Tíminn - 11.02.1964, Blaðsíða 5

Tíminn - 11.02.1964, Blaðsíða 5
Islenzki víkingurinn sigldi Rangers í kaf! —Glasgow Rangers tapaði fyrir St. Mirren í fjórða skipti á heimavelli á 74 árum deildarkeppninnar ÞÓRÓLFUR — átti skínandi leik gegn Rangers. Víkingar mættu IR í 1. deild í Í:í landsmótinu í handknattleik á sunnudagskvöld og kræktu í tvó dýrmæt stig. Víkingur vann leik- inn me3 27:24. ÍR saknaSi Gunnlaugs og þá var ekki að sökum að spyrja, að ÍR- liðið átti slæman dag. Engu að síð ur var mikil spenna í leiknum allt til síðustu mínútna. Á laugardaginn mættust Haukar úr Hafnarfirði og Þróttur í 2. deild. Fyrir leikinn höfðu flestir reiknað með Þrótti sem sigurveg ?ra, en það fór á aðra leið. Hauk ar héldu uppi miklum einstefnu- akstri og unnu með yfirburðum, 29:19. Við þessi úrslit færist tnik- il spenna í keppnina í 2. deild — og um efsta sætið berjast Haukar, Þróttur og Valur. Af þessum lið- um standa Haukar bezt að vígi, bafa ekki tapað leik enn þá. HSÍM-10. febrúar. „Þórólfur Beck, hinn knái víkingur frá íslandi, með sokk- ana á hælunum, sigldi inn á Rangers með víkingslund og öryggi forfeðra sinna. Hann skoraði mark fyrir St. Mirren, sem náði við það forustunni eftir að Queen hafði jáfnað. Síð- an kom hann knettinum enn tvívegis í mark Rangers — sem voru dæmd af- Þetta hefði getað orðið stærsti dagurinn í lífi Þórólfs. Bezti maður á vellinum — Þórólfur Beck, St. Mirren". St. Mirren kom mjög á óvart á laugardaginn, þegar liðið sigraði Glasgow Rangers á Ibrox Park með 3:2, í fjórða skipti á hinum 74 árum deildakeppninnar. Og Þór ólfur var einmitt maðurinn á bak við þennan sigur, eins og sést af upphafi þessarar greinar, sem er tilvitnun í skozka blaðið Evening Citizen. Rangers, með alla sína skozku landsliðsmenn, sýndi aldrei þá yf- irburði, sem búizt var við og var frekar heppið að hafa eitt mark yfir í hálfleik. Og fljótlega í síðari hálfleik snerist leikurinn alveg St. Mirren í hag og tvö mörk á 70 sekúndum virtust koma leikmönn- um Rangers úr jafnvægi. Fyrst skoraði miðherjinn Queen og áður en fagnaðaróp áhorfenda voru þögnuð lá knötturinn aftur í marki Rangers. Queen sendi knöttinn fyr ir markið og Þórólfur tók knött- inn á brjóstið á fullri ferð, lét hann falla niður á völlinn áður en hann spymti honum í mark af 10 metra færi. Þetta var á 55 mín. Og á 67. mín. sendi Þórólfur knöttinn í mark — eftir að markvörður Rangers hafði misst ai knettinum í keppni við Queen, en aukaspyrna var dæmd á mið- herjann. Sum skozku blöðin segja, að márkið hafi verið „gott“. Og aðeins mínútu síðar flaug knött- urinn í mark Rangers frá höfði Þórólfs — en dómarinn dæmdi hann rangstæðan án þess línu- vörður veifaði. Áhorfendur púuðu en allt kom fyrir ekki. „Staðan hefði átt að vera 4:1 segir Sunday Mail. Og sókn St. Mirren hélt áfram. Þórólfur lék Tommy Robertson frían, en hinn óreyndi útherji, spyrnti knettinum yfir mark, en á 75 mín. komst St. Mirren í 3:1, þegar Allen skoraði. Dave Wilson skoraði annað mark Rangers þrem- ur mínútum síðar, en þar við sat og fleiri mörk voru ekki skoruð. Önnur Úrslit í leikjum á Skot- landi urðu þessi: Aberdeen—Celtic 0—3 Dundee U.—Partick 1—2 Hibernienan—Dunfermline 0—0 E. Stirling—St. Johnstone 0—1 Sovétríkin stig- hæst í Innsbruck Olympíuleikunum í Inns- bruck lauk á sunnudag og loka greinin var skíSastökk af stór- um palli. NorðmaSurinn Tor- alf Engan bar sigur úr býtum í harðri keppni viS finnska meistarann Kankkonen. Eng- an hlaut 230,70 stig, en Kankkonen 228,90. Eftir tvö fyrstu stökkin var Engan fremstur, en báSum mistókst í síðasta stökkinu svo röðin breyttist ekki. Þá náSi Torgeir Brandzeg góðu stökki, sem tryggði honum þriðju verð- laun. ísknattleikskeppninni lauk einn- ig á sunnudag. Rússar sigruðu Kanadamenn með 3—2 í mjög hörðum úrslitaleik og sigruðu með 14 stigum, en Kanada féll niður í fjórða sæti með 10 stig, eða — Olympíuleikunum lauk á sunnudaginn. maðurinn Engan sigurvegari í stökkkeppni. Norð- sama stigafjölda og Svíar, sem hlutu silfurverðlaun, og Tékkar. Svíar töpuðu fyrir Rússum 4—2 I í mjög hörðum leik og einnig fyr | ir Kanada, en unnu alla aðra leiki. j ' í hinni óopinberu stigakeppni j hlutu Sovétríkin langflest stig eða 162, en Norðmenn voru í öðru sæti með 89,5 stig — allt fyrir karlagreinar, þar sem þeir voru efstir — en Þjóðverjar urðu í þriðja -sæti með 80 stig og gest- gjafarnir Austurríki, í fimmta sæti með einu stigi minna. Rússland hlaut flest gullverð- laun eða 11, Austurríki fjögur, Noregur, Finnland, Svíþjóð, Frakk j land og Þýzkaland þrenn gullverð- í laun hver þjóð Bandaríkin, Hol- ll'and, Kanada og England ein gull- verðlaun Öll framkvæmd Austur- ríkismanna í sambandi við leikana | var með miklum ágætum og er tal j ið að Vetrarleikar hafi sjaldan eða aldrei tekizt betur hvað keppnis- fyrirkomulag snerti. Ujgíræðiskrifstofan Sðnaðarbfenka* ^ijsiisu, IV. hæö Tómasai Arnasonar og Vilhjá ms Arnasonar Kilmarnock—Falkirk 9—2 Motherwell—Dundee 2—2 Queen o. South—Hearts 1—4 Th. Lanark—Airdrie 1—2 Við þetta tap missti Rangers for ustuna í deildinni. Kilmarnock er efst með 39 stig, en Rangers hef- ur einu stigi minna. St. Mirren er í 11 sæti með 21 stig. Á Englandi urðu úrslit þessi: 1. deild: Arsenal—Burnley 3—2 Birmingham—Sheff. W. 1—2 Blackburn—Nott. For. 2—0 Blackpool—Stoke 1—0 Bolton—Fulham 2—1 Ohelsea—Wolves 2—3 Everton—Liverpool 3—1 3— 2 1—1 2—1 4— 0 Leicester—Hanch. Utd. Sheff. Utd.—Aston V. WBA—Ipswice West Ham—Tottenham 2. deild: Cardiff—Sunderland Derby C.—Grimsby Huddersfield—Preston Manch. City—Bury Middlesbro—Swansea Newcastle—Leyton Or. Norwich—Leeds Utd. Plymouth—Charlton Scunthorpe—Rotherham Southampton—Portsmouth Swindon—Northampton Þrátt fyrir tapið er Tottenham enn efst með 39 st. Blackburn hef ur 37 og Liverpool 36. í 2. deild er Sunderland efst með 44 stig, Leeds hefur 42 og Preston 41. 0—2 0—0 2—2 1—1 2—1 3— 0 2—2 1—1 4— 3 2—3 2—3 Drengjameistara- mót í frjálsum Drengjameistaramót íslands í frjálsíþróttum, innanhúss, fer fram í Keflavík sunnudaginn 16. febrú- ar og hefst kl. 3 e.h. Keppnisgrein ar eru þessar: Hástökk með at- rennu. Langstökk. Þrístökk án at- rennu. Hástökk án atrennu. Þátttökutilkynningar skulu send ar Þórhalli Guðjónssyni, Lyngholti 17, sími (92) 2317. Á það skal bent, að áætlunar- bíll fer frá Reykjavík keppnis- daginn kl. 1,15. Regnklæði Síldarpils Sjósfakkar Svuntur o. fl. Mikill afsláttur gefinn Vopni Aðalsfræfi 16 (viS hliSina á bílasölunni) Trúlofunar- hringar afgreiddir samdægurs Senaum i;m ailt land. HALL00R Skóiavörðustig 2 HEILBRIGÐI 0G HREYSTI 3 æfingakerfi frá INDLANDI, sem auka lífsgleði, hreysti og fegurð. Hæfir bæði KÖrlum og konum. i“l „VERIÐ UNG“. Gerir vöxt- inn fagran og stæltan. Æfinga- tími: 5 mínútur á dag. í bók- inni er aðferðinni lýst bæði í texta og myndum. Verið ung kostar kr. 40,—. |“I „LISTIN AÐ GRENNAST". Þér getið auðveldlega létzt um 5, 10, 15 k;g. eða meira. Þetta er ágætis handbók um vanda- mál okkar flestra — offituna. Listin að grennast kostar kr. 30,00. n „AUKNING LÍKAMSHÆÐ- AR“. Ráðleggingar til að hækka vöxtinn, einkum þeirra, sem eru bognir í baki og herðalotn ir. Þeir sem æfa þetta kerfi verða beinvaxnir og fyrirmaip- legir í fasi. Aukning líkams- hæðar kostai- kr. 30.00. Setjið kross við þá bók (bæk- ur) sem þér óskið að fá senda (vipsamlega sendið gjaldið í ábyrgðarbréfi eða póstávísun). Utanáskrift okkar er: Heilbrigði og hreysti, Pósthólf 1115, Reykjavík. Nafn:..................... Heimilisfang: T í M I N N, þriðjudaginn 11. febrúar 1964. —

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.