Alþýðublaðið - 18.05.1950, Side 8
SCíerlzt askrifendur að Alþýöublaðlnu. Börií ög unglingar. Komið og seljið
r Alþýðublaðið inn á \ hvert heimiii. Hring- ! ið í síma 4900 eða 4906. AlþýÖublaðlÖ. AHir vilja kaupa
Fimrntudagai 18. maí 1950. Alþýðublaðið*
Nær því 300 minjagripir á sýningu
ferðaskrifstofunnar í Bankastræfi I
Flðluleikarinn Henry
Holst kominn
hingað til lands
Jóhanna Knudsen hlautfyrstu verðlaun
í minjagripasamkeppninni.
NOKKUÐ A SJÖTTA HUNDRAÐ gripir frá meira en
elft hundrað einstakíingum bárust á minjagripasanikeppni
Ferðaskrifstofu -ríkisins og Heimilisiðnaðarfélags íslands, og
hefur nú verið opnuð sýning á nálega 300 beztu gripunum í
5-: vningarsalnum á efri tiæ'ð hússins Bankastræti 7. Fyrstu verð-
laun í samkeppninni híaut Jóhanna Knudsen, Reykjavík, öðr-
um verðlaunum var skipt á milli fyrirtækjanna Laugarness-
leirs og Funa h.f., og þriðju verðlaun hlaut Sigurþór Þorleifs-
son, Reykjavík.
áfmælisþing Um-
dætnisslúku Suður-
lanÉ heísí í dag
SEXTÍU ÁRA AFMÆLIS-
ÞING Umdæmisstúku Suður-
Iands hefst í dag. Fulltrúar og
aðrir templarar munu safnast
f-aman við Góðtemplarahúsið
kí. 1,30, og verður síðan há-
tíðaguðsþjónusta í dómkirkj-
unni; séra Sigurgeir Sigurðsson
biskup predikar. Að þingsetn-
ingu lokinni fer fram þingsetn-
ing í Góðtemplarahúsinu.
Annað kvöld verður svo sam-
sæti í Iðnó. Verður þar sameig-
inleg kaffidrykkja, ræðuhöld
og mörg skemmtiatriði.
—---------♦----------
Hallveigarstaða-
bazar í Lisfamanna-
skálanimn dag
F JÁRÖFLUN ARNEFND
Hallveigarstaða heldur bazar í
Listamannaskálanum kl. 3.50 í
dag.
Þar verður á boðstólum alls
konar fatna.ður. vtri og innri, á
börn á öllum aldri,. barnaregn-
kápur úr plastik og barnaleik-
föng og enn fremur ýmis konar
kvenfatnaður.
Happdrætti verður í sam-
bandi við bazarinn. Er vinn-
ingurinn amerískt brúðuhús.
Aliur ágóði rennur í bygg-
ingarsjóð Hallveigarstaða.
■-----——*— ---------
. Merkjasöludagur
BÆR er í dag
BANDALAG æskulýðsfélaga
í Reykjavík efnir til merkja-
soíu til ágóða fyrir býggingar-
sjóð æskulýðshallar í Reykja-
vlk í dag, uppstigningardag.
Merkin verða afgreidd til
söiubarna kl. 9 fyrir hádegi í
Listamannaskálanum, og er
það eindregin ósk bandalags-
sfcjórnarinnar, að börn fjöl-
menni þangað til að taka merki
til sölu. Fá börnin 15% sölu-
* Þorleifur Þórðarson, forstjóri
ferðaskrifstofunnar, og Björn
Th. •Björnsson, listfræðingur,
sýndu blaðamönnum sýningar-
gripina í gær og skýrðu frá úr-
slitum samkeppninnar. Hafði
dómnefnd, tilkvödd af báðum
aðilum, athugað gripina og val-
ið þá úr, er fegurstir þóttu og
hentugastir.
Sýningin var opnuð kl. 4 síð-
degis í gær og verður framveg-
is opin frá kl. 9—6 og frá 8—10
eða 11 daglega.
VEBÐLAUNAGRIPIRNIB
Gripir Jóhönnu Knudsen,
sem hlaut fyrstu verðlaun, eru
allir með áþrykktum íslenzkum
blómum, flestir úr tré, en einn-
ig kort og mappa með íslenzka
þjóðsöngnum á ensku, Trégrip-
irnir eru veggskildir, litlar
skálar o. fl., svo' og bók með
tréspjöldum og spenslum. Er í
bókinni ágrip af sögu íslands á
ensku. Þannig er gengið frá
blómunum, sem þrykkt er á
gripina, að engin hætta er talin
á því, að þau losni af. Margvís-
legir leirmunir eru frá Funa og
Laugarnessleir, en gripir Sigur-
þórs Þorleifssonar eru rokkur,
snældustóll og snælda.
AÐBIR GRIPIR
Einna mest ber á tré- og leir-
mununí á sýningunni, en frem-
ur lítið er þar um hannyrðir og
silfurgripir fáir. Meðal sér-
kennilegra gripa má nefna
hval, gerðan úr kýrhorni, vett-
linga, sem brugðrjir eru eftir
fyrirmynd frá söguöld, og út-
skorna fýsibelgi.
SAMKEPPNI NÆSTA ÁR
Dómnefndin mun starfa á-
fram og taka við minjagripum,
enda þótt þessari samkeppni
sé lokið, og ráðgert er að efna
til annarrar á næsta ári. Einnig
er hægt að nota með nokkrum
breytingum marga þá muni,
sem sendir voru til samkeppn-
innar, en ekki voru teknir á
sýninguna.
Gripirnir verða I seldir . í
minjagripas.ölu ferðafélagsins
á Keflavíkurflugvelli og einnig
í Reykjavík.
laun, og þau, sem selja meira
en 100 merki, fá 20% í viður-
kenningarskyni fyrir dugnað
sinn.
HENRY HOLST, einn af
kunnustu fiðluleikurum Ev-
rópu, er kominn hingað til
lands og mun á næstunni halda
hljómleika hér á vegum Tón-
listarfélags Reykjavíkur.
Henry Holst e'r fæddur í
Danmörku, en dvaldist árum
saman í Þýzkalandi og nú síð-
ustu fimmtán árin í Englandi.
Hefur hann verið prófessor vio
konungleg'u tónlistarháskólana
í Manchester og London.
---;----.........—
Þinglausnir voru
í gærdag
ÞINGLAUSNIR voru síðla
dags í gær. Lauk þar einu
lengsta þingi, sem haldið hefur
verið, en það stóð frá 14. nóv-
ember til 17. maí og voru haldn
ir 276 fúndir, 108 í neðri deild
116 í efri deild, en 52 í samein-
uðu þingi. Afgreidd voru frá
þing þessu 62 lög og 17 ályktan-
ir, en alls voru lögð fram 119
frumvörp og 48 ályktunartil-
lögur, en auk þess 21 fyrir-
spurn.
Jón Pálmason, forseti sam-
einaðs þings, flutti ræðu við
þinglausnir, og rakti hann
nokkuð viðhorf og verkefni
þingsins almennt. Árnaði hann
landsmönnum heilla, þakkaði
þingmönnum samvinnu og ósk-
áði þeim góðrar heimferðar.
Einar Olgeirsson hafði orð fyr-
ir þingmönnum og þakkaði for-
seta góða samvinnu. Þá sleit
forsætisráðherra, Steingrímur
Steinþórsson, þinginu og hróp-
uðu þingmenn húrra fyrir for-
seta og föðurlandi.
íþróltakvðld að Há-
logalandl á tnorgun
ÍR EFNIR TIL íþróttakvölds
að Hálogalandi annað kvöld.
Þar verður badmintonkeppni
milli ÍR og íþróttafélagsins á
Keflavíkurflugvelli, tvö lið af
Keflavíkurflugvelli sýna körfu
bolta og enn fremur sýna í-
þróttamenn frá Keflavíkurflug
velli lyftingar. Keppnin hefst
kl. 8 síðd.
Leninsýning við
Freyjugötu
MÍR, félagið Menningar-
tengsl íslands og Ráðstjórnar-
ríkjanna, opnar sýningu n. k.
föstudag klukkan 8,30 síðdegis
í sýningarsal Ásmundar Sveins
sonar við Freyjugötu á eftir-
myndum og verkum rússneskra
listamanna úr lífi og starfi
Lenins. Hafa þessar myndir
verið sýndar erlendis undan-
farið í tilefni af því, að 22. apr-
íl voru 80 ár liðin frá fæðingu
Lenins.
Minrtisskildir verða settir á nokkr-
Reykvíksngaféiagið, sem nýlega varð
tíu ára, ætlar að gangast fyrir þvL
------------------»-—
REYKVÍKINGAFÉLAGIÐ minntist 10 ára afmælis síns í
fyrrakvöld með Iiófi í Sjálfstæðishúsinú, cn íélagið var stofnað
hernámsdaginn, 10. maí 1940, og var stofndagsins og þeirra
kringumstæðna, sem þá voru hér í bænum, sérstaklega minnzt
í hófinu.
Þótt Reykvíkingafélagið sé
ekki eldra að árum, liggur þeg-
ar eftir það nokkurt starf. Það
hefur glætt ræktarsemi félags-
rnanna sinna við höfuðborgina
og aukið kynni og samheldni
eldrj Reykvíkinga. Meðal bess,
cem félagið beitir sér fyrir. er
það, að varðveita sem bezt ýms
ar gamlar minjar í bænum, svo
og merka sögustaði. í því sam-
bandi má geta þess, að Reyk-
víkingafélagið hefur tekið að
sér að halda við gömlu baíiar-
húsunum á Árbæ og hefur þeg-
ar látið lagfæra þau mikið, en
það er mjög' kosfnaðarsamt og
er því ekki fullbúið enn.
Þá hefur félagið í undir-
búningi að láta gera minn-
isskildi til þess að setja á
ýmsar sögufrægar bygging-
ar í bænum, t. d. í Aðal-
stræti, þar sem „Innrétting-
ar“ Skúla voru, á húsið við
Suðurgötu, sem Jónas Hall-
grímsson átti síðast heima :í
héi% og víðar. Einnig er í
ráði að setja einn slikan
minnisskjöld á Menntaskól-
ann til minningar um þjóo •
fundinn 1851, er Islendingar
kröfðust stjórnarskrár af
Danakonungi, en eins og
kunnugt er sleit Trampe
greifi konungsfulltrúi þeim
fundi, en þá var það, sem
Jón Sigurðsson mælti bin
sögufrægu orð: „Vér mót-
mælum allir,“
Enn fremur hefur Reykja-
víkurfélagið það á stefnuskrá
sinni, að stuðla að prýði og
fegrun bæjai’ins, og hefur í því
efni nokkra samstöðu við Fegr
unarfélagið, en sérstök nefnd
skipuð mönnum frá báðum fé-
lögunum er nú starfandi með
tilliti til þeirra mála.
Nýlega hefur Reykvíkinga-
félagið tilkynnt bæjarstjórn,
að það gefi bænum gosbrunn,
sem byggður verður úti í Tjörn
inni, en bærinn mun sjálfur
annast uppsetningti hans.
í" hófinu í fyrrakvöld var
margt gamalla og kunnra Reyk
víkinga, þar á meðal tveir fyrr-
verandi og elztu borgarstjórar
Reykjavíkur, þeir Páll Einars-
son og Knud Zimsen.
Hjörtur Hansson fram-
kvæmdastjóri setti hófið og
stjórnaði því. Ólafur Thors at-
vinnumálaráðherra talaðí fyrir
minni félagsins og Reykjavík-
ur, Vilhjálmur Þ. Gíslason
skólastjóri mælti fyrir minni
íslands, Lúðrasveit Reykjavík-
ur lék nokkur lög og Pétur A.
Jónsson söng með undirleik V.
Urbantschitsch. Á milli atriða
var fjöldasöngur. Loks voru
flutt nokkur stutt ávörp; þeir
sem tóku til máls voru: Friðrik
Magnússon stórkaupmaður,
Knud Zimsen fyrrv. borgar-
stjóri, Jón B. Jónsson og síra
Bjarni Jónsson vígslubiskup,.
forseti félagsins. Að endingu.
var stiginn dans til kl. 1 e. m.
Hófið fór í alla staði mjög vel
fram.
----------»----------
Fyrsla skemmliferð
ferðaskrifstof-
unnar á sumrinu.
FYRSTA skemmtiferð ferðœ
skrifstofunnar á þessu sumrí
verður farin í dag. Lagt verð-
ur af stáð kl. 13.50 frá skrif-
stofunni og ekið um Krýsuvík,
Selvog, komið við í Strandar-
kirkju, Þorlákshöfn og um
Hellisheiði til baka.
Lie þögull...
Framhald af 1. síðu.
vegar lét hann svo ummælt við
blaðamennina, að hann hefði
ekki ástæðu til að vera óánægð-
ur með þær viðræður, sem hanrt
hefði átt við Stalir,, Molotov og
Vishinsky. Við Stalin sagðist
hann hafa rætt um alheims-
stjórnmál, kalda stríðið, kjarn-
orkumálin og fulltrúann fyrir
Kína á allshferjarþingi og í ör-
yggisráði sameinuðu þjóðanna.
En annað kvaðst hann ekki
geta sagt að svo stöddu.
Trygve Lie mun fara frá
Moskvu á föstudaginn og fljúga
þaðan beint til Parísar. Þar
mun hann ætla sér að eiga við-
ræður við Schuman, utanríkis-
málaráðherra Frakka, en eftir
það fer hann til London og
ræðir þar við Bevin, áður en
hann fer aftur vestur um haf.
---------—»-----------
Forseti íslands
dvelur í Frakklandi
sér til hressingar
FORSETI ÍSLANDS, herra
Sveinn Björnsson, dvelst nú í
Suður-Frakklandi sér til hress-
ingar.
Hann var áður rúman mán-
uð í Englandi til læknisrann-
sóknar, en einnig fjóra daga £
sjúkrahúsi vegna smávegis að-
gerðar, og bar hvorttveggja
góðan árangur.
(Frá forsetaritara.)
/