Alþýðublaðið - 13.10.1951, Side 1

Alþýðublaðið - 13.10.1951, Side 1
Veðurátlit? Su'ðvestan kaldi og skúrir. Forustugrein: 1 Kosningasigur norska Alþýðu- flokksins. XXXII. árgangur. Laugardagur 13. október 1951 233. tbl. Iveir ísiendingar á aðalfundi alþjóðabankans Tveir íslendingar sátu sjötta aðalíund a’þjóðabankans og al- þjóða gjaldeyrisjóðsins í Washington í september, þeir Ásgeir Ásgeirsson, bankastjóri við útvegsbankann, og Jón Árnason, bankastjóri við landsbankann. Alþjóðabankinn og alþjóðagjald eyrissjóðurinn voru stofnaðir í stríðslokin, bankinn til þess að hraða viðre'sn og efla framleiðslu eftir stríðið; en gjaldeyris- sjóðurinn t:l þess að skapa sem stöðugast gengi á gjaldeyri í milli ríkjaviðskiptum. — Á myndinni sjást þeir Jón Árnason (til vinstri) og Ásgeir Ásgeirsson á aðalfundinum í Washington. Á bak við þá, lengst til vinstri á myndinni, sést frú Dóra Þór- hailsdóttir, kona Ásgeirs Ásgeirssonar. Mafsveinn frelsaður úr fangelsi á pólsku skipi í Stokkhólmi .......... .... Æíiaði að leita hæiis í Svíþióð, en var tekinn fastur af pólskum kommúnist- um um borð, lokaður inni og misþyrmt. —-——♦---------------------- LÖGREGLAN í STOKKHÓLMI brauzt nýlega út í pólskt skip, sem lá þar í höfninni, frelsaði matsveininn úr fangelsi um borð og hafði hann í land með sér. Höfðu kommúnistar á hinu pólska skipi, lokað hann inni, misþyrmt honum og flett hann klæðum af því að þeir komust á snoðir um að hann ætlaði að flýja í land og Ieita hælis í Svíþjóð! Gullfoss fer þrjár ferðir til áramófa EIMSKIPAFÉLAG íslands hefur nú auglýst ferðir Gull- foss til áramóta, og verða þær 3. Eins og áður er getið fer skipið til Kaupmannahafnar á morgun en brottíarardagar frá Kaupmannahöfn verða sem hér segir: 23. okt. 13. nóv- ember og 4. desember. Brott- farardagar frá Reykjavík verða 3. nóvember og 27. nóv- ember, en í síðustu ferðinni fvrir jól fer skipið frá Rvík f.il Akureyrar, það e| 15. desem- ber, en frá Akureyri aftur 18. des. til Reykjavíkur og fer þaðan í síðustu ferðina til Leith og. Kaupmannahafnar 27. desember og verður komið til Kaupmannahafnar á gamla ársdag. ♦ Það er „Afton-Tidningen“, blað sænska alþýðusambands- ins, sem segir þessa sögu; og birti blaðið um leið mynd, sem tekin var, er sænska lögregian kom með hinn pólska matsvein í land. Hann var ldæðlaus og aðeins rúmteppi eða laki vaf- ið utan um hann. .Matsveinn- inn, sem heitir Stanislav Kul- ba, hefur nú fengið landvistar- leyfi í Svíþjóð. Pólska skipið, sem þessir við burðir gerðust á, heitir ,,-Wie- iun“, og hefur verið í förum milli Pó'lands og Stokkhólms. Ku’ba, sem verið hefur mat- sveinn á skipinu, á pólska unn ustu í Stokkhólmi, sem flúið hefur land og fengið landvist- arleyfi í Svíþjóð; og heimsótti hann hana ávallt, er ,,Wie!un“ kom til Stokkhólms. í þetta sinn hafði hann ákveðið að flýja af skipinu, biðja um landvist- arleyfi í Svíþjóð og setjast að hjá unnustu sinni; en komm- únistar um borð í hinu pólska skipi höfðu orðið varir við Framh. á d. síðu. Tóíí stunda hvíld íi togurunum !éttlætismál togarasjomanna hagsmunamál togaraeigenda sænska vin- kona Alls gittl Verður ekki eftir- kona Ritu, segir maður hennar. AFTON-TIDNINGEN í Stokkhólmi upplýsir, að hin sænska vinkona Ali Khans, Margaret Widengren, sé gift. Þegar hún kom til Kaupmannahafnar til þess að taka á móti Ali, var mað ur hennar ,Henken Widen- gren, með henni; og bæði fóru þau með Ali á helztu skemmtista'ði Kaupmanna- hafnar áður en haldið var áfram til Svíþjóðar. Þar var AIi gestur þeirra í Siirö hjá Gautaborg, þar sem Widengrenhjónin eiga glæsilegt einbýlishús á sjáv arströndinni. Henken Wid- engren ber þær blaðafregn ir mjög ákveðið til baka, áð nokkuð sé um það að ræða, að hin unga, ljóshærða kona hans verði eftirkona Ritu Hayworth. A.'i sé aðeins góður vinur þeirra. Örð Stefáns Jóh. Stefánssonar við fyrstu umræðu málsins í gær ------♦------- FRUMVARP ALÞÝÐUFLOKKSINS ran tólf stunda hvíld togai'asjómanna á sólarhring við allar veiðar kom til fyrstu umræðu í neðri deild alþingis í gær. Mælti Stefán Jóh. Stefánsson fyrir fxumvarpinu af hálfu flutningsmanna og lagði megin þunga á það, að 'krafan um Jtólf istunda hvíld á sólarhring fyrir tog- arasjómdnn væri réttlætismál, en þó einnig hagsmuna mál fyrir eigendur togaraflotans. Stefán Jóhann hóf ræðú* Þór gekk 18 mílur í reynsluför í gærdag. Kemur hingað í næstu viku. Bretar breyla tillögu sinni í öryggisráð- inu um olíudeiluna Eru enn reiðubúnir til samkomulags. SIR GLADWYN JEBB, full- trúi Breta í öryggisráðinu, skýrði í gær frá því í Lake Success, að Bretar hefðu nú breytt tillögu sinni í öryggis- I ráðinu varðandi olíudeiluna. Sagði Jebb, að tillagan væri nú á þá Jeið, að ráðið skori á báða deiluaðila að hefja nýjar samkomulagsumleitanir hið allra fyrsta og hefðust ekkert frekar að deilumálinu, sem spi’lt gæti samkomulagi. FORSÆTISRAÐHERRA íraq lýsti yfir því í fyrradag, að land hans vildi segja upp her- varnasamningi þeim, sem það hefur viff England síðan 1930, en gildir til 1957. Talsmaður fyrir brezku stjórnina sagði í London í gær, að brezka stjórnin myndi taka þessa ósk íraqstjórnar til at- hugunar með endurskoðun samningsins fyrir augum. sína með því að benda á þaS, að eftir því sem verkalýðs- hreyfingunni óx fiskur um hrygg, hafi kröfunni um stytt ingu vinnudagsins verið meiri og meiri gaumur gefinn, og reynslan hefði sýnt, að afköst- in minnka ekki, heldur jafnvel aukast við verulega styttingu vinnudagsins. Síðan rakti hann sögu togaravökulaganna og lýsti því ófremdarástandi, sem ríkti hér við vinnu á togurun- um, meðan enginn hvíldartími var lögboðinn. Frumvarpið um togaravöku- lögin 1921 fjallaði upprunalega um 8 stunda hvfld, en í með- förum þingsins breyttist það og ekki fékkst framgengt nema 6 stunda hvíld. 1928 gat Al- þýðuflokkurinn, sem fyrr og síðar hefur haft forustu um þetta réttlætismál, komið því til leiðar, að hvíldin var lengd upp 1 8 stundir, og ukust af- köst sjómannanna fremur en minnkuðu við þessar réttarbæt ur. En síðan þetta var ákveðið hefur vinnudagur landverka- fólks stytzt enn, og er því vinnudagur togarasjómannanna ekki í neinu samræmi við (Frh. á 8. síðu.) ÞÓR, hið nýja varðskip Skipaútgerðar ríkisins fór £ gær í reynsluför frá skipasmiða stöðinni í Álaborg, þar sem það hefur verið byggt. Pálmi Lofts son forstjóri skipaútgerðarinn- ar var með í reynslufönnni, og samkvæmt tímtali er hann átti við Guðjón Teitsson skrifstofu stjóra hjá Skipaútgerð ríkisins meðan reynsluförinni • stóð, gekk Þór 18 mílur, og virtist yfirleitt hið prýðilegasta skip á allan hátt. Þetta nýja varðskip, sem eí* um 700 lestir að stærð, mun koma til Reykjavíkur snemma í næstu viku, sennilega á þriðju dag eða miðvikudag. Nokkuð af skipshöfninni er þegar farið utan, én 14 af skip verjunum fara með Gullfaxa í dag, sem flýgur beint til Á!a- borgar með þá. Morrison verður að vanrækja brezku kosningabaráttuna —... ♦ ------- Hefur aflýst allri þátttöku í kosninga- fundum vegna deilunnar við Egipta. —............-..-------- HERBERT MORRISON, utanríkismálaráðherra brezku jafnaðarmannastjórnarinnar, er nú svo upp tekinn vegna deil- mmar við Egipta’.and um Súezskur'ðinn og Súdan, að hann hef- ur orðið að aflýsa allri þátttöku í kosningabaráttunni á Bret- landi í bili. I gær átti Morrison langar viðræður vi'ð yfirmenn brezka Iandhersins og flotans vegna þessarar nýju deilu. Innanríkisráðherra Egypta boðaði í gær, að frumvarp Na- has Pasha forsætisráðherra um ógildingu samningsins við Breta um Súezskurðinn, frá Framh. á 3. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.