Tíminn - 27.02.1964, Qupperneq 9
Ych Yeh Yeh Yeh.
Hvellibjöllurnar. Þessir fjóru
ungu menn með síða hárið og
Mersey-hljóðin (eða óhljóðin) virð
ast á góðri leið með að trylla
vestræna æsku algerlega Undan
farið hafa þeir verið á söngför
í Bandaríkjunum, og átti New
York lögreglan erfiða daga við
að halda í skefjum hálftrylltum
aðdáendum.
Qg í morgun komu hvellibjöil
urnar aftur til Lundúna úr sann-
kallaðri sigurför. Aðdáendur
hérna megin Atlantshafsins létu
ekki á sér standa, og hófu þeir (að
allega unglingsstúlkur) að bíða
eftir flugvél þeirra á Lundúm-
fiugvelli um kvöldmatarleytið í
gærkvöldi, til þess að fá að líta
goð þessi augum rétt í svip.
Það er sama í hvaða blað er
litið hér; alls staðar eru myndir
eða fréttir af hvellibjöllunum.
BBC minnist þeirra í fréttunum
næst á eftir Makariosi og Sir
Alec, og veslings Mr. Butler varð
að gefa yfirlýsingu í neðri mál-
stofunni til að hnekkja orðrómi,
um að þá hefði verið ráðizt í
▼eizlu í enska sendiráðinu í Was
bington.
Og 1 morgunfréttum útvarpsins
í morgun var frá því skýrt, að
bókhaldarar hvellibjallanna sveitt
ust við blóðinu að finna út hversu
mikið piltarnir hefðu grætt á
hljóðum sínum og var erfitt a'ð
komast að áreiðanlegum niðurstöð
um, þar sem tekjumar streymdu
svo ótt inn. Þó lét útvarpið það
út ganga að öruggt mætti telja,
að hver þeirra um sig væri a.m.k.
upp á milljón pund eins og væri.
Pólitík.
Eins og fyrri daginn er pólitík-
in efst á baugi hér og er slíks
að vænta í landi, þar sem alls-
herjarkosningar standa fyrir dyr-
um þá og þegar. Flokkarnir láta
líma upp mannhæðarhá áróðurs-
piögg, hvar sem við verður komið,
en ennþá hefur Sir Alec Home
tregðazt við að nefna kosninga-
daginn sjálfan. Samkvæmt ensk-
um lögum er forsætisráðherra
heimilt upp a einsdæmi að rjúfa
þing og efna til kosninga, þegar
honum sýnist.
Sir Alec kom fyrir skömmu aft
ur til Englands eftir ferðalag sitt
um Kanada og Bandaríkin. Hefur
hann komið tvisvar fram í sjón-
varpi síðan, og er almannarómur,
að hann hafi staðið sig allvel í
spurningahríðum þeim, er sjón-
varpsmenn gerðu að honum, og
betur en búizt hafði verið við.
f fyrra viðtalinu, lýsti Sir Alec
yfir þeirri skoðun sinni, að efna
hagsástandið á Bretlandseyjum
væri í betra lagi en nokkru sinni
fyrr. Þótti mörgum því einkenni-
legt, er ,,The Board of Trade''
birti daginn eftir tölur um inn-
og útflutning Breta í janúar s. 1.,
og i ljós kom að viðskiptajöfnuð-
ur þess eina mánaðar hafði verið
óhagstæður um einar litlar 107
milljónir sterlingspunda.
Stjórnarandstæðingar brugðj
liratt við og gerðu hina hörðustu
hríð að íhaldsmönnum og forsæt-
isráðherra sérstaklega. Mr. Wil-
son, leiðtogi Verkamannaflokksins
skoraði á Sir Alec að láta ganga
til kosninga þegar í stað, og taldi
óvissu þá, sem ríkti meðal við-
skiptaþjóða Breta um úrslit vænt
anlegra kosninga, og þá væntan-
leg stjórnarskipti, valda landinu í
heild meira tjóni en það hefði
efni á að borga fyrir að láta
íhaldsmenn stjórna sér nokkrum
mánuðum lengur.
Við fýrrgreindar upplýsingar
um viðskiptajöfnuðinn og óvisst
ástand í kaupgjaldsmálum í heild,
hefur gengi pundsins hrakað á
Hvellibjöllurnar við komuna tll London frá Bandaríkjunum.
HVELLIBJÖLLUR
á heiimsmarkaði og aldrei staðið
jafnilla gagnvart dollara síðan
1960, auk þess sem talsvert verð
fall varð á enskum hlutabréfum
í kauphöllinni.
Sir Alec hefur ekki ennþá svar-
a? áskorun Mr. Wilsons, og litlar
líkur að hann geri svo héðan af
Þannig er rifizt í blöðum og sjón
varpi dag eftir dag, en samt held
ég, að langsóttar röksemdafærd
ur og fjöldi samanburðartalna
BUTLER
um gagn eða gagnsleysi stjórnar-
innar hafi ekki úrslitaáhrif á A-
breytta enska kjósendur. Þar skipt
ir meira máli uppruni og staða
í þjóðfélagsstiganum, og jafnvel
meir en nokkurn grunar, áhrif þau
er forystumennirnir hafa á fólk í
gegnum sjónvarpið.
— Get ég treyst þessu andliti?
— spyr fólk sjálft sig. Hvoru and
litinu íbúar Bretlandseyja
treysta betur kemur í ljós í sein-
asta lagi 23. október næstkom-
andi.
Ilelztu deilumál.
Stjórnin hefur nýlega boðað
frumvarp, er hún hyggst leggja
fyrir þingið innan skamms um
afnám lágmarksákvæða smá-
söluverzlana. Þessi óþjálu orð
þarfnast sjálfsagt skýringa. Þau
eru lög hér i landi, að smásölu-
verzlanir mega ekki selja vörur á
lægra verði en lögskipað er. Munu
lög þessi hafa verið sett til að
koma í veg fyrir undirboð kaup-
manna, og jafnframt að nokkru
tii að vernda smákaupmenn í
miskunnarlausri samkeppni við
stóru kjörbúðarhringana, s m auð-
veldlega gætu undirboðið þá, og
komið þeim þannig á hausinn, en
um leið og svo væri komið, hækk
a? verð sitt aftur jafnvel upp
fyrir það, er áður hafði tíðkazt.
Fram til þessa hafa smákaupmenn
verið kjósendur íhaldsflokksins
svo til upp til hópa, en nú dynja
mótmæli stéttarfélaga þeirra á
stjórninni. En stjórnin situr föst
við sinn keip, og mun frumvarpið
eflaust ná fram að ganga.
Visindamenn.
Fleiri enskir vísindamenn hafa
flutzt úr landi, og þá einkum til
Bandaríkjanna í seinni tíð en
nokkru sinni fyrr. Hefur athygli
manna einkum beinzt að útflutn-
ingi þessum, er prófessor Bush
frá Binmingham-háskóla lýsti yf-
ii þeirri ætlun sinni að flytja
í burt, og taka með sér alla sam-
starfsmenn sína, 15 að tölu. í
síðastliðnum mánuði munu ca.
35—40 nafnkunnir vísindamenn í
hinum ýmsu greinum tæknivís-
inda, hafa farið úr landi, eða eru
á förum.
Þar setn aukin framlög til vís-
indarannsókna er eitt af stefnu-
skráratriðum Verkamannaflokks-
ins, hefur Mr. Wilson gert harða
hríð að stjórninni, fyrir afskipta-
leysi hennar i þessum málum, og
hafa spjótin einkum beinzt að Mr.
Quitinn Hogg, sem áður hét Lord
Ilailsham og keppti við Sir Alec
um embætti forsætisráðherra, en
Hogg er nú yfirmaður allra
mennta- og rannsóknarmála hér í
landi.
Við erum a* hiokka framlögin,
sagði Hogg • við: Mér
finnst pað úlegt af
mönnum, se r að kosta
til a. m. k lt pundum að
mennta, að hlaupa í burt, strax
og Ameríkaninn bíður hærra kaup
en við getum borgað. Og svo
bætti hann brosandi við: Annars
er þetta allt í lagi: Visindin eru
aiþjóðleg, svo við komum til með
að njóta góðs af fyrr eða síðar,
og svo verða drengirnir leiðir á
Ameríkunni og koma aftur til
gamla Englands, fyrr en varir.
Landvarnir.
Bretar hyggjast hækka framlög
sín til landvarna og nemur áætluð
upphæð fyrir næsta fjárhagsár
um 800 milljónum punda Þessi
risavaxna fjárhæð skiptist nokkuð
jafnt milli landhers, flughers og
fiota, en hlutur flotans hefur þó
vaxið mest frá fyrra ári, enda
er fyrirhugað að hefja bygginga
stærsta flugvélamóðurskips flot-
ans nú síðar á árinu.
Umræður um fjárhagsáætlun
þessa hafa að venju borizt að
hinum djúpstæða ágreiningi, sem
virðist ríkjandi milli íhaldsflokks
ins og verkamannaflokksins. í-
haldsflokkurinn leggur allt kapp
á að halda uppi ensku varnar-
kerfi með atómvopnum, fram-
leiddum og stjórnað af Bretum
einum, en Verkamannaflokkurinn
hefur þá stefnu, að láta ríkisveldin
tvö um kjarnorkuvopnin, þar sem
þeir álíta, að Bretar verði hvort
sem er aldrei samkeppnisfærir ef
svo má segja, við Rússa og Banda
ríkjamenn, en beina meiri fjár-
iKunum til svonefnds „convent-
ional“ herbúnaðar.
HOME
Lundúnabréf III.
Jafnframt hafa orðið miklar
umræður um svimandi fjárhæöir,
er varið hefur verið til tilrauna
með nýjar flugvélar. Hafa Bretar
hafið byggingu a. m. k. tveggja
nýrra gerða þrýstiloftsvéla, sem
hætt hefur verið við að fram-
leiða, eftir að varið hafði verið
til rannsókna tugum milljónum
punda, þar sem í Ijós kom, að
vélarnar voru álitnar úreltar mið
að við amerískar sömu eða svip-
aðrar tegundar. Og enn er eitt
slíkt vandræðabarn á döfinni.
, TSR2“ er heiti á nýjustu orrustu
þotu Breta, sem þegar hefur kost
að í rannsóknum og tilraunum um
80 milljónir punda. Þetta er vél,
sem á að geta hafið sig lóðrétt
upp af eigin afli, og síðan flogið
með a. m. k. tvöföldum hraða
hljóðsins bæði í geysimikilli hæð
cg eins alveg við jafnsléttu. Teikn
ingar af vél þessari munu vera til
búnar, en flugherinn hefur enga
pantað enn sem komið er. Reynt
var að selja vélar þessarar teg-
undar til Ástralíu, en tilboði Breta
var hafnað þar, og keyptar amer-
ískar vélar.
Dr. Strangelove.
Peter Sellers er hæstlaunaði
leikari Breta og skærasta stjarna
! þeirra á alþjóðlegum kvikmynda
himni. Nýjasta mynd hans fjall-
ar um imöguleikann á að kjarn-
orkustyrjöld brjótist fyrir mis-
tök út milli Bandaríkjamanna og
Rússa. Myndin heitir „Dr. Strange
leve“ og undirtitill er „How I
learned to stop worrying and love
the bomb.“
Sellers leikur þrjú hlutverk í
myndinni: Dr. Strangelove þýzkan
vísindamann, er vinnur í þjónustu
Bandaríkjamanna og hefur tekið
sér þetta furðulega enska heiti eft
ir stríðið; enskan liðsforingja í
herstöð þeirri í Bandaríkjunum,
þar sem yfirmaðurinn ærist og
sendir sprengjuflugvélasveit á-
leiðis til Rússlands, og forseta
Randaríkjanna. Eins og vænta má
et frammistaða Sellers frábær
og svo er myndin sem slík. Það er
búið að tala með svo sterkum
orðum um þennan skelfilega hlut,
bombuna, að fólk er víða hætt að
taka sérstaklega eftir þeim um-
ræðum. Hér er aftur á móti á
ferðinni kaldranalegasta grín, sem
hægt er að ímynda sér, um jafn
hryllilegan möguleika, og það ýt
ir við fólki fremur en margar há
stemmdar ræður.
Dr. Quicklove.
Fyrr í vetur var Mr. Sellers
(41 árs) staddur hér í London
og bjó að , The Dorchester"
Segist honum svo frá, að hann
fcafi einn daginn séð mynd af
stúlku í dagblaði, sænsku kvik-
myndasmástirni, Mai Britt (21
árs) og haft orð á því við kunn-
ingja sinn, að gaman væri að
hitta þennan . kropp“. Kunning-
inn upplýsti þá leikarann um
það, að stúlka þessi byggi ein-
mitt þessa stundina að „The
Dorchester". Hringdi Mr. Sellers
þá tafarlaust í leikkonuna og
bauð upp á drykk, og undu þau
síðah saman flestum stundum
næstu þrjá daga, þar til smástirn
ið fór til Ameríku, að láta kvik-
mynda sig. Nokkru síðar hringdi
Sellers hana svo upp frá London
og eftir svo sem klukkutíma rabb
ákváðu þau að giftast og flaug
hún hingað í fyrri viku. Og nú
á fimmtudaginn var giftu þau sig
— með blaðaljósmyndara á hælun
um. Gárungar létu ekki á sér
sianda: hófu að kalla Mr. Sellers
Di Quicklove, og nýju myndina
hans: „How I learned to stop
worrying and love the sexbomb."
Laugardagur 22. feb. 1964.
Páll Heiðar Jónsson.
9
T I M I N N, fimmtudaglnn 27. febrúar 1964 —