Tíminn - 16.01.1964, Síða 16
t
BEZT Á SIGL UFIRDI
Fimmtudagur 16. janúar 1964
12. tbl. 48. árg.
FJÁRSVIK A
VELLINUM
KJ-Reykjavík, 15. janúar.
UPPVÍST hefur orðið um um-
fangsmikið fjársvikamál, og eru
íslenzkir og bandarískir starfs-
menn er voru á Keflavíkurflugvelli
viðriðnir málið.
Fjársvik þessi voru í sambandi
við ýmsa samninga í sambandi við
þjónustu og framkvæmdir á vell-
inum, og voru það dollarar sem
sviknir voru út úr varnarliðinu. —
Rannsóknardómari hefur verið
skipaður í máli þessu og er það
Ólafur Þorláksson fulltrúi við Saka
dómaraembættið sem annast mun
rannsókn málsins.
Þeir, sem sviku út féð fölsuðu
nöfn manna á ávísanir og síðan var
þeim framvísað hjá ákveðnum aðil-
um sem greiddu þær umyrðalaust.
Framhald á 15. sfðu.
BÓ-Reykjavík, 15. janúar.
UNGUR, SPÆNSKUR mál-
ari, Andreu Capdevila frá
Barcelona, sýnir nú verk sin í
Mokkakaffi.
Capdevila kom hingað 1962
og hefur dvalið á Siglufirði alla
tíð síðan, nema hvað hann
skrapp til heimalandsins í
fyrra. Hann nam málaralist í
Escuela de Bellas Artes de San
Jorge í Barcelona, hlaut
skömmu síðar verðlaun á saim-
sýningu ungra málara þar í
borg, hélt sérsýningu þar og
fór síðan til Parísar og Amster-
dam, þar sem hann hélt áfram
námi. Sýning á málverkum eft-
ir hann var haldin í New York
1961.
Capdevila sagðist hafa far-
ið til íslands af því að hann
hefði heyrt vel látið af lapdi og
þjóð. f viðtali við blaðið sagðist
hann, þveröfugt við marga út-
lendinga, ekki vilja gefa neina
ANDREU CAPDEVILA
(Ljósm.: TÍMINN-KJ).
yfirlýsingar um reynslu sína
hér. — Það er of snemmt fyrir
mig, sagði Capdevila, ég er enn
að byrja að kynnast; ég vil að-
eins taka fram, að ég kann vel
við mig á Siglufirði. Þar á ég
marga vini, og ég held, að ég
mundi ekki una mér jafn vel
sunnanlands eða í Reykjavík.
Capdevila er kominn vel nið-
ur í íslenzku, skilur hana prýði
lega og talar furðuvel, enda
málamaður. Hann skilur og tal
ar að miklu leyti 6 tungumál.
Hann vinnur í ígripum sem
matsveinn á Hótel Höfn og seg
ir gestum smakkast vel saltfisk
urinn og fleiri réttir, sem hann
býr til á sænskan og franskan
máta.
Myndir Capdeivila eru málað-
ar með olíu-, plast- og vatnslit-
um. Sumar eiga fyrirmyndir í
íslenzkri náttúru. Fimm þess-
ara mynda eru prentaðar með
,,monotype”-aðferð. Myndimar
eru allar til sölu, en þær verða
í Mokkakaffi í hálfan mánuð.
Tekinn í
iandhelgi
KH-Reykjavík, 15. janúar.
VÉLBÁTURINN Haförn VE 23
var staðinn að ólöglegum veiðum
út af Vík í Mýrdal í gær. Land-
helgisgæzluvélin Sif flaug yfir bát
inn kl. 11,27 í gærmorgun, og
Imældist hann ufn 0,6 sjótmílur
innan fjögurra mílna markanna. —
Ekki náðist samband við bátinn,
en málið var tekið fyrir í saka-
dómi Reykjavíkur í dag og síðan
sent til Vestmannaeyja.
SIGLA NÆRRISOLAR-
KRING MED SÍLDINA
, *f<fe*#i\
KJ-Reykjavík, 15. janúar
Það er orðið langt stímið hjá I
síblarbátunum núna þegar þeir
sigla með síldina alla leið af Síðu
grunni og tii Reykjavíkur. Ás-
bjö'ii RE kom fil Reykjavíkur um I
hálffimm í dag og hafði þá verið i
um tuttugu tima á leiðinni og
halði innanborðs 1850 tunnur af
síld sem fór í frystingu og
bræðslu.
Tveir bátar aðrir komu til I
Reykjavíkur í morgun, og von var
á íieiri seinna í kvöld.
Ágæt veiði var í nótt á miðun-
um fyrir austan, og fengu 23 bát
ar samtals 28.350 tunnur.
Viðbúnaður er nú á Austfjörð-
ÁSBJÖRN kom um kl. 5 I gaer fleytlfullur af slld tll Reykjavlkur.
(Ljósm.: TIMINN-KJ).
SJOPROFINIEYJUM: SERSTOK
BALLEST VAR SETT í HRINGVER
KH-Reykjavík, 15. jan.
í dag voru réttarhöld í Vest-
mannaeyjum í má'li Hringvers VE
393, sem sökk að síldveiðum á1
Síðugrunni að morgni 13. janúar
s. 1. Við réttarhöldin kom það m.
a. fram, að báturinn hafði verið
ballestaðun sérstaklega á s. 1.
hausti, bæði með keðjum og öðru.
Eins og fram kom í fréttum af
slysinu, blés gúmmíbjörgunarbát-
ur skipsins sig ekki eðlilega út,
og verður hann þess vegna send-
ur til Reykjavíkur til rannsóknar.
Réttur var settur í sjó- og verzl-
unardómi Vestmannaeyja kl. 10,12
í morgun af Jóni Þorlákssyni, full-
trúa bæjarfógeta, en meðdómend-
ur hans voru Páll Þorbjörnsson
og Angantýr Elíasson.
Richard Sighvatsson, skipstjóri
á Hringver, sagði svo frá í réttin-
um, að um kl. 3 aðfaranótt mánu-
dagsins hefði verið búið að háfa
700 tunnu kast og láta það í lest.
Stuttu síðar var aftur kastað, og
þegar slysið vildi til, var búið að
háfa 400 tunnur úr nótinni og láta
í lest, nema dálítinn slatta, sem
settur var á þilfar á bakborða til
þess að vega á móti þyngslum nót-
arinnar stjórnborðsmegin. Veður
var gott, en talsverð kvika og velt
ingur. Á einni kvikunni tók skipið
skyndilega veltu og lagðist á stjórn
borða. Bra þá skipstjórinn þegar
í stað við og sendi út hjálpar-
beiðni. Meðan hann var að því,
vann skipshöfnin að þvi undir
Framhalo á 15. síðu.
um til að taka á móti síld til
bræðslu þar, og leggja bátarnir
væntanlega leið sína þangað, held
ur uj stíma alia leið til Reykja-
víki'i.
Til Reykjavíkur voru komnir í
kvold Víðir SU, Vigri, Arnfirðing-
ur, \sbjörn og von var á Sigurði
Bjarnasyni með 1500, Helga Fló-
venlssyni 1900, Sigurkarfa 2400,
Engey 1000, Pétri Sig. 1100, Báru
700 og ólafi Mi.gnússyni 1100.
Fngin síld oerst til Akraness,
ends engir Akranessbátar á síld.
Haraldur og Höfrungur koma
af iínu í nótt, er eiga síðan að fara
á síld og verða væntanlega tilbún
ir seinnipartinn á morgun. Til
Kef’avíkur komu tveir bátar í dag
FramhaM ð 15. sl3u.
NY LEITAR-
LfKISÝND
KJ-ReykjavíK, 15. janúar
Lun þessar mundir stendur yfir
sýning á nýrri gerð síldar- og fiski
ieitartækja í Slvsavarnafélagshús
inu á Grandagarði. Er það fyrir-
tæk'ð ATLAS Werke sem sýnir
þarna nokkurn hluta framleiðslu
sinnar. en umboðsmaður verk-
sr.iiðianna hér á landi er Hörður
I ríniannsson rafmagnsverkfræð-
ingur.
Mf.rgir síldvf.ðiskipstjórar hafa
skoðað sýningu þessa og þá eink-
•jm hið nýja *æki Periphon F 4
sem nú er sýnt í fyrsta skipti hér
á landi Það si m einkum skilur
þetva nýja síldarlfitartæki frá öðr-
um, er hve það ’refur mikinn vinnu
hraða, en pað er einmitt bað sem
sjómenn vilja. aS tækið sé fljótt
að finna torfur. og gefa til kynna
hvar þær em. Leitargeisli þess er
2000 metrar með 360 gráðu leitar-
radíus.