Tíminn - 15.05.1964, Page 15

Tíminn - 15.05.1964, Page 15
Fyrir nokkru opnaði ORKA H.F., Fiat verkstæði að Laugaveg 178. Á verkstæðinu er rúm fyrir sex bíla til viðgerðar, en það er einmitt taiin hentug stærð á bifreiðaver&stæði. Þetta ný|a verkstæði er einkar bjart og snyrtilegt, og skipulagning öll virðist í bezta iagi. Hver bifvélavlrkl hefur sitt borð, verkfæraklstu, virmu- Ijós (óbrjótandi), loftúrtak og sérstakt tæki til að skrúfa af og á feigur og þ. h. Fíatverkstæðinu er ætl- að að framkvæma allar almennar bílaviðgerðir, og auk þess mun það sjá um ýmlss konar „special'* vlðgerðir fyrir vlðskiptavini sína. Verkstæðisformaður er Friðrlk Þórhallsson bifvélavirkiameistarl. Verðlaun í Cannes NTB—Cannes, 14. maí. Franska kvikmyndin „Les Para- pluies de Cherbourg", eða „Regn- hlífarnar frá Cherbourg“, fékk gullverðlaunin á kvikmyndahátíð- inni í Cannes í dag. Sérstök verðlaun dómnefndar- innar fékk japanska kvikmyndin „Suna No Onca“, eða „Konan í klettinum". Verðlaununum fyrir bezta kvikmyndaleik var skipt á milli ítaiska leikarans Saro Urzi fyrir leik sinn í „Sedotte e Abb- andonata" og Ungverjans Antal Pager fyrir leik sinn í ,Aloutte‘. Verðl. fyrír beztan leik í kven- hlutverki, var skipt á milli Bar- bara Barrie og Ann Bancroft, sem báðar eru frá Bandaríkjunum, fyrir leik þeirra í „One Potato, Two Potato" og „The Pumpkin Eater“. „Regnhlífarnar frá Cherbourg“ hefur verið sýnd fyrir fullu húsi síðan hún var frumsýnd í París í íebrúar s.l. Þetta er söngleikur, skrifaður og sviðsettur af Jacques Demy, en nú leikkona, Catherine Deneuve, leikur aðalhlutverkið. Verðlaunin fyrir beztú smá- myndina fengu tvær myndir, „La Douceur du Sillage“ eftir Frakk- ann Francois Reichenbah, og „Verð sigursins" etir Japanann Nobuko Shibua. Sérverðlaun fengu tvœr smámyndir, „Hjálp, snjómaðurinn minn bráðnar", sem er bandarísk, og „Sillages", sem er frönsk. FFSI mótmælir afla- skiptingu á þorskanðt Á fundi í stjórn F.F.S.f. liinn 13. þ. m. var einróma samþykkt að mótmæla ákveðið einhliða fyrir skipun Landssambands íslenzkra útvegsmanna til útgerðarmanna inn að gera hringnótaþorskveiði upp á sama hátt og þorskveiði með lagnetum. Fundurinn er ákveðinn þeirrar skoðunar að aflaskipting sú er sambandsfélögin sömdu um fyrir hringnót á síðustu áramótum gildi fyrir allan þann fisk er aflast í þetta veiðarfæri, enda hafa útgerð armenn gert upp samkvæmt hring nótasamningunum fram til þessa. Karlakórinn Vísir heimsótti Ólafsfjörð BS-Ólafsfirði, 14. maí. Hingað komu góðir gestir s. 1. laugardag, en það var karlakórinn Vísir frá Siglufirði, sem hélt söng skemmtun í félagsheimilinu Tjarnaborg við mjög góða aðsókn. Á söngskrá voru 16 valin lög eftir innlenda og erlenda höfunda. Kórnum og söngstjóra hans, Ger hard Smith, var frábærlega vel tekið og varð kórinn að endur- taka mörg lög. Einsöngvarar með kórnum voru Guðmundur Þor- láksson og Sigurjón Sæmundsson. 26 hljóðfæraleik. aðstoðuðu kór- inn síðari hluta skemmtunarinnar og 10 konur sungu með í tveimur síðustu lögunum, sem voru óperu kórar eftir Verdi. ' 70—80 manns voru á skemmtun inni og færum við Ólafsfirðingar karlakórnum þakkir fyrir þessa ógleymanlegu kvöldstund. Samninganefnd L.f.Ú. sá heldur enga ástæðu til að semja sérstak- lega um þetta atriði á síðustu ára mótum, enda þótt vitað væri að hringnótaþorskveiðar mundu stundaðar á vetrarvertíðinni. F.F.S.Í. hefir borizt og er enn þá að berast almenn mótmæli frá félögum sínum í verstöðvunum út af hinu óeðlilega lága vorsíld arverði og jafnframt er gildandi fiskverði í heild mótmælt sem alltof lá_gu. F.F.S.Í. skorar því á viðkom andi útgerðarmenn að hafa hin- ar einhliða fyrirskipanir L.f.Ú. að engu, en gera upp við sjómennina samkvæmt gildandi hringnóta- samningum. Þá leggur F.F..S.Í. ríka á- herzlu á að ákveðið verði verð á sumarsíldinni áður en sú vertíð hefst, og styður einhuga kröfur annarra sjómannasamtaka í þeim efnum. Stjórn Farmanna og fiski- mannasambands íslands. BARNAVERNDARNEFND (Framhald af 2. síðu). Kristján Benediktsson kvaðst álíta, að of sterkt væri tekið til orða um ólæsi í skólum, en sjálf- sagt væri að óska frekari skýringa og á hverju byggðust ummæli barnaverndarnefndar. Adda Bára Sigfúsdóttir ítrekaði tilmæli sín frá í haust, að kennslu tornæmra barna frá upphafi yrði meiri gaumur gefinn en hingað til og minnti á ummæli Jónasar Pálssonar sálfræðings um brýna nauðsyn þess að efla lestrar- kennslu í skólum. — Var tillag an síðan samþykkt. Frá Alþingi amámi hlutabréf þau í Áburðar- verksmiðjunni h.f., sem eru í einkaeign. Kemur eignarnámið til framkvæmda þegar við gildistöku laga þessara. 14. gr. Þegar lög þessi hafa öðl- azt gildi, falla Mutabréf Áburðar- verksmiðjunnar h.f. úr gildi sem hlutabréf- Eigendur hlutabréfa geta þá þegar í stað framvísað bréf um og krafizt bóta samkvæmt mati. Skal verð bréfanna metið af þriggja manna nefnd, er hæstirétt- ur tilnefnir. Skipar hæstiréttur einn þessara formann, er vera skal lögfræðingur. Nefndin skal miða mat sitt við sannvirði hlutabréf- anna við gildistöku laganna og veita eigendum bréfanna kost á að gæta hagsmuna sinna við mat- ið. 15. gr. Úrskurðir matsnefndar- innar eru fullnaðarúrskurðir um bætur til handa hluthöfum vegna eignarnáms hlutabréfanna, og er hluthöfum skylt að afhenda bréf sín gegn greiðslu matsverðsins auk 7% ársvaxta af matsverðinu frá gildistöku laganna til greiðsludags. 16. gr. Matsnefndin hefur heim- ild til að stefna eigendum hluta- bréfa fyrir sig með opinberri inn- köllun í Lögbirtingablaði, er birt sé þrisvar sinnum. Gefi einhverjir eigendur sig ekki fram innan 4ra vikna frá birtingu síðustu innköll- unar að telja, falla kröfur til end- urgjalds fyrir hlutabréfin niður Gefi þeir sig fram innan fjögurra ári og sanni eignarheimild sína er þó heimilt að greiða þeim andvirði bréfanna. KALSAVEÐUR BS-Ólafsfirði, 14. maí. Hér hefur verið mesta kalsaveð ur, norð- og norðaustan garri með bleytuhríð stundum, og færð yfir Lágheiði hefur jafnvel orðið mjög þung minni bílum. Umferðin hef ur þó ekki teppzt neitt verulega vegna snjóþyngsla og heiðin verið fær öllum bílum nú síðustu daga, en vantar tilfinnanlega víða of- aníburð í veginn. Gæftir hafa verið stopular og hafa smærri bátar vart farið á sjó í lengri tíma. En ef þeir hafa róið, þá hefur afli verið sáralítill, jafnt á færi og línu. Guðbjörgin hættir á línu í þessari viku ef afli glæðist ekki verulega. Bátar, sem fóru á Suð urlandsvertíðina eru flestir komn ir heim og fara nú þegar að búa sig undir sumarsíldveiðina. Þá hafa síldarsaltendur einnig hafið undirbúning á plönum. Sauðburður stendur nú víða sem hæst, en er að byrja hjá þeim, sem seint láta bera. Gengur það eftir atvikum vel, þótt flestar beri inni. Auglýsið í Tímanurn 700 DREPNTR (Framhald af 2. síðu). þeim hernaðarlega mikilvæga vegi, sem liggur á miíli Laos og Vietnam. Þeir telja einnig, að herdeildir hægrisinna hafi verið hraktar til baka af mörgum þúsundum Path- et-Lao-hermanna, sem ef til vill hafi fengíð aukalið frá Norð ur-Víetnam. UNDE Framhald af 2. síðu. Andersson, varnarmálaráð- herra. Samþykkt nefndarinnar fer nú til neðri deildar sænska þingsins, og eru taldar litlar líkur á, að vítur verði sam- þykktar þar á Unden. Fulltrúar Hægri flokksins og Þjóðarflokksins í nefndinni vildu einnig láta samþykkja mildari vítur á Tage Erlander, forsætisráðherra, og Rune Jo hansson, innanríkismálaráð herra, en það var fellt í nefnd inni með 12 atkvæðum gegn 8 AÐSTAÐAN VIÐ ÍJTLÖND Framhald af 1. síðu. ara tveggja ára um 600 millj. kr. versnandi afkomu út á við. Er þá lokið því stutta tímabili hagstæðs greiðslujafnaðar, sem íslendingar áttu við að búa á árunum 1961 og 1962. Þessi miklu umskipti til hins verra í greiðslujöfnuðinum við útlönd komu þó ekki fram í rýmun gjaldeyrisstöðunnar á árinu 1963. Þvert á móti batn aði gjaldeyrisstaðan um 160 millj., og nam nettógjaldeyris- eign bankanna í lok ársins 1.311 millj. kr. Mismunurinn í þróun gjaldeyrisstöðunnar ann- ars vegar og greiðslujafnaðar- ins hins vegar nam nærri 400 millj. kr., og stafar hann af því, hve mikið kom inn af lánsfé á árinu umfram afborganir. — Alls námu erlendar lántökur á árinu 783 millj. kr., en afborg- anir 391 mill.j., svo að skuldir þjóðarbúsins til langs tíma er- lendis hækkuðu um 392 mill j. Fór hér saman, að opinberar lántökur voru óvenju miklar á árinu, en jafnframt jukust lán tökur einkaaðila einnig stór- lega, einkum vegna skipa- kaupa. Stutt erlend vörukaupa- lán hækkuðu einnig ört fram yfir mitt árið, en frá því í sept- ember dró úr vexti þeirra, enda voru settar strangari reglur um notkun þeirra í því skyni að draga úr áhrifum þeirra innan lands. Heildarhækkun slíkra lána á árinu nam 78 millj. kr., en það var mun minni aukning en á árinu 1962“. 24 HLJÓÐFÆRI Framhalc aí 16. síðu. og gaf hljóðfæraverzluninni Rín á Njálsgötu hugmyndina um að kaupa það til reynslu. Stöðugur straumur forvitinna hljómlistaráhugamanna hefur verið í Rín frá því að hljóð- færið kom þangað og munu ein tvö samkomuhús í bænum hafa hug á að kaupa það, en landsmenn fá vonandi að heyra í því bráðlega í útvarpsþætti Svavars Gests. Það væri langt mál, að út- skýra það, hvernig hljóðfæri þetta starfar, en þetta er full komin harmonika, ásamt tón- framleiðanda, útsendara og fótgjöf. í einu vetfangi er svo hægt að breyta harmonik- unni í rafmagnsorgel eða full kominn rafmagnsbassa, þar fyrir utan eru svo hljóðfærin 21, sem hægt er að stæla. Hægt er að láta ein þrjú hljóð færi spila saman í einu, en grundvöllurinn fyrir þessum stælingum, er sá, að fimm að- alraddir eru í orgelinu, þrjú stig af vibrator-breytni í tæk- inu og tvær breytingar á hljóm inum. STOKKSEYRARKIRKJA Framhald af 16. sfSu. nýlega var sett upp í Kópavogs kirkju, og mun dr. Páll ísólfs- son vígja orgelið við hátíðaguðs- þjónustuna 24. maí. Þar að auki hafa kirkjunni borizt ýmsar góðar gjafir, og verða þær teknar í notkun við endurvígsluna. Kirkjusmiðurinn að þessu sinni er Sigurður Sigurðsson í Götu- húsum á Stokkseyri, en hann hef ur m. a. smíðað fsólfsskála dr. Páls ísólfssonar. Kirkjusmiður 1886 var Jón Þór hallsson, en Sigfús Guðmundsson var yfirsmiður, þegar kirkjan var byggð árið 1857. HEYKÖGGLAR Framhald af 1. s(3u. þeim voru svo færðir kögglarnir hácnuðu þeir þá í sig, og vildu þá jafnvel frekar en fóðurbætinn, og þótti Páli þetta merkilegt. Verksmiðja eins og sú, sem er í Gunnarsholti kostar uppkomin 5 milljónir króna. Pálmi Einarsson landgræðslustjóri, sem er í stjórn verksmiðjunnar hefur sagt blað- inu, að til mála hafi komið, að reisa sams konar verksmiðju ann- ars staðar á landinu, en það verði þó ekki gert fyrr en í ljós hafi komið, hvort rekstur hennar borgi sig, og úr því skeri reynslan. Þá væri ekki úr ráði, að verksmiðja yrði sett upp einhvers staðar í nánd við sjó, og væri þá hægt að láta hana vinna heyköggla, sem í væri bæði hey og fiskknjöl sem fóðurbætir, en það getur verk- smiðjan einnig gert. ÞAKKARÁVÖRP Innilegar þakkir færi ég sveitungum mínum, vinum og frændum, börnum og barnabörnum fyrir alla vin- semd mér sýnda á sjötugsafmæli mínu 7. maí s. I. Guð blessi ykkur öll. Helgi Jónasson, Seljalandsseli, undir Eyjafjöllum. Hjartanlega þakka ég öllum, sem sýndu mér vináttu á áttræðisafmæli mínu og gerðu mér daginn ógleyman- legan. Eiríkur Loftsson, Steinsholti. Higinmaður minn, Hans Hagalín Ásbjörnsson, frá BræSratungu, Hvammi, Dýrafirði, andaðist 14. mal s. I. Guðmunda Lárusdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. T í M I N N, föstudagur 15. mai 1964. 15

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.