Alþýðublaðið - 09.08.1950, Side 7
Miðvikudagur 9. ágúst 1950.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
FELAGSLIF
ÍSÍ SRR
(500 m. fr. aðferð), fer fram
í .Nauthólsvík 3 sept. n. k.
Jafnframt verður keppt í
100 m. bringusundi og 100
m. baksundi karla, 100 m.
bringusundi og 50 m. skrið-
súndi kvenna. 40 m. baksundi,
50 m. bringúsundi og 50 m.
skriðsundi drengja.
- Þátttaka tilkynnist til SRR’
fyrir 25. ágúst n. k.
SRR.
Farfuglar.
Um næstu helgi verður far-
ið í Þórisdal. Á laugardag verð
ur ekið í brunna og gist þar.
Á sunnudag, ekið upp á Kalda
dal og gengið þaðan í Þórisdal.
Allar upplýsingar á Stefáns
Kaffi Bergstaðastræti 7 kl.
9—10 í kvöld.
Ferðanefndin.
Ferðafélag íslands
ráðgerir að fara
tvær íangferðir yf-
ir næstu helgi. Önn
ur ferðin er austur
á Síðu og Fljótsliverfi og er 4
daga ferð. Ekið verður austur
að Kirkj ubæj arklaustri og ferð
ast um endilanga Vestur-
Skaftafellssýslu að Kálfafelli.
Viðkoma á öllum merkustu
stöðum. Komið við í Fljótshlíð
í bakaleið. Gist í Vík og
Klaustri. — Hringferð um Borg
arfjörð. Á laugardaginn ekið
austur Mosfellsheiði um Kalda
dal að Húsafelli og gist þar í
tjöldum. Á sunnudagsmorgun
farið yfir Hvítá um Kalmanns
tungu að Surts’nelli og Stefáns
helli. en seinni hluta dags ek-
ið niður Borgarfjörð upp Norð
urárdal að Fornahvammi og
gist þar. Á mánudagsmorgun
gengið á Tröllakirkju eða á
Baulu. Síðan farið að Hreða-
vatni. Dvalið í skóginum og
hrauninu. Gengið að Glanna
og Laxfossi. Þá haldið hehn-
leiðis. upp Lundareykjadal um
Uxahryggi og Þingvöll til
Reykjavík.
Áskriftarlistar liggja frammi
og sé farmiðar teknir fyrir há
degi á föstudag á skrifstof-
unni í Túngötu 5.
SKIPA11TG6RÐ
RIKISINS
' R
„Esja
austur um land til Siglufjarð-
ar hinn 10. þ. m. Tekið á móti
flutningi til Fáskrúðsfjarðar,
Reyðarfjarðar, Eskifjarðar,
Norðfjarðar, Seyðisfjarðar,
Þórshafnar, Raufarhafnar,
Kópaskers og Húsavíkur í dag.
Felix Guðmundsson
Framhald af 3. síðu.
maður, mun ekki í neinn skóla
hafa gengið í æsku, að undan-
skildu eins vetrar barnaskóla-
námi á Eyrarbakka.
Felix var fæddur á Ægissíðu
í Rangárþingi 3. júlí 1084, næst
elzti sonur hjálnanna Guðnýjar
Jónsdóttur og Guðmundar Fel-
ixsonar, er voru búendur þar.
Aðrir synir Guðmundar, er
komust til fullorðinsára, voru
þeir Jón veitingamaður, síðast
á Akureyri, dáinn fyrir nokkr-
um árum. Hinir eru Helgi um-
sjónarmaður og Ólafur tré-
smiður, báðir búandi hér í
Reykjavík. Ættir Felixar kann
ég ekki að rekja, en föðurafi
hans var Felix bóndi á Ægis-
ríðu og ólst sonarsonur hans
Felix upp hjá honum að
nokkru leyti eftir að foreldrar
hans fluttu til Éyrarbakka. 15
ára gamall flutti Felix á Bakk-
ann ásamt afa sínum. Ó1 hann
þar sín unglingsár til tvítugs-
aldurs, því til Reykjavíkur
flytur hann árið 1904 og er bú-
settur þar upp frá því. Á æsku-
og unglingsárum sínum starf-
ar hann við almenna sveita-
vinnu og á Bakkanum við
hverja þá vinnu, er þar féll til.
í Reykjavík vann hann meðal
annars við húsabyggingar með
þekktum húsabyggingameist-
urum eins og Guðjóni Gama-
líelssyni o. fl. Þá vann hann
á sumrum við brúagerðir, vega-
og hafnargerðir í Reykjavík og
víðar. Á þessum árum (1907—
1919) er hann verkstjóri við
hin ýmsu störf. Er stc\nandi
verkstjórafélags Reykjavíkur.
1919 gerist hann umsjónarmað-
ur kirkjugarðsins á melunum
og síðar, er Fossvogskirkju-
garðurinn er tekinn í notkun,
er hann ráðinn fremkvæmda-
Ktjóri þeirra beggja. Því starfi
hélt hann til dauðadags með ó-
skoruðu trausti kirkjugarðs-
stjórnarinnar, eftir því sem ég
veit bezt. í þessu starfi naut
Felix trausts, og vinsælda al-
mennings. Margir menn unnu
að staðaldri undir stjórn hans i
görðunum. Veitti ég því sér-
staka athygli, hve.sömu menn-
trnir voru þar lengi að starfi,
er gaf til kynna hve góð sam-
vinna var milli atvinnurekand-
ans og þeirra.
Árið 1934 kvæntist Felix
oftirlifandi konu sinni, Sigur-
þóru Þorbjörnsdóttur, ættaðri
úr Árnessýslu. Þau eignuðust
tvö börn, er bæði lifa, Þórunni
Helgu 15 ára og Berg 12 ára.
Þau áttu skemmtilegt heimiJi
og síðustu 3 árin bjuggji þau í
eignaríbúð sinni á Grenimel 12.
Felix lézt 1. ágúst s.l. í Lands
rpítalanum. Hafði hann kennt
tásleika nokkrum vikum fyrir
andlát sitt, sem leiddi hann á
dánarbeð. Með honum er horf-
Lnn af sjónarsviðinu góður mað
ur og gegn. Maður, sem setti sér
það mark í æsku að verða nýtur'
þjóðfélagsborgari, sem gæti
látið gott af sér leiða. Hann
þekkti fátækt og vesaldóm,
honum rann hvorttveggja til
rifja. Þess vegna gekk hann á
hönd þeim stefnum, er skutu
frjóöngum í byrjun aldarinnar
og gekk í sveit með þeim i«vnn
um, sem áttu sömu hugsjónir
og hann, en þeir urðu allmargir
af unglingum aldamótanna.
Við, ’sem höfum starfað með
Felix í verkalýðshreyfingunni
og Alþýðuflokknum um lengri
eða skemmri tíma, þökkum hon
um ánægjulegt og gifturíkt sam
starf, þökkum fórnfúst starf,-
tryggð hans við menn og mál-
efni, órjúfandi trú á sigur lýð-
ræðisins, sigur lýðræðisjafnað-
arstefnunnar yfir öfgum, of-
beldi og kúgun einræðisstefn-
anna. Allt þetta var honum þau
lífsins sannindi, sem hann
byggði sína lífsstefnu og lífs-
skoðun á.
Sigurjón Á. Ólafsson.
Faðir og tegndafaðir okkar
Einar Jónsson
Grettisgötu 61,
sem lézt 5.þ.m., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu
daginn 10. þ. m. kl. 1 eftir hádegi.
Olga og Guðmundur Finnbogason.
Kveðja frá reglu-
félaga
Framh. af 3. síðu.
Hann var hvorttveggja í senn,
góður ræðumaður og ritfær
vel. Stefna hans í áfengismál-
um var afsláttarlaust bann,
hann hélt því alltaf fram að
mennirnir yrðu aldrei almennt
teknir frá flöskunni, heldur
vrði að taka flöskuna frá þeim.
Útvarpserindi einu, er hann
flutti eitt sinn, lauk hann með
þessum orðum: „Að því er séð
verður, hefur ekkert ráð .enn
komizt jafnlangt í því að tak-
marka áfengisnautn sem lireint
hann, þrátt fyrir allan þann ill-
víga her, sem reynt hefur að
spilla árangri þess. Það e.r stað-
reynd, að því minni löggjafar-
takmarkanir, því meiri drykkju
skapur, því meiri takmarkanir,
því minni drykkjuskapur.“
Felix Guðmundsson var góð-
ur félagsbróðir og sannur vinur
vina sinna, hjálpfús og velvilj-
aður. Hann átti mikla bjart-
nýni og einlæga trú á sigur
hins góða málstaðar og hann
hikaði aldrei að ljá honum lið.
Hlutskipti hins stórhuga og
pókndjarfa manns lét honum
bezt.
Þakka innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
föður míns
Jóns Klemenssonar
Vitastíg 8.
Axel Jónsson.
læíur í ljós innilegustu samúð
með eftirlifandi konu hanö,
börnum og öðrum ástvinum, og
biður þeim allrar blessunar.
Enginn má sköpum renna.
Dauðinn er eitt hinna hár-
ekörpu bragða náttúrunnar.
Hann mátar alla jafnt fyrr eða
síðar. Úrskurði hans verður
ekki áfrýjað. Vér kveðjum þig
sem samferðamann á krossgöt-
um, þar sem leiðir skilja í bráð.
Kveðjum þig með hrærðum og
þakklátum huga og blessum
minningu þína, því þar sem þú
varst, þar var drengur góður.
Einar Björnsson.
Felix Guðmundsson gerðist
góðtemplar árið 1900 eins og
fyrr segir. Hann tók Stórstúku.
stig 1907. Var fulltrúi á Stór-
stúkuþingi í fyrsta sinn 1913 og
sat eftir það flest þing Stór-
stúkunnar. Hann átti sæti í
framkvæmdanefnd Stórstúk-
unnar, sem stórgæzlumaður
löggjafarstarfs á árunum 1926
—27 og 1932—42, en stórkanzl-
ari var hann frá 1946—48.
Hann var meðal stofnenda St.
Skjaldbreið árið 1905 og var í
henni um árabil, og síðar stofn-
andi st. íþöku. Er hann lézt var
íiann félgai st. Einingin nr. 14.
Hann var umdæmistemplar í
Umdæmisstúkunni fnr. 1 fyrst
1918—20 og síðar 1931—34,
auk þess sem hann átti sæti í
framk.n. umdæmisstúkunnar í
öðrum embættum. Hann var
ritstjóri „Sóknar“, blaðs Stór-
ctúkunnar, frá 1931—33.
stefnan brugðizl!
Framh. af 5. síðu.
komið, gæti í raun og veru al- ■
veg eins verið um þjóðnýttan
rekstur að ræða. Yfirstjórn
þjóðnýtts reksturs gæti verið
skipulögð á mjög svipaðan
hátt.
Sannleikurinn er só, aS þeg-
ar um samvinnustónekstur
er a'ð ræða, er minni munur
en oft virðist ráð fyrir gert
á skipulagi og stjórnartil-
högun hans annars vegar og
þjóðnýtts reksturs hins veg-
ax-, og þar af leiðandi um
sömu vandamálin að ræða.
Valdið yfir rekstrinum er auð-
vitað ekki í höndum sama að-
ila, og kann það að ráða afstöðu
manna til þess, hvora tilhögun-
ina þeir kjósa.
En sé um mikilvægan rekst-
ur að ræða, verður hvorki
talið óeðlilegt né ólýðræðis-
legt, að hið æðsta vald sé í
höndum samfélagsins sjálfs,
en ekki óháðrar stofnunar
innan þess. Mér er fullljóst,
að til þess að rétt sé að fela
ríkinu slíkt vald, verður það
að vera vandanum vaxið.
Einmitt af þeinx sökum er
spurningin um, hvaða
xekstrarkerfi sé heppilegast
og hagkvæmast, ekki aðeins
spurning um kosti og galla
kerfanna í sjálfum sér, held-
ur almennt þjóðfélagslegt
vandamál, sem leysa verður
með tilliti til heildarað-
stæðixa í þjóðfélaginu.
Með þessari grein lýkur
greinaflokki Gylfa Þ. Gísla-
sonar um einkarekstur, jafn-
aðarstefnu og samvinnu-
hreyfingu. Samkvæmt fjöl-
mörgum óskum lesenda AI-
þýðublaðsins munu greinar
þessar verða sérprentaðar og
verðfe fáanlegar í skrifstofu
flokksins.
HANNES Á HORNINU
Framhald af 4. síðu.
opnaði á nýja staðnum. Og mér
finnst ekki að spurningarnar
séu óeðlilegar. En ef til vill er
þetta allt eðlilegt, þó að maður
skilji það ekki.
BELGISKA STJÓRNIN hef
ur ákveðið að verja 5 milljörð-
um franka til aukinna land-
varna.
TRUMAN FORSETI hefur
beðið þingið um að setja strang
ari lög varðandi skemmdarverk
og njósnir.
Verkfalli matreiðslu- og framreiðslu
manna á skipunum lauk um helgina
Það er sárt að kveðja vini
EÍna hinzta sinni. Góðtemplara-
reglan harmar tryggan félaga,
þar , sem er Felix Guðmunds-
ron, og hún á margs að minn-
Qst og þakka á kveðjudegi. Hún
DEILA matreiðslumanna og
framreiðslumanna á skipum
Eimskipáfélags íslands og
Skipaútgerðar ríkisins er leyst,
og voru nýir samningar undir-
ritaðir á laugardagskvöldið var
kl. 7,30.
Samkvæmt samningunum
hækkar grunnkaup matreiðslu-
manna, annarra en yfirmat-
reiðslumanna, um kr. 150,00 á
mánuði, og kaup búrmanna
einnig. Grunnkaup framreiðslu
manna á þremur skipuxn, Goða-
fossi, Dettifossi og Lagarfossi,
hækkar um 300 kr. Öll eftir-
vinna hækkar um 36 aura á
tímann. Auk þess fengust nokk-
ur hlunnindi.
Samningarnir gilda frá og
með 1. janúar síðast liðnum,
nema að því er varðar eftir-
vinnuna; sá liður gildir frá síð-'
ast liðnum mánaðamótum.
I das er síðasti söludagur í 8. flokki. Happdræfti háskólans.