Alþýðublaðið - 09.07.1950, Qupperneq 7
Sumiudagur 9. júlí 1950.
ALIÞÝÐURLÁÐIÐ
aftur til viðgerðar. — Af-
greiði svo fljótt sem fólk
óska'r. — Vönduð vinna.
Skóvinnustofa
Þorleifs Jóhannssonar.
Grettisgötu 24.
yi
enðmga
a b h
Framb. af 5. síðu.
aslöðln,
hefur afgreiðslu á Bæjar-
bílastöðinni, Aðalstræti 16.
Sími 1395.
fciavík 5,
sumarleyfi mínu
gegnir herra læknir, Harald
Vigmo, samlagsstörfum mín-
um. Verður hann til viðtals i
lækningastofu minni, Vest-
urgötu 4, kl. 3—4 daglega.
Stofutími 2966. Heimasími
6086.
Jón G. Nikuiásson.
Herra tryggingayfirlækn-
ir Páil Sigurðsson gegnir
læknisstörfum mínum um
mánaðartíma. Viðtalstími
hans er kl. 1—2 daglega,
nema laugard. í Tryggva-
götu 28.
ÞÓRAEINN SVEINSSON
læknir.
FELAGSLIF
ÞRÓTTARAR! II. fl. æfinga-
leikur verður við Val á
morgun, mánudag og hefst kl.
7 stundvíslega, en ekki kl. 8
eins og áður var auglýst. —
Keppt verður á Valsvellinum.
Það er mjög áríðandi, að allir
mæti, þar sem íslandsmótið er
framundan.
Knattspyrnunefndin.
Við sækjum í dag.
Við þvoum í nótt.
Við sendum
á morgun.
Þvottahúsið Fríða,
Sími 9832.
Leslð
Alþýðnblaðiðl
legt fyrir ýmis konar hindur-
vitni á sumum sviðum og of-
ctæki á öðrum.
Já, það er bæði undai'legt og
athyglisvert að velta þannig
fyrir sér ýmsum einkennum
þessa sérstæða fyrirbæris, ís-
lenzku þjóðarinnar. Þjóðfélag-
ið íslenzka grundvallast á sér-
kennilegu samblandi af þraut-
seigju og dugnaði annars veg-
ar og agaleysi og lausung hins
vegar. Og í þjóðarsálinni ís-
lenzku fara saman á undarleg-
an hátt sérstæðar gáfur, fræða-
áhugi og listhneigð annars veg-
ar og skortur á manndómi —
karakter —, siðfágun og hæfi-
leika til þegs að hugsa og dæma
hlutlaust og hleypidómalaust
hins vegar. Hér er mikið um
menn með óvenjulega hæfi-
leika á ýmsum sviðum, en of
fátt um fyrirmenn, þ. e. menn,
sem þera fágun t^ynslóða í fasi
sínu, málfari og athöfnum öll-
um. Ekki er allt fengið með
stórbrotnum gáfum og ekki
heldur með mikilli menntun.
Ef liina sönnu siðíágun vantar
og þá góðvild og það jafnvægi
hugaríarsins, sem henni á að
vera samfara, getur gáfumað-
urinn orðið illviljaður gikkur
og menntamaðurinn jafnvægis-
laus mannleysa. Það er þessa
siðíágun, sem ég held, að okk-
ur íslendinga skorti mest, og
úr því ættum við að reyna að
bæta. Skólarnir eru máttugt
tæki til þess, og þ^hefur heim-
ilið hér e. t. v. enn mikilvæg-
ara hlutverki að gegna, því að
við skulum ekki halda, að hér
verði bætt úr með bóklestri
eða bókviti einu saman Ég hef
hitt íslenzkan bónda, sem mér
fannst ég hefði eins getað séð
í lávarðadeild brezka þingsins,
og ég hef talað við brezkan ráð-
herra, sem hefði eins getað
verið íslenzkur sjómaður. Sið-
fágun er ekki háð stétt, þjóðfé-
lagsaðstöðu, menntun eða gáf-
um. Hún kemur að innan, frá
hjartanu, og í hinni fegurstu
siðfágun. er hið beza úr lífi
ltynslóða. En þegar saman fara
gáfur, menntun og siðfágun, þá
er maðurinn sannur maður. Við
þetta mun Napóleon hafa átt,
er hann sagði um Goethe eftir
fyrsta fund þeirra: Voila un
homme. Hér fer maður. Sér-
hver þjóð þarfnast sem flestra
slíkra manna. A5 svo miklu
leyti sem skilyrði þjóðar til
þess að eignast slíka menn eru
háð því, að hún eigi gamla
menningu og sé í nánum
tengslum við hana, standa ís-
lendingar vel að vígi. M, a. þess
vegna eigum við að elska og
virða hina fornu tungu okkar
og allt það, sem hún og sagan
segir okkur um þær mörgu
kynslóðir, sem lifað hafa í
þessu afskekkta landi, frá því
það byggðist mönnum, sem
hlutu nafnið íslendingav.
ASV æilar að kaupa
kvikmyndavél
ELLEFTA ÞING Alþýðusam-
bands Vestfjarða, Sem nýlega
var haldið á ísafirði, samþykkti
að fela stjórn sambandsins að
kaupa mjófilmukvikmyndavél,
sem verði til afnota fyrir fé-
lögin á sambandssvæðinu til
fræðslustarfsemi.
GOLFÞINGIÐ í ár var háð
hér í Golfskálanum í Reykja-
vík miðvikudaginn 5. þ. m. og
voru þar mættir fulltrúar frá
Akureyri, Reykjavík og Vest-
mannaeyjum. Þingforseti var
Helgi Skúlason læknir frá Ak-
ureyri, en ritari Stefán Árna-
con, forstjóri, Akureyri. Lögð
varr fram skýrsla sambands-
stjórnar, reikningar sambands-
:ns fyrir árið 1949 og fjárhags-
áætlun fyrir næsta starfsár; |
namþykktar breytingar á lög-
um sambandsins og reglum um
landskeppni öldunga. Rætt var
um þátttöku og kenpendaregl- .
ur, húsnæði fyrir Golfsam- ‘
bandið o. fl. Þá var kosin stjórn
fyrir sambandið, og' eru í henni
Helgi H. Eiríksson skólastjóri,
formaður, Björn Pétursson bók-
sali, Rv., Georg Gíslason kon-
r.úll, Ve. og Jóhann Þorkelsson
læknir, Ak. Til vara: Þorvald-
ur Ásgeirsson heildsali, Rvík
og Ólafur Ág. Ólafsson verzlun-
armaður, Reykiavík.
Fulltrúi á íþróttaþing var!
kosinn Helgi H. Eiríksson og
til vara Björn Pétufsson. j
í dómstól Golfsambandsins
voru kosin: Asgeir Ólafsson!
heildsali og Herdís Guðmunds-
dóttir frá, og Gísli Ólafsson
iæknir.
Á fimmtudag fór fram lands-
keppni öldunga í Golfi á vell-
inum hér.
Þátttakendur voru 9 og varð
sigurvegari Ásgeir Ólafsson
heildsali, Rvík. Keppnin var nú
í fyrsta sinn háð sem forgjafa-
keppni, samkvæmt ákvörðun
Golfþingsins.
í gær, föstudag, var háð und-
anrás íslandsmeistarakeppninn-
ar, og voru þátttakendur 22.
Af þeim keppa 16 þeir lægstu í
meistaraflokki um titilinn Golf
meistari íslands, en hinir sér i
1. flokki.
Framhald keppninnar var í
gær og verður í dag, og verða
verðlaun afhent í samsæti í
Golfskálanum á sunnudags-
kvöld.
Af þátttakendum eru 6 frá
Akureyri. þar á meðal Golf-
meistari íslands frá í fyrra, Jón
Egilsson skrifstofustjóri. 14 frá
Reykjavík og 2 frá Vestmanna-
eyjum.
rei oi
Alþýðublaðið
er afgreitt til fastra áskrifenda og í lausasölu hjá
þessum mönmun:
Verzlun Gunnar Jónssonar, Olíustöðinni, Ilvalfirði.
Sveinbirni Oddssyiii, Akranesi.
Daníei Eyjólfssyni, Borgarnesi.
Jóni Gíslasyni, Hellissandi.
Oító Árnasyni, Ólafsvík.
Steinari Ragnarssyni, Stykkishólmi.
Sæmundi Bjarnasyni, Fjósum, Dalasýslu.
Ebeneser Ebeneserssyni, Bíldudal.
Kolbeini Guðmundssjni, Flateyri.
Verkalýðsfélaginu Súgandi, Súgandafirði.
Páli Sólmundarsyni, Bolungarvík.
Oiafi Guðjónssyni, Hnífsdal.
Jónasi Tómassyni, ísafirði.
Jóni Gíslasyni, Súðavík, Álftafirði.
Guðm. Þ. Sigurgeirssyni, Drangsnesi, Steingrímsf.
Friðjóni Sigurðssyni, Hólmavík.
Jens P. Eiríkssyni, Sauðárkróki.
Jónasi Hálfdánarsyni, Hofsós.
Jóhanni Möller, Siglufirði.
Lárusi Frímannssyni, Dalvík.
Þorst. Jónssyni, Ilafnarstræti 88, Akureyri.
Sigurjóni Ármannssyni, Húsavík.
Guðna Þ. Arnasyni, Raufárhöfn.
Guðm. Einarssyni, Þórshöfn, Langanesi.
Ingólfi Jónssyni, Seyðisfirði.
Ólafi Jónssyni, Norofirði.
Guðlaugi Sigfússyni, Reyðarfirði.
Jóni Brynjólfssyni, Eskifirði.
Þórði Jónssyni, Fáskrúðsfirði.
Bjartia Guðmundssyni, Hornafirði.
Birni Guðmundssyni, Vestmannaeyjum.
Arnbirni Sigurgeirssyni, Selfossi.
Jósteini Kristjánssyni, Stokkseyri.
Verz!. Reykjafoss, Hveragerði.
Jóni I. Sigurmundssyni, Eyrarbakka.
Árna Helgasyni, Garði, Grindavík.
Ásgeiri Benediktssyni, Garði, Efra-Sandgerði.-
AlJjýðubrauðgerðinni, Keflavík.
Þorláki Benediktssyni, Garði.
Birni Þorleifssyni, Ytri-Njarðvík.
Sigríði Erlcndsdóttur, Kirkjuvegi 10, Hafnarfirði.
Nýir kaupendur 'fá blaðið ókeypis til næstu mán-
aðamóta. — Snúið yður til útsölumanna Alþýðu-
blaðsins eða afgreiðslunnar í Alþýðuhúsinu, —
Hverfisgötu' 8—10, Reykjavík, og gerist áskrif-
endur að Alþýoublaðinu.
MUNIÐ BÍLAHAPPDRÆTTI UNGRA JAFNAÐARMANNA