Tíminn - 09.05.1964, Qupperneq 15
DAGSBRÚN
Framhalii af 16. sl5u.
fólks, heitir Ihann fullum stuSn-
ingi félagsins við þær tilraunir,
sem hafnar eru til þess að leysa
þessi mál á friðsamlegan hátt með
viðræðum milli fulltrúa verka-
lýðshreyfingarinnar, rikisstj órnar-
innar og atvinnurekenda."
(Frá Dagsbrún)
LOKAÐ VEGNA . . .
Framhald af 16. síðu.
gjöld, söluskatt, vinnulaun o.
fl. þ. h. Stærsti kröfuhafinn er
Útvegsbanki íslands með sjö
milljónir þá KEA með um eina
milljón, og síðan koma ýmis
fyiirtæki á Akureyri sem átt
hafa viðskipti við Brynjólf með
ýmislegt varðandi hótel- og bú-
rekstur. Eru í því sambandi
nefndir Pétur og Valdimar með
um 100 þúsund fyrir Coca Cola
Efnagerð Akureyrar og fleiri
fyrirtæki.
Brynjólfur átti ekki hús það
er Hótel Akureyri starfaði í,
heldur hlutafélagið Félagsgarð-
ur.
KVIKMYNDA . . .
Framhald at 16. siðu.
Hans-Ole Hansen segir, að til-
gangurinn með þessu sé, að fræða
unglingana um lífskjör fólksins,
sem íslendingasögumar segja frá,
og greina frá trúarbrögðum þess,
ástum og bardögum. Margir ung-
lingar í Danmörku halda, að líf
þessa fólks hafi verið umvafið
rómantík og það hafi lifað í glæsi-
legum köstulum. Tilgangur sjón-
varpsþáttanna er að lýsa aðstæðun
um eins og þær raunverulega voru
og þar sem lítið er eftir af húsa
rústum, verður lögð á það áherzla
að kvikmynda landslagið.
Hans-Ole Hansen leggur stund á
nám í þjóðháttarfræði og er með
al annars þekktur fyrir þann þátt
sem hann átti í gerð járnaldar-
þorpsins í Lejre.
S.V.F.f.
Framhald af 16. síðu.
ferðir til að bjarga bæði sjálfum
sér og öðrum og skipi frá að-
steðjandi hættum. Félagið stefn-
ir nú að því, að búa björgunar-
sveitirnar fullkomnum talstöðv-
um, svo að þær geti haft samband
sín á milli. Auk þess hefur félag-
ið gert ráðstafanir til þess, að
kaupa miðstöð, sem komið verði
upp í Slysavarnahúsinu, og geti
haft samband við björgunarsveit-
irnar að starfi. Einnig verður rætt
um það á þessu þingi, að efla
björgunarsveitirnar til muna.
Verið er að byggja nýtt björg
unarskýli í Hafursey í stað skýlis-j
ins, sem fauk þar í páskahretinu
í fyrra, einnig er í undirbúningi
að byggja nýtt björgunartækjahús
í Sandgerði. Þá er og í ráði, að
koma upp skýli í Norður-Aðalvík
og endurbyggja skýlið á Sléttu.
Auk þess þarf að byggja nýtt skýli
í Hrafnsfirði á Jökulfjörðum. Ætl
unin er svo, að útbúa öll björg-
unarskýli félagsins talstöðvum.
Meðal nýjunga í starfsemi Slysa
varnafélagsins má nefna tvennt,
útgáfu bæklinga með varnaðarorð
um þeim, sem flutt hafa verið á
hverju miðvikudagskvöldi í út-
varpinu, undanfarin tvö ár, og
búninga, sem dreift verður í skóla
og notaðir af börnum þeim, sem
stjórna umferðinni í nágrenni skól
anna. Bæklingarnir eru gefnir út
í 30.000 eintökum og verður dreift
ókeypis um allt landið.
Síra Óskar J. Þorláksson hefur
verið settur þingforseti landsþings
ins, en þau mál, sem þar er eftir
að ræða um eru m. a. öryggiseftir-
lit með smábátum, fjarskiptaþjón
usta, slysavarnir í heimahúsum og
umferðarmál.
ÚTLENDINGAR TIL EYJA
Framhaid af 1. síðu.
fyrir slíkt. Vinnslustöðin borg
ar venjulega aðra ferðina fyrir
fólk sem það ræður til sín,
séu það fslendingar eða Fær-
eyingar, en aðrir verða að
kosta ferðirnar sjálfir.
Einar Sigurjónsson hjá ís-
félaginu sagði að Jóhann Páls-
son hefði verið sendur til Fær-
eyja fyrir skömmu til þess að
leita þar að verkafólki. Hefði
hann ráðið 15 stúlkur og álíka
marga karlmenn til fiskvinnslu
og þar að aukj 4 sjómenn, sem
fara á báta félagsins.
Færeyingamir eru ráðnir til'
3—4 mánaða, og borgar ísj
félagið hingað, en fólkið komj
með Drottningunni 3. maí, og;
hefur það reynzt vel. Sömu
sögu hafði Einar að segja af
öðru.n útlendingum, sem unnið
hafa hjá honum í vetur, og
kvað hann óreglu ekki hafa
verið mikla á fólkinu í vetur.
Fjórir skozkir námsmenn
komu til Fiskiðjunnar í gær, og
von er á 20 í viðbót. Að sögn
Ágústs Matthíassonar er mik-
ið framboð af írskum stúdent-
um, en ekki hefur enn verið
ákveðið, hve margir verða ráðn
ir þangað í sumar. Fiskiðjan
borgar aðra ferðina fyrir þá
útlendinga, sem ráðnir em til
starfa hjá henni.
Prá Alþingi
BANASLYS
Framhald af 1, slðu.
urinn náði ekki beygjunni, bfll-
inn fór upp á gangstéttina fyrir
framan Útvegsbankann, inn fyrir
umferðarmerki, sem þar er, á litlu
telpurnar og hafnaði á ljósastaur.
Farið var með báðar telpumar á
sjúkrahúsið en þar lézt Sigur-
finna Stefánsdóttir skömmu síðar
Litlu telpumar vora frænkur og
feður þeirra báðir skipsmenn á
Halkion frá Vestmannaeyjum. —
Stefán Stefánsson faðir Sigurfinnu
er skipsivóri á skipinu og Gísli
Eyjólfsson faðir Margrétar er
stýrimaður á Halkion. Móðir Sig-
urfinnu heitinnar er Vilborg
Brynjólfsdóttir.
í sendiferðabílnum vom tveir
farþegar auk ökumanns, og lék
grunur á að ökumaðurinn væri
undir áhrifum áfengis. Málið er í
rannsókn.
Hin stúlkan er stórslösuð á
sjúkrahúsinu í Eyjum, þar sem
einnig liggur karlmaður. sem stór-
slasaðist, er hann varð fyrir bll
í Eyjum á dögunum. Það er ekki
furða, þótt óhug slái á Vestmanna
eyinga, þegar svona atburðir ger-
ast þar hvað eftir annað.
Frá Alþingi
breytingar á skattstiganum, sem
valda hækkun á skatti miðað við
skattskyldar tekjur, eins og sýnt
er fram á í þál. minni hluta fjár-
hagsnefndar Ed. (HB og EK) á
þingskjali 495.
Eins og áður segir, var miðað
við kaupgjaldsvísitölu við umreikn
ing 'á tekjutölum skattstiga og
persónufrádrætti samkvæmt.
skattalögunum frá 1954. Þetta er
ckki mögulegt nú, því að kaup-
gjaldsvísitalan er úr sögunni fyrir
löngu. Kemur þá til álita, við
hvaða vísitölu eigi að miða, cf
utnreikningurinn verður tekinn
upp á ný. Þegar frv. þetta var
til afgreiðslu í hv. Ed., bar minni
hl. fjárhagsnefndar þar (HB og
KK) fram breytingartillögu um
að taka inn í frv. ákvæði um um-
reikning á persónufrádrætti, og
skyldi hann miðast við breytingar
á framfærsluvísitölunni Eftir að
sú tillaga hafði verið felld, bar
sami minni hl. fram tillögu um
að umreikna persónufrádráttinn
eftir meðalvísitölu vöru og þjón-
ustu. Sú till. var líka fell1 í Ed. En
hér verður gerð tilraun til að fá
lögfest ákvæði um umreikning á
tekjutölum skattstiga og persónu
frádrætti til satnræmis við vísi-
tölu framfærslukostnaðar, og eru
dæmin, sem birt eru hér að framan
reiknuð samkvæmt því.
það, sem það var í fyrra. Mun
nú koma í Ijós, hver sé vilji þeirra
manna, sem eru að kvarta undan
því að hlutur Vestfjarða sé lítill
og þurfi að vaxa.
Gísli Guðmundsson sagði þjóð-
brautir og landsbrautir mjög
slæmar víða í Norðurlandskjör-
dæmi eystra og austast í kjördæm
inu væri stór hluti þeirra aðeins
mddir vegir. Þá þyrfti að athuga
það, þegar talað væri um lagða
vegi, að margir þeirra vom byggð
ir fyrir áratugum með pál og
haka og era lítið betri en ruddir
vegir sumir hverjir — en á þess
um vegum væri umferð vaxandi
svo og þungaflutningar meðal ann
ars vegna útbreiðslu mjólkurfram
leiðslu. Gísli taldi nauðsynlegt, að
Alþingi ætti þess kost að koma
inn í vegaáætlanir heimildum tii
v/Miklatorg
Sími 2 3136
EfMftEffMN
Askriftarsfmi 1-61-51
Pósthólf 1127
Reykiavík.
TRUL0FUNAR
HRINGIR
AMTMANNSSTÍG 2
HALLOÖR KRISTINSSON
guflsmíSur — Sími 16979
Til solu
2ja herb. íbúðarhæð
með bflskúr.
Málflulnlnsrskrlfjlofíi
Þorvarður K, Þorsfoirisson
Mlklubrauf 74.
FasfelgnavlSiklptl:
Guðmundur Tryggvason
Slml 22700.
TIL SÖLU
er 4ra herb. íbúð við
Safamýri.
Félagsmenn hafa for-
kaupsrétt lögum sam-
kvæmt.
Byggingarsamvinnufélag
Reykjavíkur
Iántaka til vegagerðar svo unnt
sé að ræða vegamálin öll í heild
við afgreiðslu vegaáætlana. Þá
sagði hann það ekki fá staðizt að
ríkisstjórnin taki lán til vegafram
kvæmdanna en setji suma land-
hLuta alveg hjá í því sambandi.
Ýmsar vegagerðar væru þannig
vaxnar, svo fjárfrekar að eðlilegt
yrði að teljast að þær yrðu verð
ar fyrir lánsfé því ekki myndi reyn
ast unnt að hrinda þeim í fram-
kvæmd með hinu almenna vega-
fé. Minnti Gísli í Jþessu sambandi
á Múlaveg milli Ólafsfjarðar og
Svarfaðardals og einnig fleiri vega
gerðir í Norðurlandskjördæmi
eystra.
Umræðunni var ekki lokið er
hér var komið.
Starfsmann
vantar við innpökkun á blaðinu. — Næturvinna.
Upplýsingar á skrifstofunni, Bankastræti 7,
sími 12323.
Starfsstúlka óskast
Starfstúlka vön matreiðslu óskast til,sumarafleys-
inga í eldhús Landspítalans. Upplýsingar gefur
matráðskonan kl. 9—15 daglega í síma 24160.
Skrifstofa ríkisspítalanna
Starfsstúlka óskast
Starfsstúlku vantar nú þegar í Flókadeildina,
Flókagötu 29.
Upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkonan í síma
16630.
Reykjavík, 6.. maí 1964.
Skrifstofa ríkisspítalanna
Bátaeigendur —
útgerðarmenn
160—180 ha. Caterpillar bátavél til sölu. Vélin
er algjörlega endurbyggð. Allir slitfletir endur-
nýjaðir (nýr sveifarás). Ábyrgð tekin á vinnu og
vél. Hagstætt verð.
Upplýsingar í síma 32528.
ÚTBOD
Tilboð óskast í sölu á tveim fólkslyftum í háhýsið
Austurbrún nr. 6.
Útboðsgagna skal vitja í skrifstofu vora, Vonar-
stræti 8, gegn 500 króna skilatryggingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar
Elglnkona mín,
Arnbjörg Sigurðardóttir
Mlnnl-Borg, Grfmsnesl,
lézt f Landspitalanum aSfaranótt föstudagsins 8. maí.
- Árnl Etnarsson, Minnl-Borg.
Þökkum Innilega auSsýnda samúS og vinarhug vIS andlát og útfðr ,
móður okkar,
Eyrúnar Guðmundsdóttur
Vík I Mýrdal. i
Börn, tengdabörn og barnabörn.
I
15
T í M I N N , laugardaglnn 9. maf 1964