Alþýðublaðið - 02.07.1950, Side 7
Sunnudagur 2. júlí 1950.
ALÞÝÐUBLAÐBÐ
7
Ðr. Riehard Becks
NÝLEGA barst mér í hendur
Fáni Noregs eftir Nordahl
Grieg, skáld og þjóðhetju
Norðmanna, í íslenzkri þýð-
ingu Davíðs skálds Stefánsson-
ar (Helgafell,- Reykjavík, 1948).
Þar leggja því saman tvö þjóð-
skáld, enda er bókin, þó sam-
in sé .,a ferð og flugi á tímum
ógna og erfiðis11, eins og segir
í formálanum, hin athyglis-
verðasta að efni til og sniöll
að frásagnarhætti; og íslenzka
þýðingin er með sama hand-
bragði um orðfæri og málblæ,
í alla staði sæmandi frumrit-
inu.
Nordahl Grieg var ekki svo
skapi farinn, að hann gæti
verið óvirkur áhorfandi að
hinum mikla hildarleik, þegar
þjóð hans barðist í nauðvörn
fyrir frelsi sínu og sjálfstæðri
tilveru, enda færði hann, eins
og flestum mun enn í fersku
minni, fórnina mestu á altari
frelsis- og ættjarðarást.ar, þeg-
ar flugvél hans var skotin nið-
ur yfir Berlín aðfaranótt 2.
descmber 1943. Honum er rétt
lýst í þessum orðum Davíðs
Stefánssonar:
;,Vilja hans og fórnarlund
gat enginn hamið,“
og þó vissu allir, hve mikið
var í húfi. Hann taldi. það
skyldu sína, bæði sem hermað-
ur og skáld, að taka þátt í nauð
synlegum svaðilförum. þó að
teflt væri í tvísýnu. Hann fór
í skipalestum yfir Atlantshaf,
fíáug yfir hættusvæðin, ferð-
aðist í kafbátum. Hann var í
London, þegar mestja_yprengju-
regnið dundi yfir borgina.
Dögum saman lá hann í tjaldi
uppi á Vindheimajökli, í stormi
og stórhríðum. Hann nam her-
fræði og varð höfuðsmaður,
ekki til þess að sýnast. heldur
til þess að geta einbeitt kröft-
um sínum til sigurs góðum
málstað.“
Öllu þessu. og annarri
reynslu hans á stríðsárunum,
er lýst í þessari bók hans,
sem er safn af blaðagreinum og
ræðum frá. þeim árum, og
eiga bæði sögulegt og bók-
menntalegt gildi, því að ekki
leynir það sér, að þar heldur
' Fyrsta og lengsta frásögnin í
skyggnt skáld og fimur rit-
snillingur á pennanum.
bókinni er bráðskemmtileg lýs-
ing 'á því, hvernig norska gull-
inu var bjargað úr klóm Þjóð-
verja, og verður sú æfintýra-
lega svaðilför ljóslifandi í
höndum höfundar, en hann var
einn af helztu þátttakendum
hennar. Og sú frásögn sló á
næma minningastrengi í brjósti
þe.ss, sem betta riíar, því að
hann heyrði lýsinguna á þeim
söguríka leiðangri af vörum
sjálfs leiotoga hans, Friðriks
Haslunds verkfræðings, er
hann kynnt.i þann kunna
norska írænda vorn á ræðu-
palii vestur í Grand Forks í
Norður-Dakota á stríðsárunum.
Heimurinn er nú ekki stærri
en betta!
Eftirminnileg er lýsing Nor-
dahls Grieg á Lundúnum
(„Þetta er London“) mitt í ægi-
legu sprengjuregninu haustið
1940, og jafn minnisstæðar frá-
sagnirnar „Flogið á haf út“
og „Skipalest fer yfir Atlants-
haf“. Og ógleymanlegur verður !
manni hetjuskapur norskra
-sjómanna, sem lýsir sér í frá--
sögnunum „Einn komst af“ og
„Tveir norskir sjómenn11, ■ á-
gætir fulltrúar stéttarbræðra
sinna og afreka þeirra, þegar
í nauðirnar rak. En margar
aðrar frásagnir fjalla um dvöl
höfundar meðal norskra sjó-
manna, flugmanna og annarra
hermanna í Englandi, Kanada
og á íslandi, en þaðan eru fjór-
ar frásagnirnar. Bera þær,
meðal annars,. vitni djúpstæð-
um hlýhug höfundar'til lands
vors, en hann dvaldi þar
langvistum á styrjaldarárunum
og var íslendingum því að
góðu kunnur.
Það er einn af höfuðkostum
frásagna höfundar, hve raun-
trúar þær eru, og í því felst
einnig sögulegt gildi þeirra.
Víða bregður þar einnig fyrir
skáldlegum tilþrifum í lýsing-
um. svo sem þessi kafli úr frá-
sögninni „Fáninn“, sem er ejn-
hver allra hugnæmasti þáttur
bókarinnar, og lýsir flugferð
frá norskri strandvarnarstöð í
Lokað
vegna sumarleyfa til 17. júlí.
Eiríkur Sæmundsson & (o. h.t.
Yegna sumarleyfa
værður Matardeildinni, Hafnarstræti 5, og Kjötbúðinni,
Skólavörðustíg 22, lokað dagana 3. til 15. júlí að báðum
dögum meðtöldlum.
Þann tínia eru heiðraðir viðskiptavinir vinsamlegast
beðnir að beina viðskiptum áínum til Matarbúðarinnar,
Laugavegi 42, og Kjötbúðar Sólvalla, Sólvallagötu 9.
Sláturfélag SuSurlands
Bretlandi til Noregsstranda að
næturlagi:
„Slík nótt yfir hafinu getur
búið yfir einkennilegum töfr-
um. Enn þá er fegurðin í vest-
urloftinu söm við sig, sólarlag
og gullinský, en í austurátt, i
bokubláu tóminu, blasir við
tunglið eins og ofurlítill, rauð-
ur hnöttur frá löngu liðnum
öldum. Síðan fölnar hann og
verður að mána yfir hvítum
þokubakka. Regindjúp opnast
niður undan, og þai' er sem
sjái í svört. fjallavötn. Stund-
um koma glufur í þokuna, sem
teygja sig óralangt og eru eins
Og lygnar svartár á hægri ferð
um mánabjarta espiskóga.. Allt
í einu hvessir. Tunglið veður
í skýjum. í mánasilfrinu er
eins og standi bálhvítur blossi
uppi af skrúfublöðunujn, líkt
og ljóst, flaksandi kvenhár.“
horfið í hug upphafserindið úr
kvæði Jóns Magnússonar til
Norðmanna:
,,Eg þitt land er sárum sært,
svívirt allt, sem þér er kært,'
grípur hug þinn heilög bræði.
Hvað sé fært og ekki fært:
Þvílík spurn er óráðsæði.
Auður þinn og jarðnesk gæði
þokast burt í þagnarval,
þegar frelsið verja skal.“
Það er laukrétt lýsing á
hugsunarhætti allra góðra
Norðmanna á stríðsárunum, og
Nordahl Giúeg var um aðra
fram persónugervingur þess
hetjuanda, og þess vegna varð
hann einnig þjóðhetja landa
sinna.
Það var hvorki tilviljun né
uppgerð, að kvæðabók hans,
sem fvrst var prentuð og gefin
út á íslandi (Reykjavík, 1943),
ber heitið Frihetet (Frelsið),
því að ekki liafa önnur skáld
á fegurri eða áhrifameiri hátt
lofsungið frelsið eða helgað því
líf sitt eindregnar en hann
gerði.
Og þökk sé útgáfunni Helga-
felli fyrir að hafa haldið á lofti
minningu hans, hugsjónum og
fyrirdæmi, á íslandi með vand-
aðri útgáfu fyrrnefndrar
kvæðabókar hans og umrædds
grejnasafns í snjallri þýðingu
Davíðs Stefánssonar skálds.
Það er bæði makleg ræktar-
semi við höfundinn og frænd-
þjóðina norsku og auðgun bók-
menntum vorum og menning-
arlífi.
Hér hafa að vísu aðeins ver-
ið nefndir nokkrir af frásagna-
þáttum bókarinnar, en í heild
sinni er hún harla ítarleg og
glögg lýsing á þeim merkilega
skerf, sem Norðmenn lögðu
fram á stríðsárunum til sigurs
málstað frelsis og mannrétt-
inda. Og sú saga á það meir en
skilið að geymast hjá frænd-
þjóðinni íslenzku á eigin tur.gu
§ r
Framhald af 3. síðu.
ur þess ekki langt að bíða að
úr rætist í því eíni.
Ársþingið samþykkti að fela
söngmálaráði og stjórn sam-
bandsins að undirbúa söngmót
hér í Reykjavík, svo fremi
sem flestir sambándskóranna
sjái sér fært að taka þátt í
því.
AÐALFUNÐURINN,
Aðalfundinn sóttu fulltrúar
frá flestum kórum innan sam-
bandsins. Einn nýr kór hefur
komið í sambandið á s. 1. ári,
Samkór Neskaupstaðar, Norð-
firði, en sá kór hefur um 50
félaga.
Stjórn sarnbandsins skipa
nú: E. B. Malmquist formaður,
Steindór Björnsson ritari,
Ágúst H. Pétursson féhirðir.
Söngmálaráð skipa: Dr. V.
Urbantschitsch, .Tónas Tómas-
son tónskáld frá ísafirði og
Björgvin Guðmundsson tón-
skáld á Akureyri.
fer frá Reykjavík laugardag-
inn 15. júlí kl. 12 á hádegi til
Leith og Kaupmannahafnar.
Pantaðir farseðlar skulu sóttir
eigi síðar en föstudag 7. júlí,
annars verða þeir seldir öðr-
um. Það skal tekið fram, að
farþegar verða að sýna fullgilt
vegabréf, þegar farseðlar eru
sóttir.
H.f. Eimskipféiag
FORSETI ÍSLANDS sæmdi
17. júní s. 1. eftirtalda menn
riddarakrossi fálkaorðunar:
Bjarna Snæbjörnsson, lækni,
Hafnarfirði, Ólaf H. Jónsson.
bónda, Eystri-Sólheimum í
í Mýrdal, Ríkarð Jónsson rhynd
höggvara, Tómas Jónsson, borg
arritara, Reykjavík og Þor-
steinn Þorsteinsson, alþingis- og
sýslumann. Dalasýslu.
Forseti íslands hefur einnig,
í tilefni komu söngflokks frá
konunglegu óperunni í Stokk-
I hólmi sæmt eftirtalda menn
I fálkaorðunni:
Joel Berglund óperustjóra og
Arthur Hilton framkvæmdar-
! stjóra óperunnar, stórrriddara-
1 krossi og Kurt Bendix, riddara
I kossi.
Lendingar fiugvéla.
Framh. af 5. síðu.
em, hóf í þessum mánuði reglu
bundið flug frá Kaupmanna-
höfn til Grænl-ands, með við-
komu á Reykjavíkurflugvelli.
Flogið er einu sinni í viku fram
og aftur. Notaðar eru fjögra
hreyfla Skymastervélar.
hennar. Og við að lesa hana
hefur mér hvað eftir annað
FESÐAFÉLAG
' ÍSLANDS
ráðgerir skemmtiferð
austur í Öræfi þann 8.
júlí og er það 7—15
daga ferð. Flogið verður
austur að Fagurhólsmýri.
Farið ríðandi út í Ingólfs-
höfða. Dvalið nokkra daga í
Öræfum. Farið í Bæjarstaða
skóg og víðar. Gengið á Ör-
æfajökul ef hægt er. Úr Ör-
æfum farið vestur Skeiðar-
ársand ef fært er yfir vötnin
og sandinn. Á heimleiðinni
dvalið í Klaustri 1 dag. —
Áskriftarlisti liggur frammi
og séu allir búnir að taka
farmiða fyrir kl. 5 á fimmtu-
dag.
Verð fjarverandi
næstu 6 vikur. — Herra
Haukur Kristjánsson
læknir gegnir samlags-
störfum mínum á meðan.
Hann er til viðtals dag-
lega kl. 4—6 (laugard. 11
—12) í Pósthússtræti 7.
Sími þar 3139, heimasími
5326.
Þórður Þórðarson
læknir.
Anglýsið í Alþýðublaðina!