Alþýðublaðið - 27.04.1950, Side 3
Fimmtudagur 27. apríl 1950.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
I DAG er fimmtudagurinn
27. apríl. Fæddur Jón Hjalta-
lín landlæknir árið 1807. Herir
Bandaríkjamanna og ítússa mæt
ast við Torgau 1945.
Sólarupprás var kl. 5.16. Sól-
arlag verður kl. 21.37. Árdegis
háflæður er kl. 13,25 Síðdegis-
háflæður er kl. 14,40. Sól er
hæst á lofti í Reykjavík kl.
13,25.
Næturakstur: Bifreiðastöð
Hreyfils, sími 6633, eftir kl.
2: sími 6636.
Næturvarzla: Reykjavíkur
apótek, sími 1760.
Fiugferðir
AOA í Keflavík 'kl. 4,25—5,10
í morgun frá New York,
Boston og Gander til Óslóar,
Stokkhólms og Belsingfors.
Skipafréttir
Laxfoss fer frá Reykjavík kl.
11, frá Borgarnesi kl. 17, frá
Akranesi kl. 19.
M.S. Arnarfell fór frá Reykja
vík í gær áleiðis til G-rikk-
lands. M.S. Hvassafell fór frá
Cadiz á mánudag áleiðis til Ak-
ureyrar.
M.s. Katla er í Keflavík.
Brúarfoss fór frá Lysekil, 25.
4. til Gautaborgar og Kaup-
mannahafnar. Dettifoss fór frá
Hamborg 22.4., væntanlegur til
Reykjavíkur í fyrramálið 27.4.
Fjallfoss fór frá Reykjavík 17.
4. til Halifax N.S. Goðafoss er í
Reykjavík. Lagarfoss er í
Reykjavík. Selfoss kom til
Reykjavíkur. Vatnajökull fór
frá Baltimore 18.4. til Reykja-
víkur. Vatnajökull , fór frá
Genova 22.4. til Denia.
Hekla var á ísafirði í gær-
kvöld á leið til Akureyrar. Esja
fer frá Reýkjavík á morgun
austur um land til Siglufjarð-
ar. Herðubreið var á Ólafsvik
síðdegis í gær á leið til Reykja-
víkur. Skjaldbreið var á Skaga
strönd í gærkvöld á leið til Ak
ureyrar. Þyrill var á Hóma-
vík síðdegis í gær. Ármann á
að fara frá Vestmannaeyjum í
dag til Reyltjavíkur.
Foldin íer frá Algior í dag,
miðvikudag, áleiðis til Eng-
lanls. Lingestroom er í Færtyj-
um.
Scfp og sýningar
Málverkasýning Ásgeirs
Bjarnþórssonar í Listamanna-
skálanum opin kl. 11—23.
Þjóðmmjasafnið: Opið kl. 13
—15.
\
Náttúrugripasafnið: Opið kl.
13.30—15.00.
20.30
20.45
21.10
21.15
21.40
21.45
22.00
22.10
Einsöngur: Ninon Vallin
syngur (plötur).
Lestur^ornrita: Egils saga
Skallagrímssonar; sögu-
lok( Einar Ól. Sveinsson
prófessor).
Tónleikár (plötur).
Dagskm Kvenfélagasam-
banls Hslands. — Erindi:
Ferð til Finnlands (Guð-
rún Nielsen íþróttakénn-
ari).
Tónleikar (plötur).
Á innlendum vettvangi
(Emil Björnsson).
Fréttir og veðurfregnir.
Sinfónískir tónleikar (plöt
ur).
Fyriríestrar
Franski sendikennarinn, hr.
André Métay, flytur fyrirlestur
í háskólanum, 1. kennslustofu,
fimmtudaginn 27. apríl kl. 18.
Hann talar að þessu sinni um
Touraine-héraðið og þá sérstak
leka um þá sögufrægu kastala,
sem þar eru. Til skýringar eru
skuggamyndir ’og kvikmynd.
öllum er heimill aðgangur.
Skemmtanír
Austurbæjarbíó (sími 1384):
„Örlög fjárhættuspilarans“, am
erísk. Dane Clark, Janis Paige,
Zachary Seott. Sýnd kl. 7 og 9.
„Ævintýrið af Astara." Sýnd
kl. 5.
Gamla Bíó (sími 1475:) —
„Dick Tracy og ,,Klóin“ (am-
erísk). Ralph Byrd, Jan Keith,
Kay Christopher. Sýnd kl. 5, 9.
Hafnarbíó (sími 6444): —
„Auðlegð og ástir“ (fúönsk). —
Pierre Renoir, Claude Gtnia,
Pisrre Larquey. Sýnd kl. 5, 7
og 9.
Nýja Bíó (sími 1544): —
,,Episode“ (þýzk). Paula Wes-
stly, Otto Tressler, Karl Ludwig
Diehl. Sýnd kl. 9. „Alexander
Ragtime Band.“ Tyrone Power,
Alice Fayt, Don Ameche, Ethel
Merman. Sýnd kl. 5 og 7.
Síjörnubíó (sími 81936): —
„Hitler og Eva Braun. (ame-
rísk) Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Tjarnarbíó (sími 6485): —
„Mannlegur breyskleiki“ (am.
erísk). Rosalind Russell, Mel-
vyn Douglas. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Aukamynd: „Vígsla þjóðleik-
hússins.“
Tripolibíó (sími 1182); —
,,Útlaginn‘ (amerísk) Rod Cam
eron og Cathy Downs. Sýnd kl.
5, 7 og 9.
Bæjarbíó, Haínarfirði (s:mi
9184): „Milli tveggja elda“ (am
erísk). Dennis O’Keefe, Mar-
guerite Capman. Sýnd kl. 7, 9.
Hafnaríjárðarbíó (sími 9249):
„Allt í þi?ssu fína . . .“ Clifton
Webb. Sýnd kl. 7 og 9. .
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ:
FjaHa-Eyvindur eftir Jóhann
Sígurjónsson kl. 8. Leikstjóri
Haraldur Björnsson.
SAMKOMUIIÚS:
Hötei Borg: Hl.iómsveit leik-
ur frá kl. 9 síðd.
Ingólfs café: Eldri dansarnir
kl. 9 síðd.
Skátab eimillð: Álfkonan í
Selhamri, sýnd í kvöld kl. 8. -—
Leikstjóri: Áróra Halldórsd.
i'r öSiöm áttöm
Ársliátíð íslenzk-ameríska fé-
iagsins verður haldin í Sjálf-
‘itæðishúsinu annað'kvöld kl. 7.
rlefst hún með borðhaldi, en
síoan verður dansað.
BIFREIDASTJÓRAR: Muniff
að gangstéttirnar eru ætlaðar
gangandi vegarendum. Hætt-
ið þeim ieiða vana að Ieggja
bifreið yðar upp á gangstétt.
rnTííYiYmrmYTYrrm
Auglýsið í
Alþýðublaðinu!
LISTAMANNAÞING 1950.
sunnudaginn 30. apríl kl. 2 síðdegis
í Þjóðleikhúsinu.
Sinfóníuhljómsveifm
Stjórnendur:
Róbert Abraham, Jon Leiís, Páll Ísólís-
son, Victor Urbantschiísch.
Einsöngvari: Guðmundur Jónsson.
Flutt verða tónverk eftir 6 íslenzka höfunda.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 2 í dag hjá
Eymundsson, Lárusi Blöndal og Bókum
og ritföngum.
EFTIRFARANDI REGLU-
GERÐ um verndun fiskimiða
fyrir Norðurlandi setti ríkis-
stjórnin 22. apríl, samkvæmt
lögum frá 1948 um vísindalega
verndun fiskimiða landgrunns
ins, og gengur hún í gildi frá
og með 1. júní næst komandi.
1. gr. Allar botnvörpuveiðar
og dragnótaveiðar skulu bann-
aðar á svæðinu frá Horni að
Langanesi innan línu, sem
dregin er 4 sjómílur frá yztu
annesjum, eyjum eða skerjum
og mynni flóa og fjarða.
Fyrst skulu dregnar beinar
grunnlínur milli eftirfarandi
staða og síðan sjálf markalln-
an samhliða þeim en 4 sjómíl-
um utar.
Staðir þessír eru:
1. Horn 66 27'4 n.bi., 22°
24'5 vlg.
2. íraboði 66° 19'S n.br., 22°
06'5 vlg,
3. Drangasker 66” 14'3 n.br.,
2.1 ° 48'6' vlg.
4. Selsker 66° 07'3 n.br. 21'
31'2 vlg..
5. Ásbúðarrif 66° 08'1 n:br„
20° 11'2 vlg.
6. Siglunes 66“ 11'9 nbr., 18°
50'1 vlg.
7. Flatey 66° 10'3 nbr., 17°
50'5 vlg.
8. Lágey 66“ 17'8 nbr., 17°
07'0 vlg.
9. Rauðinúpur 66° 30'7 nbr.,
16° 32'5 vlg.
10. Riístangi 66° 32'3 nbr.,
16 11'9 vlg.
11. Hraunhafnartangi 66°
32'3 nbr., 16° CFl'6 vlg.
12. Langanes 66° 22'6 nbr.,
14° 32'0 vlg.
Endamörk svæðisins eru að
vestan: lína dregin í rétt norð-
austur frá Rana á Ilornbjargi,
og að austan: lína dregin í rétt
austur frá Langanestá.
Auk þess skal dregin marka-
lína 4 sjómílur frá yztu an-
nesjum og skerjum Grímseyj-
ar, í kringum ,eyna (sjá upp-
dráttinn).
2. gr. Á svæði því, sem um
ræðir í 1. gr., mega íslenzkir
ríkisborgarar einir reka síld-
yeiðar og má að^ins nota- ís-
lenzk skip til veiðanna, sbr.
lög nr. 33 frá 19. júní 1922,
um rétt til fiskveiða í land-
helgi.
3. gr. Útgérðarmenn þeir, er
um ræðir í 2. gr. og hafa í
hyggju að stunda sumarsíld-
veiði fyrir Norðurlandi á tíma
bilinu frá 1. júní til 1. október,
skulu sækja um leyfi til sjáv-
arútvegsmálaráðuneytisins fyr-
ir 1. júní 1950 og síðan fyrir
15. maí ár hvert og tilgreina í
imsókn sinni, hvaða skip þeir
ætli að nota til veiðanna og
hvers konar veiðarfæri verði
r:otuð.
Nú telur sjávarútvegsmála-
ráðuneytið, að um ofveiði
verði að ræða, og getur það
þá í byrjun veiðitímabils eða
síðar takmarkað fjölda veiði-
skipa og hámarksafla hvers
ainstaks skips.
Aflaskýrslur skulu sendar
Fiskifélagi íslands á þann hátt,
sem fvrir er mælt í lögum nr.
55 frá 27. júní 1941, um afla-
og útgerðarskýrslur.
4. gr. Með ákv.æðum reglu-
gerðar þessarar er ekki heft
siglingafrelsi skipa á hafinu,
enda sé löglega um veiðarfæri
þeirra búið, sbr. lög.nr. 33 19.
júní 1922,
5. gr. Framkvæmd á reglu-
gerð þessari skal hagað þann-
ig, að hún sé ávallt í samræmi
við milliríkjasamninga um
þessi mál, sem ísland er aðili
að á hverjum tíma.
j . 6. gr. Brot gegn ákvæðum
reglugerðar þessarar og regl-
1 n m og auglýsingum, sem settr
;.r verða samkvæmt henni,
Sófasett, stofuskápur ásamt ýmsuni silfurmun-
um, til sölu. Selt með tækifærisverði vegna
brottflutnings. Til sýnis á Tjarnarbraut 1, Hafn-
arfirði, kl. 2—7 í dag.
skulu varða sektum frá kr.'
1000,00 til kr. 100 000,00. Þó
skulu refsiákvæði gildandí
laga um bann gegn botnvörpu-
veiðum og . dragnótaveiðurh.
haldast óbreyti varðandi haf-
-væði, sem þau hafa verið mið-
uð við.
7. gr. Reglugerð þessi öðlast
gildi 1. ':úní 1950.
Reglugerð þessi er hér með
sett samkvæmt lögum nr. 44
3. apríl 1948, um vísindalega
verndun fiskimiða landgrunns
ins.
I athugasemd sjávarútvegs-
málaráðuneytisins við þessa
réglugérð segir svo:
„Eitt aðaláhyggjuefnið í sam.
bandi við nútíma fiskveiðar er
hæ>ttan á ofveiði. Á mörgum
alþjóðaráðstefnum, síðast á
Haagfundinum í ágúst 1949,
beíur vandamál þetta verið
ýtarlega rætt, án þess þó að
samkomulag hafi náðst um við
eigandi ráðstafanir. Þannig
hefur t. d. fiskstofninn í Nor8
ursjónum stórum dregizr sam-
,:n síðan stríðinu lauk, án þess
>ð nokkur rönd hafi verið vi6
reist. ■ Þao er alkunnugt um
"uma íslenzka fiskstofna (ýsa,
i-úða og skarkoli), að á þá er
lögð meiri veiði en þeir þola.
Eins og nú er komið, byggj-
ast fiskveiðar við ísland ao
langmestu leyti á þorski og
ú!d. og er afkoma útgerðar á
íslandsmiðum undir því kom-
in, hvernig aflast af þessum
tegundum. Það er því óhjá-
kvæmileg nauðsyn, að gerðai-
verði virkar ráðstafanir til aö
hindra það, að þessir dýrmætu
stofnar sæti þeim örlögum,
"em ýmsar aðrar íslenzkar
fisktegundir, er minna þola,
hafa þegar sætt eða að sagan
um Norðursjóinn endurtaki
nig við ísland. Enda lítur ís-
lenzka ríkisstjórnin svo á, aó
henni sé bæði skylt og rétt að
sjá um, að slíkar ráðstafanir
séu gerðar.
Með vaxandi ugg hefur-ver
ið fylszt með því„ hvernig sðkh
iii á íslandsmið hefur stórauk-
izt. hin síðari ár, og í kjölfar
hennar hafa farið sírýrnandi
afköst, einkum að því ,er varö-
;t síldveiði • fvrir Norðurlancl;.
Á árunum 1945—1949, miðað
við. 1940— 1944. eykst skipa-
fjöldinn, sem tekur þátt í síld-
veiðum, um ca. 185Ú og með-
alstærð íslenzkra skipa vex
um 20'V , en urn leið minnkar
iieildarveiði við Norðurlancl
um nærri 44 '/< og afköst ís-
lenzku skipanna miðað við fyr-
irhöfn (veiði pr. nót) um 77 %.
Um þorskstofninn er það vir.
að, að tryggingin fyrir framtío
hans er ungfiskurinn, sem eins
og kunnugt er, vex upp í kalda
sjónum við ísland.
Hinn 5. apríl 1948 voru sett
lög, vsem heimila ríkisstjórn-
inni að ákveða verndarsvæði
við strendur íslands til þess að
koma í veg fyrir gjöreyðingu
fiskimiða. Nú er svo komið, ao
enn fleiri þ-jóðir en-áður hafa
sótt á miðin við Norðurland
með síauknum skipafjölda'og
(ullkomnari veiðitækni. Er þaö
bví lífsnauðsyn, að gerðar
verði virkar friðunarráðstafan
■r þegar í stað, bæði til þess að
byrma fiskstofnum og skapa
bætta aðstöðu til vísindalegra
rannsókna. Hinn 22. apríl 1950
gaf því sjávarútvegsmálaráðu-
neytið út reglugerð í fram-
haldi af ofangreindum lögum
og öðlast hún gildi hinn 1.
iúní 1950. í reglugerðinni er
miðað við fjögurra mílna
verndarsvæði frá ströndinni,
oins og lengi hefur verið mið-
Framhald á 7. síðu.