Tíminn - 14.02.1964, Page 5
MINNÍNG
Ari Kristinsson
sýsBumaður
Það var sem liögg byldi á brjósti
mér, ,'þegar ég sá fréttina um hið
slkyndiléga fráfall bekkjarbróður
mtíis,,Ara sýslumanns Kristinsson-
ar. Svo þung og átakanleg var
þessi harmafregn fyrir okkur vini
'WaVi.c ,og bekkjarsystkini. Við viss-
um að vísu, að hann hafði átt
við'hættulegan sjúkdóm að stríða
síðian á s.L sumri, en talið var,
að hann væri á góðum batavegi.
I'nrmafregnin kom því mjög ó-
vænt En tíyersu óvænt knýr ekki
dauðinn oft dyra? Hversu óvænt
og óskiljanlega eru ekki menn í
blóma lxfsins oft kvaddir frá starfi
og ástvinum hér á jörðu? — En
végir almættisins eru óskýran-
legir.
Ári Kristinsson varð aðeins 42
ára. Hann fæddist 6. nóvember
1921 á Húsavík. Foreldrar hans
voru Kristinn Jónsson, kaupmað-
ur þar og Guðbjörg Óladóttir.
Ari stundaði nám við Mennta-
skólann á Akureyri, og komu þar
brátt í Ijós ríkir eðliskostir í skap
gerð hans og fjölhæfar gáfur. —
Hann var afar samvizkusamur og
reglusamur og vakti traust bæði
kennara og okkar bekkjarsystkin-
anna. Var hann jafnan umsjónar-
maður bekkjarins í stærðfræði-
deildinni og þar með foringinn og
sá, sem hélt uppi aga og reglu.
Tókst honum þetta trúnaðarstarf
með ágætum, og kom þar að góðu
haldi, að hann var búinn ríkri
réttlætiskennd og sanngirni. Ari
var góður námsmaður og fjölhæf
ur og tók mikinn þátt í félags-
lífi í skólanum m. a. í leikstarf-
semi og íþróttum. Hann varð stú-
dent vorið 1941, og um haustið
hóf hann lögfræðinám við Há-
skólann og lauk lögfræðiprófi vor
ið 1947, hinn 28. maí. Þremur dög
um síðar var hann skipaður full-
trúi við sýslumannsembættið í
Þingeyjarsýslum og starfaði síðan
við það embætti á æskustöðvum
sínum, þar til hann var skipaður
sýslumaður í Barðastrandarsýslu
vorið 1956.
Ari kvæntist árið 1945 eftirlif-
andi konu sinni, Þorbjörgu Þór-
hallsdóttur, kaupfélagsstjóra á
Húsavík, Sigtryggssonar, og eiga
þau átta börn, hið yngsta aðeins
á öðru ári.
Mér er í Ijósu minni vordagur-
inn 1941, þegar við bekkjarsyst-
kinin lukum stúdentsprófinu. —
Þetta var fagur sólskinsdagur eins
og þeir gerast fegurstir við Eyja-
fjörð, og það var sólskin í sálum
okkar, hjörtu okkar voru heilluð.
Lífsþróttur og lífsfögnuður geisl-
aði af hópnum. Þessi sami hópur
er hnípinn og hljóður í dag..
Harmur heltekur hjörtu okkar. í
dag fylgjum við til grafar hinum
fyrsta úr hópnum. Sá úr hópnum,
sem jafnan var glaðastur á góðri
stund, er horfinn. Hann, sem allt-
af geislaði af starfsgleði og lífs-
þrótti á samverustundum okkar.
Þann, sem við hefðum jafnvel
getað búizt við, að yrði síðastur
okkar úr þessum heimi, erum við
nú að kveðja í dag. Svona getur
hið ólíklegasta verið á næsta leiti.
Þótt Ari sýslumaður væri ung-
ur að árum og hefði án efa unnið
þjóð okkar mikið gagn á kom-
andi árum, ef honum hefði til
þess enzt líf og heilsa, þá hefur
hann engu að síður afkastað miklu
verki á sextán ára embættisferli.
Kemur þar allt til, góðar gáfur,
atorka og starfsgleði og fádæma
samvizkusemi. Embættisfærsla
Ara var, að allra dómi, sem til
þekktu til fyrirmyndar og reynd-
ar viðbrugðið um röggsemi, mynd
arbrag og reglusemi.
Mér kemur í hug í þessu sam-
bandi kvæði Jónasar Hallgrímsson
ar, þar sem hann minnist vinar
síns:
Hvað er langlífi?
Lífsnautnin frjóa,
alefling andans
og athöfn þörf.
Margoft tvítugur
meir hefur lifað
svefnugum segg,
er sjötugur hjarði.
Sú sorg, sem kveðin er að eig-
inkonu Ara, börnunum og öðrum
ástvinum, er svo þungbær að hugg
unarorð duga eigi. Það eitt vil
ég þó segja við þau, um leið og
ég færi þeim dýpstu hluttekning-
arkveðjur, að minning okkar allra
um Ara, er minning um lífsglaðan
og elskulegan félaga, um dugmik-
inn, heiðarlegan og vammlausan
embættismann, sem vann þjóð
sinni til hinztu stundar, minning
um góðan dreng, minning, sem við
geymum, en gleymum ekki.
Eg vil svo enda þessi fátæklegu
orð með því að taka mér í munn
aðra vísu úr áður tilvitnuðu kvæði
Jónasar Hallgrímssonar:
Vel sé þér vinur,
þótt vikirðu skjótt
Frónbúum frá
í fegri heima.
Ljós var leið þín
og lífsfögnuður,
æðra, eilífan
þú öðlast nú.
Jóhannés Elíasson
Það ríkti almenn sorg'um alla
Barðastrandarsýslu, er sú harma-
fregn barst að sýslumaðurinn
hefði látizt, á sjúkrahúsinu á
Patreksfirði hinn 5. febrúar s. 1.
Eg veit raunar með vissu að sú
sorg kom víðar við, því allir
dáðu Ara Kristinsson, sem eitt
sinn höfðu kynnzt honum og
hann átti vini og vandamenn
víðs vegar um landið. En þeg-
ar frá eru taldir nánustu ástvin-
ir hans, varð fráfall hans tilfinn-
anlegast fyrir okkur Barðstrend-
inga, sem áttum því láni að
fagna að hafa hann fyrir sýslu-
mann um sjö ára skeið.
Embættisferillinn varð ekki lang
ur en hann var ein óslitin sigur-
ganga. Vinsældir hans fóru vax-
andi með hverju árinu sem leið,
enda var maðurin einstaklega vel
gerður.
Það sagði við mig kona, sem ég
hitti skömmu eftir að andlátsfregn
in barst að hörmulegri tíðindi
hefðu vart getað borizt austur um
sveitir, því að betri sýslumann
væri ekki hægt að hugsa sér.
Undir þau orð mundu flestir
vilja taka, því að þau eru sönn,
um það efast ég ekki, en þau
segja þó ekki alveg allt um það,
sem konunni lá á hjarta. Það sem
hún átti við og öll við, sem þekkt-
um hinn látna vildum gjarna
segja um hann, má orða eitthvað á
þá leið, að þótt maðurinn Ari
Kristinsson væri ágætt yfirvald og
góður sýslumaður, þá er þó, að ég
hygg, meira vert um hitt, að sýslu
maðurinn Ari Kristinsson var góð-
ur maður. Þar er, að minni hyggju,
að finna skýringuna á hinum
miklu vinsældum hans.
Hann var drenglundaður maður,
ljúflyndur, réttsýnn og velviljað-
ur og mundu rithöfundar gullaldar
bókmennta vorra hafa sagt það
allt með fjórum orðum: „Hann var
drengur góður“. Þannig var ágæt
ustu mannkostamönnum lýst til
forna og meira varð í rauninni
ekki sagt um nokkurn mann.
Engum duldust mannkostir Ara
Kristinssonar, sem einhver kynni
höfðu af honum. Hvarvetna þar
sem hann fór varð mönnum glað-
ara í geði, viðmót hans var allt
svo Ijúfmannlegt og hýrlegt, svo
gegnsýrt af góðvild og jákvæðum
viðhorfum — að líka, jafnvel þeir,
sem kviðu komu hans af því að
þeir þurftu kannske að mæta hon-
um sem dómara eða rannsóknara,
fóru glaðari af fundi hans og með
léttari lund, af því að þeir fundu
hina manneskjulegu góðvild hans,
sem skein alls staðar í gegn og
var öllum ávallt til reiðu. Samt
var festa og röggsemi í allri em-
bættishiénhsku hans. Eg kynntist
því nokkuð, — líka réttsýni hans
og góðvild, en það voru tveir ríkj-
andi eðlisþættir í skaphöfn hans.
— Og eru ekki einmitt réttlætið
og manngæzkan þær dyggðir, sem
helzt eiga að prýða þann, sem í
dómarasæti situr? Annars þekkti
ég ekki mikið til dómstarfa hans,
tn vegna þessara eðliskosta, sem
mér þóttu vera svo áberandi í
fari hans, er mér engin launung á
því, að ljúft hefði mér verið að
leggja mín mál undir hans dóm
ef því hefði verið að skipta.
En þeir munu vera fáir íbúar
Barðastrandarsýslu, sem þekktu
hinn látna sem dómara. Flestir
þekktu hann miklu fremur sem
þann, er kunni þá list, kannske
mörgum öðrum fremur, að vera
manneskja — að vera maður í
þess orðs beztu merkingu, þrátt
fyrir embætti og ytri virðingar-
tákn.
Hann var alla jafnan Ijúfur og
lítillátur við hvern sem var. Og
eðlisgæðum hans kynntust menn
fljótt, og glaðvær lund hans gerði
hvern fund með honum að ánægju
stund.
Hann eignaðist þá líka marga
vini og allir luku upp einum
munni um það hve gegn og góður
maður hann væri. Gjörvuleik hans
og mannkostum var jafnan við
brugðið. Allir vildu heldur hafa
hann með sér en móti — ekki
endilega vegna þess að hann var
yfirvald og fremstur að virðingu
í þessum héruðum, heldur af því
að menn fundu, vitandi eða óaf-
vitandi, að glaðlyndi hans, rétt-
lætiskennd og góðvild voru já-
kvæðir eiginleikar, sem afvopn-
uðu hvers konar óheilindi; — að
maðurinn var einlægur og undir-
hyggjulaus, hreinskilinn og mat
menn að verðleikum, enda þótt
þeir væru ekki einlægt sammála
honum né skoðanabræðrum hans
í sumum þeim málum, sem einlægt
hljóta að vera skiptar skoðanir
um, eðli þeirra samkvæmt. Hann
var nógu vitur til að skilja það.
Þess vegna átti hann líka óskor-
að traust og virðingu þeirra, sem
voru honum ósammála t. d. í
stjórnmálum. Mér er einmitt vel
kunnugt um það að úr þeirra hópi
átti hann orðið marga ágæta vini,
sem aldrei höfðu annað en allt
gott um hann að segja, sem virtu
hann og mátu og væntu sér mikils
af farsælli forystu hans í þeim
málefnum, sem til framfara og
menningarauka horfðu.
Það er því orð að sönnu, að
hann hafði allra manna virðingu
og vinsældir af öllum lýð.
Þess vegna varð líka héraðs-
brestur, meiri en menn muna um
langa hríð, þegar sú sorgarfregn
barst frá manni til manns, að sýslu
maðurinn væri látinn. Og það var
þeim mun átakanlegra sem það
var ferskara í minni manna hve
lifandi hann jafnan var, meira
lifandi en flestir aðrir menn, full-
ur af lífrænum áhuga og vakandi
yfir öllu því, sem til heilla mátti
horfa. Hann hafði svo jákvæða
afstöðu til allra framfara- og menn
ingarmála. Um það má margt
segja en verður ekki hér gert
frekar og þó tel ég mér skylt hve
góður sonur hann var móður vorri
kristinni kirkju. Hann var mjög
kirkjurækinn og átti hann og hin
stóra fjölskylda hans fastan bekk
í kirkjunni, þar sem þau hlýddu
messu hvenær, sem því varð við
komið.
Afstaða hans til kirkju og krist
indómsmála var þeim mun meira
virði, sem hún var sýnd af svo
ágætum og gáfuðum manni í hárri
stöðu. Það er ómetanlegt að eiga
slíkan stuðning á tímum eins og
þeim, er vér lifum á er trú og
kristilegar dyggðir eiga að ýmsu
leyti í vök að verjast. Þegar fram-
ámenn samfélagsins, sem eru að
allra dómi miklir mannkostamenn
eins og Ari Kristinsson var, ganga
á undan og gefa fordæmið fer
ekki hjá því að það hafi áhrif á
aðra, sem gjarna vilja líkjast þeim
sem bera af öðrum mönnum. Ari
Kristinsson var góður sonur kirkj-1
unnar og kristnilífi í Barðastrand-
arsýslu styrk stoð. Fyrir það eru
honum færðar einlægar þakkir og
við blessum minningu hans.
Af þessu má sjá að sá héraðs-
brestur, sem varð við andlát Ara
Kristinssonar náði bæði til and-
legra og veraldlegra mála. Hann
var sannur foringi og forystumað-
ur .
En það brast fleira við hið ótíma
bæra fráfall hans en sýnilegt lið-
sinni hans og áþreifanleg forysta
um málefni sýslubúa. Það brast
annað, sem ekki sést kannske eins
vel hið ytra — og þó mátti sjá það
af hinum mikla mannfjölda, sem
var viðstaddur kveðjuathöfnina í
Patreksfjarðarkirkju s.l. þriðju-
dag. Já, það brast annað, sem ekki
er minna um vert en hitt, — það
brast viðkvæmur strengur í brjóst
um ótal manna og kvenna, sem
elskuðu, virtu og dáðu þennan
góða dreng.
Og nú er hann horfinn sjónum
okkar, og minningin ein er eftir,
— ljúfsár minning, en góð og
göfgandi.
Ari Kristinsson var fæddur í
Húsavíkurkaupstað 6. nóv. 1921
og var því aðeins 42 ára gamall
er hann lézt. Foreldrar hans voru
Kristinn Jónsson kaupmaður á
Húsavík og kona lians Guðbjörg
Ólafsdóttir. Ari lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum á Akur-
eyri árið 1941 og cand. jur. varð
hann frá Háskóla íslands árið
1947.
Varð hann þá fulltrúi sýslu-
manns Þingeyinga og oft settur
sýslumaður þar. Árið 1956 skip-
aður sýslumaður Barðstrendinga
og gegndi því embætti með mikl-
um sóma og við almennar vinsæld-
ir allt til dauðadags.
Ari var kvæntur ágætri konu,
Þorbjörgu Þórhallsdóttur, frá
Húsavík og eignuðust þau 8 börn
í farsælu hjónabandi. Þrjú af
börnum þeirra eru komin yfir
fermingu.
Það er mikill harmur að þeim
kveðinn nú, enda missa þeirra
mikil. Allir hér um slóðir vildu
mikið til þess gefa, að geta mild-
að harm þeirra og tekið sárasta
broddinn úr sorginni og hálfur
harmur manna er gremja yfir
þeim vanmætti, sem kaldur og
snauður dauðinn dæmir menn í.-
En samúð allra hér er einlæg og
sönn. Og von okkar og bæn er
sú, að tíminn og trú á endurfundi
í fyllingu tímans þerri tárin og
lækni það mein, sem nú þjáir hina
ungu ekkju og föðurlaus börnin
hennar.
Þau hafa mikið misst, en sá einn
getur mikið misst, sem mikið hef-
ur átt.
Trúin leyfir okkur að vona að
allt það verði aftur gefið, þegar
ástvinir hittast á ný á landi lífs-
ins handan dauðans. Þar deyja
hinir lifandi ekki — aldrei að
eilífu.
Við blessum minninguna um
Ara Kristinsson, hinn góða mann,
sem var með miklum sóma sýslu-
maður Barðstrendinga um sjö ára
skeið.
Þórarinn Þór.
5. i
TÍMINN, föstudaginn 14. febrúar 1964 —
Bókarastarf
Skrifstofa ríkisspítalanna óskar eftir að ráða bók-
ara til starfa í sjúklingabókhaldi nú hið fyrsta. —
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, nám,
menntun og fyrri störf, sendist til Skrifstofu rík-
isspítalanna, Klapparstíg 29, Reykjavík fyrir 27.
febrúar n.k.
Reykjavík, 13. febrúar 1964.
Skrifstofa ríkisspítalanna
Starfsstúfkur óskast
Starfsstúlkur vantar nú þegar í eldhús Kópavogs-
hælis-
Upplýsingar gefur matráðskonan í síma 41502.
Reykjavík, 13. febrúar 1964.
Skrifstofa ríkisspítalanna