Tíminn - 13.03.1964, Qupperneq 12
Auglýsing
um lausar stöður lögreglumanna í Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu
Stöðurtveggja lögreglumanna eru lausar til um-
sóknar. Laun samkvæmt launasamningi. Umsókn-
ir sendist sýsluskrifstofunni í Borgarnesi fyrir 1.
apríl n.k.
Gert er ráð fyrir því að þeir umsækjendur, sem
veljast til starfa, taki þátt í námskeiði fyrir lög-
reglumenn, sem hefst í Reykjavík í aprílbyrjun.
Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
VERKST JORANÁMSKEIÐ
Síðasta verkstjóranámskeið á þessum vetri verð-
ur haldið sem hér segir:
Fyrri hluti 31. marz—11. apríl
Síðari hluti 4.—16. maí.
Allar upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá
Iðnaðarmálastofnun íslands.
Stjórn verkstjóranámskéiðanna
TÍMANN vantar
börn eða fullorðið fólk, til að bera blaðið út í Smá-
Ibúðahverfi. — Upplýsingar á skrifstofunum,
Bankastræti 7, símar 12323 og 18300-
Útgerðarmenn
Japönsk þorskanet
30 — 32 — 34 — 36 möskva djúp.
Margir litir.
Garn nr. 12.
Verzlun Margeirs Jónssonar
Hafnargötu 55 — Keflavík.
Símar: 1130—1589
SEXTUGUR í DAG:
Stefán Jónsson
prentsmiðjustjóri
Stefán Jónsson, prentsmiðju-
stjóri, er sextugur í dag. Hann
er fæddur að Bakka í Geiradal
13. marz 1904, en fluttist þaðan
kornungur að Kambi í Reykhóla
sveit og ólst þar upp með foreldr
um sínum, Sesselju Stefánsdóttur
og Jóni Hjaltalín Brandssyni, sem
bjuggu þar lengi síðan og voru
mjög kunn og mikils metin þar
um sveitir vegna óvenjulegs dugn-
aðar og manndóms.
Stefán var næstelstur 10 systk
ina og það reyndi því snemma á
það hverjum kostum hann var bú
inn. En það kom fljótt í Ijós, að
hann sýndi bæði þrek og skap-
festu umfram það sem almennt
má vænta af ungum mönnum. Þcg
ar hann hafði aldur til fór hann
að heiman til að leita sér mennt-
unar. Hann stundaði fyrst nám i
Núpskóla og síðan í Samvinnuskól
anum og útskrifaðist þaðan vorið
1929. Eftir það starfaði hann sem
ráðsmaður við geðveikrahælið að
Kleppi til ársins 1935, en þá varð
hanp skrifstofustjóri Gjaldeyris-
og innflutningsnefndar. Því staríi
gegndi hann við þá stofnun og
aðrar, sem við tóku af henni, með
breyttum nöfnum, samfleytt þar
til Innflutningsskrifstofan var
logð niður vorið 1960 Eftir það
varð Stefán prentsmiðjustjóri
Prentsmiðjunnar Eddu-
Eg mun ekki rekja frekar starfs
feril Stefáns Jónssonar. Það er
enn of snemmt. En af því sem
hér hefir verið talið, má ljóst
vera að hann hefir með störfum
sínum í þágu þjóðfélagsins unnið
sér mikið traust, eins og ljóast
verður af því, að þótt oft hafi ver
ið gerð breyting á skipulagi og
stjórn gjaldeyrismálanna, hafa
þær breytingar ekki náð til Stef
áns, á þeim 25 árum, sem liðu frá
því að hann kom þar til starfa og
þar til starfseminni var hætt.
Stefán Jónsson hefir gegnt ýms
um fleiri trúnaðarstörfum í al-
mennings þágu þótt ekki verði þau
hér rakin frekar. En eins verð
ur þó enn að geta, sem ekki má
gleyma við þetta tækifæri. Hann
hefir nú nokkuð á annan tug ára
verið formaður sóknarnefndar Nes
sóknar og unnið á því sviði mikið
og mikilsvert starf, sem mun reyn
ast blesunarríkt í framtíðinni.
Eg, sem þessar línur rita, hefi
átt því láni að fagna, að hafa náið
samstarf við Stefán Jónsson um
þrjátíu ára skeið. Þetta samstarf
hefir verið með þeim hætti að það
hefir verið mér mjög mikils vert.
Eg vil því nú þakka honum sam-
starfið og einnig og alveg sérstak
lega einlæga vináttu hans og
drengskap, sem er og verður það,
sem mestu máli skiptir í öllutn
samskiptum manna, um leið og ég
óska honum og fjölskyldu hans
allra heilla og blessunar á þessum
tímamótum í ævi hans.
E.H.
Veiðieftirlitsmaður
ÁkveSið er að ráða mann, til eftirlits með nokkr-
um veiðiám í Húnavatnssýslu á komandi sumri.
Allar upplýsingar gefur undirritaður, sem einn-
ig tekur á móti umsóknum um starfið, og þurfa
þær að hafa borizt fyrir 1. apríl n.k.
St. Reykjavík 12/3 1964
Guðmundur Jónasson, Ási, Vatnsdal.
SkfaldbreiÖ
vestur um land til Akureyrar
17. þ.m. Vörumóttaka í dag og
árdegis á morgun til áætlunar-
hafna við Húnaflóa og Skaga-
fjörð, Siglufjarðar og Ólafs-
fjarðar.
Húsasmiðir
umsóknir um lán úr lífeyrissjóðnum þurfa að hafa
borizt skrifstofu sjóðsins fyrir 30. þ.m. Samtímis
falla úr gildi allar umsóknir eldri en tveggja ára,
nema þær verði endUrnýjaðar.
Lífeyrissjóður Húsasmiða.
Farseðlar seldir á mánudag.
HÉR ER DRÁTTARVÉLIN, SEM HENTAR MEÐALSTÖRUM OG SMÆRRI BÚUM
LIPURLEIKI OG FURÐUMIKILL KRAFTUR ERU MEG
INEINKENNI MF30 VÉLARINNAR
2 AFLURTÖK. TVÖFÖLD
KÚPLING, SJÁLFVIRKUR ÞRÝSTISTILLIÚTBÚNAD
U R VÖKVAKERFIS OG ..SYNKRONISER UD' • GÍR
SKIPTING ERU NOKKRIR AF EIGINLEIKUM MF-
30, SEM SKAPA YFIRBURÐI HENNAR
VERÐ ADEINS UM KR. 80.000 AUK SÖLUSKATTS
MF-30deLuxe dráttarvél1
DRATTARVELAR
Útboð
Tilboð óskast í smíði götuljósastólpa úr stáli.
Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri, Von-
arstræti 8, gegn 1000 króna skilatyggingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Útboð
Tilboð óskast i sölu á koparvír fyrir Rafmagns-
veitu Reykjavíkur.
Útboðslýsingar má vitja í skrifstofu vora Vonar-
stræti 8.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
12
TÍMINN, föstudaglnn 13Ú marz 1964