Alþýðublaðið - 12.02.1950, Page 3
Sunnudagur 12. februar 1950
ALÞÝÐUBLAÐIÖ
3
r»'
|
£
FRAMORGNITILKVOLDS
í DAG er sunnudagurinn 12.
febrúar. Fæddir Guðmundur
Magnússon (Jón Trausti) rit-
laöfundur árið 1873, .Abraham
Lincoln forseti árið 1809 og
Charles Darwin árið 1809.
Sólarupprás er kl. 8.35. Sól-
arlag er kl. 16.50. Árdegishá-
flæður er kl. 1.35. Síðdegishá-
flæður er kl. 14.03. Sól er hæst
á Iofti í Reykjavík kl. 12.42.
Helgidagslæknir: Axel Blön-
Öal, Drápuhlíð 11, sími 3951.
Næturvarzla: Ingólfs apótek,
sími 1330.
Næturakstur í nótt: Litla
bílastöðin, sími 1380; aðra nótt:
Bifreiðastöð Reykjavíkur, sími
1720.
Skipafréttir
Laxfoss fer frá Reykjavík kl.
10, frá Borgarnesi kl. 15, frá
Akranesi kl. 17.
Foldin er væntanleg til
Reykjavíkur síðdegis í dag. Lin-
gestroom er í Amsterdam.
M.s. Arnarfell fór frá Ham-
borg á föstudag áleiðis til Húsa-
víkur. M.s. Hvassafell er í Ála-
borg.
Hekla er væntanleg til
Reykjavíkur í dag að austan og
norðan. Esja er á Austfjörðum
á norðurleið. Heroubreið fer frá
Reykjavík annað kvöld til
Breiðafjarðar og Vestfjarða.
Skjaldbreið er á Húnaflóa á
norðurleið. Þyrill er í Reykja-
vík. Skaftfellingur á að fara
frá Vestmannaeyjum á morgun
til Rvíkur.
Brúarfoss kom til Hul 10/2,
fer þaðan til Gdynia og Ábo í
Finnlandi. Dettifoss kom til
Reykjavíkur 9/2 frá Leith.
Fjallfoss fór frá Frederikstad
10/2 til Menstad í Noregi. Goða
foss fór frá Reykjavík 8/2 til
New York. Lagarfoss fór frá
Reykjavík í gær til Antwerpen,
Rotterdam og Hull. Selfoss fór
frá Reykjavík 'í gærmorgun
vestur og norður. Tröllafoss kom
til Reykjavíkur 4/2 frá New
York. Vatnajökull kom til Ham-
borgar 19/1.
Fundir
Kvennadeild Slysavarnafé-
lagsins í Reykjavík heldur aðal-
fund sinn kl. 8.30 á mogrun í
Tjárnarcafé. Venjuleg aðal-
Úfvarpsskák.
1. borð: Hvítt: Reykjavík, Jón
Guðmundsson og Konráð Árna-
son. — Svart: Akureyri: Jón
Þorsteinsson og Jóhann
Snorrason.
abcd efgh
37. Kfl—f2
38. Dh3—e3
39. De3—e4t
40. De4xb7
41. Kf2—e3
42. Db7—c8f
43. Dc8—f5t
44. Df5xe5
45. Ke3—f3
46. Kf3—g3
Db5—c5t
Dc5xa5
Kh7—h8
Rb4—d3t
Rd3xe5
Kh8—h7
Kh7—g8
Da5—elt
Del—dlt
fundarstörf. Til skemmtunar
verður:
Gamanvísnasöngur:
20.20 Einleikur á kontrabassa
(Einar B. Waage): Ped-
al-fúga eftir Bach.
20.35 Erindi: Sjónleíkir og trú-.
arbrögð lijá miðalda-
kirkjunni (síra Jakob
Jónsson).
21.00 Tónleikar: Blandaður kór
sygnur ýmis lög (plötur).
21.15 Upplestur: Kvæði (Einar
Pálsson leikari).
21.30 Tónleikar: Symfónía nr.
2 í D-dúr eftir Beethov-
en (plötur).
Á MORGUN:
■ 20.45 Um daginn og veginn
(frú Lára Sigurbjörnsd.).
. 21.05 Einsöngur: Paul Robeson
. syngur (plötur).
21.20 Erindi: Eldhætta af olíu-
kyndingu (Þórður Run-
ólfsson verksmiðjuskoð-
unarstjóri).
21.50 Frá Hæstarétti (Hákon
Guðmundsson hæstarétt-
arritari).
Nína Sveinsdóttir; upplestur:
Guðný Sigurðardóttir, en síðan
dans.
BrúSkaup
í gær voru gefin saman í
hjónaband í kapellu Háskólans
af síra Bjarna Jónssyni Ruth
Hedeager Pedersen og forstjóri
Aðalbjörn Tryggvason, ísafirði.
í gær voru gefin saman í
kirkjunni Heavenly Rest í New
York ungfrú Eilzabeth Camp,
dóttir Guðrúnar P. Camp, sem
mörgum íseldingum er að góðu
kunn, frá dvöl peirra vestra, og
j Frank Crowford forstjóri. 1-Ieim .
| ili ungu hjónanna verður að 22 t
j Whelan Drive, Verone, New .
jJersey, en hveitibrauðsdagana
munu þau eiga heima að Sea Is-
land í Georgíu-fylki.
Söfn og sýningar
Þjóðminjasafnið: Opið kl. 13
—15.
Náttúrugripasafnið: Opið kl.
13.30—15.00.
Safn Einars Jónssonar: Opið
ki. 13,30—15,30.
LEIKHÚS:
Óperettan Bláa kápan verður
sýnd kl. 8 í Iðnó. Leikfélag
Reykjavíkur.
SÁMKOMUHÚS:
Hótel Borg: Hljómsveit leik-
ur frá kl. 9 síðd.
Ingólfscafé: Eldri dansarnir
kl. 9 síðd.
Góðtemplarahúsið: SKT kab-
arettinn: Lífsgleði njóttu kl.
8.30 síðd.
Or ölium áttum
Dregið hefur verið í happ-
drætti heimilisjóðs íslenzkra
hjúkrunarkvenna og upp kom
nr. 2793.
Ðansskóli Rigmor Hansson.
Nýtt námskeið í samkvæmis-
dönsum fyrir fullorðna hefst
þriðjudaginn 14. febrúar kl. 8.15
í Tjarnarcafé. Kenndir verða
nýju dansarnir: jive, samba,
rumba, vals og foxtrot.
Ungbarnavernd Líknar, —
Templarasundi 3, verður fram-
vegis opin þriðjudaga og föstu-
daga kl. 3.15—4.00 síðd.
í DAG er einn af beztu
brautryðjendum verkalýðssam-
takanna og Alþýðuflokksins,
Kjartan Ólafsson múrarameist-
ari, Njarðargötu 47, sjötugur.
En hann var um margra ára
skeið einn af helztu forustu-
mönnum Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar og Alþýðuflokks-
ins, sat í stjórn þessara sam- <
taka og var bæjarfulltrúi
flokksins alllengi.
Kjartan Ólafsson er fæddur
að Dísastöðum í Flóa þennan
dag 1880, sonur Ólafs Jóhanns-
sonar bónda þar og konu hans,
Katrínar Ögmundsdóttur. Þeg-
ar Kjartan var aðeins þriggja
ára, fórst faðir hans í mann-
skaðaveðriiju mikla, en þá var
hann formaður í Þorlákshofn.
Komust tvö skip þann dag ekki
að landi í höfninni, annað kom
fram hálfum mánuði síðar, en
skip Ólafs aldrei.
Kjartan fór 17 ára gamail
fyrst til sjóróðra og þá til
Grindavíkur; stundaði hann
síðan sjóinn á vertíðum, en
störf heima á sumrum. Árið
1902 fór hann til Reykjavíkur
og fór að stunda steinsmíði, en
eftir að steinsmíði hætti hóf
hann múrarastörf og var hann
einn fyrsti maður hér til að iá
réttindi í þeirri iðn. Hefur
Kjartan síðan, svo að segja ó-
slitið, stundað múrarastörf og
hefur hann byggt mikinn f jölda
húsa bæði hér í Reykjavík og
annars staðar.
Árið 1907 kvæntist Kjartan
Þórdísi Jónsdóttur, ágætri
konu, og hafa þau eignazt þrjú
börn, tvær dætur og einn son.
Þetta er í stórum dráttum
saga Kjartans og það fer ekki
mikið fyrir henni fljótt á
litið; en því meira, er hún
er könnuð betur. Hann dró
grjót á sjálfum sér í grunn
Báruhússins gamla, en það hús
byggðu fyrstu sjómannasam-
tökin hér í bænum. Og svo má
segja, að Kjartan hafi frá þeim
tíma dregið grjót á sjálfum sér
í grunn alþýðusamtakanna í
landinu. Hann var einn af
stofnendum Verkamannafélags-
ins Dagsbrúnar 1906 og var síð-
an svo áratugum skipti mjög
virkur félagi þar. Átti hann oft
sæti í stjórn félagsins og var
fulltrúi þess í fulltrúaráði
verkalýðsfélaganna og á Al-
þýðusambandsþingum. — Var
hann og um 16 ára skeið for-
maður Stvrktarsjóðs verka-
manna. í stjórn Alþýðusam-
bandsins, og þar með Alþýðu-
flokksins, sat hann lengi og í
bæjarstjórn Reykjavíkur átti
hann sæti alllengi fyrir hönd
Kjartan Ólafsson.
flokksins. Var hvert rúm, sem
Kjartan skipaði, vel setið, enda
naut hann ætíð trausts og vin-
! sælda meðal félaga sinna, en
þess naut hann einnig meðal
margra andstæðinga, sem
kunnu að meta hreinlvndi hans
og hreinskilni, sem er hvort
j tveggja mjög áberandi í skap-
gerð hans.
Kjartan er fyrir löngu orðinn
þjóðkunnur maður fyrir þessi
störf sín, en hann er einnig
kunnur fyrir kveðskap sinn og
kvæðamennsku í ríkisútvarp-
inu. Kjartan hefur alla tíð
haft yndi af söng, enda radd-
maður ágætur og enginn mun
eins oft og hann hafa kveöið
öðrum til skemmtunar. í fjölda
mörg ár hefur hann og verið
starfandi í kvæðamannafélag-
inu Iðunni og setið í stjórn þess.
Kjartan Ólafsson er hið
mesta glæsimenni. Hann er hár
og grannur. spengilegur, þráð-
beinn og háleitur, svipurinn
hreinn og heiður, enda glaður í
lund og gamansatpur. En slíkir
menn eldast vel. •
Munu allir þeir mörgu, sem
notið hafa vináttu Kjartans Ól-
afssonar og liðveizlu í ýmsum.
málum, færa honum í dag inni-
legar hamingjuóskir.
V, S. V.
Ályktanir tveggja slysavarnadeilda:
Miðunarstöð verði komii
Garðskaga og taístöð í Keflavík
Allir togarar verði útbúnir liésfcösturism
—------»—
SLYSAVARNADEILDIRNAR í Hafnarfirði og Keflavík
héldu nýlega aðalfundi, og gerðu deildirnar ýmsar áíykíanir
um slysavarna- og öryggismál. Deildin í Keflavík skoraði á
slysavarnafélagið að beita sér fyrir því, að komið verði upp
miðunarstöð á Garðskaga hið fyrsta, svo og að talstöð verði
komið upp í Keflvík fyrir næstu síldarvertíð við Faxaflóa.
Deildin í Hafnarfirði alyktaði, að nauðsyn bæri til að Ijóg-
kastarar séu um borð í öllum tpgurum, og enn fremur, að at-
hugað verði, hvort ekki sé nauðsynlegt að björgunarflekar
verði settir í smærri skip.
Fara hér á eftir helztu álykt- ’
anir slysavarnadeildanna í
Hafnarfirði og í Keflavík.
Aðalfundur slysavarnadeild-
arinnar Fislcaklettur í Hafnar-
firði var haldinn 8. febrúar í
Alþýðuhúsinu.
Stjórn deildarinnar var end-
urkosin, en han'a skipa: Ólafur
Þórðaraon form., Stígur Snæ-
land gjaldkeri, Jón Halldórsson
ritari og meðstjórnendur Óskar
Guðmundsson, Sigurður Guðna
son og Pálmi Jónsson.
Eftirfarandi tillögur voru
samþykktar á fundinum:
1. Aðalfundur slysavarnad.
Fiskaklettur aðhyllist þá
FramhaldsaðaEfundur
Sjómannaíélags Reykjavíkur
verður haldinn í Iðnó, niðri, í dag
1950 klulckan 14 (2 e. h.).
12. fehr.
FUNDAREFNI:
Lagabreytingar frá kommúnistum, er
frestað var á aðalfundi.
Önnur mál, er fram kunna að verða
borin, ef tími vinnst til.
Stjórnin.
Fundurinn er aðeins fyrir félagsmenn, er sýni
dyraverði skírteini sín.
stefnu, sem stjórn Slysavarna-
félags íslands hefur mótað í
sambandi við kaup og starf-
rækslu helicopterflugvélarinn-
ar og felur fulltrúurn deildar-
innar að styðja það mál á næsta
landsþingi.
2. Aðalfundur sylsavarnad.
Fiskaklettur samþykkir að
fulltrúar hennar á Landsþingi
Slysavarnafélags íslands styðji
eða flytji tillögu um að settir
séu ljóskastarar í þá togara
okkar, sem ekki hafa þá.
Enn fremur að athuga vel
hvort ekki sé nauðsynlegt að
björgunarflekar verði settir í
smærri skip.
Fulltrúar á næsta Landsþing
Slysavarnafélags íslands voru
kjörnir þeir: Ólafur Þórðarson,
Stígur Snæland, Guðjón Magn-
ússon, Magnús Kjartansson,
Guðjón Gunnarsson og Jón
Halldórsson.
Eftir fundinn fór fram sam-
eiginleg kaffidrykkja og kvik-
myndasýning og var fundur-
inn hinn ánægjulegasti.
Enn fremur hélt Kvenna-
deild Slysavarnafélagsins í
Keflavík aðalfund sinn og í
stjórn voru kosnar þær: Jónína
Guðjónsdóttir form., Kristín
Guðmundsdóttir gjaldkeri,
Sesselja Magnúsdóttir ritari og
í varastjórn þær Guðný ís-
berg, Steinunn Þorsteinsdóttir
og Elín Ólafsdóttir.
Eftirfarandi tillögur voru
samþykktar á fundinum:
1. Áðalfundur Kvennadeild-
ar Slysavarnafélags íslands í
Framhald á 7. síðu. ,