Tíminn - 11.02.1964, Síða 13
Skaftfellingaféiagið í Reykjavík og nágrenni
ÁRSHÁTÍÐ
félagsins verður háð að Hlégarði laugardaginn 15-
þ.m. og hefst með borðhaldi kl. 7,30 síðdegis.
Ferðir frá BSÍ kl. 6,30. Miðar seldir að Freyju-
götu- 27 miðvikudag og fimmtudag kl. 5—7 síð-
degis.
Félagar! MætiS sfundvíslega-
Takið með ykkur gesti.
Stjórnin
Vélritunarstúlkur
Stúlkur vanar vélritun óskast nú þegar.
GOTT KAUP
Dagblaðið Tíminn
\ '
ALLT Á SAMA STAÐ
BIFREIÐALYFTUR
STUÐARALYFTUR
VERKSTÆÐISLYFTUR
Sendum gegn kröfu
Egill Vilhjálmsson h.f.
Laugavegi 118 — Sími 2-22-40
.uiyU aií-
Nauðungaruppboð
verður haldið eftir kröfu Guðmundar Péturssonar
hrl. við Vélsmiðju Eysteins Leifssonar, Laugavegi
171, hér í borg, miðvikudaginn 19. febr. n k. kl.
1,30 e.h.
Seld verður J.C-B.-4C skurðgrafa á hjólum til-
heyrandi Malarveri s.f.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
íbúð óskast
1—2 herb., og eldhús ósk-
ast um næstu mánaðamót
eða fyrr. fyrir eldri konu,
reglusama.
Tilboð mei;kt: ,,Skilvís“ —
leggist inn á afgr. Tímans
fyrir laugardag-
14 ára drengur
óskar eftir útivinnu í sveit
frá miðjum júní til miðs
september. Hefur verið 8
sumur í sveit og vanur
allri algengri vinnu. Tilboð
sendist blaðinu merkt:
Sveitadrengur.
Kísilhreinsun
Skipfing hifakerfa
AlhliBa pípulagnir
*itmi 17041
SKIPAÚTGCRB KIKISINS
Ms. Hekla
fer austur um land í hringferð
15. þ.m. Vörumóttaka í dag og
árdegis á morgun til Fáskrúðs
fjarðar, Reyðarfjarðar, Eski-
fjarðar, Norðfjarðar, Seyðis-
fjarðar, Raufarhafnar og Húsa-
víkur. Farseðlar seldir á föstu
dag.
Jörð til sölu
Jörðin Tungukot 1 Kirkju-
hvammshreppi er til sölu
og laus til ábúðar í næstu
fardögum.
Upnlýsingar gefur eigandi
jarðarinnar, Torfi Einars-
son, Tungukoti, sími um
Hvammstanga.
Á VÍÐAVANGI
þar sem er Magnús nokkur á
Þjóðviljanum, og segir hann að
Eykon hafi ákveðið að gefa
dómféð Menningarsjóði blaða-
manna fyrir sálu sinni ,en Einar
sé flekklaus eftir sem áður.
Eykon sér, að ekki dugir annað
en svara þessu með heilli for-
ystugrein í Mogga og segir, að
þetta sé misskilningur, því að
auðvitað sé féð gefið fyrir sál
Einars — og veiti ekki af.
Nú eru komnar þrjár forystu
grcinar um málið, og stendur
upp á Þjóðviljann, en slagurinn
virðist aðeins, standa um það
nú orðið, fyrir hvotrs sál, Einars
eða Eykons, féð hafi verið gef
ið ,en augljóst, að báðir eru í
sálarháskanum. Ætli þeir gætu
nú ekki sætzt á það, að þetta sé
sami sálarháskinn, og hann nái
yfú allt bilið milli þeirra al'lra,
Einars, Stalíns, Eykons og
Göbbels.
Boilur og mjólk
í gær vair bolludagur. Hann
er gamall barnasiður og er lít-
ið við því gamni nema gott að
segja. Hitt er verra, hve þessi
siður þessa sakleysislega tjrili-
dags verður mikil fésuga á al-
menningi. Bollan kostar kr. 6,50
en mjólkurlítrinn kr. 6,20. En
hve margir ætli vildu skipta á
mjólkurlítra og rjómabollu
svona daglega? Það þykir kurt
eisi góðra kaupmanna við góða
viðskiptavini að reyna ekki að
gera sér dagamun þcirra að fé-
þúfu
i SLAGSMÁL
ljóst er, að þetta á við um ná-
grannalönd Kína í Asíu, til
dæmis Kóreu og Vietnam. En
þegar í Indlandi verða kín-
versku fræðin ekki eins nota-
drjúg. Og það er ótrúlegt, að
Kínverjar viti nægilegt um
Afríku eða Suður-Ameríku til
að þeir geti haft nokkra rök-
studda skoðun um það, hvern-
ig aðferðir þeirra myndu reyn
ast þar.
MÖRG atriði munu skera úr
um það, hvort Kínverjum
takast eða mistakast áfortn sín
í Afríku og Suður-Ameríku.
Eitt þeirra er maðurinn sjálf-
ur. Mér finnst það táknrænt,
að einmitt þeir menn, sem
Kínverjar lögðu sig mest fram
við að halda vinfengi við, vora
þeim óskiljanlegastir og mest
framandi af öllum.
Afríkubúarnir líta á einangr
unina og kynferðislegan tepru-
skapinn sem merki um kyn-
þáttamisrétti, og það ekki al-
veg að ástæðulausu. Það, setn
Kínverjar lita á sem eðlilegan
og óhjákvæmilegan aga, telja
Afríkubúar og Suður-Ameríka-
menn vera frelsisskerðingu og
þvin.gun. Meginhugtök eins og
„frjálsræði", „ábyrgð“, „skyn-
semi“ og „sannleikur“ hafa
gerólíkar merkingar hjá þess-
um ólíku manngerðum. Kin-
verja skortir að sjálfsögða
ekki eiginleika eins og feimnis ;
laust hreinskilni, hlýja mun-'
aoarkennc, kímni. hljómskyn,
en þeir hafa þróazt hjá þeim
á allt annan hátt en meðal
Afríkubúa og Suður-Ameríku-
manna. Sorgarsaga „Chiles" og
slagsmálin í Friðarhótelinu eru
tvö dæmi af mörgum um þá
árekstra ólíkra skapgerða og
lífshátta, sem ég held að eigi
eftir að valda Kínverjum mikl-
um erfiðleikum, er þeir búa
sig undir að taka við forystu
í heimi hinna vanþróuðu landa-
UNDERHAUG
kartöflusetjarar
Þeir bændur, sem hafa hug á að kaupa kartoflu-
setjara í ár, sendi vinsamlegast pantanir sínar,
sem allra fyrst, eSa fyrir miðjan febrúar.
ARNl GE6TSSQN
Vatnsstíg 3 — Sími 11555-
Tilkynning
Að gefnu tilefni ítrekar Húsnæðismálastjórn fyrri
tilkynningu sína um, að hér eftir verða allar teikn-
ingar sem berast með lánsumsóknum að vera árit-
aðar af viðkomandi byggingaryfirvöldum, bygging-
arnefndum.
Með hliðsjón af framansögðu er því hér eftir til-
gangslaust að sækja um lán út á hús eða einstakar
íbúðir sem ekki hafa hlotið samþykki fyrrgreindra
aðilja.
Húsnæðismálastofnun ríkisins
Duglegur
PLÖTUSMIDUR
óskast.
Vélasjóður, sími 41487
BÚKAMARKAÐUR
Þeir útgefendur sem ætla að taka þátt í Bókamark-
aðnum, Listamannaskálanum, vinsamlegast hafi
samband við annan hvorn undirritaðan sem fyrst.
Bókamarkaðurinn Listamannaskálanum
Lárus Blöndal, 1-56-50
Jónas Eggertsson, 2-21-88
T I M I N N, þriðjudaginn 11. febrúar 1964. —
12