Alþýðublaðið - 26.04.1950, Blaðsíða 1
lyggingarfélag verkamanna sæki
Leópold konungur.
Leópold vill engu
lofa um framfíð-
ardvalarsfað sinn
LEÓPOLD BELGÍLKON-
IJNGUR hefur í yfirlýsingu,
sem gefin var út eftir að van
Zeeland ræddi við hann í sex
klukkustundir í Genf í gær,
neitað að gefa nokkurt loforð
um, hvað hann taki sér fyrir
hendur eftir að hann hafi af-
salað sér völdum í liendur
elzta syni sínum, Baudoin
prinsi, sem ríkisstjóra.
Segist Leópold sjálfur hafa
átt hugmyndina að því, að
hann afsalaði sér völdum til
bráðabirgða, en hún virðist
ætla að leysa konungsdeiluna í
Belgíu. Hins vegar er ágrein-
* ingur um, hvað Leópold taki
sér fyrir hendur eftir valdaaf-
salið. Jafnaðarmenn og frjáls-
lyndif vilja, að hann hverfi úr
landi, en kaþólskir krefjast
þess? að Leópoldi verði í sjálfs-
vald sett, hvort hann sitji um
kyrrt heima í Belgíu eða fari
úr landi.
Leópold segist ráðgera að
takast á hendur langa íör um
belgísku,; Kongó eftir valdaaf-
salið, en heima í Belgíu er um
það deilt, hvort hann eigi að
ferðast þangað sem fyrrver-
andi konungúr og þá með há-
tíðlegum hætti eða aðeins sem
venjulegur ferðalangur.
•----- o------------
Málfundir FUJ
AF sérstökum ástæðum get-
ur málfundaflokkur FUJ ekki
komið saman í kvöld, en í þess
stað verður fundurinn annað
kvöld á venjulegum stað og
49 íbúiir eru í hyggingu; þelm lýkur í ár.
787 oianns eru níí I byggingarfélaginu.
STJÓRN BYGGÍNGARFÉLAGS VERKAMANNA hefur
sctt um fjárfestingarleyfi fyrir (»0 nýjum þriggja herbergja
íbúðum til viðbótar þeim 40 íbúðum, sem nú er verið að byggja
í Rauðarárliolti og væntanlega verður lokið á þcssu ári. Ætlun
félagsstjórnarinnar er sú, að bjrja'J verði á byggingu þessara
íbúða síoast á þessu ári, eða um líkt leyti og flokknum, sem nú
cr í bygsimru, lýkur.
---------,--1-------------------»
BREZKA utanríkismála-
ráðuneytið hefur að gefnu til-
efni lýst yfir því, að engin á-
kvörðun hafi verið tekin um
það, að Churchill og Bevin
ræði tveir einir utanríkismála
stefnu Breta fyrir ráSstefnu
utanríkismálaráðherra Vestur-
veldanna í vor.
Hins vegar er fram tekið í
yfirlýsingunni, að líklegt sé,
að Alþýðuflokkurinn efni til
viðræðna við íhaldsflokkinn
um þessi mál, þar eð búast
megi við því, að mjög um-
íangsmiklar ákvarðanir verðr
teknir á ráðstefnu þessari.
Bevin liggur enn þá í sjúkra
húsi og mun ekki hefja störf
á ný fyrr en í næstu viku.
Hvorf hjónanna á aS
fara fyrr á fæfur
og bursfa shéna!
TILKYNNT liefur verið að
leppþing Rússa á Austur-
Þýzkalandi muni innan
skamms setja lög, er tryggi
fullkomið jafnrétti karla og
kvenna, og á karlmönnum
samkvæmt þeim að vera heim-
ilt að taka upp ættarnöfn eig-
inkvenna sinna, ef þeim sýnist
svo.
I blaðaumræðum um þessa
fyrirhuguðu löggjöf hefur
margt borið á góma, meðal
annars það, hvort hjónanna
eigi að fara fyrr á fætur á
morgnana eftir að lögin koma
til framkvæmda og sömuleiðis.
hvort þeirra eigi úr því að
bursta skó heimilisfólksins.
1. MAÍ NEFND verkalýðsfé-
laganna heldur fund að Hverf-
isgötu 21 kl. 8.30 í kvöld.
Þetta kom fram í skýrslu for
manns á aðalfundi félagsins í
fyrrakvöld. í félaginu eru nú
787 manns þar af hafa 160 þeg
ar fengið íbúðir í byggingum
félagsins, en rúmlega 600 manns
bíða þess að fá íbúðir, og sést
á því, að full nauðsyn er á því,
að halda byggingunum sleitu-
laust áfram, enda væntir félag-
ið þess fastlega, að fjárhagsráð
sjái sér fært að veita leyfi fyrir
60 nýjum íbúðum svo að hægt
verði að byrja á þeim síðari
hluta þessa árs.
Guðmundur I. Guðmundsson,
alþingismaður, sem verið hefur
formaður félagsins frá stofnun
þess, eða í rúm 10 ár, hefur nú
sagt af sér formennskunni
vegna brottflutnings úr bæn-
um, en í hans stað skipaði fé-
l.agsmálaráðuneytið í vetur
Tómas Vigfússon byggingar-
meistara formann. Guðmundur
skilaði því af sér störfum nú á
aðalfundinum, og þökkuðu fund
armenn örugga forystu hans í
félaginu og v.el unnin störf á
undanförnum árum og buðu
jafnframt hinn nýja formann
velkominn, en Tómas hefur,
sem kunnugt er verið bygging
armeistari hjá félaginu við all
ar byggingar þess.
í skýrslu sinni rakti Guð-
mundur I. Guðmundsson starf-
cemi félagsins síðustu árin og
þá fjárhagserfiðleika, sem við
hefði verið að stríða, en þeir
hafa seinkað all mikið fram-
kvæmdum. Nú taldi hann aft-
ur á móti, að horfur væru á
því að fjárútvegun þyrfti ekki
að standa byggingarfram-
kvæmdum fyrir þrifum fvrst
í stað, og í trausti þess, hefði
stjórnin ákveðið að hefja bygg
ingu 15*nýrra húsa, eða 60
íbúða, strax og þeim 40 íbúð-
um, sem nú eru í smíðum væri
að verða lokið. *
Gjaldkeri félagsins, Grímur
Bjarnason, las upp reikninga
félagsins og voru þeir sam-
þykktir. Á þeim sést, að í 4.
byggingarflokki, sem lokið var
við fyrir um það bil einu og
hálfu ári liefur liver íbúð kost-
að um 106 þúsundir króna og
er það tvímælalaust minnsti
byggingarkosnaður, sem um
getur í bænum á þeini tíma,
á hliðstæðum íbúðum. Um
Framhald á 7. síðu.
Kommúnisfar safna undir-
skriffum undir 1, maí ávar
á föiskum forsen
KOMMÚNISTAR Iiafa undanfarna daga gengið milli
stjórna verkalýðsfélaganna í bænum með 1. maí ávarp
og hvatt þær til a'á skrifa undir það. í þessari undir-
skriftasmölun hafa kommúnistar mjög flíkað þvi, að fullt
samkomulag væri innan 1. maí nefndai um hátíðaliöldin
að þessu sinni. Það sanna er þó, að því fer víðs fjarri, að
fengið sé fullt samkomulag. Samkvæmt upplýsingum, er
blaðið liefur aflað sér, mun að vísu meirihluti 1. maí
nefndai* hafa orðið ásáttur um ávarpið í meginatriðum,
þó að fulltrúar nokkurra félaga hafi lýst sig andvíga því.
En samkomulagið mun, frá hendi fjölmargra fulltrúa í 1.
maí nefndinni, liafa veri'ð bundið því skilyrði, að full
eining yrði um a 11 a tilhögun hátíðahaldanna, svo sem
ræðumenn á útifundi og fleira.
Þegar blaðið fékk þessar upplýsingar í gæikvöldi,
var hins vegar ekki fengið neitt samkomulag um ræðu-
menn. Það er því ljóst, að kommúnistar eru með þeirri
tiilkun sinni á samþykkt ávarpsins, sem fyrr getur, að
gera tilraun til þess að fá stjórnir verkalýðsfélaganna í
bænum til að undirrita ávarpið á fölskum forsendum.
Guðjón Sainúelsson láfinn
GUÐJÓN SAMÚELSSON prófessor, húsameistari ríkisins,
lézt í Landspítalanum síðdegis í gær, 63 ára að aldri. Hann
liafði um alllangt skeið verið veikur og síðustu vikurnar þungt
haldinn. Það var krabbamein, sém dró hann til dauða.
Guðjón Samúelsspn var
Skaftfellingur að ætt, fæddur
að Hunkubökkum 16. aprí1
1887, en ólst upp á Eyrarbakka
og r Reykjavík, gekk í húsa-
meistaradeild listaháskólans í
Kaupmannahöfn og lauk það-
an prófi árið 1919, fyrstur
samlanda sinna, en sama ár
var hann settur húsameistari
ríkisins og skipaour í það emb
ætti ári síðar, en því gegndi
hann til dauðadags.
Guðjón Samúelsson stóð
fyrir byggingu tveggja stór-
hýsa í Reykjavík, meðan hann
stundaði enn nám í Kaup-
mannahöfn: Eimskipafélags-
hússins og Lyfjabúðar Reykja-
víkur, en frá því að hann tók
við embætti húsameistara mun
hann hafa staðið fyrir bygg-
ingu nær 800 húsa og stofnana.
Hann hefur staðið fyrir bygg-
ingu flestra stórhýsa höfuð-
staðarins, þar á meðal Landa-
kotskirkju, Landsspítalans,
Landssímahússins, Iiótel Borg
ar, háskólans og þjóðleikhúss-
ins.
Guðjón heitinn Samúelsson
var prófessor að nafnbót, en
einnig var hann sæmdur ridd-
arakrossi Fálkaorðunnar 1936
og kjörinn heiðursdoktor við
Háskóla íslands* 1940. hefst um næctu helgi.
/
Guðjón Samúelsson.
Stofnfé Menningar-
sjóðs Þjóðleikhússins
STOFNFRAMLÖG Menn-
ingarsjóðs Þjóðleikhússins
nema nú orðið um 12 þúsund
krónum. Framlögum í sjóðinn
er veitt móttaka í skrifstofu
Þjóðleikhússins, og teljast þeir
stofnendur sjósins, sem leggja
fram fé í hann fram að opnun
Listamannaþingsins, en það