Alþýðublaðið - 02.07.1950, Qupperneq 3
Sunnudagur 2. júlí 1950.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
■vr:
FRÁMORGNITILKVOLDS
í DAG er sunnudagurinn 2.
júlí. Dáinn franski rithöfundur-
inn Jean Jaques Rousseau árið
1778. Fæddir C. W. Gluck,
þýzkt tónskáld, árið 1714 og
Óláfur, ríkisarfi Norðmanna,
árið 1903.
Sólaruppkoma var kl.’ 3.06.
Sólarlag verður kl. 23.56. Ár-
degisháflæður verður kl. 8.15
og síðdegisháflæður kl. 20.35.
Sól er hæst á lofti í Reykjavík
kl. 13.32.
Flugferðir
FLUGFÉLAG ÍSLANDS: Gull-
faxi fór í morgun til útlanda.
LOFTLEIÐIR: Geysir fer kl. 8
í fyrramálið til London.
Skipafréttir
Laxfoss fer frá Reykjavík kl.
8 og frá Akranesi kl. 9.30. Frá
Reykjavík aftur kl. 15, frá
Borgarnesi kl. 19 og frá Akra-
nesi kl. 21.
Katla fór í fyrradag frá Kot-
ka áleiðis til Reykjavíkur.
Hekla er væntanleg til Rvík-
tir um hádegi í dag frá Glas-
gow. Esja er á leið frá Aust-
fjörðum til Akureyrar. Herðu-
breið var væntanleg til ísafjarð
ar í gærkvöldi. Skjaldbreið er
í Reykjavík. Þyrill er í Rvík.
Ármann er á leið til Austfjarða.
Brúarfoss var væntanlegur til
Reýkjavíkur um hádegi í gær
frá Hull. Dettifoss kom í gær
til Reykjavíkur frá Stykkis-
hólmi. Fjallfoss fer frá Leith á
morgun til Halmstad í Svíþjóð.
Goðafoss er í Reykjavík. Gull-
foss fór frá Reykjavík á hádegi
í gær til Leith og Kaupmanna-
ha'fnar. Lagarfoss er á leið til
New York frá Akranesi. Selfoss
fór frá Siglufirði siðdegis í gær
til Reykjavíkur. Tröllafoss er* í
New York. Vatnajökull er á
Vestfjörðum, lestar frosinn fisk
til New York.
Ur öllum áttum
RIFREÍÐASTJÓRAR: Treystið
aldrei öðrum en sjálfum yður
í umferðinni.
20.20 Samleikur á flautu og
píanó (Willy Bohring og
dr. Victor Urbantsch-
itsch): Sónata í B-dúr
eftir Beethoven.
20.45 Erindi: Flogið með
,.Geysi“ til Grænlands
(Sigurður Magnússon
kennari).
21.05 Einsöngur: Sigurður
Skagfield óperusöngvari
syngur; Fritz Weisshap-
pel við píanóið.
21.45 Útvarp frá þjóðhátíðar-
fundi íslendinga í Kaup-
mannaliöfn (plötur): a)
Minni íslands (síra Sig-
urður Einarsson). b)
Samleikur á klarinett og
píanó (Elísabet Haralds-
dóttir Sigurðsson og
Kjeld Hansen leika).
22.05 Danslög (plötur).
ureyrar a a
Mótlð muou sækfa um 5Ö00 söngmenn
frá ölliim Norðurlörsduo-um fimrrs,
ÁKVEÐIÐ VAR á aðalfundi Landssambanfls blandaðra
kóra og kvennakóra, sem baldinn var í Eeykjavík dagana
23.—24. júni, að gefa Kantötukór Akureyrar kost á að sækja
norræiit söngmóí, sem Iialda á í Síokkhólmi í júní næsta ár.
Býr kórinn sig nú undir þessa för og mún flytja verk eftir
Björgvin Guðmundsson, sem er söngstjóri kórsins ásamt Ás-
geirj Jónssyni. Siingmót þetta verður vafalííið hið fjölmennasta,
sem haldið hefur verið á Norðurlöndum. Sækja það um 5000
söngmenn frá öÍIúm Norðurlöndnnum fimm. *
L. B. K. barst í fyrra boð frá
sambandi blandaðra kóra í
Svíþjóð um að senda einn kór
á þetta mót. Er þess að vænta,
að það verði mjög glæsilegt,
enda rnuuu Svíar kosta alls
kapps um að vanda til þess.
Hafa þeir í því sambandi bo'ð-
ið ýmiss konar fyrirgreiðslu
til að auðvelda kórunum för-
ina og lagt ríka áherzlu á að
öll Norðurlöndin geti tekið
þótt í því.
Fjórir sambandskórar höfuu
sóít um að fara þessa sóngfor:
Sunnukór ísafjarðar, Kantötu-
kór Akureyrar, Söngfélagið
Ilarpa og Tónlistarfélagskór-
inn í Réykjav’ík.
tJTGÁFA SÖNGLAGA.
Rætt var á fundinum meðal
anars um útgáíu sönglag'aheít-
is, er Jónas Tómasson tón-
skáld á ísafirði hefur þegar
Stökkin og köstin gefa
slitum í landskeDDninn
Isfendingar sterkari í spretthla-upym,
en Banir í langhiaypimum.
undirbúið til prentunar. Verða
í heítinu lög eftir um 30 tón-
skáld. Enn frernur er því sem
næst tilbúið til prentunar þjóð
söngvaútgáfa, en L. B. K. ú-
kvað á aðalíundi sínum 1947
að gefa úr þjóðsöngva allra
þeirra ianda, er sendifulltrúa
eiga á íslandi.
Yfirieitt má segja, að starf-
semi blandaðra kóra sé sívax-
andi hérlendis sem annars síað
ar, en því miður hamlar mjog
vöntun söngstjóra. Vestmanna
kórinn hefur t.. d. lítið getáð
starfað undanfarin ár vegna
þess, þar til í fyrra að hann
Iióf starf sitt að nýju eftir að
haía fengið ungan og efnileg-
an . söngstjóra, Harald Guð-
mundssön prentara. Þá hefur
starfsemi Samkórs Revkjavík-
ur legið niðri um skeið af
sömu ástæðu, en vonandi verð
Framh. á 7. síðu.
FRÉTTIR ÞÆR, sem hing-
að hafa borizt af landskeppni
Dana og Noromanna í frjáls-
um íþróttum, auka mjög á ó-
vissu þá, sera ríkir um úrslitin
hér á vellinum 3. og 4. júlí.
Sem kunnugt er, eru það sömu
dönsku íþróttamennirnir, sem
keppa við Norðmenn og ís-
lendinga. Úrslitanna frá Noregi
í einstökum greinum var því
beðið með mikilli eftirvænt-
ingu, því að af þeim má mjög
ráða um það, hvers vænta má
af Dönum. í gær náði t. d. bezti
spretthlaupari Dananna,
Schibsbye. 10,9 sek. í 100 m
hlaupi. Það er góður tími, ekki
sízt ef skilyrði hafa verið slæm.
Þrátt fyrir það, þótt 5 beztu
100 m hlauparar okkar hafi
náð betri tíma en þetta í ár,
virðist engan veginn loku fyrir
það skotið, að Schibsbye verði
annar í röðinni hér, þótt lík-
legt sé það ekki. í 800 m hlaupi
rúðu Danirnir í gær mjög góð-
um tíma: 1:52,7 og 1:55,0 sek.,
og má þá telja úti um þær I
veiku vonir, sqm við það hafa
verið bundnar, að bezti maður
okkar í þessari grein komist
upp á milli þeirra, þótt hann
hafi í sumar hlaupið á innan
við tveim mínútum. í 400 m
grindahlaupi sjáum við sömu- i
leiðis fram á algeran ósigur að J
heita má, þar sem lakari Dan-
inn náði 'þar 55,5 sek., sem er
nokkuð langt innan við íslenzkt
met. Sama er að segja um
sleggjukastið og 5000 metrana,
enda var það ávallt vitað, Hins
vegar benda úrslitin í lang-
stökki til þess, að íslendingar
vinni tvöfaldan sigur, nema að
Danirnir geri betur en í gær,
þar sem betri maður náði aö-
eins 6,74 metrum. Hér munu
til vera a. rn. k. tveir nienn,
sém heita mega öriiggir með
6,90 metra. Saipa er að segja
um stangarstökkið. Hvorugur
Dananna náði nema 3,89 m, og
geri þeir ekki betur hér, þarf
Kolbeinn elcki annað en a;5
vera verulega í essinu sínu, þá
fer hann þá hæð, þótt það að
vísu yrði hans persónulega
met. I 4X100 m boðhlaupi náðu
Danirnir 42,7 sek. Er það góð-
ur tími og bendir til þess að
skiptingarnar séu betri hjá
þeim en okkar mönnura, þar
sern þeir eiga ekki nema einn
mann rétt undir 11 sek., en
þeir, sem hlupu. í okkar sveit
hér á dögunum, hafa allir
hlaupið á 10,8 sek. og þar und-
ir og náðu þó ekki nema 42,1
sek., sem að vísu er ágætur'
tími og mun betri en hjá Dön-
unúm í norsku land.skeppninni.
En miðað við afrek einstakra
okkar manna í 100 metra
hlaupi ætti beim ekki áð verða
skotaskuld úr því að vinna
þessa grein, og metið, 42,1, ;
mætti gjarnan um leið sigla
sinn sjó, og ætti raunar þegar .
að hafa gert það, ef skipting-1
arhar væru rækilegar æfðar en
raun virðist hafa verið á um.
Allt fram að þessu hafa menn
get ráð fyrir verulegum sigri í
hástökki, jafnvel að þar myndu j
íslendingar fá fyrsta og annan !
mann. Líkurnar fyrir tvöföld-
um sigri þar virðast þó hafa
nokkuð minnkað, þegar Daninn
Erik Nissen náði í fyrradag 1,85
metrum í hástökki. Skúli Guð-
mundsson hefur stokkið hærra
en þetta í ár, og er líklegur til
þess að sigra. Sá, sem í ár hef-
ur náð næst beztum árangri ís-
lendinga í hástökki, Hafnfirð-
ingurinn Sigurður Friðfinns-
son, hefur náð sömu hæð og
Erik Nissen, 1,85 metrum, og
Örn Clausen stökk í fyrra 1,86
metra, meira að segja í erfiðri
tugþrautarkeppni. Baráttan
um annað sætið verður því
sýnilega mjög hörð og spenn-
andi og ógerlegt að spá um úr-
slit þeirra. Tvöfaldur sigur er
engan veginn útilolcaður þar,
en langt frá því viss.
Bezti kringlukastari Dana,
Jörgen Munk-Plum, er í mjög
mikilli framför. Hann hefur í
sumar margsinnis bætt danska
metið í þeirri grein, og í norsku
landskeppninni bætti hann það
enn, og nú upp í 47,35 metra.
1 Gunnar Husebjn bezti kringlu-
' kastari okkar, hefur í ár náð
Spretthlaupararnir eru taldir
öruggustu menn okkar í lands-
keppninni og vinna sennilega
100—400 m. og 4X100 m., ef
Schibsbve kemur mönnum
ekki mjög á óvart. Hér sjást
þeir Haukur ng Ásmundur eft-
ir 200 m. methlaupið í vor.
49,04 metrum, en aðeins fáura
köstum hefur hann náð yfir
þessum árangri Munk-Plums.
Ðaninn er því sífellt að verða
Gunnari hættulegri. Þótt gert
sé fastlega ráð fvrir því, að
Gunnar vinni kringlukastið,
■virðist nokkurn veginn útilok-
8.5 að þar verði um tvöfaldaa
sigur að ræða fyrir íslendinga,
sém á tímabili var þó tali.ð’vel
mögulegt. Þorsteinn Löve hef-
ur ekki til þéssa náð sama ár-
angri og Munk-Plum, en hann
er líka í stöðugri framför, og
víst er, að hann veitir bezta
manni Dananna harða keppni,
sem skemmtilegt verður* að
horfa á.
Þeir, sem á völlinn fara n. k.
mánudags- og.þriðjudagskvöld,
eiga víst að verða áhorfendur
að skemmtilegri og' tvísýnni
keppni milli Dana og íslend-
inga. Þá fá menn svörin við öll-
um óleystum spu.rningum í
sambandi við þessa fyrstu lanös
kcpþni íslendinga í frjálsum í-
þróttum. íslenzkir íþróttamenn
gera þjóð sinni mikinn heiður,
ef þeir bera gæfu til að sigra
félaga sína frá þjóð, sem er
meira en 30 sinnum fjölmenn-
ari en sú íslenzka. Auðnist það
ekki, er heiðri þeirra og allra
íslendinga annarra ei að síður
borgio, ef þeir sýna í öllu hinn
fyllsta drengskap og falla me'ð
sæmd.
Fra barnaheimili í Kaupmannahöfn.