Tíminn - 15.05.1964, Page 6
»
ABURDARVERKSMIÐJAN
VERDI RÍKISFYRIRTÆKI
8 þingmenn Framsóknarflokks-
ins lögðu fram á Alþingi fyffir
nokkrum dögum frumvarp til laga
um áburðarverksmiðju ríkisins.
Meginefnisbreyting frá núgildandi
•lögum um áburðarverksmiðjuna
h.f. er sú, að i frumvanpinu er lagt
til, að verksmiðjan verði gerð að
ríkisfyrirtæki, hlutabréf einstakl-
inga verði tekin eignarnámi og
greidd út skv. mati.Frumvarpið er
flutt af eftirtöldum þingmönnum:
Ágústi Þoffvaldssyni, Sigurvin
Einaffssyni, Hal'ldóri E. Sigurðs-
syni, Ingvari Gísiasyni, Jóni
Skaftasyni, Einari Ágústssyni,
Birni Fr. Björnssyni og HaHdóri
Ásgrímssyni. Greinargerð með
frumvarpinu er svohljóðandi:
„Samkvæmt heimild í 13. gr.
iaga nr. 40 23. maí 1949, um áburð
arverksmiðju, hefur áburðarverk-
smiðjan í Gufunesi verið rekin
sem hlutafélag. Við undirbúning
þeirra laga og í frv. að þeim var
þó gert láð fyrir, að verksmiðjan
væri sjálfseignarstofnun á vegum
ríkisins, sem ríkið eitt legði fram
og útvegaði fé til. í öllum þeim
umræðum, sem fram höfðu farið,
virðast allir hafa gert ráð fyrir, að
verksmiðjan yrði ríkisfyrirtæki.
Það var ekk} fyrr en á síðasta
stigi málsins á Alþingi, að fram
var lögð tillaga um, að ríkisstjórn-
inni væri heimilað að leita eftir
þátttöku félaga og einstaklinga
um hlutafjárframlög til stofnun-
ar áburðarverksmiðjunnar. Eins
og frá lögunum var gengið, skyldi
ríkissjóður leggja fram það, sem
á vantaði, að hlutafé yrði 10 millj.
kr., ef framlög einstaklinga og fé-
laga næmu a. m. k. 4 millj. kr.
Ljóst er af þeim umræðum, sem
fram fóru á Alþingi á sínum tíma,
að fyrir þeim, sem að þessarí til-
lögu stóðu, vakti tvennt: annars
vegar vantrú á ríkisfyrirtækjum
og sú skoðun, að verksmiðjunni
yrði betur stjórnað, ef þar kæmu
til menn, sem ættu einkahags-
muna að gæta, og hins vegar, að
með þessu móti væri veruleguim
fjárhagsbyrðum létt af ríkissjóði,
með því að gert var ráð fyrir, að
allt að fjórðungur stofnkostnaðar
yrði lagður fram af öðrum en rík-
inu. Stofnkostnaður var þá áætl-
'aður um 40 millj. kr.
Um hvorugt þessara atriða varð
! tillögumönnunum að von sinni.
Þetta fyrirkomulag létti ekki fjár-
hagsbyrðar ríkissjóðs að neinu
ráði. Stofnkostnaður verksmiðj-
, unnar mun hafa orðið um 130
millj. kr. og með síðari viðbótum
: kominn yfir 200 milljónir. í hluta-
fé söfnuðust aðeins 4 millj. kr.
frá öðrum en ríkinu, en að öðru
leyti hefur ríkið lagt fram eða út-
vegað fé til verksmiðjunnar, en
allt þetta fé greiða svo notendur
áburðarins í gegnum verðlagningu
hans. Framlag annarra hluthafa
en ríkisins virðist því næsta lítið
til að réttlæta hlutdeild þeirra í
verksmiðjunni.
Flm. þessa frv. telja ríkisrekst-
ur hvorki æskilegt né eftirsóknar-
verj rékstrarform í sjalfu séytiþ^r
sem öðru verður méð eðlilegum
hætti við komið. Á hinn bóginn
er enarkaður okkar þjóðfélags svo
lítill, að stórfyrirtæki, sem fram-
leiðir fyrir innlendan markað,
hlýtur oftast að sitja að honum
eitt án alls aðhalds af eðlilegri
samkeppni. Slíkt fyrirtæki nýtur
því algerrar einokunaraðstöðu,
sem ekki er eðlilegt að sé í hönd-
um annarra en ríkisheildarinnar,
allra sízt eftir að því hefur verið
falið að sjá um alla áburðarsöluna,
eins og verið hefur undanfarið.
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi
framleiðir fyrst og fremst áburð
fyrir innlendan markað, og inn-
flutningur áburðar er takmarkað-
ur við það magn, sem verksmiðj-
an annar ekki að framleiða, og,
þær tegundir, sem hún framleiðir
ekki. Þannig nýtur verksmiðjan
algerrar einkaaðstöðu á áburðar-
markaðinum í landinu.
Með tilliti til þessa telja flm.
það fyrirkomulag, sem nú er á
rekstri áburðarverksmiðjunnar, al-
veg óeðlilegt, og það er skoðun
þeirra, að tímabært sé, að ríkið
leysi til sín hlutabréf annarra
hluthafa í verksmiðjunni og taki
rekstur hennar að fullu í sínar
hendur, og miðar frv. þetta að því.
Gert er ráð fyrir því í frv., að
setja á stofn áburðarverksmiðju
ríkisins sem sjálfstæða stofnun í
eigu ríkisins, sem lúti sérstakri
stjóm, sem kosin sé af Alþingi.
Áburðarverksmiðja ríkisins taki
við öllum eignum og réttindum,
skuldum og ábyrgðum Áburðar-
verksmiðjunnar h/f og komi að
öllu leyti í hennar stað. Hlutabréf
Áburðarverksmiðjunnar h/f, sem
eru í eigu annarra en ríkisins,
skulu tekin eignarnámi samkvæmt
mati þriggja manna, sem hæsti-
réttur tilnefnir.
1. gr. Áburðarverksmiðja ríki~-
ins er sjálfstæð stofnun, sem er
eign ríkisins og lýtur sérstakii
stjórn samkv. lögum þessum. —
Verksmiðjuna má hvorki selja né
veðsetja, nema heimild sé veitt
til þess í lögum.
2. gr. Áburðarverksmiðjan frain
leiðir eftirtalin áburðarefni: arn-
moníak úr vatni og lofti, ammoní-
um-nítrat, ammoníum-fosfat, og
önnur áburðarefni, eftir því sem
henta þykir.
Framleiðslunni skal hagað á
þann hátt, er ódýrastan má telja,
en þó hagkvæman fyrir íslenzka
jarðrækt. Jafnframt skal höfð hlið
sjón af almennri þörf landsins og
notkun fyrir þau hráefni, sem
verksmiðjan framleiðir á ýmsum
stigum áburðarvinnslunnar.
3. gr. Áburðarverksmiðja ríkis-
ins tekur við öllum réttindum og
eignum, skuldum og ábyrgðum
Áburðarverksmiðjunnar h.f. og
kemur að öllu leyti í hennar stað
Leggur ríkissjóður áburðarverk-
smiðjunni til sem stofnfé hreina
eign hlutafélagsins áburðarverk-
230 mál til meö-
ferðar á þingimu
Hér fer á eftir yfirlit um störf
Alþingis þess, sem lauk störfum
í gær.
Þingið hefur staðið frá 10. okt.
1963 til 14. maí 1964, alls 218
daga. Þinghlé var frá 21. des. 1963
tii 16. jan. 1964.
Þingfundir hafa verið haldnir:
í neðri deild 100. í efri deild
90. í sameinuðu þingi 80. Alls 270
þingfundir.
Þingmál og úirslit þeirra:
I. Lagafrumvörp:
1. Stjórnarfrumvörp: a. Lögð
fyrir neðri deild 28. b. Lögð fyrir
efri deild 25. c. Lögð fyrir sam-
einað þing 2, samtals 55.
2. Þingmannafrumvörp: a. Borin
fram í neðri deild 46. b. Borin
fram í efri deild 21, samtals 67.
Frumvörp alls 122.
í flokki þingmannafrumvarpa
eru talin 6 frumvörp, sem nefndir
fluttu að beiðni einstakra ráð-
herra.
Úrslit urðu þessi:
Lagafrumvörp:
a. Afgreidd sem lög: Stjórnar-
frumvörp 39. Þingmannafrumvörp
16, alls 55 lög.
b. Vísað tii ríkisstjórnarinnar:
Þingmannafrumvörpum 1.
c. Ekkj útrædd: Stjórnarfrum-
vörp 16 Þingmannafrumvörp 50,
alls 66 — 122.
II. Þingsályktunartil'lögur:
Bornar fram í sameinuðu þingi
90. Þar af: a. Ályktanir Alþingis
32. b. Felldar 2. c. Vísað til ríkis-
stjórnarinnar 2. d. Ekki útrædd-
ar 54.
Bornar fram í efri deild 1. Þar
af: Ekkj útræddar 1.
m. Fyrirspumir,
allar oomar fram í sameinuðu
þingi, 29, en sumar eru fleiri
saman á þingskjali, svo að mála-
tala þeirra er ekki nema 17.
Allar voru fyrirspumir þessar
ræddar, nema 1 Mál til meðferðar
í þinginu alls 230. Tala prentaðra
þingskjala 701.
smiðjunnar, enda innleysir ríkis-
sjóður hlutabréf þess samkvæmt.
13—17. gr. þessara laga. Hættir
þá Áburðarverksimiðjan h.f. að
vera til sem sjálfstæð stofnun, en
rennur inn í áburðarvcrksmiðj u
ríkisins, er tekur samkvæmt fram
ansögðu við starfsemi hlutafélags-
ins og hlutverki
4. gr. Ríkissjóður leggur fram fé
til greiðslu á stofnkostnaði og
byggingarframkvæmdum áburðar-
verksmiðjunnar samkvæmt ákvæð
um fjárlaga, og er það fé óaftur-
kræft. Ef fjárveitingar á fjárlög-
um hrökkva ekki til greiðslu stofn-
kostnaðar og byggingarfram-
kvætnda verksmiðjunnar, er verk-
smiðjustjórninni heimilt að taka
fé það, sem á vantar, að láni inn-
anlands eða utan með samþykki
rikisstjórnarinnar og ábyrgð ríkis-
sjóðs. Áburðarverksmiðjan skal
standa straum af vöxtum og af-
borgunum þessara lána.
5. gr. Stjórn áburðarverksmiðj-
unnar skal skipuð fimm mönnum,
sem kosnir skulu hlutfallskosningu
í sameinuðu Alþingi til fjögurra
ára í senn. Landbúnaðarráðherra
skipar einn þeirra formann verk-
smiðjustjómar. Verksmiðjustjórn
in hefur á hendi stjórn verksmiðj
unnar undir yfirumsjón landbún-
aðrráðherra. Ráðherra setur
stjórninni erindisbréf og ákveður
laun hennar.
6. Verksmiðjustjórnin ræður
framkvæmdastjóra með verkfræði
legri menntun til þess að hafa á
hendi daglega stjórn verksmiðj-
unnar og umsjón með rekstri henn
ar. Framkvæmdastjóri hefur pró-
kúruumboð fyrir verksmiðjuna og
ræður starfsfólk, en hlítir að öðru
leyti ákvæðum erindisbréfs, sem
verksmiðjustjórnin setur honum.
Til þess að skuldbinda áburðar-
verksmiðjuna þarf undirskrift 3ja
stjórnarnefndarmanna.
7. gr. Endurskoðendur áburðar-
verksmiðjunnar eru þrír, tveir
kjörnir með hlutfallskosningu í
sameinuðu Alþingi til tveggja ára
í senn, en hinn þriðja skipar land
búnaðarráðherra til sama tíma
eftir tilnefningu búnaðarþings.
Landbúnaðarráðherra ákveður
þóknun endurskoðenda, að fengn
um tillögiim verksmiðjustjórnar.
8. gr. Áburðarverksmiðjan sel-
ur áburð til notkunar innanlands
fyrir kostnaðarverð, er verk-
smiðjustjórnin áætlar og ákveður
I. marz ár hvert, að fengnu sam
þykki landbúnaðarráðherra. í
hinu áætlaða kostnaðarverði skal
reikna með nauðsynlegum og lög-
ákveðnum tillögum í fyrningar-
sjóð og varasjóð verksmiðjunnar.
9. gr. Áburðarverksmiðjan skal
undanþegin öllum sköttum og op
inberum gjöldum nema fasteigna
sköttum og landsútsvari sam-
II. og IV. kafla laga um tekju-
stofna sveitarfélaga.
10. gr. Framlag áburðarverk-
smiðjunnar til fastra sjóða hennar
skal vera á hverju ári sem hér
segir: a) Til fyrningarsjóðs 2Vi %
af kostnaðarverði húsa, lóðar og
annarra mannvirkja og 7Vz% af
kostnaðarverði véla og annarra á-
halda, b) Til varasjóðs allt að
3% af kostnaðarverði framleiðsl
unnar.
11. gr. Reikningsár áburðarverk
smiðjunnar er almanaksárið. Skal
stjórn hennar gera reikningsskil
fyrir hvert starfsár svo fljótt sem
auðið er og svo snemma, að
endurskoðun geti farið fram fyrir
lok aprílmánaðar ár hvert. Reikn
ingarnir skulu sendir landbúnaðar
ráðherra þegar að lokinni endur
skoðun, undirritaðir af stjórn og
framkvæmdastjóra og áritaðir af
endurskoðendum. Reikninga skal
birta árlega í B-deild Stjórnartíð
inda.
12. gr. Nánari ákvæði um rekst
ur og tilhögun áburðarverksmiði
unnar setur landbúnaðarráðherra
með reglugerð, að fengnum tillög-
um verksmiðjustjórnarinnar.
13. gr. Ríkisstjórnin tekur eign-
Framhald á 15. síðu.
Á ÞINGPALLI
★ ÞINGLAUSNIR fóru fram á Alþingi í gær. Áður en sú athöfn hófst
voru 7 þingmenn kosnir í nefnd til athugunar á áfengisvandamál-
inu skv. nýsamþykktri þingsályktunartiilögu. Þessir voru kjörn-
ir: Ingvar Gíslason, Sigurvin Einarsson, Einar Ingimundarson, Axel
Jónsson, Jón Þorsteinsson, Magnús Jónsson og Alfreð Gíslason.
★ ÞÁ LAS forseti sameinaðs Alþingis, Birgir Finnsson upp yfirlit
yfir störf þingsins. Þakkaði þingmönnum gott samstarf, óskaði þeim
góðrar heimferðar og góðrar heimkomu og kvaðst vona að þing-
menn hittust allir heilir að hausti.
★ EYSTEINN JÓNSSON þakkaði forseta fyrir góðar árnaðaróskir til
þingmanna- Þakkaði forseta góða samvinnu og réttláta fundar-
stjórn og kvaðst vilja fyrir hönd þingmanna færa honum og hans
fólki beztu árnaðaróskir. Þingmenn tóku undir þessi orð Eysteins
Jónssonar með því að rísa úr sætum.
★ ÞÁ GEKK forseti íslands, Ásgeir Ásgeirsson, i fundarsal og las upp
forsetabréf um slit Alþingis og lýsti Alþingi slitið. Þingmenn
hylltu forsetann og fósturjörðina með ferföldu húrrahrópi.
★ SÚ MEINLEGA VILLA varð í aðalfyrirsögn á þingsfðunni í gær
yfir nefndaráliti Helga Bergs og Karls Kristjánssonar, að hækka
stóð fyrir lækka og merking snerist við. Fyrirsögnin átti auðvitað
að vera, eins og allir glöggir menn hafa séð í hendi sér: Vexti
verður að LÆKKA og verðtryggja spariféð.
6
T í M I N N, föstudagur 15. mal 1964.