleifsson, Hin nauð-
synlega samfylking, eftir Kol-
bein unga, Bæjarmálastefnu- j
skrá Alþýðuflokksins í Kefla-.
vík, grein grjótkast úr glerhúsi,
pennastrik og útsvarsskuldir,
hinn nýja liðssveit íhaldsins, iof
orð og í fáum orðum sagt, Haxn
armálin í Grindavík, Innheimta
útsvara, sorpblaðamennska og
fleira.
Leíkfélag Reykjavíkur
Sýnir annað kvöld kL 8.
BSáa kápan
Aðgöngumiðar seldir í dag frá kl. 4—6 og á
morgun eftir kl. 2. Sími 3191.
Sími 3191.
Röðull kemur
úf í dag
RÖÐULL, blað Alþýðuflokks
ins í Gullbringu- og Kjósa-
sýslu, kemur út í dag, og flytur
meðal annars myndir af fjór-
Bæjarráð vill afhugi
bfndfndfshallar-
málið „frá öllum
hliðum"!
BÆJARRÁÐ hefur rætt um
möguleika til að reisa megi
fyrirhugað byggingu Góðtempl
arareglunnar við væntanlegt
Indriðatorg og var lagt fram
bréf skipulagsstjóra, dags. 17.
þ. m., þar sem málið var rætt.
Bæjarráð lítur svo á, að ekki
verði „íalið fyrir þaff girt“, að
reisa megi hæfilega byggingu
fyrir starfsemi Góðtemplara-
reglunnar við hið fyrirhugaða
Indriðatorg, þannig að umierða
málum og bílastæðum verði
sæmilega borgið- og beinir því ■
til réttra hlutaðeigenda', að mál
ið verði enn athugað „frá ölhim
hliffum“. Ef svo reynist, við ná
kvæma athugun, að byggingar- j
mál reglunnar megi ekki leysa ‘
á þessum stað, þá telur bæjar-
ráð rétt að taka til greina til-
lögu samvinnunefndarinnar um
staðsetningu Góðtemplarahall-
arinnar við Snorrabraut, þar
eem nú er gamla Mjólkurstöð-
in, og mun bæjarráð „vilja
vinna að því“ að sú lóð verði
fengin reglunni til ráðstöfunar,
ef þess verður óskað.
Aldarf jórðungsgömul kvikmynd sýnd. — íslands-
mynd Lofts Guðmundssonar. — Hver fjárinn er
í vatninu? — Bréf um leikfimi og böð í
barnaskólum.
VELSKIPIÐ Blakknes tók
niðri á föstudaginn við Graf-
arnes í Grundarfirði og kom
um efstu mönnum á bæjar- ieki að skipinu.
LOFTUR SÝNIR fslandskvik
inynd sína um þessar mundir í
Tripolibíó. Þessa mynd tók Loft
ur áriff 1924 og 1925 og. síffan
var hún sýnd lengi hér í Reykjá-;
vík og víffar um land. Ég fór að (
sjá þessa mynd á sunnudaginn
og rifjaffi upp gamlar minning-
ar. Þaff er gaman aff sjá borgina
1925 og nú, sjá andlitin, sem þá
settn svip á bæjinn, Jón Magn-j
ússon forsætisráffherra, Jón Þor j
Iákssön fjármálaráffherra, ICund
Zimsen borgarstjóra og svo ]
Svanhildirnar . . Þorsteinsdóttur
og Ólafsdóttur, frú Guðrúnu j
Fontenay og fleiri, þegar þær
vorn ungar blómarósir .með
blóm í fangi.
ANNAS SÉST OG sem þá var
gaman að sjá, þar á meðal hvala
drápið mikla í Fossvogi, lífið við
höfnina, réttir og réttalíf, hey-
ckap með gömlu aðferðunum og
Cjölda margt annað. Það er gam j
an að svona gömlum kvikmynd-
um. Maður er fljótur að gleyma
þegar örar breytingar eru, og al
veg var ég búinn að gleyma því
tivar Valhöll hafði'staðið á Þing
völlum, en það sér maður
íhaldið hrœðist sjálfs sín syndir
MORGUNBLAÐIÐ er mjög
hneykslað á því, að Alþýðu-
blaðið skuli birta myndir af
ýmsu, sem miður fer í Reykja
vík. Er því sér í lagi illa við
myndir af braggahverfunum
og gefur í skyn, að þær séu
teknar og birtar í því skyni
að gera hlut íbúa þeirra lít-
inn. En því fer víðs fjarri.
íbúar braggahverfanna hafa
ekki til ‘ neinnar gagnrýni
unnið. Hins vegar er það tal-
andi tákn um óstjórn íhalds-
ins í Reykjavík, að þúsundir
bæjarbúa skuli búa í brögg-
um, kjallaraholum og hana-
bjálkakytrum. Morgunþlað-
inu er síður en svo sárt um
braggabúana. Það hefur lítið
sem ekkert gert til þess að
bæta úr vandræðuhi þeirra.
En það tekur sárt að sjá ljós-
myndir af syndum sjálfs sín.
MYNDIR ÞESSAR eru vissu-
lega athyglisverðar. Um-
gengni í velflestum brögg-
unum er aðdáunarlega góð
miðað við hinar hraksmán-
arlegu aðstæður. Á mörgum
myndunum sjást vel klæ'dd
og efnileg börri. Þetta er æsk
an, sem elur aldur sinn í
braggahverfunum. Hún vitn-
ar ekki um sára fátækt, sóða-
skap eða framtaksleysi. Þvert
á móti. Hún er tápmikil og
glaðleg, og í skólunum stenzt
hún fullkomlega samanburð
við syni og dætur efnafólks-
ins, er býr í höllum „einstak-
lingsframtaksins". Sannleik-
urinn er sem sé sá, að bragga
búarnir standa andlega og
efnalega jafnfætis öðrum
bæjarbúum. Ástæðan fyrir
því, að þeir verða að una nú-
verandi húsakynnum, er sú
eja, að bæjarstjórnaríhaldið
hefur svikizt um að leysa
húsnæðisvandræði þessa
fólks.
MORGUNBLAÐIÐ skal ekki
ímynda sér, að braggabúarn-
ir láti blekkjast af áróðri
þess. Myndir Alþýðublaðsins
eru ákall til Reykvíkinga um
að leysa vandræði þessa fólks,
sem það ber enga ábyrgð á.
En jafnframt er hér um að
ræða gagnrýni Alþýðuflokks-
ins á óstjórn bæjarstjórnar-
íhaldsins á húsnæðismálum
höfuðstaðarins. íhaldið er
hrætt við þessa synd sjálfs
sín. Það óttast dóm bæjarbúa
og þá fyrst og fremst bragga-
búanna, fólksins, sem með
lífi sínu og starfi byggir upp
Reykjavík, en bæjarstjórnar-
íhaldið hefur dæmt til þess
að búa í bröggunum, er setu-
lið tveggja erlendra stórvelda
skildi hér eftir. Þar verður
þetta fólk að búa þangað til
braggarnir hrynja ofan á það
eða fjúka ofan af því, nema
Reykvíkingar beri gæfu til
þess að steypa bæjarstjórnar-
íhaldinu af stóli. Fái Alþýðu-
flokkurinn oddaaðs'íöðu í
bæjarstjórn Revkjavíkur á
næsta kjörtímabili. mun hann
hins vegar einbeita sér að
lausn húsnæðisvandræðanna.
Myndir Alþýðublaðsins eru
sem sé sprottnar af áhuga
fyrir velferð braggabúanna,
en ekki af dagbundnum póli-
tískum áróðri. Framtak Al-
þýðuflokksins í húsbygginga-
málum alþýðustéttanna sýn-
ir, hvers má af honum vænta
í þessu efni.
barna. Ég gæti trúað því, að enn
/rði mikil aðsókn að þessari
mynd. Hún er furðulega ’vel
skýr og vel tekin þegar tekið er
tillit til þess að liðinn er ald-
arfjórðungur síðan það var gert.
„HVER FJÁRINN er í heita
vatninu“? Þannig spyr húsmóð-
ir. Hún-segir, að núna eftir ára-
mótin sé megn fýla af vatninu,
sérstaklega fyrst á morgnana,
segir hún að silfurskeiðar, sem
hún eigi, hafi orðið svartar við
uppþvott úr vatninu. Spyr kon-
an hvort það sé meiri kýsill í
heita vatninu • eftir að viðbótin
frá Reykjahlíð kom inn x æð-
arnar.
EFTÍRFARANDI bréf barst
mér fyrir fáum dögúm, en það
hefur verið nokkuð lengi á leið
inni. Það er frá „Húsmóður".
„Mig langar til að biðja þig fyr-
ir nokkrar línur ef skeð gæti,
að það bæri einhvern árangur.
Svo er mál með vexti, að ég hef
í minni umsjá í vatur fyrir það
fyrsta dreng, sem er nýlega 7
ára, og var því skólaskyldur í
haust og er í einum bæjarskól
anum.
ALLT GEKK VEL, þar til
cinn daginn að mér brá heldur
í brún þegar barnið kom heim
í kalsaveðri, eins og fuglahræða.
Ég klæddi hann eða hjálpaði
honum áður en hann fór, en nú
þegar hann kom voru sokkarn-
ir niður um hann, úlpan ó-
hnept, berhöfðaður, með renn-
andi blautt hárið.
ÞEGAR ÉG SPURÐI HANN
hverju þetta sætti, sagði hann
að börnin hefðu verið í leikfimi
og sturtubaði á eftir, nátturlega
nakin. Nú kann það að þykja
ckrítið, að dx^engur 7 ára klæði
sig ekki eins og fullorðinn mað-
ur, en ég held að fáir drengir
á þeim aldri klæði sig hjálpar-
laust — og sízt í flyti, og svo
er annað, að börnin geta ekki
þurkað á sér kroppinn hjálpar-
laust og troðið sér í fötin hálf
blaut á kroppinn, og getur hver
séð hvað það er notalegt, enda
fékk þessi drengur kvef.
NÚ LANGAR MIG, Hannes
tninn, að gera fyrirspurn i gegn
am þig, hver eða hverjir ráða
þessum málum, og getur þetta
ekki orðið hæpin heilsubót fyr-
ír smábörn, að vera nakin í stór-
um sal þó upphitaður sé og fara
svo hálfblaut út, þegar kólnar í
veðri?
ÞETTA ER VÍST ákveðið tvis
Framh. á 7. síðu.