Tíminn - 13.03.1964, Síða 7
ÚtgefcHtíi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framfcvæmdastjórl: Tómas Amason. — Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Frétta.
stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Daviðsson,
Ritstjómarskrifstofur í Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif
stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523. Aðrar
skrifstoíur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 80,00 á mán, innan.
iands. f lausasölu kr. 4.00 eint — Prentsmiðjan EDDA h.f. —
Beitum vísindunum
ÞÚRARINN ÞÓRARINSSON:
Hví vildu Islendingar ekki
leggja útfærsluna 1958 undir
úrskurð alþjóðadórastólsins?
Ályktun miðstjórnarfundar Framsoknarflok'ksins legg-
ur áherzlu á, að við eflum þekkingu, vísindi, tækni og
menntun með þjóðinni. Mikil nauðsyn er nú orðin á að
endurskipuleggja algjörlega vísindastarfsemina í þágu
atvinnuveganna. Hagnýtt rannsóknarstarf er nú mjög í
molum og dreift á margar hendur, engin heildarstjórn,
engin samræming. Atvinnumálanefnd ríkisins, sem var
skipuð samkvæmt þáll. frá 1955 samdi ýtarlegt frum-
varp til laga um rannsóknir í þágu atvinnuveganna.
Menntamálaráðherra boðaði á sínum tíma til fjölmennr-
ar ráðstefnu til þess að ræða þessi mál fyrir nokkrum
árum. Málið hefur þannig fengið mikinn lindirbúning. .
Frumvarpi atvinnumálanefndar var svo breytt í mennta-
málaráðuneytinu og voru þær breytíngar vissulega ekki
til mikilla bóta, en síðan lagt fyrir Alþingi í íyrra og náði
ekki afgreiðslu. Það hefur ekki verið lagt fram aftur
Á þessum málum má alls ekki verða frekari töf. Nú
ríður á að koma þeim í gott horf. Framlög ríkisins íil
rannsóknamála verða líka að stóraukast. Allar aðrar
þjóðir kappkosta að hafa þessi mál í góðu horfi og
auka sífellt framlög til þeirra. Á s.l. áratug 1950—’60
juku Bandaríkjamenn þessi framlög úr 0,6% og upp í
2% af þjóðartekjum sínum og Bretar úr 0,5% í 1,8%.
Á sama áratug juku Svíar sín framlög úr 0,2% upp í
0,9% af þjóðartekjunum, en við íslendingar höfum hins
vegar hjakkað í sama farinu og jukum framlög okkar til
rannsóknamála aðeins úr 0,2% og upp í 0,3% af þjóð-
artekjunum á áratugnum frá 1950—1960.
Auknar rannsóknir og vísindaleg þekking er skilyrði
þess, að við getum eflt atvinnulíf okkar og aukið af-
köstin og þar með bætt lífskjörin. Vanrækjum við þetta
. hlutverk, hljótum við að dragast mjög aftur úr.
Enn um landhelgina
Stjórnarblöðin rembast eins og rjúpa við staur við
það að telja þjóðinni trú um, að megináfanginn í land-
helgismálinu hafi náðst 1952, þegar fært var út í fjór-
ar mílur. Útfærsla landhelginnar þá var ekkert áhættu-
né vandamál. Þá var gengið í slóð Norðmanna.
Það reyndi fyrst á þolrifin, þegar kom að 12 mílun- .
um. Þá urðu íslendingar að taka einhliða ákvarðanir,
án þess að styðjast við fordæmi annarra þjóða eða skýr
ákvæði alþjóðalaga.
Framsóknarmönnum tókst að ná samtökum í vinstri
stjórninni um útfærsluna sumarið 1958. Sjálfstæðis-
flokkurinn neitaði að vera með. Og það var ekki einu
sinni látið nægja. Allt sumarið 1958, meðan Bretar voru
að kanna styrk íslendinga og hugsa sig um, hvort þeir
ættu að beita ofbeldi 1. september, hélt núverandi for-
sætisráðherra, Bjarni Benediktsson því fram í Morgun-
blaðinu, að útfærslan hefði verið vanhugsað frumhlaup
og væri í raun réttri mál kommúmsta fyrst og fremst og
til þess. gerð að ýfast við nágrannaþjóðir okkar.
Það var því ekki furða, þótt Bretar teldu, að íslend-
ingar væru sundraðir og því óhætt að sýna þeim hnef-
ann og íeidu líklegt að það dygði til þess að hrekja þá
á undanhald. En þegar Bretar gerðu þetta. neyddi al-
menningsálitið forkólfa Sjálfstæðisflokksins til þess að
snúast með.
Það er ekki furða, þótt þessir menn telji sig frum-
herja í landhelgismálinu, eða hitt þó heldur! En veían
hélzt í þessum mönnum, eins og tram kom í því; a?
þeir gerðu undansláttarsamninginn við Breta.
TÍMINN, föstudaglnn 13. mari 1964 —
Sameiginleg afstaða
þiriggja ríkisstjórna.
í tilefni af þeim skrifum, sem
hafa verið um landhelgismálið
I undanfarna daga, er rétt að rifja
það upp, að þrjár íslenzkar ríkis
stjórnir voru sammála um að
leggja 'ekki útfærslu fiskiland-
helginnar 1958 undir úrskurð al-
þjóðadómstólsins í Haag.
Á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna 1958, bauð brezka
stjórnin eða Selwyn Lloyd fyrir
hönd hennar, að landhelgisdeila
Breta og Íslendinga, sem hafði
risið vegna útfærslu fiskveiði-
landhelgi íslands í 12 mílur, yrði
lögð undir úrskurð Haagdóms-
ins og myndu Bretar fúslega
hlíta úrskurði hans.
Vinstri stjórnin, sem þá sat að
völdum, tók ■ ekki þessu boði
Breta.
Það gerði ekki heldur ríkis-
stjórn Alþýðuflokksins, sem fór
með völd mestallt árið 1959.
Það gerði ekki heldur núv.
ríkisstjórn, sem kom til valda
haustið 1959, en þetta boð Breta
stóð þá enn opið.
Þrjár íslenzkar ríkisstjórnir,
sem annars voru ósammála um
ýmislegt í landhelgisbaráttunni,
voru þannig sammála um að
að þiggja ekki það boð Breta, að
útfærsla fiskveiðilandhelginnar
1958 yrði lögð undir úrskurð
alþjóðadómstólsins.
Engin lög til.
Hver var sú meginástæða, sem
réði því, að þrjár íslenzkar ríkis-
stjórnir vildu ekki þiggja þetta
boð Breta?
Meginástæðan var sú, að ekki
voru til nein alþjóðleg lög eða
samningar um víðáttu fiskveiði-
landhelginnar. Alþ j óðadómstóll-
in gat þvi ekki dæmt í þessu
máli samkvæmt lögum eða samn
ingum. Úrskurður hans hefði
orðið að byggjast á mati á því.
hvað telja bæri hefð, en hefð í
þessum rínum er ekki byggð á
neinum rétti, heldur yfirgangi,
sem öflugri þjóð hefur beitt mátt
arminni þjóð Ilefð i þessurn efn-
um á ekkert skylt við rétt eða
réttlæti.
Ástæða var til að ætla, að mat
alþjóðadómstólsins á því, hvað
væri heíð í þessum efnum, yrði
mjög íhaldssamt. Þetta álit bygg-
ist á því, að í slíku tilfelli hefði
úrskurður dómstólsins orðið eins
konar lög eftirleiðis. Undir slík-
um kringumstæðum er ekki ó-
eðlilegt, að dómstólar séu var-
færnir.
viðurkennd l.ög eða samningar
eru ekki fyrir hendi, er það
verkefni annarra stofnana Sam-
einuðu þjóðanna, eins og örygg-
isráðsins og allsherjarþingsins,
að fjalla um slíkar delur.
Deilan um víðáttu fiskveiði-
landhelginnar er eitt slíkra
deilumála. Þar eru ekki nein
lög eða samningar fyrir hendi.
Þess vegna hefur verið efnt til
tveggja alþjóðlegra ráðstefna,
sem hafa átt að setja lög eða
samninga um þetta efni. Þær
hafa mistekizt. Enn eru því
ekki til nein lÖg eða samningar
um víðáttu fiskveiðilandhelg-
innar. Meðan svo er, er alþjóða-
dómstóllinn raunverulega ófær
um að dæma um þessi mál með
eðlilegum hætti. Deilur út _ af
þeim heyra undir aðrar stofn-
anir S.Þ
Málssókn nýlenduþjóðanna.
Þetta atriði skýrist vel, ef
menn athuga, hvernig nýlendu-
þjóðirnar hafa sótt rétt sinn.Sam
kvæmt þeim skrifum, sem nú er
ekki óalgengt að sjá í stjórnar-
blöðunum, hefði það átt að vera
auðveld leið fyrir þær að snúa
sér beint til alþjóðadómstólsins
og fá úrskurð um, að þær hefðu
rétt til að ráða yfir landi sínu.
Engin nýlenduþjóð hefur gert
þetta né óskað eftir því, að þessi'
leið yrði farin Ástæðan er sú,
að ekki eru til nein lög eða al-
þjóðasamningar, sem tryggja
slíkan rétt nýlenduþjóðar. í slík-
um málum myndi dómstóllinn
dæma eftir hefð, sem hefði orðið
til vegna yfirgangs hins sterka.
Það væri formlega réttur úr-
skurður, en siðferðilega alrang-
ur.
Barátta íslendinga fyrir stækk-
un fiskveiðilandhelginnar er á
margan' hátt ekki ósvipuð og
barátta nýlenduþjóðar fyrir yfir-
ráðaréttinum yfir landi sínu
Nýlenduþjóðirnar hafa sótt
mál sitt hjá Sameinuðu þjóðun
um á vettvangi allsherjarþings-
ins og öryggisráðsins, en ekki á
vettvangi alþjóðadómstólsins.
Það hefur verið eðlileg og rétt
málsmeðferð.
Brezki samningUirinn.
Ástæðan til þess, að menn
voru á móti því ákvæði brezk-
íslenzka nauðungarsamningsins
frá 1961, að Bretar gætu lagt
frekari útfærslu fiskveiðiland
helgi íslanda undir úrskurð al-
þ.ióðadómstólsins, var sú hin
sama og hinna þriggja ríkis-
stjórna, sem ekki vildu leggja út-
færsluna 1958 undir úrskurð
dómsins Nú eins og þá, eru ekki
til nein alþjóðleg lög eða samn-
ingar um þessi mál. Alþjóðadóm-
stóllinn verður þvl að dæma
slíku máli eftir umdeildri hefð
sem hefur orðiö til við yfirgang
hins ste’-ka Þetta mál verða fs
lendingai því að sækja á öðrum
vettvangi, þar sem lögin vantar
Hér verður að byggja á hinu sið
ferðilega róttlæti fyrst og
fi-emst
iiiw miwiwiHWM
Gerðardómstillagan 1958.
Til þess hefur nokkuð verið
vitnað, að á Genfarráðstefnunni
1958, hafi íslendingar lagt til,
að útfærsla fiskveiðilandhelg-
innar út fyrir 12 mílur,, skyldi
háð úrskurði gerðardóms. Því er
hins vegar sleppt, að í þessari
tillögu var tekið fram, að strand-
ríki, sem byggði afkomu sína
aðallega á fiskveiðum, skyldi
hafa slíkan útfærslurétt. Gerð-
ardómurinn hefði m.ö.o. fjallað
um, hvort viðkomandi þjóð
byggði afkomu sína svo mjög á
fiskveiðum að henni bæri þessi
réttur. Úrskurð, sem átti að
byggja á þessari forsenda,
þurftu Islendingar ekki að ótt-
ast. Hitt gegnir allt öðru máli, ef
úrskurðurinn byggist að meira
eða minna leyti á umdeildri hefð
eða svonefndum sögulegum rétti,
sem yfirgangssamt ríki er talið
hafa unnið sér á fiskimiðum
vanmáttugri. þjóðar.
25 ára frestur.
Tilgangur Breta með nauðung-
arsamningnum frá 1961 skýrist
bezt, þegar athuguð eru þau
ummæli fiskimálaráðherra
þeirra, að samningurinn jafn-
gildi því, að íslendingar geti
ekki fært út fiskveiðilandhelgi
sína næstu 25 árin. Bretar
treysta mjö.o. á, að ekki verði
sú framþróun á þessum málum
á umræddum tíma, að alþjóða-
dómstóllinn fallist á víðáttu-
meiri fiskveiðilandhelgi en 12
mílur.
Vonir þessar byggja Bretar
vitanlega ekki sízt á því, að með
samningnuro sé frumkvæðið í
þessum málum dregið úr hönd-
um íslendinga. Óumdeilanlegt
er, að það var útfærsla fisk-
veiðilandhelgi íslands 1958, sem
kom af stað þeirri skriðu, að 12
mílurnar eru nú almennt viður-
kenndar, þótt langt væri frá því,
að svo væri fyrir sex árum. Ef
íslendingar hefðu enn óbundnar
hendur og einhliða rétt til út-
færslu, hefðu þeir getað haldið
áfram forustunni í þessum mál-
um. Með nauðungarsamningn-
um frá 1961 hafa þeir ekki að-
eins verið sviptir þessari for-
ustu, heldur er sú hætta veruleg,
að þeir fái ekki frekari útfærslu
viðurkennda fyrr en margar
þjóðir verða áður búnar að ryðja
brautina, og á því getur orðið
dráttur, því að þær hafa her
minni hagsmuna að gæta en ís-
lendingar.
Bretar vissu hvað þeir voru að
gera með nauðungarsamningn
um 1961, eins og þeir vissu hvað
þeir voru að gera á 19. öldinni,
þegar þeir voru að snúa á svörtu
ættarhöfðingjana í Afríku
samningum sínum við þá.
Eru Bretar vinir íslendinga?
Það er lífshagsmunamál ís-
lenzku þjóðarinnar að hún fái
óskoruð yfirráð yfir landgrunni
ísiands Svo mjög byggist afkoma
hennar á sjávarútveginum.
Framhald á 13. síðu.
rti'wnnm— ................... a
I
l
Hlutverk alþjóðadómstólsins.
f umræðum um landhelgismál-
ið, gætir mjög þess misskiln-
ings, að það sé hlutverk alþjóða
dómstólsins að fella úrskurði i
öllum deilum, sem risa þjóða á
milii Þetta er mikill misskiln
ingur. Alþjóðadómstólnum er
fyrst og fremst ætlað að fella úr-
skurði um ágreining eða deilur
sem kunna að rísa út af því.
hvernig skilja beri viðurkennd
alþjóðleg lög eða samninga. Ef
r,oilur >ísp ú af málum. þar sem