Alþýðublaðið - 09.07.1950, Síða 1
Veðurhorfur
Forustugrein:
♦
Svelti sig í 53 daga
Mynd þessi er af Þjóðverjanum Willy Schmitz, sem svelti sig í
53 daga í lokuðu búri í Frankfurt. Hann nærðist aðeins á gos-
drykkjum og reykti óhemju mikið af sígarettum. Schmitz léttist
úr 73 kg. í 43 kg.
Þiiifi AlþýÖösambands Vestf jarða krafð-
ist úrbóta á bví s barðorðri sarrsþykkt.
ELLEFTA ÞING ALÞÝÐUSAMBANDS VESTFJARÐA
takli rafmagnsmálin á Vestfjörðum í algeru ófremdarástandi.
Mörg þorp í fjórðungnum eiga við ónóga raforku áð búa og að
auki okur-dýra. Skoraði þingið því á sambandsféfögin að hefja
nú þegar öflugt starf, er stefni að sameiningu bæja- og sveita-
félaga á Vestfjörðum til úrbóta á raforkuþörf byggðarlaganna.
Einnig sltoraði þingið á stjórnar'völdin í landinu, að vinna mark-
visst að því, áð rafmagnsmálum Vestfirðingafjórðungs verði
sem bráðast komið í viðunandi horf og hafi um það nána sam-
vinnu við ráðamenn bæja- og sveitarstjórna í fjórðungnum.
hækka framlærslu-
En kaupgjald hækkar á sama tíma,
samkvæmí gengislögunum, ekki
nema um 15-20 prósení ■
Msgiliverf áSII nefndar, sem AlþýSu-
samband ísiands og BSRB skipulu
FRAMFÆRSLUKOSTNAÐUR mun hækka á tímabilinu
1. marz 1S50 til ársloka 1951 vegna beinna og óbeinna áhrifa
gengislækkunarinnar um 25—30%, að því er segir í áliti sam-
starfsnefndar Alþýðusambands íslands og BSRB, en kaup-
gjaldshækkanir á sama síma verða ekki nema um 15—20%.
Svarar það til þess, að kjaraskerðingin yrði 7—10%. Komið
| hefur þó í ljós, að hækkun framfærslukostnaðar muni verða
! meiri vegna' liækkana, sem orðið hafa, en ekki var hægí að
áætla, er útreikningarnir voru gerðir.
Greinargerð þessi fylgdi
samþykkt þingsins um raf-
magnsmál Vestfjarða:
„Það er kunnara en frá þurfi
að segja að við algerlega óvið-
unandi ástand í rafmagnsmál-
um hefur verið að búa í Vest-
firðingafjórðungi. Hefur þar
tvennt haldizt í hendur: skort-
ur á rafmagni og svo óhæfilega
dýrt rafmagn, að almenningi
er nær með öllu ókleift að
njóta þeirra þæginda, sem raf-
knúin heimilistæki bjóða — þó
ekki sé nefnd sú hliðin, sem að
iðnaði og framleiðslu snýr.
Ekki er hægt að kenna tóm-
læti almennings hér um, því að
undravert er, hve mikið menn
hafa viljað leggja í sölurnar til
þess að notfæra sér rafmagnið,
Framhah/ á 8 síðu.
Samstarfsnefnd Alþýðusam-
bandsins og BSRB var skipuð
til að reikna út áhrif gengis-
■ lækkunarinnar á kjör laun-
þega og fleira. Nefndina skip-
uðu Kristinn Gunnarsson og
Magnús Ástmarsson frá Al-
þýðusambandinu og Guðjón B.
Baldvinsson og Jónas Haralz
frá BSRB. Niðurstöður nefnd-
arinnar eru miðaðar við horf-
urnar eins og þær voru í marz-
mánuði.
Samkvæmt þeim forsendum,
sem nefndin byggði athuganir
sínar á, mun hin gamla vísitala
i'ramfærslukostnaðarins hækka
úm 19,3%, þegar öll hin beinu
áhrif gengislækkunarlaganna
eru komin fram, þegar gert er
ráð fyrir að söluskatturinn
verði áfram óbreyttur, en
hækkunin verða 15,6%, ef gert
er ráð fyrir áð söluskatturinn
verði afnuminn.
Þegar búið er að taka tillit
til þeirra breytinga á vísitölu
framfærslukostnaðarins, sem
gengislækkunarlögin kveða á
um, og reikna áhrif laganna á
hina nýju vísitölu framfærslu-
kostnaðarins, þá sýnir hún
16,4% hækkun með óbreyttum
söluskatti og 13,2% án sölu-
skattsins, þ. e. a. s. hin nýja
vísitala framfærslukostnaðar-
ins sýnir 85,1% af þeirri hækk-
un, sem gamla vísitalan sýnir.
Niðurstaða nefndarinnar um
það atriði, að hve miklu leyti
almennar kauphækkanir
mundu koma að haldi til þess
að vega á móti þessari kjara-
skerðingu, eru þær, að núver-
andi ytri aðstæðum óbreyttum
og að óbreyttu því samhengi,
sem nú er á milli almenns
kaupgjalds annars vegar og
verðlags í landinu hins vegar,
þá verði almennar kauphækk-
anir launþega ekki til þess að
auka varanlega hluta þeirra af
þj óðartekj unum.
■»-------—-
Visffólki á Eliiheim-
ilinu boðið í Tivoli
í GÆRDAG var vistfólki
elliheimilisins boðið í Tívolí,
og dvaldist það í skemmtigarð-
inum milli kl. 2—5 síðdegis.
Undi gamla fólkið sér vel á
skemmtistaðnum, enda var
veður hið bezta.
Harðir bardagar
60 km. norðan
við Taiden
MIKLIR bardagar geisa nú
60 km. norðan við Taiden. í
fyrrinótt gerði bandarískt fót-
göngulið gagnsókn og hrakti
kommúnista til- baka, en þeir
hófu sókn á ný í gærmorgun og
tókst að ná borginni Chochun.
Bandaríkjamenn hafa enn
ekki komið skriðdrekum sínum
til vígstöðvanna, en bæði stór-
skotalið, brynvarðar sveitir og
fótgöngulið hefur verið sett á
land í höfnum Suður-Kóreu og
er nú á leið norður í landið.
Risaflugvirki hafa haldið á-
fram loftárásum á hervirki og
olíuhreinsunarstöðvar Norður—
Kóreumanna. Tvær ástralskar
og ein amerísk orustuflugvél
voru skotnar niður í gær. Flug
vélar Bandaríkjamanna hafa
enn eyðilagt allmarga skrið-
dreka.
---------«—---------
Fleira fólk kemur nú
frá Bretlandl með
Heklu en í fyrra
HEKLA lagði af stað í þriðju
Skotlandsför sína á fimmtu-
daginn og var hún fullskipuð
farþegum. I fyrri ferðunum
tveim voru með skipinu sam-
tals um 140—150 Bretar, eða
um 70 í hvorri ferð,.og er þetta
miklu meiri þátttaka af þeirra
hálfu heldur en í fyrra, og er
útlit fyrir að svo muni verða á-
fram í sumar, en skipið mun
fara samtals 7 ferðir til Skot-
lands.
Mésía hækkun, sem orðið hefur
a húsaleiguvísitölunni
Hækkaði um S8 stlg vegna gengis-
lækkunarinnar.
HÚSALEIGUVÍSITALAN fyrir tímabilið júlí til
september er 178 stig, en var fyrir næsta tímabil á undan,
apríl—júní, 160 stig. Er þetía mesta bækkun, sem orðið
hefur á þremur mánuðum síðan farið var að reikna þessa
vísitölu út í byrjun stríðsins.
Hækkunin stafar af útlendu viðgerðarefni húsa, og
því að mestu leyti beinlínis af gengislækkuninni, að því
er Hagstofan skýrði Alþýðublaðinu frá í gær.
Ætla mætti, að þessi hækkun húsaleiguvísitölunnar
valdi nokkurri liækkun á vísitölu framfærslukostnaðar
fyrir þær sakir, hve miklu hún nemur, og svo vegna hins,
að liúsaleiga er stærri liður í vísitölugrundvellinum en var,
áður en gengislækkunarlögin gengu í gildi.