Tíminn - 09.02.1964, Blaðsíða 16
Fangahúsin
sem fuglabjarg
KJ-Reykjavík, 8. febrúar
Mikið var um ölvun í Reykja-
víkurborg í nótt, og fylltust allar
fangageymslur lögreglunnar af
drukknum mönnum.
Eitthvað var um smá pústrut
Framhalo á 15 siðu
Mjallhvit og dvergarnir
GB-Reykjavík, 8. febrúar.
Jæja, börnln góð. Nú er að
taka á allri þolinmæðinni, nú
fer að styttast biðin, aðeins
vika eftir þangað til MjalShvit
og dvergatmir sýö birtast á
frumsýningu í Þjóðleikhúsinn,
og sfðan reknr bver sýningin
aðra, svo að þið getið öll séð
þessa gömln kunningja sem
allra fyrst.
Við skruppum út í leikhúsið
í dag, og þá vildi svo til, að
Mjallhvít og dverjarnir voru
fyist þannig til fara sem þau
eiga að vera í leiknum og eins
og þið kannizt við þau úr sög-
unni, og hérna sjáið þið þau á
myndinni, sem Guðjón ljós-
myndarí Tímans tók í dag. Ekki
þarf að kynna hvern og einn af
dvergunum, þið þekkið þá alla.
En þeir, sem leika þá, heita
Árni, Flosi, Gísli, Guðjón Ingi,
Lárus, Sverrir og Valdimar. Og
Bryndís verður Mjallhvít. Leik-
stjórinn er hann Klemens, sem
stjórnaði Kardimommubænum
og Dýrunum í skóginum, og þið
þekkið nú hann. Og gaman er
að geta sagt ykkur það, að sá,
sem þýddi leikritið og öll söng-
ljóðin er enginn annar en hann
Stefán Jónsson, sem orti kvæð-
ið um Gutta og sögurnar um
hann Hjal'ta litla og Óla frá
Framhald á 15. siðu
Línuveiðin sáratreg
FB-Reykjavík, 8. febr.
Gæftir hafa verið mjög slæmar
þessa viku, og línubátarnir aflað
illa. Yfirleitt hafa verið farnir þrír
róðrar og meðalaflinn á bát er
frá þremur upp í sjö lestir.
Akranesbátar eru í þriðja róðri
vikunnar í dag. í hinum tveimur
höfðu þeir fengið 150 og 80 lest-
ir, en bátamir eru 16 talsins.
Línubátum frá Keflavík hefur
gengið illa þessa viku, og eru
þeir almennt í 3. eða 4. róðri i dag.
Aflinn hefur ekki verið meir en
3—7 lesti á bát í róðri. Sandgerð-
isbátar eru í fjórða róðrinum í
Vélsetjari
- ÓSKAST Í PRENTSMiÐJU TÍMANS
Ræða framtíðarskipulag
íslenzka landbúnaðarins
KJ-Reykjavík, 8. febr.
Á föstudagin kom hingað til
landsins prófessor Svardström
frá Uppsala landbúnaðarháskól
anum, en hann er hér til skrafs
og ráðagerða við Búnaðarnefnd
ina svokölluðu sem kosin var
á síðasta hausti til að ræða um
framtíðarskipulag landbúnaðar
á íslandi og stöðu hans í dag.
í nefnd þessari eiga sæti þeir
Sveinn Tryggvason framkvstj.
Framleiðsluráðs landbúnaðar-
ins, Einar Ólafsson bóndi í
Lækjarhvammi, dr. Halldór
Pálsson búnaðarmálastjóri,
Hjörtur Eldjám bóndi Tjörn i
Svarfaðardal, Kiristján Karls-
son erindreki Stéttarsambands
bænda og Siggeir Björnsson
bóndi Holti, Síðu.
Próf. Svárdström er markaðs
fræðingur og kemur hann hing
Framhaltí á 15 siðu
dag. Veiðin hefur verið sáratreg,
en þó hefur einn og einn bátur
fengið sæmilegan afla, -ur "> í 13
lestir, en þá hefur fiskurinn verið
heldur lélegur og mikið um ýsu,
keilu og löngu í aflanum.
Hádegisklúbburinn
— kemur saman í Tjarnargötu 26
á venjulegum tíma næstkomandi
miðvikudag.
Valfells
er ekki
eigandi
IGÞ-Reykjavík, 8. febr.
Tímanum var skýrt frá því í dag j
að Sveinn Valfells, framkvæmda-1
stjóri, væri ekki einn af þremur,
eigendum Dagverðareyrar, heldur
Ástmundur Guðmundsson, bróðir
Sveins í Héðni. Þá var blaðinu enn
fremur skýrt frá því, að hinn gamli
Gáseyrarkaupstaður við Eyjafjörð
hefði komið til tals sem staður
undir aluminíuverksmiðju. Hann
var við ósa Hörgár á sinni tíð, og
Framnalo é 15 slðu
Litlar skemmdir
af leysingum
FB-Reykjavík, 8. febrúar.
Mikiliir vatnavextir og flóð
hafa verið víða um land síðustu
daga vegna leysinga, Héraðs-
vötn fóru yfir veginn hjá Stóru-
Ökrum í Blönduhlíð, Hvítá í
Árnessýslu flæddi yfir bakka
sína og einnig voru nokkrir
vatnavextir austur I Skaftafells
sýslum.
Um síðustu helgi snjóaði mik
ið víðas^ hvar á landinu, og
fram undir miðja viku var frost
og kuldi, en á miðvikudag og
fimmtudag fór að hlýna og var
þá komin sunnanátt og hlýindi,
svo snjóa tók að leysa, komst
hitinn upp í 12 stig á fimmtu-
daginn bæði norðan lands og
austan.
í gær bárust síðan fréttir af
því, að vöxtur hefði hlaupið í
Héraðsvötn í Skagafirði og fóru
þau yfir veginn á 400 metra
kafla við Stóru-Akra. í dag
hafði Vegamálaskrifstofan þær
fréttir að færa, að vatn lægi
ekki lengur á veginum, og
skemmdir 'væru litlar.
Þá flæddi Hvítá í Árnessýslu
yfir bakka sína í gær og varð
Auðsholl umflotið, eins og allt-
af er, þegar vöxtur hleypur í
ána. Féll hún yfir veginn á
kafla, er. flóðið er nú að fjara
út. Smávægilegar skemmdir
urðu á veginum í Laugardal og
við Auðsholt, og sama máli er
að gegnc1 um vegi austur i
Skaftafellssýslum, sem einnig
flæddi yfir í gær, en þar er nú
allt með eðlilegum hætti í dag.
Skýrt frá vallar-
málinu í vikunni
ÍGÞ-Reykjavík, 8. febr.
Ólafur Þorláksson, rannsóknar-
dómari í Keflavíkurvallarmálinu
hefur nú snúið sér til Morgunblaðs
ins og Alþýðublaðsins og skýrt
þeim frá því, að hann muni skýra
blöðum frá gangi rannsóknarinn-
ar í þessari viku.
Eins og kunnugt er, hafa þrír
Framhald á 15. síðu.
ÞESSI MYND var tekin á fundl Búnaðarnefndarinnar I morgun að Hótel Sögu. Á hennl eru frá vinstrl: Einar Ólafsson, próf. Svardström, Sveinn Tryggvason, Hjörtur Kr. Eldjárn, Krlst-
ján Karlsson og Siggeir Björnsson. Á MYNDINA vantar dr. Halldór Pálsson sem var fjarverandi vegna veikinda. (Ljósm.: TÍMINN-KJ).