Tíminn - 27.02.1964, Blaðsíða 16
Fimmfudagur 27. febr. 1964
48. tbl.
48- árg.
DAGBLAÐIÐ VÍSIR SEGIR:
Afforot Jósa-
fats lítilvæg!
Reykjavík, 26. febr.
Það bar helzt til tíðinda í Vali-
armáiinu svonefnda í dag, að dag-
blaðið Vísir í Reykjavík, sýknar
Jósafat Arngrímsson nær alveg, að
því er lielzt skilst, jafnframt því
sem blaðið ræðst hatramlega að
Tímanum fyrir þann fréttaflutn-
ing, sem Tíminn hcfur rcynt að
halda uppi um málið. Byggir Vís-
ir sýknudóm sinn yfir Jósafat Arn
grímssyni á skýrslu Ólafs Þor-
lákssonar rannsóknardómara í mál
inu.
Orðrétt segir Vísir í dag:
„í gær kom í Ijós að flestar
æsisögurnar, sem um þetta svo-
nefnda Kefiavíkurmál hafa verið
blásnar upp af fyrrnefndum blöð-
um eiga sér litla stoð í raunveru-
leikanum.“ . . . Og enn fremur
sogir, „þetta dæmi sýni vel hver
er heiðarleiki fyrrgreindra blaða
f fréttaflutningi og á hverja refil-
stigu æsingurinn í að sverta póli-
tíska andstæðinga getur ieitt“!!
Sem sagt, Jósafat er sýkn og
saklaus, að dómi Vísis! Það er
aðeins æsingur Tímans í að sverta
pólitíska andstæðinga, sem að
verki er í Vallarmálinu. í skýrslu
rannsóknardómarans þótt fámál
væri kom þó fram, að um ótvírætt
og sannanlegt skjalafals hafði ver-
ið að ræða og mikil fjársvik. Það,
að ritstjórn Vísis heldur uppi slík
um málflutningi eftir að slík af-
brot hafa verið staðfest af rann-
sóknardómaranum, læðir þeim
grun að mönnum, að ástæðan til
Framhald á 15 siðu
Svaf / tvo tíma í þoku
og slyddu á Oddsskarði
KH—Reykjavík, 26. feb.
Ungur maður, Sævar Sigur-
jónsson, vair hætt kominn i
Oddsskarði í gærkvöldi. Há-
skarðið var ófært bflum, og
ætlaði Sævar að ganga yfir
það, en varð fljót'lega ramm-
viltur og lagðist dauðþreyttur
fyrir eftir nokkurra stunda ráf.
Hann fannst á tíunda tímanum
í gærkvöldi, magnlaus af kulda
og þreytu, og sagði læknir, að
ekki hefði mátt muna miklu,
að verr færi. Sævar var hinn
hressasti, þegar blaðið talaði
við hann í dag, og kvaðst ætla
út á sjó í nótt, en hann er mat-
sveinn á Steingrími tirölla.
- Ég var all'tof illa búinn til
þessarar ferðar, sagði Sævar
Sigurjónsson í viðtali við blað-
ið í dag, og þess vegna varð
ég fljótt blautur og kaldur.
Svo er ég alls ekki nógu kunn-
ugur leiðinni til að fara hana
í því veðri, sem var, þoku og
slyddu, og vegurinn á kafi í
snjó. Þetta var mesta vitleysa,
ég villtist strax.
— Á hvaða ferðalagi varstu?
— Ég ætlaði að heimsækja
konuna mína, Helgu Axels-
dóttur, á Norðfirði, við giftum
okkur um jólin. Ég hef verið
matsveinn á Steingrími trölla
síðan í haust, og þegar við
komum hingað inn til Eski-
fjarðar í gær, datt mér í hug
að bregða mér yfir skaröið og
heimsækja fjölskylduna. En
það varð sem sagt ekki af því
í þetta sinn.
— Hvemig leið þér, þegar þú
Framhalo a 15 siðu
CL-44 notaðar á Luxemborgarleiö
NTB-Stavanger, 26. febr.
Lokið cr tveggja daga viðræðu-
fundi forráðamanna Braathens S.
A. F. E. í Osló, þar sem rætt var
um viðhald á vélum Loftleiða, sem
Braathen hefur annazt í Stavang-
er. Björn Braathen útgerðarmaður
upplýsti í viðtali við Stavangcr
kvöldblað, að Loftleiðir hefðu á-
kveðið að hafa nýju vélarnar, CL
44, á leiðinni New York—Luxem-
borg.
Braathen skýrði einnig frá því,
að Braathens S.A.F.E. mundi
halda áfram að annast viðhald DC
-6B véla Loftleiða, en vegna
skorts á tækjum og mannskap
yrði félaginu ekki kleift að taka
að sér viðhald á CL-44 vélunum
Braathen sagði, að Loftleiðii
hefðu ákveðið að selja eina al
DC-6B vélunum, þegar CL-44 yrðu
teknar í notkun. Hann sagði, a?
fyrri CL-44 vélin myndi hefja flug
á leiðinni New York—Luxemborg
1. júní n.k. og sú síðari á sömu
leið í október næsta haust.
Gefa þvegið 1000
lestir af ull árlega
, kj
Ullarþvottastöðin er myndarlegt Hús.
FB-Reykjavík, 26. febrúar.
EKKI mun líða á löngu, þar
til byrjað verður að þvo ull í
Ullarþvottastöð SÍS í Hveragerði.
Væntanlegur er til landsins ensk-
ur verkfræðingur til þess að
ieggja síðustu hönd á uppsetn-
ingu þvottavélarinnar. en að því
loknu, væntanlcga um mánaðamót
in, getur þvottur hafizt.
Samkvæmt upplýsingum frá
Agnari Tryggvasyni hjá SÍS hóf-
3 PLON BÆTAST VIÐ Á
RAUFARHÖFN í SUMAR
HII-Raufarhöfn, 26. febrúar.
f SUMAR verða starfræktar 10
söltunarstöðvar á Raufarhöfn, og
cr það þrentur fleira en síðasla
ið við þetta, og ætti nú að verða i
hægt að afgreiða þremur fleiri |
síldarskip í einu, en verið hefur.!
Nýju söltunarstöðvarnar eru
Síldin h.f., sem byrjað var á í
sumar. Móttökuskiiyrði batna mik- haust. Björg h.f. og Ólafur Óskars I
son, sem er að bæta við nýju plani
hjá sér, en hann hefur verið mið
söltunarstöð á Raufarhöfn áður.
Auk þessara stöðva eru á Raufar-
höfn, Norðursíld, Óskarsstöð, Óð-
Framnalc a Ib si6u
ust byggingaframkvæmdir þvotta
stöðvarinnar i apríl s. 1. og var
verksmiðjubyggingin fullgerð í
október-lok. Húsið er 1850 ferm.
að stærð úr strengjasteypu og hið
vandaðasta að öllum frágangi.
Geymslur eru fyrir um 1000 lest
ir af þveginni ull, og eru þar
nú i.im 160 lestir, sem bíða þvott-
ai. en ráðgert er að þvo þarna
framvegis alla ull á vegum kaup-
félaganna á Suðurlandi og víða af
Vesturlandi. Vélar eru allar af
fullkomnustu gerð frá fyrirtækinu
Petrie & McNaught Ltd. í Roch-
dale í Bretlandi. Þeim var komið
fyrir í þvottastöðinni fyrir áramót
in, en sökum verkfallsins í vetur
hefur orðið nokkur dráttur á, að
sföðin tæki til starfa.
Vélarnar geta þvegið um 1000
lestir af ull árlega miðað við
venjulegan vinnutíma, en áætlað
er að magnið á þessu ári verði
milli 350 og 450 lestir.
Til þess að ná sem nákvæmusta
samræmi í ullamiati við Ullar-
þvottastöð SÍS nyrðra, voru send-
Framhald á 15 siðu
VANN FJðGURRA ARA STRHI
FB-Reykjavík, 26. febr.
í fjögur ár hefur Valdimar
nokkur Árnason, sem hefur verk.
stæði inn við Múla, barizt fyrir
því, að stöðvað verði vatnsrennsli
úr kaldavatnsæð skainmt frá verk
stæðishúsinu. Baráttan hefur ver-
ið árangurslaus þar til í dag, þeg-
ar vinnuflokkur frá Vatnsveitunni
kom til þess að stöðva Iekann.
Upphaf þessa máls er, að á
styrjaldartimanum reistu her-
menn þarna hús, en í striðslok
keypti bærinn öll hús þeim til-
heyrandi og þar með leiðslur og
annað, sem þeim fylgdi. Húsin
hafa verið rifin niður mörg hver,
en ekki hefur alltaf verið skrúfað
fyrir leiðslur sem skyldi.
Valdimar leigði eitt af þessum
húsum, en tók eftir því, að stöð-
ugt rann vatn úr opnu röri þarna
skammt frá. Gekk hann á milli
embættismanna og fór fram á að
lokað yrði fyrir leiðsluna,, en ár-
angurslaust. Engum kom þessi
VALDIMAR ÁRNASON til vinstrl, þrætucplið til hægri.
leiðsla við, og ekki heldur vatns- "
veitustjóra, þar eð hún var ekki
i bæjarkverfinu
í dag hringdum við í Vatnsveit-
una, og spurðum um þetta þrætu-
epli, en fengum þau svör, að starfs
menn hennar gætu ekki með
nokkru móti sameinað það starfi
sínu að stöðva þetta rennsli.
Þá brugðum við okkur inn eftir
til þess að sjá, hvort hér mundi
ekki vera um kaldavatnsleiðslu að
Framhald á 15 síðu
(Ljósm.:TÍMINN-GE).