Tíminn - 15.05.1964, Blaðsíða 16

Tíminn - 15.05.1964, Blaðsíða 16
jiiljyJuiiéijUwB Föstudagur 15. maí 1964. 108. tbl. 48. árg. ARSREIKNINGAR SEÐLABANKANS JK-Reykjavík, 14. maí. f dag birti Seðlabankinn árs- reikninga sína fyrir 1963 og flutti formaður bankastjórnarinn ar, dr. Jóhannes Nordal ræðu í því tilcfni í liádegisverðarboði í Þjóðleikliúskjallaranum. f ræðu bankastjórans kom m. a. fram að rekstrarafkoma bank- ans var mjög svipuð 1963 og árið áður og reyndist hreinn tekju afgangur vera 1,3 millj. króna á móti 1,1 millj. króna árið 1962. Bankastjórinn gat meginverk- efna bankans, svo sem þess að fylgjast með bankastarfsemi í landinu og vinna að því, að hún sé sem heilbrigðust, viðleitni Seðla bankans að koma á strangari regl um um meðferð bankaávísana og samstarfi hans við aðra banka í því tilliti, vaxandi fyrirgreiðslu Seðlabankans og margvíslegrar þjónustu við ríkissjóð m. a. vegna I ramkvæmdaáætlunarinnar. Dr. Jóhannes ræddi síðan þró- un efnahagsmála á árinu og drap m. a. á óhagstæðari greiðslu jöfnuð við útlönd en árin tvö á undan, stóraulúnn útflutning, vinnuaflsskort og óeðlilega hækk- un fasteignaverðs á árinu, verð bólguóttann, sem greip um sig seinni helming ársins og viðleitni Seðlabankans og ríkisstjórnarinn ar til að hamla nokkuð á móti þenslunni. Bankastjórinn kvað aukningu þjóðarframleiðslunnar hafa numið FANNST LÁTIN' FB-Reykjavík, 14. maí. í morgun fannst þýzka hjúkrun arkonan, sem lýst var eftir í gær, Freyja Burmcister, og var hún látin. Konan fannst í nánd við Stapann á leiðinni suður til Keflavíkur. nærri 7% á árinu, sem væri langt yfir meðalaukningu þjóðarfram- leiðslunnar áratuginn á undan. Heildarverðmæti útflutningsins jókst um tæp 12% en hins veg- ar jókst innflutningurinn um tæp 23%. Gjaldeyrisstaðan rýrn- aði ekki á árinu, þrátt fyrir verri greiðslujöfnuð. í lokin ræddi bankastjórinn á- hrif vaxandi þenslu og kauphækk- ana, sem hann kvað hafa einkennt árið 1963. Hann sagði þjóðina standa um þessar mundir á kross götum, og leita yrði nýrra leiða til að koma jafnvægi í efnahags- málunum. Benti dr. Jóhannes á möguleika á verðtryggingu launa, en í öðru formi en vísitölutrygg inguna, sem notuð var fyrir nokkr um árum. HF-Reykjavík, 14. maí. Þaö trúa því víst fæstir, en mcð tilkomu rafmagnstækn- innar hefur reynzt unnt að búa til hljóðfæri, sem gegnir hlut- verki þriggja hljóðfæra, en getur stælt önnur 21 þar að auki og er þriggja hljóðfæra maki, ef því er að skipta. Þetta hljóöfæri hefur enn ekki hlotið , íslenzkt nafn, cn framleiðend- ur hafa nefnt það Cordovox. Grettir Björnsson, harm- onikuleikari, mun enn sem komið er vera færastur íslend inga á þetta hljóðfæri, en hann sá það fyrst úti í London Framhald á 15. síðu. Guðmund'iir Ingólfsson, píanóleikari á Röðli, er þarna að spila á 24 hljóðfæri í einu uppi í Hljóðfæravcrzluninni Rín í dag. (Tímamynd-GE). Stokkseyr arkirkia endurvígö 24. maí BT-Stokkseyri, 14. maí. Sunnudaginn 24. maí vcrður Stokkseyrarkirkja endurvígð, eft ir að gagngerar endurbætur hafa farið fram á kirkjunni. Kirkjan verður endurvígð við hátíðaguðs- þjónustu að viðstöddum biskupi íslands og kirkjumálaráðherra, en séra Magnús Guðjónsson sóknar- prestur syngur messu. Kirkjan var síðast endurbyggð árið 1886, en þá var hún sóknar kirkja Eyrarbakka og Stokkseyrar sem voru þá í einum og sama hreppnum. Á síðasta sumrí var síðan ákveðið að gera ýmsar end urrbætur á kirkjunni og urðu þær meiri en í fyrstu hafði verið ákveðið. Kirkjunni var lyft og undir hana steyptur sökkull, en gamli sökkullinn var úr grjóti, og nokk uð ókyrr, vegna þess að liann stóð á sandi. Þá hafa veggirnir verið endurnýjaðir, og innrétt- ing er öll ný og komnir eru í kirkj una vandaðir stoppaðir stólar. Nýtt pípuorgel hefur verið keypt, og er það svipað því, sem Framhald á 15. siðu. Sumarfoústaöir við 300 garölönd í Skammadal FB-Reykjavík, 14. maí. Óhernju eftirspurn hefur verið eftir garðlöndum í vor, og eru nú milli 300 og 400 manns á biðlista hjá garðyrkjustjóra Reykjavíkurborgar, og þó hefur ekki verið tekið á móti pöntunum síðan fyrir sumardaginn fyrsta. Verið er að ræsa fram 16 ha. í Skammadal í Mosfellssveit, og þar ættu að öllum líkindum að fást garðar fyrir þá sem á bið- Iista cru, og fær hver maður um 300 fermetra garð. Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri veitti blaðinu þær upplýsingar, að eftirspurn eftir garðlöndum hefði verið gífurleg í vor, og væru nú komnir á 4. hundrað manns á biðlista, en hætt hefði verið við að taka á móti pöntunum eft ir sumardaginn fyrsta. Síðan hafa verið stöðugar upphringingar og fyrirspurnir um garða, sem ekki verður hægt að sinna að þessu sinni. í Skammadal er verið að ræsa fram 16 ha lands, og er ætlunin að hver garðeigandi fái um 300 fermetra að meðaltali, og verður leiga fyrir garðinn 150 krónur, og innifalin í leigunni er vinnsla I garðlandsins. Ef þurrviðrið helzt, I sagði Hafliði, ætti að verða búið I að vinna garðana upp úr 20. maí, i og þá verða þeir afhentir. Fyrirkomulagið í Skammadal verður með nokkuð nýjum hætti. Venjulega hefur hver maður haft garðskúr í sínum kartöflugarði, en nú er gert ráð fyrir að garð- eigendur fái úthlutað um 200 fermetra svæði utan kartöflugarð anna uppi á holtinu þarna hjá. Þarna eiga þeir að koma upp garðhúsum, sem verða meira en garðskúrar, og gæti fólk jafnvel Þaft húsin fyrir sumarbústaðH. Öll garðhúsin verða innan einn ar girðingar, sem borgin lætur sjá um, að komið verði upp, og strangar kröfur verða gerðar um umgengni á þessu svæði, svo ekki verði ósnyrtilegt þarna. Ekki er enn búið að ákveða leiguna á garð húsalöndunum, en það verður gert innan tíðar. Stálu refog bílum Málmsmiðir stofna samband Síðastliðið ár hafa farið fram viðræður milli Félags járniðnaðar manna, Félags bifvélavirkja, Fé- lags blikksmiða og Sveinafélags skipasmiða um nánara samstarf Samvinnubanka- umboð á Húsavík ÞJ, Húsavík, 14. maí. í fyrradag, 12. maí stofnaði Sam rínnubankinn umboðsskrifstofu á Húsavík. Forstöðumaður skrif- stofunnar er Stefán Sörensson, er jafnframt er sparisjóðsstjóri K. Þ. Umboðsskrifstofan verður fyrst um sinn til húsa í skrifstofu fparisjóðsins, en gert er ráð fyr- ir. að í sumar verði hafizt handa um byggingu fyrir útibú Sam- 'iinnubankans á Húsavík. þessara stéttarfélaga, en sam- starf hefur oft verið með þessum félögum í kjaramálum. Viðræðurnar leiddu til þess að ákveðið hefur verið að boða til stofnunar landssambands málm og skipasmiða, og hafa þessi fé- lög þegar kosið fulltrúa á stofn- þingið. Ákveðið hefur verið að stofn- þingið verði haldið í Reykjavik dagana 30. og 31. maí n. k. Hliðstæðum félögum annars stað ar á landinu hefur veríð boðin þátttaka að stofnun sambandsins og eru líkur til að þátttakan verði almenn. Þessar iðngreinar grípa oft hver inn á annarrar svið, vinnu- staðir eru mjög oft sameiginlegir. Kaup sem greitt er fyrir þessi störf er það sama, en það er viku kaup. Allt þetta hefur undanfarin ár j knúið mjög á um stofnun lands- j sambands þessara iðngreina. Fréttatilkynning frá Félagi járn iðnaðarmanna, Félagi bifvéla-1 virkja, Félagi blikksmiða, Sveina ! félagi skipasmiða. KJ-Reykjavík, 14. maí. | Um miðja síðastliðna nótt kom götulögreglan að tveim piltum sitjandi í jeppabifreið á horni Reykjanesbrautar og Bústaðaveg ar. Voru piltarnir báðir ölvaðir, og jeppinn stolinn. Piltarnir tveir sem eru 18 ára, og hafa ekki ökuréttindi reyndu að stela tveim bílum við Skúlagötuna, en þeim tókst ekki að koma þeim í gang. Úr öðrum þeirra aftur á móti hirtu þeir uppstoppaðan íslenzkan fjalla ref, sem ekki hefur fundizt eig- andi að. Síðan lögðu þeir leið sína upp á Skúlagötu, þar sem þeir stálu fyrrnefndum jeppa, og óku á honum m. a. að veitinga skála vestanvert við Sandskeið ið, brutust þar inn og stálu öli vindlum og sælgæti, en héldu að því búnu í bæinn, og voru að neyta þýfisins, er götulögreglan kom að þeim. Báðir piltarnir eru sjómenn. Sauðburður er að byrja FB-Reykjavík, 14. maí. Sauðburður er nú í þann veg- inn að hefjast um allt land. Hann er hafinn hér sunnan- Iands í nágrenni Reykjavíkur og í Borgarfirði, en í uppsveit um Árnes- og Rangárvalla- sýslu er hann ekki byrjaður og heldur ekki almennt á Aust ur- og Vesturlandi. Víða er gróður orðinn nógu mikill til þess að ekki þurfi að gefa lambfénu, en á ann nesjum norðanlands og vestan verður að gefa fénu með, þótt það sé ekki haft í húsi. • Sauðburður er fyrir nokkru hafinn hér í nágrenni Reykja víkur, og má víða sjá lömb með mæðrum sínum, þegar komið er rétt út fyrir bæinn. Annars er sauðburður seinna á ferðinni víðast hvar úti á landi, en mun þó vera í þann veginn að hefjast.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.