Alþýðublaðið - 24.02.1950, Qupperneq 8
Gerizt áskrifendur
áð Alþýðubíaðinu.
Alþýðublaðið inn á
hvert heimili. Hring-
ið í síma 4900 eða 4906.
Föstudagur 24. febrúar 1950
Börn og unglingar.
Komið og seljið |
Alþýðubiaðið. }
Allir viCLjia kaupa i
Alþýðublaðið.
Haflveig FróSadótfir að reyna
Svanasöngur Lauritz Melchiors
Fékk einn poka ii fyrsta kasti í fyrra-
kvöld, heímin^lnn sfld, hitt ýsu.
TOGARÍNN HALLVEIG FRÓÐADÓTTIR er nú við Vcst-
rmannaeyjar að reyna síldarvörpu af þýzkri gerð, se;n ekki
liefur áður verið notuð hér við land. Kastaði skipið vörpunni
fyrst í fyrrakvöld og fékk há cmn poka; var heimingurinn
síld pg helmingurinn ýsa. Tóm ,ý ;a kom í fyrsta kasti skipsins
í gær, en í öðru kastinu rifnaði varpan lítiliega.
Frá því-í byrjun mánaðar-
ins hafa sjómenn alloft orðið
síldar varir við Vestmanna-
eyjár. Síldarlejtarskipið Fann-
ey hefur einnig veriö þar raeð
reknet og fundið töluverða síld.
Virðist síldin helzt vera í torf
um á. nóttunni og þá ofarlega i
sjónum, jafnvel upp undir yf-
ii’borði, en halda sig við botn-
inn á daginn. Síldin, sem Hall
veig Fróðadóttir fékk var frem
ur smá og mögur, og heldur
virtist hún vera dreifðari í gær
en undanfarna daga. Fanney
hafði aftur á móti fengið síld
á stærð við venjulega Faxa-
síld, en magra.
Tólf greinar nú
kenftdar í
Bréfaskóla SÍS
BRÉFSKÓLI SÍS hefur nú
hætt við tólftu námsgreininni,
sem kennd er við skólann, og'
er það algebra. Miðast námið
við kröfur til landsprófs, en
kénnari verður Þóroddur
Oddsson menntaskólakennari.
Þessár greinar eru nú kenndar
við bi'éfskólann: íslenzk rétt-
r;:un, enska, esperanto, bók-
færsla í tveim flokkuni, bú-
reikningar, fundarreglur, skipu
lág samvinnufélaga, siglinga-
fræði, mótorfræði og hagnýtur
réikningur auk algebru, sem
nú er verið að byrja að kenna.
—------------------
Telpa verður fyrir
eiffl hádegi í gær
ÞAÐ SLYS vildi til um há-
degisbilið í gær, að f jögurra ára
gLiinul telpa varð fyrir bifreið
á Samtúni og meiddist nokkuð'.
Slysið varð með þeim hætti,
ao telpan hljóp út á götuna,
fram hjá grænleitri bifreið, sem
hafðí numið þar staðar, og í veg
fyrir jeppabifreiðina R 5002,
sem á sama augnabliki kom
vestan Samtúnið. Varð telpan
fyrir framhlíf bifreiðarinnar,
en bifreiðarstjórinn mun ekki
háfa komið auga á hana fyrr en
um seinan sakir þess, að hin
b'ireiðin skyggði á. Telpan var
þegar flutt í Landsspítalann og
síðán í sjúkrahús Hvíta bands-
ins, og mun hún ekki hafa
meiðzt alvarlega.
Bifreiðarstjórinn á grænleitu
biíreiðinni mun ekki hafa orðið
siyssins var, því að hann ók á
brott rétt í þessu. Æskir rann-
sóknarlögreglan þess, að hann
og aðrir, sem nálægir voru, geri
aðvart í skrifstofu hennar.
Tiiræðismaðurinn
fekinn í Helsinki!
LÖGREGLAN í HELSINKI
handtók í gær mann, sem sak-
aður er um að hafa varpað
sprengju þeirri, er stórskemmdi
jjinghús Finna á dögunum.
SILD I SEYÐISFIRÐI
Varpan, sem Flallveig er nú
að reyna, er af þeirri gerð, sem
Þjóðverjar' nota við síldveiðar
í Norðursjó. Er hún gerð með
það fyrir augum að veiða síld,
sem heldur sig nálægt botni,
enda kemur varpan ekki að
notum, ef síldin er ofar í sjón
um en 10 faðma frá botni.
SILD A SEYÐISFIRÐI
Fréttir hafa borizt um það, að
allmikil síld væri nú í Seyðis-
firði. Leitaði bátur þar í gær,
en varð þó ekki var. Einnig var
reynt með handlóði, en kom
fyrir ekki.
Lauritz Meichior, hinn fi’ægi danski óperusón gVári, söng nýlega svanasöng sinn við Metro-
politanóperuna í New York, þar sem hann hefur verið fastráðinn söngvari í 24 ár. Iíann.
kvaddi með því að syngja „Lohengrin“ eftir W agner. Melchior sést hér á myndinni í gervl
Lohengrins á bak við tjöldin í Metrop ólitanóperunni, kvöldið, sem hann kvaddi
þessum veiri
araa
TÓNLISTASKÓLINN er 20
ára á þessum vetri, og verður
afmælisins minnzt með vorinu.
Flefur enn ekki verið ráðið,
með hverjum hætti afmælisins
verður minnzt, nema hvað gef
ið verður út afmælisrit, sem
byrjað er að undirbúa. í Tón-
listaskólanum eru nú 240 nem
endur og 20 kennarar, enda er
þetta eini skólinn, sem veitir
tónmenntun hér í borg,
4-22 sfiii frosf var i
Mest frost, 22 stig, mældist á Þingvelíi,
mlnnst í Vestmannaeyjum.
pps vmn=
ur meioyroamai gegn n rnönnum
Þórðor Þorsteinsson vann máHð, sem
var gegn F. R. VaSdimarssyni og fíeirtifii.
ALLMIKIÐ FROST var um allt land í gær, en sem betur
fór hægviðri, svo að menn fundu ekki fyrir kuldanum eins og
við hefði mátt búast. Mest frost var mæit á Þingvelli kl. 8 í
gærmorgun, og var það 22 stig. Er sjaldgæft, að svo mikið
frost mælist hér á landi. Háþrýstisvæði iá í gær yfir landinu,
cn væðurstofan átti von á, að þykkna mundi upp þegar í nótt.
Hér í Reykjavík mældi"A
mest frost 13 stig í fyrrinótt,
en var lengst af 9—10 stig í gær
dag. Klukkan tvö var minnst
frost í Vestmannaeyjum, 4
stig, en annars sem hér segir:
Stykklshólmur 8 stig, Bolunga
vík 11, Akureyri 10, Raufar-
höfn 9, Dalatangi 8, Hólar í
Hornafirði 8, Kirkjubæjar-
klaustur 7 og Keflavíkurflug-
völlur 7 stig. I Þórshöfn í
Færeyjum var þá aðeins 3
stiga frost.
Háþrýstisvæði var yíir
Grænlandi og teygði það sig
suðaustur yfir ísland.
Færð var í gær svipuð og
verið hefur undanfarna daga.
Hellisheiði er ennþá ófær, en
verði veður sæmilegt í dag,
eru líkur á að reynt verði að
komast eitthvað upp á Hellis-
heiðina.
Þessi vetur hefur verið mjög
léttur fyrir vegamálastjórnina
hvað snjóþyngli á vegurn snert
ir.
g HREPPSTJÓRINN í Kópavogshreppi, Þórðtir Þorsteinsson
garðyrkjumaður, heíur nýlega unnið meiðyröamál gegn 15 í-
búum hreppsins fyrir hæstarétti. Höfðu þessir 15 menn, með
Finnboga Rút Valdirnarsson í broddi fylkingar, safnað undir-
skriftum undir skjal, þar sem farið er æruineiðandi og móðg-
andi orðum um hreppstjórann. Hæstiréttur dæmdi hina 15 í
500 króna sekt hvern og tilgreind ummæli þeirra um Þórð
ómerk.
Skömmu eftir að Þórðúrf"
Þorsteinsson var gerður að
hreppstjóra í Kópavogi 1948,
lagði sýslunefndarmaður
hreppsins, Finnbogi Rútúr
Valdimarsson, fram í sýslu-
nefnd skjal, þar sem Þórður
var borinn hinum furðulegustu
sökum og talinn óhæfur til að
gegna hreppstjórastörfum.
Sýslumaður bað Finnboga að
nefna einstök dæmi máli sínu
til sönnunar, en þáð gerði hann
ekki.
Það eru ummæli úr þessu
skjali, sem meiðyrðamál þetta
hefur snúizt um, og hefur
hæstiréttur nú dæmt þau ó-
merk, og hreppstjórinn því
fengið fulla uppreisn. Hinir 15
sem dæmdir voru, eru þessir:
Finnbogi Rútur Valdimars-
son, Guðmundur Gestsson,
Ingjaldur ísaksson, Haukur .Tó
hannesson, Johan Schröder,
Siggeir Ólafsson, Ingvi Lofts-
son, Einar Júlíusson, Ólafur
Jónsson, Axel Ólafsson, Þor-
steinn Pálsson, Þorkell Jóns-
son, Runólfur Pétursson, Daði
Jóhannesson og Guðni Erlends
SOn. ;-vj5v
dregið fíl Englands
BREZKA OLÍUSKIPIÐ
„Clam“ náðist út á flóðinu í
fyrrakvöld og verður nú dreg
ið til Englands til viðgerðar. Er
dráttarbátur þegar lagður af
stað frá Englandi til að draga
skipið, en stýrisás þess er tail
aður, svo að ekki þykir þorandi
að hreyfa skrúfuna. Magni og
Ægir hjálpuðu til að draga
skipið út á flóðinu, og vár þá
búið, að létta það verulega með
því að skipa í land olíu og létta
úr því kjölfestuvatni.
SJÖUNDA UMFERÐ á skák-
þingi Reykjavíkur var tefld á
þriðjudagskvöldið, en- biðsákir
í gærkvöldi. Leikar fóru þann-
ig, að Friðrik vann Björn, Guð-
mundur S. vann Þóri, Sveinn
vann Guðmund Á., Óli vann
Gunnar og Kári vann Þórð. —■
Jafntefli gerðu Guðjón M. og
Eggert, Árni Snævarr og' Lárus.
— Aðrar skákir urðu biðskákir.