Tíminn - 11.02.1964, Qupperneq 6

Tíminn - 11.02.1964, Qupperneq 6
TÓMÁSí KÁRtSSON RITAR ÆSKULÝÐSRÁÐSTEFNA Fyrir helgina flutti Páll Þorsteinsson framsögu- ræSu í Sameinuðu þingi fyrir tillögu til þingsálykt unar um að kölluð verði saman æskulýðsráð- stefna til að ræða og gera tillögur um aðgerðir til að bæta ástand æskulýðs mála, en tillögu þessa flytur Páll ásamt fleiri þingmönnum Framsókn- arflokksins. Ræða Páls fer hér á eftir: Það, sem mestu máli skiptir með hverri þjóð, er manngildi þjóðfél'agsþegnanna og að hver maður fái sem bezt notið hæfi- leika sinna til farsældar fyrir hann og eflingar þjóðinni. Hjá fámennri þjóð eins og íslendingum, þar sem| nærri óþrjótandi verkefni bíða úrlausnar, þarf að vera valinn mað ur í hverju rúmi. Hæfileikar manns eru þó ekki einhlítir til að tryggja farsæld hans, ÖLI áhrif á félaga- og samvistarmenn eða heill'avænlegt starf. Hegðun, starfs- hættir og framkoma í félags og skemmtanalífi ræður miklu um giftu, manndóm og gildi einstakl- ingsins í þjóðfélaginu. Hinir ungu I eiga að erfa landið, hverju góðu j heimili er annt um þau ungmenni, sem þar alast upp. Á sama hátt þarf ríkisvaldið og þjóðarheildin að láta sér umhugað um æskufólk ' ið, búa því góð skilyrði til mennt- unar og þroska, laða það að holl- um viðfangsefnum og veita að- hald, ef það leggur út á óheilla- vænlega braut. Af hálfu íslenzkra stjórnvalda, ýmissa félagasamtaka og einstaklinga, hefur þessu verið nokkur gaumur gefinn. Á síðari árum hefur íslenzka þjóðin íagt mikið af mörkum til að búa æsk- unni góð skilyrði til menntunar og félagslífs. Skólar hafa verið ★★ Björn Pálsson kvaddi sér hljóðs utan dagskrár og greindi frá því, að nú væri verið að fara með Sturlaug Böðvarsson, útgerðar- mann á Akranesi í tukthús vegna þess, að hann „vildi ekki moka verðmætum í sjóinn“, eins og Björn orðaði það. Sturlaugur hefði flutt út fersksíld, en matsvottorð ekki verið í lagi og hon- um þá bannað, af viðskiptamálaráðuneytinu, að sclja sfldina á fersksfldarmarkað í Þýzkalandi, heldur skyldi hún sett í bræðslu. Sturlaugur hefði engu að síður selt sfldina sem fersksfld og kaupendur vottað að um 1. fl. vöru hefði verið að ræða. Fyrir þetta var Sturlaugi gert að greiða 14 þús. króna sekt og skyldi 32 daga varðhald koma til vara. — Sturlaugur virðist ekki hafa greitt sektina, því að Björn Pálsson fullyrti að verið væri að fara með hann í fangelsi. Krafðist Bjöm þess, að ríkisstjórnin gripi í taumana og ,,svæfði" málið. ★★ Við umræður um stofnlánadeild landbúnaðarins sagði Bjöm Pálsson enn fremur, að til lítils væri fyrir bændur að stækka búin, þegar þeir bæru ekki meira úr býtum, þótt þeir ykju framleiðslu sína. Enn fremur deildi hann á Sjálfstæðisflokkinn fyrir að hafa stytt lánstíma og hækkað vexti á stofnlánum land- búnaðarins en þessu hefði verið bætt ofan á 70*% hækkun á verðlagi. Svo hlyti að fara að bændur gætu ekki lengur staðið í skilum, ef svo færi fram lengur og taldi ekki vanþörf á því, að telja kjark í bændur. ★★ Eysteinn Jónsson sagði að fullyrðing landbúnaðarráðherra, að ástandið í landbúnaðinum væri aldrei betra en núna, væri hin beiskasta storkun í garð bændastéttari>nar. Ráðherrann hefði valið sér furðulegt hlutskipti með þessu og ekki von á góðu um framgang mála bænda hjá ríkisstjórninni, ef ráðherrann héldi slíku fram, á sama tíma og allir þeir, sem til mála þekkja vita, að ástandið er að verða óbærilegt. Þá taldi Eysteinn óhjá- kvæmilegt að leiðrétta verðlagsgrundvöllinn. Fjöldi liða þar væru nú hvergi nærri veruleikanum. Verðlagsbyltingin hefði grafið grunninn undan afurðasölulöggjöfinni. Nú hefur frysti- húsum og togurum verið veitt aðstoð, en hvernig væri að ráð- herrann beitti sér fyrir því, að landbúnaðinum yrði veitt svipuð aðstoð og leggði eitthvað af þeim hundruðum milljóna, sem ríkisstjórnin hefur nú í greiðsluafgöngum, sem búið er að taka af þjóðinni í sköttum. Peningana skortir ekki en það er sagt að það megi ekki nota þetta fé t.d. til að styðja að aukinni rækt- un, því það á að skapa ofþenslu. Minnti Eysteinn i þessu sam- bandi á helztu málin, sem Framsóknarmenn hafa flutt er miða að auknum stuðningi við landbúnaðinn. ★★ Ólafur Jóhannesson minnti á tillögu, sem hann flutti á sínum tíma um athugun á verðtryggingu sparifjár, við 1. umræðu um frumvarp Jóns Þorsteinssonar um sparifjársöfnun ungmenna- Taldi Ólafur að verðtrygginguna þyrfti að athuga vel í sam- bandi við frumvarpið, sem væri byggt á ágætri hugmynd. — Ástandið í efnahagsmálum hefur verið þannig undanfarin ár, að ekki hefur verið sérlega freistandi fyrir menn að safna spari- fé því verðbólgan hefur enga leikið verr en sparifjáreigendur og er þetta ein aðal meinsemdin í efnahagskerfinu. reistir, félagsheimilum og öðrumj sámkomuhúsum komið á fót, j íþróttamannvirki gerð og samgöng ur bættar, en það greiðir fyrir félagsstarfi á stórum svæðum. Barnaverndarnefnd hefur unnið gott starf á sínu sviði. Ýmsir upp- eldisfræðingar, æskulýðsleiðtogar, kennarar og kennimenn kirkjunn- ar hafa jafnframt beitt sínum áhrifum til að leiða æsku lands- ins á réttar brautir. Vissulega ber allt þetta mikinn árangur. Á tveim síðustu áratugum hafa ungmennin haft miklu meiri fjár- muni milli handa en nokkur kyn- slóð önnur á uppvaxtarárum hér á landi. Það veitir mörg ný tæki færi, en ýtir um leið undir það, að þeir, sem ístöðulitlir eru, falli fyrir freistingum, eyðslusemi og óreglu. Það er og augljóst, að í sambandi við skemmtanir, félags- líf og tómstundir æskufólks, eru margþætt vandamál og annmarkar, sem virðast fara vaxandi með hverju ári sem líður. í daglegu lífi og víðar í þjóðfélaginu birtist spegilmynd þessara vandamála. Nægilegrar hófsemi er ekki gætt. Félags- og skemmtanalíf æsku- fólks er ekki ávallt með þeim menningarbrag sem skyldi og ytri skilyrði veita aðstöðu til. Áfengis nautn er áberandi í skémmtanalíf inu og ekki sízt, ef,.,Iöggígzla á samkomum er takmörkuð eðá eng- in, svo að veikar eru variíir að því leyti Þess eru dæmi, að svo keyri úr hófi fram, að á skemmti- ferð ungmenna á friðsæla staði úti á landi, svo sem í Þjórsárdal, verði svo mikil vandkvæði af um- gengni og framkomu manna og séu gerð þau spjöll, að dómsmála- stjórn og lögregla verði að gera gangskör að gaumgæfilegri athug- un. Margháttuð afbrot unglinga fara því miður vaxandi. Af sama toga er spunnið, þótt fulltíða menn kunni stundum að eiga í hlut, inn- brot, óleyfilegur bifreiðaakstur, er stundum leiðir til umferðarslysa, ávísanafalsanir, er mikið hefur orðið vart við að undanförnu. Þannig er ytra borð þessara marg þættu vandamála. Hin hliðin er ekki jafnáberandi, en spegilmynd hennar er þó ekki síður alvarleg. Of mikið hirðuleysi við nám og starf, vaxandi ístöðuleysi æsku- mannsins gagnvart skaðlegum nautnum, glataðar vinnustundir til tjóns fyrir einstakling, heimili og þjóðfélag, áhyggjur fjölskyldu og vandafólks út af velferð æsku- mannsins og því, hvert braut hans muni leiða, jafnvel þung raun á heimilum. Rikisvaldinu ber skylda til að gefa þessu gaum og hafa for ustu um, að leitað sé að sem flest- um leiðum, sem færar eru til að breyta hér um til bóta. Þær leiðir hljóta annars vegar að stefna að því marld að leiðbeina, laða æsku- fólk til hófsemi og menningarlegra hátta í félags- og skemmtanalífi og hins vegar með vissum ráðstöf- unum dfaga úr áhrifum þess, er reynist viðsjált á vegum ungmenna og veita nauðsynlegt aðhald með aukinni löggæzlu og fleira Hér verður ekki gert yfirlit um þær leiðir og þau ráð, er til greina koma, enda er það samkv. till. hlutverk æskulýðsmálaráðstefnunn ar að benda á leiðir. Nokkur at- riði vil ég þó nefna. Ótvíræð reynsla sannar, að hætt an er mest á því sviði, sem hér um ræðir, þegar Bakkus er með í för. Það, sem fyrst kemur til at- hugunar í þessum efnum, er að draga úr áfengisneyzlu og tak- marka að miklum mun frá því, sem nú er, möguleika æskumanna til að komast yfir áfengi. Þetta verður að gera, bæði með breyt- ingum á áfengislögum o gstrang- ari framkvæmd á áfengissöslu og vínveitingum. Ríkið hefur einka- sölu á áfengi og ríkisvaldinu ber að hlutast til um þetta. Frumv. um breytingar á áfengislögum, sem nú liggur fyrir Alþingi, stefn ir að mínum dómi í rétta átt. Rík- isvaldið gæti mælt fyrir um og haft eftirlit með, að í öllum skól- um, sem ríkið kostar eða styður fjárhagslega, sé aukin fræðsla um bindindismál og gott fordæmi gef- ið um hófsemi. Þegar þess er gætt, að í framhaldsskólum landsins sitja samtals um 20 þús. nemendur, verður augljóst, hve skólarnir eru áhrifaríkur aðili á þessu sviði. Nið urstöður nefndar þeirrar, sem rannsakaði atburðina í Þjórsárdal s. 1. sumar, eru vafalaust góð leið- beining, en þær niðurstöður eru m. a. þessar: Aukin verði félagsleg fræðsla og félagsstarfsemi í unglinga- og fram haldsskólum undir forustu hæfra leiðtoga, sem sinni félags- og tóm- stuhdaþörfum nemenda, bæði á skólatímanum og á sumrum. Æsku lýðsstarfsemi á vegum bæja og sveitafélaga, svo sem Æskulýðs- ráðs Reykjavíkur og fleiri bæja, verði í auknum rnæli beint inn á þau svið, sem skólar og frjáls fé- lagasamtök ná ekki til. Leitazt verði við að auka stuðning af hálfu hins opinbera til félaga, er starfa að æskulýðsmálum, svo að þau geti sinnt betur' því hlutverki að sjá ungmennum fyrir hollum og þroskandi tómstundastörfum. Kleift væri að koma á fót í höfuð- borginni, þar sem fjölmennið er mest, félagsheimilum, þar sem haldið væri uppi undir opinberu eftirliti félagsstarfi og skemmtun- um, er orðið gæti til fyrirmyndar með það fyrir augum að ná þeim markmiðum, er stefna þarf að. Með samstilltu átaki og skipulegu þarf að gera menningarstarfsemi í félagsheimilunum úti um land fjölþættari en nú er með því t. d., að þau fái notið í vaxandi mælí lista í ýmsum greinum með heim- sókn þjálfaðra manna frá höfuð- borginni Þá verður og einnig, ef vel á að fara, að draga úr áhrif- um þess sem viðsjált reynist á vegum æskumanna. Kvikmynda- húsin eru eftirsóttir skemmtistað- ir. Allmikið þykir að því kveða, að myndir séu valdar meira með tilliti til væntanlegra tekna en menningarlegs gildis. Þessu þyrfti að gefa meiri gaum en gert hefur verið. Þess þarf stranglega að gæta, að sölustaðir sælgætis og gosdrykkja séu ekki settir í næsta nágrenni við skóla eða aðrar menn ingarstofnanir og óhjákvæmilegt er að auka og efla löggæzlu á sam- komum hvarvetna um landið. En til þess að ráðstafanir, sem gerðar eru á þessu sviði, beri góðan ár- angur. þarf almenningsálitið að standa að baki ríkisvaldinu. Hér þarf þjóðlegar vakningar í þessum efnum. Einstakir áhugamenn, stofn anir og félagssamtök hafa opin Páll Þorsteinsson augu fyrir þeim vanda, sem hér er rætt um á sviði uppeldismála og þjóðlifs og þessir aðilar'leggja sig fram við að koma á breytingum til bóta, en samvinna þeirra á milli er allt of lítil, svo að átökin verða dreifð, en skipulegt sam- starf margra aðila, er allir vilja ná sama marki, er líklegast að dómi okkar flm. til góðs árangurs, þar sem viðfangsefnið er svo vax- ið, að sækja verður gegn straumi aldarandans. Við leyfum okkur því að leggja fram svohljóðandi till. til þál.: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórn að kveðja til ráðstefnu, er hafi það verkefni að taka til ræki legrar athugunar hin margþættu vandamál í sambandi við skemmt- anir, félagslíf og tómstundir æsku fólks og gera till. til úrbóta. Ríkis- stjórnin skipar 25 fulltrúa til setu á ráðstefnunni. Skipan þeirra skal vera með þessum hætti. Ríkis- stjórnin skipar einn fulltrúa án til- nefningar og skal hann vera for maður, aðrir fulltrúar séu skipað- ir samkv. till. aðila, en þeir eru þessir: Alþingi 4 fulltrúar, þ. e. 1 frá hverjum þingflokki, Kvenfé- lagasamband íslands 5 fulltrúar, þ. 1 úr Reykjavík og 1 úr hverjum landsfjórðungi og svo eftirtaldir aðilar tilnefni 1 fulltrúa hver: Kirkjuráð, Háskólaráð, Samband framhaldsskólakennara, Samband ísl. barnakennara, Ungmennafélag íslands, íþróttasamband fslands, Æskulýðsráð, Stórstúka íslands, Rithöfundasamband íslands, Al þýðusamband íslands, Stéttarsam band bænda, Farmanna og fiski mannasamband íslands, Landssam band iðnaðarmanna, Samband ísl verzlunarmanna, lögreglustjóm Reykjavíkur. Nú skorast aðili und an tilnefningu fulltrúa og skipar þá ríkisstjórnin í það sæti. Ráð- stefnan skal fela 5 manna nefnd úr hópi fulltrúa að starfa milli funda. Ríkisstjórnin hefur yfirum sjón með ráðstefnunni og sér henni fyrir hæfilegri aðstöðu til starfa. Ráðstefnan skal hafa lokið störfum fyrir 1. október 1964 og sent till, sínar ríkisstjórninni, en hún leggur þær fyrir Alþingi. Starf fulltrúa sé ólaunað, en þókn- un til 5 manna nefndar og annar kostnaður við ráðstefnuna, þar á meðal ferðakostnaður fulltrúa, greiðist úr ríkissjóði“. Með till. þessari er stefnt að því að leita eftir uppástungum og áhrifum að þessu leyti, sem víðast Framhald á 15. sfSu. T í M I N N, þriðjudaginn 11. febrúar 1964. —•

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.