Tíminn - 06.06.1964, Síða 13
IllíllIffp
/ ■
• ,r . • <•>
-> mmw$.
FERÐIR
I VIKU
BEINA LEIÐ
TIL
LONDON
’. *< '*j
■
„ ‘m
: i
•‘•5*5/ $isSS&&> 'A, 4
M
: v .><
í:;:í;S::
íip
því er gott að cninnast hans nó a8
leiðarlokum.
Ég flyt konu hans og bömujji,
nánustu ættingjum og venría-
mönnuan hmilegar samúðar-
kveðjur.
Blessuð veri minning þessa
ágæta manns.
Hallgrímur Th. Bjömsson.
t
Ég þakka þér, kæri vimur, fyrir
það sem þú varst mér og öðrum
verkamönnum, ekiki sízt sjómönn.
unum. M varst vinur minn og
■cnargra annarra. Það er líkn í
þraut að minnast manngæzku
þinnar, og vináttu þína og góð-
vild skal ég allt af muna, þótt
þú hverfir héðan til æðri heima.
Ég sendi konu þinni, bömum og
öðirum ættingjum samúðarkveðj-
ur.
Guðmundur Snæland.
14 ára drengur
óskar eftir að komast
á gott sveitaheimili.
Uppl. í síma 38225
Stórborgin London er
höfuðsetur lista, mennta
og hefmsviðskipta.
London er brennipunktur flugsamgangná
um allan heim. Við fljúgum 10 sinnum í
viku til Bretlands ( sumar, þar af þrjár
ferðir beint til London. Tíðustu ferðirnar,
þægilegustu ferðirnar, beztu ferðirnar,
það eru ferðir Flugféiagsins.
rem
///?
TIL SOLU
frambyggður þilfarsbátur, 5,5 smálestir, með mjög
góðum útbúnaði, svo sem talstöð, Simrad-dýptar-
mæli, línuspili, gúmmíbjörgunarbát og 16—24
ha Marna-diesel-vél.
Hagkvæmir söluskilmálar.
í síma 50520.
— Upplýsingar
MINNING
Kristinn Jdnsson
vigtarmaður, Keflavík
KRISTINN JÓNSSON, vigtarmað
ur í Keflavík, fæddist í Smiðshús-
um á Miðnesi 2.-3. 1896. Voru fov-
eldrar hans Jón Norðfjörð Tómas
son bóndi þar og kona hans, Sess-
elja Guðmundsdóttir. Var hann
eina bam þeirra hjóna. Nokkurra
ára fluttist Kristinn með foreldr
um sínum að Loftsstöðum í sömu
sveit, og var hann kenndur við
þann bæ alloft síðan, kallaður
Kristinn á Loftsstöðum.
Árið 1918 kvæntist Kristinn eft-
irlifandi konu sinni, Ragnhildi
Stefánsdóttur. Þau eignuðust sam
an 5 börn, Óla Vilhjálm, sem þav
misstu 17 ára garnlan, Jón, tré-
smíðameistara á Selfossi, kvænt-
an Halldóru Björnsdóttur, Loft,
sem fórst 10 ára gamall í brunan-
um mikla í Keflavík á gamlárs-
dag 1935, Sesselju, gifta Þorgeiri
Guð!mundssyni, kaupfélagsstjóra
á Hólmavílk, og Stefán, sem dvel-
ur í föðurhúsum.
Kristinn fluttist með fjölskyldu
sína til Keflavíkur árið 1929. —
Byggði hann þá húsið Kirkjuvcg
1, sem þau hjón bjuggu í æ. síðan.
Á uppvaxtarárum Kristins
gengu fáir ungir menn í fram-
haldsskóla, og gerði hann það ekki
heldur. Hann tók strax að vinna
fyrir sér, og læra í skóla starís-
ins, fyrst og fremst sem sjómaðu'
á opnum skipum fyrst, en síðan á
vélbátum, sem hann átti hlut i
með öðrum jafnöldrum sínum. En
síðustu 20 árin var hann löggiltur
vigtarmaður við Keflavíkurhöfn.
Öll störf leysti hann af hendi af
vandvirkni, nákvæmni og trú-
roennsku.
Kristinn var að eðlisfari dulur
og hlédrægur. Var hann þó félag;-
lega sinnaður, og tók þátt í ým
issi félagsstarfseeni. Hafði hann
trú á samvinnu og samtakamæt-i
fólksins, og vildi hlut þess sem
beztan og farsælastan. Hann va-
einn af stofnenöum og í stjórr.
Verkalýðsfélags Keflavíkur, þess
er ieggja varð þó niður um sinn.
löngum í stjórn Kaupféiags Suður-
nesja, ýmist sem varamaður eða
aðalmaður, og sinnti hann þeim
málum af miklum trúnaði og heil-
um hug. Hann var skoðanafastur
og glöggur á málefni, enda val
máli farinn og ritfær. Veitti hann
því drjúgt brautargengi ýmsum
þeim málum, sem þýðingarmes'-
haía reynzt hans lieimabyggð og
þjóðinni allri.
Kristinn lézt 29. maí s. 1. í
Sjúkrahúsi Keflavíkur, eftir 3ja
mánaða veikindi, sem mannlegu”
máttur ræður ekki við að lækna.
Með honum er farinn einn af
þeim góðu og traustu drengjum,
sem samfélagið hefur aldrei nógu
mikið af. Skin og skúrir skiptust
á í lífi hans, qins og flestra ann-
arra manna. Hann var virtur og
vinsæll af öllum sem þekkta
hann. Hann naut þeirrar ham-
ingju að eiga glæsilega og mikil-
hæfa konu, góð og vel gefin börn,
en tvo drerigina sína missti hann
unga, og myndi sá harmur minu-
isstæður fleiri en honum, sem
svo eru tryggir og heils hugar
sem hann var. Einkum mun hon-
um hafa fundizt sl'úrin dökk, þeg
ar ljúflingurinn Loftur hvarf úr
hópnum. En harminum gat hann
deilt með konu sinni, — eins og
líka daglegri gleði.
Þessi merki maður verður kvadd
ur hinztu kveðju í Keflavíkur-
kirkju í dag.
Valtýr Guðjónsson.
Föstudaginn 29. maí, andaðist á
sjúkrahúsi Keflavíkur, Kristinn
Jónsson vigtarmaður, eftir stutta
en stranga legu.
Kristinn var fæddur 2. marz
1896 að Smiðshúsum á Miðnesi,
sonur hjónanna Sesselju Guð-
mundsdóttur og Jóns Norðfjörð
Tómassonar.
Ólst hann upp með foreldrum
sínum í litlu húsi, er faðir hans
byggði meðan Kristinn var enn
kornungur. Var hús þetta nefnt
Loftsstaðir og hefir Kristinn á-
valt verið við þann stað kenndur,
enda bjó hann þar einnig sjálfur
sín fyrstu búskaparár.
Kris.tinn kyæntist ungur góðri
og glæsilegri konu, Ragnhildi Ste-
fánsdóttur, sem reyndist manni
sínum hinn bezti lífsförunautur.
Þau eignuðust 5 mannvænleg
böm, og eru 3 þeirra á lífi.
Til Keflavíkur fluttust þau hjón-
in árið 1929 og áttu þar heima æ
síðan.
Eiris og flestir Miðnesingar
stundaði Kristinn sjómennsku frá
blautu barnsbeini, fyrst á opnum
bátum og síðar á vélskipum. Hann
var einn þeirra manna, er á sínu-m
tíma réðust í það stórræði, að
stofria til útgerðarfélags og láta
byggja mótorskipið Keflvíking,
stærsta riátinn. sem þá var skráð-
ur í Keflavík. Höfðu þeir félagar
samvinnasnið á útgerð sinni, sem
var hrein nýlunda í þá daga.
Eftir að Kristinn hætti sjó-
mennsku, gerðist hann vigtarmað-
ur hjá Keflavíkurhöfn, og því
starfi gegndi hann af frábærri
skyldurækni og trúmennsku, þar
til nú í vetur, að heilsan bilaði og
hann varð að hverfa af vettvangi
starfsins.
Kristinn Jónsson var sérstæður
persónuleiki, svipmikill og karl-
mannlegur, með þróttmiklar og
heilbrigðar lífsskoðanir. Sam-
vinnuhugsjóninni unni hann og tók
snémma virkan þátt í samvinnu-
starfinu hér í Keflavík, fyrst sem
fulltrúi Keflavíkurdeildar KRON
á aðalfundum og stjórnarfundum
Kaupfélags Reykjavíkur og ná-
grennis. Og eftir að deildin skild-
ist frá KRON og Kaupfélag Suður
nesja var stofnað árið 1945, átti
hann löngum sæti í stjórnum þess,
ýmist sem fyrsti varamaður eða
aðalmaður, og í því sæti var hann
nú.
Á stjómarfundum sýndi Kristinn
ávallt gætni og ríka ábyrgðartil-
finningu. en var þó jafnan hvetj-
andi til viturlegra framfaramála.
Slíkur var allur hans framgangs-
máti grmdvar og heiðarlegur, ogl
__________________________________________ \
T í M I N N, laugardagimn 6. júní 1964 —
L*4