Tíminn - 11.02.1964, Qupperneq 16
Þriðjudagur 11. febrúar 1964
34. tbl.
48. árg
HAFNARGERÐINNI
í RIFIMIÐAR VEL
HF-Reykjavík, 10. febrúar.
Framkvæmdum miðar nú jafnt
og þétt áfram við hafnargerðina í
Rifi, nú er verið að setja ankerin
FJORTAN ARA DRENGUR
DRUKKNARf SUNDLAUG
Laugarási, og kennari á staðnum i istæki kl. 16.45, en kl. 19 var lífg-
hóf strax lífgunartilraunir. Lög- unartilraunum hætt, og höfðu
reglan á Selfossi kom með súrefn-1 þær þá ekki borið neinn árangur.
Jón Einarsson: útlitið
gott, en síldin er stygg
FB-Reykjavík. 10. febrúar
f gær varð það slys í sundlaug-
inni að Reykholti í Biskupstung-
um, að 14 ára piltur, Pétur Péturs-
son Höfðaborg 11 í Reykjavík
drukknaði. Pétur liafði að undan-
förnu dvalizt að Felli í Biskups-
tungum.
Eftir hádegið í gær sagði Pétur
fólkinu á Felli, að hann ætlaði
í sundlaugina að Reykholti, en við
sundlaugina er enginn sérstakur
sundlaugarvörður. Um kl. 15,40
tók ráðskonan í Reykholti eftir
því, að sundgleraugu flutu í laug-
inni, og hafði Pétur átt slík gler-
augu.
Þegar var gerð leit að drengnum
og fannst hann á botni laugarinn-
ar, og var ekki lífsmark með hon-
um. Læknir var þegar sóttur að
Hjólbörðum
stoliö fyrir
30 þús. kr.
KJ-Reykjavík, 10. febrúar
Fjögur innbrot voru fram
in í Reykjavík á laugardags
kvöldið og aðfaranótt sunnu
dagsins. Þá var einnig stolið
þyem bifreiðum, og fundust
þær allar hér í bænum og
nágrenni.
Mestum verðmætum var
stolið úr Hjólbarðaverkstæð
inu Hraunholti við Mikla-
torg, um 15—20 nýjum hjól-
börðum að verðmæti ca. 30
þús. krónur.
Þá var brotizt inn í Hrann
arbúð við Blönduhlíð og
stolið þaðan nokkrum hundr
uðum króna. Inni í Blesu-
gróf var eitt innbrotið, en
þar var engu stolið. Aftur
é, móli var stolið tveim köss
um af niðursoðnum matvæl
um hjá Silla og Valda á
Bröttugötu. Lögreglan góm
aði þá með fenginn og setti
þá inn í Síðumúla.
Á laugardagsjívöld urðu
einhver átök í heimahúsi og
kærði maður nokkur, sem
þar var, annan mann fyrir
órás og rán.
FB-Reykjavík, 10. febrúar
Jón Einarsson, skipstjóri á Þor-
steini þorskabít, sagði á áttunda
tímanum í kvöld, að síldarbátarn
ir væru rétt að byrja að kasta
veðrið hefði verið gott það sem
af var dagsins, og héldist veðrið,
væri útlitið sæmilegt.
Sindri /
landhelgi
FB-Reykjavík, 10. febrúar.
Vélbáturinn Sindri frá Vest-
mannaeyjum var tvisvar staðinn
að meintum ólöglegum veiðum
innan fiskveiðitakmarkanna í síð-
ustu viku, og í bæði skiptin út af
Vík í Mýrdal. Mál skipstjórans
hefur verið tekið fyrir í Vest-
mannaeyjum, og játaði hann síð-
ara brot sitt, en þá stóð varðskipið
Ægir hann að veiðum. í fyrra
skiptið var það flugvél landhelgis
gæzlunnar, sem tók bátinn, og hef
ur skipstjórinn ekki játað á sig
brot í það skiptið. Hefur hann nú
farið fram á frestun málsins til
fimmtudags.
Skyndifundurínn
KH-Reykjavik, 10. febrúar.
Skyndifundurinn, sem skandí-
navísk flugmálayfirvöld boðuðu til
í tilefni af fargjaldalækkun -Loft-
lpiða, hófst í Stokkhólmi í dag.
Eins og Tíminn skýrði frá í gær,
sækja Agnar Kofoed-Hansen, flug-
málastjóri, og Martin Petersen frá
Loftleiðum þennan fund af hálfu
íslands. Ekkert var að frétta af
fundinum í kvöld og ekki vitað,
hve lengi hann stendur yfir.
— Það var lóðað 4 töluvert af
síld í dag, en hún er nokkuð stygg,
svo ekki er gott um það að segja,
hvernig veiðin gengur í nótt. Síð-
ustu nótt fengu 26 skip samtals
21.650 tunnur, og má það teljast
góð veiði.
— Nú eru innan við 20 bátar
héma á miðunum, en ég býst við
að verði reitingsafli í nótt.
Danir stofna Fær-
eyska flugfélagið
Aðils-Kaupmannahöfn, 10. febr.
Kvöldblað Berl'ingske skýrði frá
því, að stofnað hefði verið í Kaup
mannahöfn nýtt flugfélag, sem
annast muni vöruflutninga til Fær
eyja. Hlutafé hins nýja félags er
90 þúsund danskra króna, og
stjórn þess er skipuð þremur mönn
um, sem allir eru búsettir í Dan-
mörku. Hlutabréfin hljóða á nafn.
Danskt nafn hins nýja flugfélags
er Færösk flyveselskab, eða Fær-
eyska flugfélagið.
í þilið og jafnframt starfar 100
tonna krani við það að grafa frá
þeim.
Hafnargerðin hófst í kringum
miðjan október í haust og má því
segja, að miðað við árstímann
gangi verkið vel. Stálþilið, sem
rekið hefur verið niður, er 150
metrar á lengd, og nú um miðjan
mánuðinn er von á sanddæluskip
inu Sandey, sem mun hreinsa upp
þann sand, sem ekki er alveg við
þilið sjálft. Nú þegar er búið að
hreinsa sand af 70.000 tenings-
metra svæði, en í allt verður það
1 kringum 100.000 teningsmetra
svæði, sem hreinsað verður af
sandi. Verkstjóri við hafnargerð-
ina er Bergsveinn Breiðfjörð.
Úrslit í stúdenta-
ráðskosningunum
JK-Reykjavík, 10. febrúar.
Stúdentaráðskosningar fóru
fram á laugardaginn. Atkvæði hafa
verið talin og féllu þau þannig:
Guðfræðideild: Þórhallur Hösk-
uldsson 12 atkvæði (kjörinn) og
Guðjón Guðjónsson 11 atkvæði.
Lögfræðideild: Jón Oddsson 60 at-
Framhalc é 15 siðu
Surtur til-
komumikill
frá Skógum
FB-Reykjavík, 10. fetorúar
Ekki urðu Eyjabúar varir
við Surt í dag, enda var
skyggni ekki sérlega gott.
Þó mun Surtur ekki hafa set
ið auðum höndum, því flug
maður á vél Flugfélags ís-
lands, sem þarna flaug yfir
í dag, sagði að gosmökkur-
inn hefði borið við himin
skýjum ofar. Mökkurinn var
hvítur eins og frá gufugosi,
en ekkert sást til eldstöðv-
anna sjálfra úr vélinni
vegna skýjanna.
Jón R. Hjálmarsson skóla
stjóri í Skógum undir Eyja-
fjöllum sendi blaðinu línu,
og sagði, að það hefði verið
tilkomumikið að sjá gosið
úr Surti að undanfömu. —
Hefði verið forvitnilegt fyr-
ir nemendur Skógaskóla að
fylgjast frá degi til dags
með reykmekkinum, sem rls
úr hafi í suðvestri og ber
rétt austan við Skóganúp-
mn. —Gosið blasir vet vio
úr gluggum skólans og þeg-
ar mökkurinn svífur frá Sést
Surtsey greinilega, sagði
hann að lokum. Sigurður Sig
urjónsson tók myndina.
TII vinstri er Jóhann H. Jóhannsson, formaður L.M.A., í hlutverki Kirbys,
------------------------------ og t. h. Einar Haraldsson sem Poui. (Ljósm.: EðvarS Slgurgeirsson).
„ERÁMEÐANER” MJÖG
VEL TEKIÐ Á AKUREYRI
HS-Akureyri, 10. febr.
Leikfélag Menntaskólans á Ak-
ureyri hefur um árabil fært upp
eitt leikrit á ári, og hefur það verið
kærkomin tilbreýting í okkar fá-
breytta leiklistarlífi, enda hafa
bæjarbúar sótt þessar sýningar
með ágætum.
Sl. miðvikudagskvöld frum-
sýndi L.M.A. gamanleikinn Er á
meðan er eftir Kaufmann og Hart
og held ég, að mér sé óhætt að
segja, að sjildan hafi tekizt jafn
vel með skólaleik hér. Má það að
sjálfsögðu þakka leikstjóranum,
Jónasi Jónassyni, sem stjórnaði
nú Ieikriti hjá L.M.A. í fjórða sinn,
en einnig er hlutur leikaranna 19
mjög góður, þegar á heildina er
litið. Æfingar á leiknum stóðu að-
eins yfir í hálfan mánuð.
Framhald á 15. siðu.
AKRANES
Framsóknarfélag Akraness heldur
fund í Framsóknarhúsinu að
Sunnubraut 21 n.k. miðvikudags-
kvöld kl. 3,30. Fundarefni: Fjár-
hagsáætlun ársins 1964 og önnur
bæjarmál. Stuðningsfólk Fram-
sóknarflokksins er velkomið á
lundinn.