Tíminn - 10.01.1964, Qupperneq 5
MH
iíiÚiÚáliláliláiililáUÍIiWÍIiÉÍÍiÍiiiÍiÍÍÉÍÍatiÍiÍáÍaÍitiÍltiÍÍÉÍ(ÍÉÍ
MYNDIN hér til hliSar var
tekin I vor af Chelsea-lið-
Inu, þegar það vann sig
upp í I. delld. N(u þelrra
léku gegn Tottenham í
fyrrakvöld, en Moore, ann-
ar tll hœgrl ( neðrl röð,
lelkur nú með Manch. U.
og Shelllto, ( efri röð
lengst tll hægri er meidd-
ur, ert hann hefur leikio i
enska landsliðinu.
Chelsea kom á óvart ■ sló
Tottenham út í bikamum
HSÍM-Reykjavík, 9. janiiar.
ÞAU ÓVÆNTU ÚRSLIT nrðu í aukaleik Chelsea og Tottenham í
3. umferð bikarkeppninnar í fyrrakvöld, að Chelsea sigraði örugg-
lega með tveimur mörkum gegn engu, og er Tottenham, bikarmeist-
aramir frá 1961 og 1962, þar með fallnir úr keppninni þegar í fyrstu
atrennu, nákvæmlega eins og í fyrra, en þá tapáði Tottenham í 3.
umferð á heimavelli fyrir Burnley 0:3. Geysilegur áhugi var fyrir
leik þessara tveggja Lundúnaliða i fyrrakvöld og löngu áður cn
leikur húfst varð að loka hliðum Stamford Bridge, leikvelli Chelsea,
og er talið, að 10—15 þúsund manns, sem komust ekki inn, hafi
staðið fyrir utan völlinn meðan á leiknum stóð.
Og eins og áður segir var letkur-
inn mikill sigur fyrir hina uriga
leikmenn Chelsea — en meðalald-
ur leikmanna liðsins er lægri en
nokkurs annars liðs í 1. deild. —
Fyrirliðinn, Tambling lék nú með
að nýju eftir nokkra fjarveru,
vegna meiðsla og virtist endut-
koma hans hafa mikil áhrif til
hins betra. Chelsea sýndi betri
leik allan tímann og sigurinn var
mjög verðskuldaður; hefði þó rnátt
vera stærri ef nokkuð var.
Hins vegar er því ekki að neita,
að Tottenham-liðið er nú eins og
vængbrotinn fugl. Liðið hefur eng
um góðum framvörðum á að skipa;
þessum lykilmönnum hvers liðs.
MaeKay fótbrotinn og Danriy
Blanchflower „útbrunninn“ og leik
ur aðeins með varaliðinu. Þeir
Marchi og J. Smith, sem skipað
liafa stöðurnar að undanförnu „eru
ekkert meira en þeir varametm,
sem þeir eru“, eins og eitt enska
blaðið komst að orði nýlega. Þá
hefur það heldur ekki bætt úr
skák, að tveir aðrir af hinum
þekktu leikmönnum liðsins, White
og Henry, eru einnig frá leik
vegna meiðsla. Greinilegt er, að
Nicholson, framkvæmdastjóri,
verður að grípa til fékkheftisins
ef ekki enn verr á að fara. Tott-
enham er nú „slegið út“ í bikar-
keppni og Evrópukeppninni, en
befur leikið tveimur leikjum
deildarkeppninni, þar sem liðið er
i öðru sæti á eftir Blackburn, en
hefur leikið tveimur leikjum
dregið var í 3. umferð var talið,
að A. Villa hefði fengið einn allra
léttasta leikinn, Aldershot á heima
velli. En það dugði ekki. Jafntefli
varð á laugardaginn milli liðanna,
án þess að mark væri skorað, og
svo þetta ótrúlega tap. Aston Vilia
er frá næst stærstu borg Englands,
Birmingham. Bolton sigraði suð-
urlígu-liðið Bath örugglega með
3:0 og WBA tókst að sigra í Black-
pool með eina markinu í leiknum.
í 4. umferð mætir WBA Arsenal
á heimavelli sínum í Birming'nain
og má það teljast aðalleikur um-
ferðavinnar. í deildarkeppninni í
færra. Önnur úrslit á miðvikudags
kvöldið urðu þessi:
Aldershot-A. Villa 2:1
Blackpool-WBA 0:1
Bolton-Nott. For. eða Preston.
Það má segja, að ekki gengur
það vel hjá Aston Villa, einu fræg-
asta liði Englands, sem oftast
allra liða hefur sigrað í bikar-
keppninni. Nú tapaði liðið fyrir
4 deildarliðinu Aldershot. Þegar
7 hafa
brotnað
ÞAÐ er varla hægt að segja,
að hamingjan hafi verið hlið-
holl enska liðinu Cardiff City
á keppnistímabilinu sem nú
stendur yfir. Frá þvi í ágúst-
mánuði s. I. hafi hvorki metra
né minna en sjö leikmenn liðs-
ins fótbrotnað £ keppni.
Síðasta óhappið vildi til s. 1.
laugardag, er Cardiff mætti
Leeds. Þá fótbrotnaði annar
innherji liðsins, Alan Mclntosli.
Líklega er það einstæður at-
burður, að svo margir liðsmenn
eíns félags fótbrotni á jafn
stuttum tíma, þ. e. fimm máu-
uðum.
Lið frá öllum Norður-
löndunum koma hingað
[
Allar Norðurlanda-
þjóSirnar hafa nú tilkynnt
þátttöku stna í Norður-
landakeppni kvenna í hand
knattleik, sem fer fram í
Reykjavík dagana 28. júní
til 4. júlí. Um nokkurn tíma
hafði verið vafi á, að Noreg-
ur myndi vc-rða meðal þátt
tökuþjóða, en nú hefur Nor
egur einnig tilkynnt þátt-
töku, eftir því sem danska
blaðið Poliliken skýrir frá
nýlega
Og enn heldur blaðið áfram
og segir, að nú fyrst sé alveg
öruggt, að Danir sjái sér fært
að vera með. Setn kunnugt er,
var ráðgert, að þátttökuliðin,
utan íslands, færu með einni og
sömu flugvélinni frá Gauta
borg til Reykjavíkur. Á meðan
Norðmenn tilkynntu ekki þatt-
töku var ekki útséð að sú ráða
gerð stæðist, en án þeirra
myndi ekki takast að fylla 80
manna flugvél.
En nú hafa endarnir sem sé
náð saman og allt í himnalagi.
Áætlunin á að standast fylii-
lega og hvorki Danir né aðrir
þurfa að óttast aukakostnað.
haust sigraði WBA Arsenal örugg-
lega á heimavelli sínum, en bikar-
leikimir eru miklu opnari. Hin
liðin, sem komust áfram, leika i
næstu umferð við þessi lið:
Aldershot- Swindon.
Chelsea-Huddersfield.
Bolton-Uot't. For eða Prestoh.
nmm
FRETTIR
• NTB-Munchen, 9. jan.
Olympíulið Kanadamannaí
íshokky sigráði á miðviku-
dag vestur-þýzku meistar-
ana Fuesen með 9:5. Um
4000 manns sáu leikinn,
sem var mjög prúðmann-
lega leikinn — aðeins ein-
um leikmanni vísað af velli.
• Danmerkurmeistara-
keppnin- í handknattleik er
nú komin langt á veg. Tvö
efstu liðin eru Arhus
KFUM — meistaramir frá
því í fyrra — og Viby. Ann
ars er staðan þannig:
Viby 11 234:221 17
A.KFUM 11 239:191 17
Ajax 11 226:197 15
Helsing. 12 202:195 12
Skovb. 11 195:195 11
AFG ;i 176:193 11
HG 12 235:215 11
MK31 12 242:251 10
USG 12 231:243 9
Schneekl 31 164:232 1
■............. ............ ■
NÝ BANDARÍSK skíðastjarna hefur skotið upp kollinum, elns og við
skýrðum frá á síðunni I gær. Það er kornung stúlka að nafni Jean Saubert.
Hún sigraði með miklum yfirburðum í stórsvigi á mjög sterku skíðamóti
í Grindelwald ( fyrradag. Nú binda Bandaríkjamenn miklar vonlr við
Saubert á Olympíulelkunum í Innsbruck. — MYNDIN að ofan ér frá
mótinu í fyrradag og sýnir hina bandarísku stúlku í keppninni.
T Í MI NN, föstudaginn 10. janúar 1964
5