Tíminn - 09.05.1964, Side 4

Tíminn - 09.05.1964, Side 4
; i RITST JÓRl HALLUR SÍMONARSON ....... ................... Hér skorar Eyleifur markið, sem dæmt var af fyrlr melnta rangstöðu. Urðu dóm- ara og linuverðl ekkl mlstök á [ þessu sambandi? (Ljósm. Tlmlnn GE). Gísli Þorkelsson, markvörður Reykjavíkurúrvals, gerir hér árangurslausa tllraun til að verja fyrra skotið frá Donna. (Ljósm.: Tíminn GE). i 1 I i Gamli og nýi tíminn sameinuðust í vel leikandi liði Skagamanna - Akranes sigraði mjög veikt Reykjavikurúrval 2:0 AH-ReykjavJk, 8. maí. „Gamli og nýi tíminn“ hefði mátt nefna lið Skagamanna,.. sem vann verðskuldaðan sig- ur yfir dauðadæmdu Reykjavíkurúrvali á fimmtudag með _2:0. Lið Skagamanna, sam- bland gamalla landsliðsmanna frá blómatíma Akraness og ungra upprennandi leikmanna, átti mjðg góðan dag og sýndi vallargestum á Melavellinum beztu knattsþyrnu, sem sézt hefur á hinu nýbyrjaða keppnistímabili. En það verður þó að taka með í reikninginn, að hinn góði leikur Akraness var næstum allur á kostnað Reykjavíkurúrvalsins, sem var hvorki fugl né fiskur og dæmigert um áhugaleysi reykvískra knattspyrnumanna, þegar þeir eiga að leika, sem sameinaður aðili. Hitt er svo annað mál, að valið á liðinu kemur manni spánskt fyrir sjónir, en betri menn stóðu fyrir utan það, hvað sem því olli. Hiim gamli landsliðsútherji Akra ness, Halldór Sigurbjörnsson (Donni), sýndi, að lengi lifir í gömlum glæðum. Þrátt fyrir litla æfingu færði hann Akranesi sigur inn með tveimur gullfallegum mörkum, sem svo einkennilega vildi til, að sk-aruð voru með nákvæmlega sama hætti, bæði úr aukaspyrnum 8—10 metra fyrir utan vítateig. Fyrra markið kom á 20. mín í fyrri hálfleik, en það síðara á 40. mínútu. í bæði skiptin spyrnti Donni hárfínt yfir Rvíkurvörnina efst í hornið hægra megin. Gísli Þorkelsson í marki Rvíkur hafði mjög litla möguleika á að verja þessi skot, en hann átti góða tilraun við það síðara. —• Akranes lék undan vindi í fyrri hálfleik og réði þá að öllu leyti gangi leiksins. Framverðirnir Sveinn Teitsson og Jón Leósson höfðu öll tök á miðjunni, enda voru innherjar Rvfkur, þeir Gunn- ar Guðmannsson og Reynir Jóns- son, mjög atkvæðalitlir og oft hreinlega týndust þeir. Framverð ir Rvíkur, Sveinn Jónsson og Matt hías Hjartarson, áttu í miklum örð ugleikum og þeim gafst aldrei tími til að byggja upp, því þeir urðu að komS aftur í vörnina og aðstoða miðvörðinn, Jón Björgvinsson, sem ekki réði neitt við Donna í mið- herjastöðunni. Rvíkurmarkið var oft í mikílli hættu í fyrri hálfleiknum, en Gísli var vel á verði og greip inn í Rétt fyrir hlé bættu Skagamenn reyndar þriðja markinu við og átti nýliðinn í Akranesliðinu, Ey- leifur Hafsteinsson, heiðurinn af því. En markið var dæmt af fyrir meinta rangstæðu, þrátt fyrir þá staðireynd, að Eyleifur fékk knött. inn, sem hafði hrokkið frá varnar manni Rvikur til hans. Hvers vegna í ósköpunum geta íslenzkir knattspyrnudómarar aldrei feng- ið sig til a'ð túlka þá reglu, sem segir, að leikmaður sc ekki rang- stæður, þegar knötturinn kemur frá mótherja? f fyrri hálfleik átti Rvíikurúrvaí sárafá tækifæri — og þau, sem sköpuðust, urðu öll til fyrir tii- viljanir. Þannig var það með tæki færi, sem miðherjinn úr Þrótti, Haukur Þorvaldsson fékk á 39. mín., er hann fékk knöttinn send an úr þvögu, en hann spyrnti fyr- ir opnu marki á 2 m. færi í slá. Illa farið með upplagt tækifæri og Framhald á 13. sfðu. HÖFUÐBORGARINNAR um helgina Þessir knattspyrnuleikir fara fram um helgina: Laragardagur: ★ Reykjavíkurmót 1. flokks heldur áfram á Melavellin um. Kl. 14 ieika saman Þróttur og Valur. Kl. 15.15 ieika svo Fram og KR. — Þess má geta, að einn Ieik- ur hefur farið fram, KR— Þróttur. KR vann með 5:1. 1c f Keflavík fer fram bæjar- keppni og leika saman heimamenn og Akureyri og hefst leikurinn kl. 17. Sunnudagur: Abureyringar verða á ferð í Reykjavík og mæta Val á Melavellinum kl. 14. | Um kvöldið heldur áfram íleykjavíkurmótið í meist- araflokki og leika saman Þróttur og Víkingur. Hefst lelkurinn kl. 20.30. ,SOIVIE’ HSÍM-Reykjavík, 8. maí Það er sannarlega ekki uppörvandi fyrir Reykvík- inga — og þá sízt af öllu gamla Vesturbæinga — að horfa á keppni, þar sem annar aðilinn er „úrvalsliö frá höfuðborginni.“ Þetta sannaðist enn einu sinni áþreifanlega á fimmtudag, þegar Akurnesingar og Reykvíkingar háðu sína ár- legu bæjarkeppni í knatt- spyrnu á Melavellinum og Akurnesingar sigruðu auð- veldlega með 2:0, sem sízt var of mikið eftir gangi leiksins. Akurnesingar — sem áður í vor hafa leikið við Hafnfirðinga og Kefl- vfkinga og gert iafntefli í báðum leikjunum — sýndu yfirburði á nær öllum svið um knattspyrnunnar, þeg- ar þeir mættu úrvalsliði Reykjavíkur, skinuðu leik- mönnum úr KR, Val og Þrótti, liði, sem aldrei náði að samcinast í aðgerðum sínum, sýndi enga bá leik- gleði, sem þarf til að vinna leik, eða vilja til að gera hlut borgar sinnar stærri. En kannski hefur „móra!I“ leikmanna verið á núll- punkti, þegar liðið hljóp inn á völlinn til leiks — því manni kemur spánskt fyrir, þegar maður heyr- ir einn þeirra, sem valdi liðið, hrópa einna hæst á- horfenda, þegar Akurnes- ingar skoruðu. Hvernig á að búast við einhverju af leikmönnum borgarinnar, þegar „mórall“ ráðsmanna Knattspyrnuráðs Reykja- víkur er slíkur? En nóg um það. Hins vegar er ástæða til að óska Akurnesingum til hamingju með sigurinn, þeir hafa athyglisverðu liði á að skipa, sem vissulega getur náð langt í sumar, þó nokkur skuggi falli á sigur liðsins á fimmtudag — getuleysi mótherjanna. Þessi leikur var ekki und antekning frá þeirri hefð, sem er að skapast, þegar úrvalslið höfuðborgarinnar á í hlut. Fvrir nokkrum vik um var norskt handknatt- leikslið á ferð og vann að- eins einn leik hér — auð- vitað gegn úrvalsliði Reykjavíkur — þótt svo Norðmennirnir léku tvo aðra leiki við félagslið frá Reykjavík. Eða svo maður minnist ekki á ósköpin fyrir :iokkr- um árum, þegar Akureyr- ingar féllu niður úr 1. deild fslandsmótsins, og töpuðu þá fyrir nær öllum einstökum Reykjavíkurfé- iögum í mótinu, en höfðu hins vegar lítið fyrir því, að vinna úrvalslið Reykja- víkur í bæjarkeppni á Mela vellinum með fimm mörk- um gegn engu, 5:0. Hvem- ig mega þessi ósköp eiga sér stað —hafa reykvísk- ir iþróttamenn cngan metn að, þegar Reykjavík á í hlut? — hsím. T f MIN N laugardaginn 9. inaí 1964 H 4

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.