Alþýðublaðið - 12.02.1950, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 12.02.1950, Blaðsíða 8
Gerizt áskrifendur að Aiþýðublaðinu. Alþýðublaðið inn á • hvert heiraili. Hring- ið í síma 4900 eða 4906. Sunnudagur 12. februar 1950 Börn og unglingar. Komið og seljið , Alþýðublaðið. j AUir viljia kaupa i Alþýðublaðið. rlvig Frilsch, hinn frægi nski jafnaðarmaður, lálinn HARTVIG FRITSCH, hinn þekkti menntamálaráðherra dönsku jafnaðarmannastjórnarinnar, lézt í Kaupmannahöfn á laugardagsnóttina, eftir langa vanheilsu. Hann varð aðeins 57 ára', Hans Hedtoft, forsætisráðherra og flokksbróðir lians, minnt- ist hans í „Social-Demokraten“ í gærmorgun sem mikils andans mánns og stjórnmálamanns. ^ Hartvig Fritsch var þekktur úti um heim af viðamiklum rit- verkum, einkum sögulegum og pólitískum. Má þar fyrst til nefna „Evropas Kulturhistorie“ í tveimur bindum, sem er í allra fremstu röð sögulegra yfirlits- rita og stenzt fullkomlega samanhurð við hina frægu bók H. G. Wells, „Outline of Hist- ory“. En meðal alls almennings á Norðurlöndum er hin minni samtíðarsaga, „Pest over Ev- ropa“, sem Hartvig Fritsch skrif aði á árunum eftir valdatöku nazismans á Þýzkalandi, og fjallar um einræðis- og ofbeld- ishreyfingar fasismans og kom- múnismans, þó enn þá þekkt- Hartvig Fritsch. Tvö læknishéruð veiíí í fyrradag í FYRRADAG veitti forseti íslands Þórði Oddssyni lækni Kiepps j árnreyk j alæknishér að frá 1. apríl að telja og Magnúsi Ágústssyni lækni Hveragerðis- læknishérað. KvaS dvelur und- irbúnitH) Sogs- virkjunarinnar! BÆJARBÚAR fylgjast af athygli með undirbúningi nýju Sogsvirkjunarinnar, enda er það staðreynd, að hér verður rafmagnsskortur næsta vetur, meiri rafmagns- skortur veturinn 1951—52, og verði stöðin ekki tilbúin hausfið 1952, verða hér hrein vandræði. ÞaS fréttist síðast af und- ÍEbúningí virkjunarinnar, að búið væri að opna og athuga tilboðin, sem gerð hafa ver- ið. Nú bregður hins vegar svo við, að stjórn Sogsvirkj- iBiarinnaf, sem á að taka á- kvörðun í þessu efni, hefur ekki verið kölluð saman á * ftrnd í heilan mánuð, og er þó afgreiðslufresti á vélum þannig varið, að það getur munað hverri vikunni, hvort þær fást afgreiddar haustið 1952 eða ekki,, — hvort hér verða hrein vandræði vegna rafmagnsskorts þanu vetur eða ekki.. Bæjarbúar, sem rafmagns skorturinn mun bitna á með vaxandi þunga næstu vetur, ef framkvæmdir þessa máls dragast, vonast til þess, að borgarstjóri gefi skýringu á því, hvað dvelur fram- kvæmdir og hvers vegna stjárm Sogsvirkjunarinnar er ekki kölluð á fund. Hartvig Fritsch varð að gjalda þess rits og skeleggrar baráttu fyrir málstað lýðræðisins og jafnaðarstefnunnar, er nazistar hertóku Danmörku á ófriðarár- unum. Hann varð þá eins og Hans Hedtoft að hverfa af þingi Dana, en Kaupmanna- hafnarháskóli hélt verndar- hendi yfir honum með því að gera hann að prófessor í grísku og latínu, sem verið höfðu náms greinar hans á háskólaárunum. Eftir stríðið var Hartvig Fritsch einn af viðurkenndustu andans mönnum Danmerkur, og þótti hann sjálfkjörinn til þess að verða menntamáiaráð- herra, er Hans Hedtoft mynd- aði jafnaðarmannastjórn sina haustið 1947. Hans Hedtoft skrifaði í minn ingarorðum sínum í „Social- Demokraten“ í gærmorgun, að jafnaðarstefnan í Danmörku og dönsk vísindi hefðu beðið lítt bætanlegt tjón við fráfall Hartvig Fritsch. Hann hefði verið alveg einstæður andi og persónuleiki. ■---------♦---------- Kosningabarátian á Bretlandi Framh. af 1. síðu. leysisráðherra. En ég er þó allt af betri heilbrigðismálaráð- herra en hann fjármálaráð- herra. Ég hef að minnsta kosti reynt að firra börnin fæðu- skorti. En þegar Churchill var fjármálaráðherra 1926, þá svelti hann þau!“ FYLGISKÖNNUN. Stöðugt er verið að reyna að kanna hug kjósendanná með Gallupfyrirspurnum, til þess að hægt sé að gera sér ein- hverja hugmynd um kosninga- horfurnar. íhaldsblaðið „Daily Express11 taldi nýlega, að Al- þýðuflokkurinn væri að vinna á, en fylgi íhaldsflokksins myndi þó vera 1 % meira. Viku áður hafði, „Daily Express“ á- Ingrid Bergman í Strombolikvikmyndinni Þessi mynd er af Ingrid Bergman og ítölsku m meðleikara hennar í kvikmynd þeirri, er tek- in var á Stromboli undir stjórn Roberto Rossellinis, ítalska kvikmyndatökumannsins, og inn- an skamms mun verða byrjað að sýna í Ameríku. Samstarf þeirra Ingrid Bergman og Itossel- linis við Strombolikvikmyndina hefur sem kunnugt er leitt til þess, að bæði eru nú að skilja við maka sína og ætla að giftast. Ingrid fædd i Rossellini nýlega dóttur suður í Rómaborg. sveitir taka þáíí í bridgemófinu, sem heíst kiukkan 1 í daa ------------------------- Meistarakeppni Briögefélagslos. FLOKKAKEPPNI Bridgefélags Reykjavíkur í meistara- flokki hefst klukkan 2 í dag í Breiðfirðingabúð, og taka átta sveitir þátt í keppninni. Spilaðar verða 7 umferðir þar til keppn- inni lýkur, og verða þær spilaðar á sunnudögum og mánudögum, Sveitirnar, sem taka þátt í* : Rannsóknarlögregl- una vaníar enn vifni úf af slys- inu á Flókagöfu sem keppninni eru þessar: Sveit Zophoníasar Péturs- sonar, sveit Baldurs Ásgeirs- sonar, sveit Árna M. Jónsson- ar, sveit Guðlaugs Guðmunds- sonar, sveit Gunngeirs Péturs- sonar, sveit Harðar Þórðarson- ar, sveit Ragnars Jóhannesson- ar og sveit Roberts Sigmunds- sonar. í umferðinni, sem spiluð verð ur í dag keppa þessar sveitir: Sveit Harðar Þórðarsonar og Baldurs Ásgeirssonar, sveit Ragnars Jóhannessonar og Ró- berts Sigmundssonar, sveit Zophoníasar Péturssonar og Gunngeirs Péturssonar og sveit Guðlaugs Guðmundssonar og Árna M. Jónssonar. Fyrirlesfur á frönsku MÁNUDAGINN 13. þ. m. kl. 18 mun franski sendikennar- inn, hr. André Métay, flytja annan fyrirlestur sinn á þess- um vetri í háskólanum. Að þessu sinni talar hann um Chateaubriand. Að fyrir- lestrinum loknum verður sýnd talmýndin „Chateaubriand í Coborg“ Fyrirlesturinn verður fluttur í fyrstu kennslustofu. Öllum er heimill aðgangur. ætlað fylgi íhaldsflokksins 5% meira. ENNÞA HEFUR EKKI hafzt uppi á vörubifreiðinni, sem ók á drenginn á Flókagötunni á fimmtudagskvöldið, né heldur þeim, sem óls á mennina á Vest- urgötunni þá um nóttina. I sambandi við slysið á Flóka götunni vill lögreglan taka þetta fram: Kona, sem stóð hjá viðkomu- stað strætisvagnanna við Gunn- arsbraut og Flókagötu um það leyti, sem slysið skeði, sá mann þar á gangstéttinni, sem henni virtist einnig vera að bíða eftir strætisvagni. Rétt áður en slys- ið varð, gekk maðurinn niður Gunnarsbrautina, eins og hann væri að gæta að strætisvagnin- um, en í sama bili ók vörubif- reiðin yfir gatnamót Flókagötu og Gunnarsbrautar, en þar skammt frá skeði slysið. Konan fór þá á slysstaðinn til drengsins, en vissi ekki hvað af manninum varð, sem beðið hafði á viðkomustað strætis- vagnsins, en telur trúlegt, að hann muni ef til vill hafa farið í strætisvagninn. Rannsóknarlögreglan óskar Kvenfélag Alþýðu- flokksins heldur fund á þriðjudag KVENFÉLAG Alþýðu- flokksins í Reykjavík heldur fund næst komandi þriðju- dagskvöld í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. Fundurinn hefst kl. 8,30. Rædd verða ýms félags- niál, en auk þess talar Gylfi Þ. Gíslason alþingismaður, og mun hann segja frá ýms- um málum, sem yfirstand- andi þing hefur til meðferð- ar. Félagskonur eru hvattar til þes að fjölsækja fundinn. eindregið eftir að hafa tal a£ þessurn maííhi, ef ske kynni, að hann gæti gefið einhverjar upp- lýsingar um bifreiðina. Merkjasala Kvenfé- lags Laugarnes- sóknar í dag MERKJASALA Kvenfélaga Laugarnessóknar er í dag. Hef- ur félagið haft mörg nytjamál innan safnaðarins með höndum og unnið að þeim öllum með miklum dugnaði. Félagið hefur nú ýmislegt á prjónunum, með- al annars fegrun svæðisins um- hverfis kirkjuna, og til þess verður féð látið renna, sem kemur inn fyrir merkin í dag. Er því vonandi, að merkjasalan gangi vel. BANDARÍKIN hafa ákveðið að veita hinum nýju Banda- ríkjum Indónesíu 100 milljóij dollara viðreisnarlán.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.