Tíminn - 16.01.1964, Blaðsíða 15

Tíminn - 16.01.1964, Blaðsíða 15
Eyjafíug stofnaí ÁG-Vestmannaeyjum, 15. jan. staðsetta í bænum, því að nokk | uð hefur borið á því, að flug i I kvöld var stofnað I Vest- mannaeyjum nýtt flugfélag, sem lilotið hefur nafnið Eyja- flug. Stofnendur eru nokkrir ungir Vestmannaeyingar og fleiri og tilgangur félagsins er sá, að halda uppi flugsamgöng um við Vestmannaeyjar. Hið nýstofnaða félag hyggst koma sér hið bráðasta upp flug vél eða flugvélum til að annast farþegaflug, leiguflug og flutn- ingaflug til og frá Vestmanna- eyjum, og þar verður heima- höfn væntanlegra flugvéla. Hyggja margir Eyjabúar gott til glóðarinnar að fá fl'ugvél BERKLAR Framhald af 1. síðu. orðnu höfðu verið berklaveikir áður en sjúkdómur þeirra legið niðri um árabil. Börnin smit- uðust flest af sama sjúklingnum og komust öll þegar undir lækn- ishendur, er be' klapróf hafði kom ið \it hjá þeini eða fyrsta sjúk- dómseinkenni gert vart við sig. Frá engu þessara barna mun hafa staíað nein smilhætta, þannig að umgangur þeirra við skólafélaga mun ekki draga neinn dilk á eftir sér. Jóhann Þorkelsson sagði, að þetta væru að vísu óvenju mörg tilíelli í einu, þar sem yfirleitt kærnu ekki nema eitt og tvö á ári, en hér hefði eiginlega verið um sérstaka röð af chöppum að ræða, þar er smitberinn hafði svo mik- inn samgang við þrjár barnmarg- ar fjölskyldur. Hins vegar hefði tekizt svo vel til, að til allra sjúkl- inganna náðist þegar á byrjunar- stigi sjúkdómsins, og munu þeir verða heilbrigðir eftir 2—3 mán- uði En það væri alltaf hvimleitt, þegar svona faraldur kæmi upp, en ekki sízt fyrir þá sök, að óþarfa ótti gripi um sig meðal fólksins, og hefði hann heyrt alls konar trölla- sögi r, sem gengju um bæinp. Þær þyríti að kveða niður, því að eng- in ástæða væri til ótta. Þó væri hér um aivarlegan sjúkdóm að ræ^a, sem sjálfsagt væri að taka íöstum tökum, og því vildi hann minna fólk á a? snúa sér til lækn- is 'íns eða Hwlsuverndarstöðvar- úinur, ef nokku- grunur væri um samband við berklasjúklinga. SÍLDIN Framhald af 16. sESu. IjÓKiir með 1400 og Hamravík með 1600. í kvöld eða nótt var svo von á Kóp með 1100 og Von moð 1400. Til Sandgerði komu s.l. nótt Sigurpáll með 2300 og Jón Garðar með 780. Blaðið átti kvöld tal við Jón Eina 'sson skipMjóra á síldarleit- arskipinu Þorsteini þorskabít. — Hann kvað veiðihorfurnar ekki mjög góðar undir nóttina, þar eð veðor /æri heldur farið að spill- a=t Enn værr bátarnir þó að veiðum, en úr pessu mætti ekkert bræla í viðbót til að hægt yrði að uthafna sig Hann kvað fáa báta vera úti og síldin dálítið eif:ð t. d. helðu fjórir bátar spu-ngt nætur sínar í dag. Afla- h.'r‘'tu skipin í kvöld voru Sólrún með 800 tunnur, Rifsnes með 800 og Elliði með 1300. Sólrún er nú á !e ð til AusU'arða með aflann og er hún fyrsta skipið, sem þang að oeldur, en síldarverksmiðjur þar hafa nýlega tilkynnt að þær hrefn vinnslu. hafi fallið niður til kaupstaðar- ins, þótt veður hafi verið fært, af því að allar flugvélar hafi verið bundnar í ferðum annars staðar. Vonast þeir til að hið nýja flugfélag geti bætt úr þessum ágalla. Framkvæmdastjóri Eyjaflugs hefur verið ráðinn Sigfús J. Johnsen, en hluthafar eru eins og áður segir aðallega ungir Vestmannaeyingar. Stjórn fé- lagsins skipa Sigfús Johnsen, Jón Hjaltason hæstaréttarlög- maður, Vestmannaeyjum og Jón Magnús Jónsson, flugvél- stjóri, Reykjavík. SJÓPRÓFIN Framhald af 16. síðu. stjóm stýrimanns að loka lestar- opum og hurð á hvalbak. Þegar þetta gerðist, var lestin orðin full af síld að aftan, en fremsta stían stjórnborðsmegin hefur sennilega ekki verið orðin full, og getur skipstjórinn sér þess til, að síldin hafi runnið fram með þeim afleiðingum, að skipið lagðist á hliðina. Hallaðist skipið svo mjög, að lestarhlerar héldu ekki, og sjór rann yfir lestina. Þá skipaði skipstjóri að gera gúmmíbátinn bakborðsmegin klár an. Skipið tók að sökkva, og sendi þá skipstjóri út annað kall um, að skipverjar væru að yfir- gefa skipið. Gúmmíbáturinn blés sig út á hvol'fi, og stökk þá Sigurbjörn Ólason, fyrsti vélstjóri, í sjóinn og tókst að rétta hann við. Stukku þá skipverjar einn af öðrum út í bátinn, og þegar hann var kom- inn 2—3 metra frá skipinu, sökk það. Liðu aðeins um 15 mínútur frá því Hringver lagðist á hliðina og þar til hann var horfinn í djúp- ið. Aðeins efri lofthringur gúmmí bátsins blés sig út, og maraði bát- urinn því í hálfu kafi, en aðeins liðu u. þ. b. 5—10 mínútur, þar til Árni Þorkelsson var kominn á vettvang og hafði tekið skipverja af Hringver um borð. 0 Við réttarhöldin í dag kom í Ijós, að Hringver hafði verið ballestaður sérstaklega á síðast liðnu hausti Er nú lokið rannsókn á sjóslys- unum í Vestmannaeyjum í bili, en gúmmíbjörgunarbáturinn af Hringver verður að líkindum send ur til Reykjavíkur á morgun, og verður rannsakað hér, hvers vegna hann blés sig ekki út. REYKINGAR Framhald al 2 síðu skaðlegu áhrif og venjulegir vindl ingar, en filter er á 55% af öll,- um bandarískum vindlingum. — Benti nefndin þó á, að filter hefði ekki verið nægilega lengi í notk- un, til þess að hægt væri að fullyrða algjörlega uin það. Tó- baksframleiðendur í Bandaríkjun- um segja, að þetta mál verði að rannsaka, og að þeir fallist ekki ó þá skoðun, að tóbak sé skaðlegt heilsu manna. Tóbaksiðnaðurinn í Bandaríkjunum er talinn gefa af sér um 8 billjónir dollara árlega. Þó að Iíklegt sé talið, að sala á vindlingum i Bandaríkjunum og víðar muni minnka um skeið, má búast við, að tóbaksiðnaðurinn nái sér á nýjan leik, á sama hátt og brezki tóbaksiðnaðurinn árið 1962, eftir það mikla áfall, sem skýrsla frá Royal College of Physicians var honum. TÍMINN, fimmtudaglnn 16. janúar 1964 — Skák Tals og Inga R. í ANNARRI umferð vann Tal Inga R. Jóhannsson í 26 leikjum í mjög skemmtilegri skák, sem fer hér á eftir: Hvítt: TAL. — Svart INGI R. 1. e4, e5. 2. Rf3, Rc6. 3. Bb5, a6. 4. Ba4, Rf6. 5. o-o, Be7. 6. Hel, b5. 7. Bb3, d6. 8. h3, o-o. 9. c3, Ra5. 10. Bc2, e5. 11. d4, Rd7. 12. Bd2, cxd4. 13. cxd4. Bf6. 14. Rfl, Rc6. 15. Bc3, exd. 16. Rxd4, Rd-e5. 17. Bb3, Rxd4. 18. Rxd4, Bb7. 19. Ha-cl, Rd7. 20. Rg3, He8. 21. Rf5, Hxe4. 22. Rxd6, HxB. 23. Rxf7, HxD. 24. RxDt Bd5. 25. HxH, BxB. 26. HxR, (gefið). Dregið í 1. flokki Miðvikudaginn 15. janúar var dregið í 1. flokki Happdrættis Há- skóla íslands. Að þessu sinni voru vinningarnir 1,400 að fjárhæð 3,400.000 krónur. Hæstu vinningarnir tveir, hvor á hálfa milljón króna komu á heil miða númer 39.837, sem báðir voru sel'dir í umboði Frímanns Frímannssonar, Hafnarhúsinu, Reykjavík. 100,000 króna vinningarnir tveir komu á hálfmiða númer 23.447. Tveir hálfmiðar voru seldir á Stokkseyri og hinir tveir á Eyrar- bakka. 10.000 krónur: 1945 — 2633 9893 — 10173 — 14419 — 15271 30969 — 34696 — 34906 — 39838 42911 — 43554 — 45204 — 45484 50957 — 52221 — 53132. (Birt án ábyrgðar. Víxlar me? ÓJ-Selfossi, 15 janúar. LEIKFÉLÁG Selfoss hefur nú sýnt leikritið Víxlar með afföllum eftir Agnar Þórðarson 12 sinnum austan fjalls og einu sinni að Hlé- garði í Mosfellssveit við mjög góða aðsókn og ágætar undirtektir. Agn ar er líka leikstjóri og hefur hon- um farizt það verk vel úr hendi. Um næstu helgi ætlar leikflokkur- inn að fara upp í Borgarfjörð, og verður leikurinn sýndur að Loga- landi í Reykholtsdal á laugardags- kvöldið og á sunnudag verða tvær sýningar í Borgarnesi. TILLAGNA BEÐIÐ Framhald af 1. síðu. anfarið. Er búizt við, að sam- kvæuit statistík að lungnakrabba tilfe'lum fari fjölgandi á næstu árum. Ráðinn aðstoðarmaður Hjalta hefur verið við nám i Þýzkalandi að undanförnu, en er væntanlegur til starfsins á þessu ári. Ealdur Möller sagði, að árið 1962 hefði heiibrigðismálaráðu- neytinu borizt biéf frá landlækni um hættuna r.f reykingum, og hefði samkvæml hans ráði verið ákveðið gjald til krabbameinsfé- lagsins af sigarettusölu til þess að styrkja starfsemi þess. Landlækn- ir lagði til, að komið yrði í veg fyrir, að Tóbakseinkasalan aug- lýsti vörur sínar, en ráðuneytis- stjó.i sagði, að einkasalan hefði ekki gert það í fjöldamörg ár, þótt ekki sé til bann við því. Einn ig vildi landlæknir, að stöðvuð yrði sala á sígarettum í lausasölu, og taldi að börn og unglingar keyptu þær frekar þannig, en ráðu neyíisstjóri sagði, að ekki hefði ver;ð talin ástæða til að fram- fylgja því, enda þyrfti til þess lög- gjöf. Lausasala á sígarettum mun vera fremur lítil. Samkvæmt upplýsingum Ragn- ars Jónssonar, skrifstofustjóra ÁTVR, hafa sígarettureykingar sí- fellt aukizt ár írá ári, bæði beint og blutfallslega. Til dæmis juk- ust sígarettureykingar um 6,1% á íirinu 1963 þó að sígarettur hækkuðu talsvert í verði á því ári. Camel-sígarettur eru langvin- sælastar, og fjölgaði reyktum Camel-sígaretturn um 21,5 millj. síykkja á s.l. ári. Reyktóbaksnotk- un jg vindlareykingar voru hins vegar svipaðar árið 1963 og árið áðisi Skoðanakönnun, em gerð var í barraskólum í Reykjavík og á Seiijarnarnesi fyrir nokkru, leiddi i ljós, að reykingar barna og ung- linga hafa farið ískyggilega r vöxt á undanförnum árum. Samkvæmt könnuninni, þá er 10. hver 10 ára drengur farinn að reykja og 7. hver 12 ára drengur. Minna er um reylingar stúlkna. En nú má bú- ast við, að skólnbörn fái enn meiri fræðslu en vei ð hefur um skað- sem: tóbaksins á grundvelli .•kýrslu bandavísku vísindamann- anna. FJÁRSVIK Framhald af 16. síðu. Mál þetta er enn á algjöru frum- stigi, og er blaðið hafði tal af rann sóknardómaranum í dag, var hann ekki farinn að kanna gögn cnálsins svo að hann gæti gefið nokkrar upplýsingar um það. Mun hér vera um talsverða upphæð að ræða. HÁKARL Vil kaupa vel verkað- an' hákar). NAUST Sími 17758 og 37580 Þvottavél 28 kg. þvottavél til sölu. Hentug íyrir gallaþvott. t>voftahúsi8 S K Y R T A N Hátúni 2. Sfmi 24866 Ung stúlka óskar eftir vinnu við 'éttan iðnað, eða símavörzlu, sem hún er vön. • Uopl. síma 24T04. Læðurnar i kvöld I kvöid veríiur frumsýning á finnska leikritinu „Læðurnar“ í Þjéðleikhúsinu. Höfundur leikrits ins er Waientin Chorell. Leikstjóri p: Baldvin Halldórsson. Leiktjöld eru gerð af Gunnari Bjamasyni, en pýðandi er Vigdís Finnboga- dóttrr. Leikendur eru alls ellefu konur og fara eftirtaldar leikkon- ur með helztu hlutverkin: Guð- bjöig Þorbjamard., Helga Valtýs- dótiír. Kristbjörg Kjeld, Nína Sveinsdóttir Bsyndís Pétursdóttir Brfot Héðinsdoitir, Brynja Bene- diktcdóttir, Margrét Guðmunds- dóttii, Jóhanna Norðfjörð, Þóra Fviðriksdóttir. Börn Onglingar, eí5a fu1Ior‘ði‘ð fólk óskast til a<S bera blaSi'o út í eftirtalin hví>-r 0 LINDARGAT*5 9 SKIPHQL? Afgrefösla Bankastræti 7 Símar: 12323—18300 ÞAKKARÁVÖRP Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við andláf og jarðarför, Arnheiðar Skaffadóttur _____________________ Systkini hinnar látnu. Útför mannsins míns, Jósefs Björnsronar Svarfhóli, fer fram frá Stafholtskirkju iaugardaginn 18. þ. m. kl. 14. Bílferð verður frá BSÍ um morguninn kl. 8,30. ______________________________ Jóhanna Magnúsdóttir. 15

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.